Alþýðublaðið - 22.09.1969, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 22.09.1969, Blaðsíða 8
8 Alþýðublaðið 22, september 1969 „Við eigum öll að vera miðlar“ - segir frú Efhei Meyers, frægur banda- rísbur miðifl sem nú er sfödd hér á landi á vegum Sálarrannsóknarfélagsins „Þetta er engin sérgáfa eða orsaka og afleiðinga eða karma, náðargjöf frá himnum, hvert endurholgun og önnur tilveru- einasta mannsbarn er fætt með svið. En fyrir henni eru þetta þessa hæfileika, en þeir eru blundandi og óvirkjaðir í flest- um, af því að við þjálfum þá ekki eða trúum ekki, að það sé hægt. Við eigum öll að vera miðlar. Ég er á móti því, að miðillinn sé notaður sem eins konar hækja; við eigum að styrkja andlega lífið sem býr innra með okkur sjálfum frem- ur en að halla okkur alltaf að öðrum.“ Frú Ethel Meyers er hæglát og alúðleg kona, þreytuleg eins og mikið hafi á hana reynt. Augnatillitið er sérkennilegt; sumir myndu vafalaust segja, að hún hefði „skyggn augu.“ Hún er frægur bandarískur miðill og hefur verið rannsök- uð af kröfuhörðum . vísinda- mönnum og átt samstarf við marga þeirra, t. d. um fimm ára skeið við parasálfræðilegu rannsóknastofnunina í New York. Fyrir réttu ári kom hún hingað til lands og hélt þá milli 30 og 40 miðilsfundi á vegum Sálarrannsóknafélags íslands, og nú er hún aftur stödd hér í sama augnamiði. Annars er söngkennsla og raddþjálfun hennar aðalstarf, þótt miðils- gáfan hafi í för með sér, að hún verði að skipta sér milli tveggja meginverkefna. J ★ AÐSTOÐ VIÐ JARÐBUNDNA DRAUGA. I „Þetta hefur verið anna- samt ár síðan ég kom í fyrra- haust,“ segir hún. „Auk minna venjulegu starfa er ég að skrifa bók sem Doubleday forlagið ætlar að gefa út. Það verður hálfgerð sjálfsævisaga, blönd- uð ýmsum frásögnum af dul- rænni reynslu og heimspeki þeirra sem ég kalla ,vinina uppi á lofti'. Og það er hagnýt heimspeki, enda tel ég lítið gagn í heimspeki sem hjálpar okkur ekki til að lifa lífinu betur.“ Samkvæmt lýsingum frú Meyers virðist heimspeki „vin- anna uppi á lofti“ vera áþekk dulfræðilegum kenningum svo sem þeim er fjalla um lögmál ekki neinar leiðsögutilgátur, heldur staðreyndir sem hún telúr sig þekkja af eigin raun. Hún fæst mikið við hlut- skyggni og er þá oftast í svo- nefndum „hálftransi“, en fell- ur sjaldnar í djúpan trans eða dásvefn. Hún hefur starfað með vísindamönnum á sviði fornleifafræðinnar og einatt gefið óvæntar skýringar á munum sem fundizt hafa og fólki og atburðum í tengslum við þá. Ennfremur er hún sér- fræðingur í þeirri iðju að hjálpa jarðbundnum draugum að losna burt frá þessu sviði og hverfa til notalegri veru- staða í æðri heimum. í bókinni “Ghost Hunter“ (sem kalla mætti „Á draugaveiðum") eft- ir dr. Hans Holzer, þekktan rannsóknarmann yfirskilvit- legra fyrjrbæra, eru margar hálfdramatískar frásagnir af viðureign þeirra frú Meyers við æsta, reiða og sorgbitna drauga sem nauðsynlegt reyn- ist að sannfæra um, að þeir séu í raun og veru dauðir og eigi alls ekki heima lengur hérna á jörðinni. I ★ ÞEGAR HÚSIÐ FÓR AÐ BRENNA. Hún ólst upp í andrúms-^ lofti hlynntu sálarrannsóknum og dulrænum fyrirbrigðum. Móðir hennar var sjálf gædd miðilsgáfu, og faðirinn var mjög áhugasamur og las mikið um þessi efni. „Ég gerði mér ekki Ijóst, að ég væri gædd neinum sérstökum næmleika. Þó man ég þegar ég lít til baka eftir ýmsum smáatvikum sem sýndu, að ég skynjaði stundum