Alþýðublaðið - 23.09.1969, Side 5
Alþýðublaðið 23. september 19G9 5
Alþýðu
falaðið
Iðnaður í sókn
Það leynir sér ekki, að íslenzkur iðnaður er í sókn.
Viku eftir viku hafa borizt freignir af nýjum átökum
í framleiðslu og sölu verksmiðjanina og nýr andi
foj'artsýni ríkir.
Kaupstefna fataiðnaðarins var glæsilegri og leididi
til meiri söl’u en nokkru sinni fyrr. Hin gamla vantrú
á íslenzkum fatnaði er horfin. Hann stenzt saman-
fourð við 'hvað, sem er.
Iðnsýningin í Færeyjum markaði tímamót. Að vísu
éru Færeyjar ekki stór markaður, en (hann getur haft
[þýðingu fyrir okíkur. Færeyingar eru vanir góðum
vörum frá Danmörku og Bretlandseyjum og þeir lýstu
undrun yfir gæðum og fjölbreytni íslenzka iðnvarn-
ingsins.
Sýning húsgagnaiðnaðarin's er enn eitt stórátak,
Bem sýnir stórstígar framfarir und'anfarinna ára,
enda hefur sú iðngrein vafalaust útflutningsmögu-
leika.
Útflutningur á ullar- og skinnavöru hefur aldrei
verið meiri, og nú er hugsað til að selja kuilidaskó úr
landi. Eikki hefði því verið ispáð um skóiðnað okkar
fyrir fáum árum, en með sérhæfingu er þetta hægt.
Jafnvel bílalakk er flútt út frá íslandi.
Allt þetta ber vott um nýjan þrótt iðnaðarins. Er
énginn vafi á því, að síðasta gengisbreyting hefur
stórbætt stöðu iðnaðarins, gert erlenda samkeppnis-
vöru dýrari og skapað útflutningsmöguleika. Er rétt
að minnast þess, að til að hagnýta nútíma tækni verð-
ur undantekningarliítið að framleiða í stærri stíl en
200.000 manna markaður getur tekið við.
Undanfarin ár hafa orðið miklar breytingar á
grundvallarskilyrðum iðnaðar í mörgum grannlönd-
um okkar. Ný tækni og breyttar aðstæður ásamt
Stærri mörkuðum, hafa leitt til þess, að einstaka iðn-
grein hefur hnignað eða hún hætt störfum, enn aðr-
ar hafa blomgazt og nýjar greinar komið til skjal-
anna. Má ekki mæna á það, sem miður 'hefur farið,
jþegar vísvitandi er stefnt að uppbyggingu nýrra iðn-
greina, sem eru miklu meiri og veita miklu fleira
fólki atvinnu.
Bygging álversins er að sjálfsögðu stærsta átak á
sviði iðnaðar, sem gert hefur verið hér á landi. Nú
heyrast ekki raddir þeirra mana, sem börðust gegn
þeirri framkvæmd, heldúr þykir öllum hugsandi
tmönnum sjálfsagt að hraða nýjum virkjunarfram-
kvæmdum og freista þess að koma upp fleiri fyrir-
tækjiun í orkufrekum iðnaði. Þar á meðal verður án
efa mikil stæ'kkun áburðarverksmiðjunnar, sem lengi
hefur verið undirbúin.
Framtíðarafkoma íslendinga byggist á hraðri og
hagstæðri þróun iðnaðar af öllu tagi, fiskiðnaðar, nið-
ursuðuiðnaðar, matvælaiðnaðar. ullar- og 'skinnaiðn-
aðar, efnaiðnaðar, málmiðnaðar og svo framvegis.
Þjóðfélagið á eftir að gera margt til að stuðla að
þeirri þróun, en síðustu vikurnar hefur stefnt mjög
iréttaátt.
Fmntvasmdsstjárl:
I»órir SinwmiilMM»
Bitstjóri:
Krútján Ыni ÚUIssoa UbJ
FrítUitjóri:
Sicnrjáa Jéhmastm
Anglýsinp»tJ4ri:
* Slgnrjón Ari SiforjóiUMa
ÚtfefaacU:
Nfja íitgiíafflagiB
FrcnamiSja MMSubhMan
Skólinn að
Löngumýri 25 ára
□ Hinn 1. október n.k. verS-
ur Húsmæðraskóli kirkjunnar,
Löngumýri settur í 26. sinn.
Skólasetningin verður jafn-
framt 25 ára afmælishátíð skól-
ans og þar munu eldri sem
yngri nemendur og velunnarar
skólans mæta til að minnast
þessara merku tímamóta.
Svo sem kunnugt er stofnaði
frk. Ingibjörg Jóhannsdóttir
skólann á föðurleifð sinni. Hún
rak hann sem einkaskóla hátt
á annan áratug, en árið 1962
afhenti hún skólann Þjóðkirkj-
unni að gjöf. Frk. Ingibjörg
stjórnaði skólanum sjálf þar til
fyrir tveimur árum að írk.
Hólmfríður Pétursdóttir tók yið
en frk. Ingibjörg lét af störf-
um vegna variheilsu.
Frk. Ingibjörg grundvallaði
skóla sinn í upphafi á mikilli
reynslu og þekkingu og lagði
áherzlu á að gefa nemendum
skóla síns trausta, alhliða
menntun. Þeirri stefnu hefur
trúlega verið fylgt alla tíð. Og
Húsmæðraskóli kirkjunnar á
Löngumýri stendur í dag í
fremstu röð íslenzkra húsmæðra
skóla. Hann kenriir allar grein-
ar húsmæðranámsins, en auk
þess eru kennd kristinfræði.,
Lögð er áherzla á að verið er.
að móta verðandi húsmæð’jr
og mæður til hins vandasama
hlutverks, sem þeirra bíður í
þjóðfélagi nútímans.
Og nú á þessum merku tíma-
mótum er gleðilegt til þess að
vita, að vel er að skólanum.bú-
ið til þess að hann megi þjóna
þessu hlutverki. Húsnæði skól-
ans hefur verið endurnýjað og
lagfært og er hlýlegt og aðlað-
andi. Ennfremur er verið að
leggja grundvöllinn að nýjum
byggingum, heimavist, er verð-
ur fyrsti hluti nýs skólahúss.
Og enn sem fyrr hefur skólinn
ágætum kennurum á að skina.
Eldri sem yngri nemendur
og velunnarar skólans eru vel-
komnir að skólasetningunni og
hefur nemendasamband skólans
í huga að efna til hópferðar úr
Reykjavík. Þeir, sem hugsa íér
að notfæra sér þá ferð evu
beðnir að hafa samband við frk.
Sigurlaugu Eggertsdóttur, Skip
holti 53, Reykjavík, en aðrir
eru beðnir að tilkynna skóla-
stjóra komu sína. —
Bifreið ekið á hús
Reyki avik — HEH
□ í gæríkvöldi vildi það slys
til 'á Alkureyri, að biifreið var
ekið á hús þar í bæriuim. Einn
maður var í bifreiðinni og er
talið, að hann hiafi veilkzt
slkyndileiga og fengið aðsv'f.