fleira en efnisheiminn einan. Til dæmis minnist ég þess, að einu sinni þegar ég var fjög- urra ára gömul þurfti mamma að skreppa út í búð og kaupa í matinn og varð að skilja mig eftir heima. Hún setti mig upp á stól í eldhúsinu og sagði mér að sitja nú alveg grafkyrr þangað til hún kæmi aftur. Við bjuggum á efstu hæðinni í háhýsi, og það var dimmt í íbúðinni nema smálampi hjá mér í eldhúsinu. Díklega var mamma ekki nema 10 mínút- ur eða svo í burtu, en fyrir mig voru það langar og hryllilegar 10 mínútur — ég varð þess nefnilega vör allt í einu, að húsið var að brenna. Ég heyrði snarkið og drunurnar og sá eldslogana gjósa upp í kring- um mig, og ég var að verða viti mínu fjær af skelfingu. En ég var hlýðið barn og datt ekki í hug að hreyfa mig af stóln- um sem mamma hafði sagt mér að sitja kyrr á meðan hún væri í sendiferðinni. Þegar hún kom, var ég orðin næstum móð- ursjúk af ótta, en hún tók mig í faðminp og hughreysti mig, sagði, að það væri enginn eld- ur í húsinu, og þá sá ég, að hún hafði rétt fyrir sér. En sex árum síðar þegar við vorum flutt á annan stað, kom upp eldur í húsinu og það brann til grunna. Þarna virðist hafa verið um einhvers konar for- skynjxm að ræða; ég hef ósjálf- rátt stillt mig inn á aðra sveiflutíðni og séð þannig fram í tímann“. ★ MAÐÚRINN í SPEGLINUM. í annað skipti var það „andlitið í speglinum“ sem kom ókyrrð á taugar telpunn- ar. „Pabbi var mjög hávaxinn maður, og í baðherberginu hafði hann sérstakan spegil fyrir sig sem hékk svo hátt á veggnum, aÍ5 enginn annar gat séð sig í honum. Ég hafði ó- slökkvandi áhuga á þessum spegli, ég var sannfærð um, að hann hlyti að vera öðruvísi en allir aðrir speglar og eitt- hvað merkilegt að sjást í hon- um ef maður kæmist bara nógu hátt til að horfa í hann. Á endanum fann ég upp á því að draslast með píanóstólinn inn á bað — það var einn af þessum skrúfuðu sem hægt er að hækka og lækka að vild. Ég skrúfaði hann eins hátt og mögulégt var og prílaði svo upp á hann, þó að hann riðaði allur og ruggaði með mig. Fyrst sá ég ekkert í speglin- um nema andlitið á sjálfri mér. En skyndilega breyttist mynd- in, og mikilúðlegt karlmanns- andlit kom í ljós beint fyrir framan nefið á mér. Mér fannst ég eins og límd við glerið og gat ekki hreyft höfuðið, held- ur glápti bara og góndi rneð opinn munninn. Ég gat samt hreyft, fæturna og spriklaði með þeim af ótta við ásjónuna sem starði á mig þögul og svip- brigðalaus. Þá valt stóllinn um koll, ég hrapaði niður á gólf og mamma kom þjótandi þegar hún heyrði gauraganginn. ,Það er maður í speglinum!1 æpti ég af öllum lífs og sálarkröft- um. Og lengi á eftir þorði ég . ekki inn í baðherbergið nema einhver væri með mér, og ég byrgði andlitið í höndunum til að sjá ekki spegilinn. En seinna kynntist ég manninum í spegl- inum betur — það reyndist vera afi minn sem dó þegar pabbi var smábarn og ég hafði aldrei séð.“ ★ ÓSJÁLFRÁÐ SKRIFT. Hún tók atvik af þessu tagi ekki hátíðlega og reyndi ekki á nokkurn hátt að þroska næmleika sinn. „Kannski var ég hálfsmeyk við það, ég veit ekki. Ég fékk líka annað um að hugsa. ég var söngkona þá, og svo giftist ég ungum celló- leikara sem hafði lært í Evrópu. og þótti sérlega efnilegur. Við vorum ákaflega hamingjusöm og lifðum alveg hvort fyrir annað. Hann trúði ekki á dul- ræn fyrirbæri eða líf eftir dauð-

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.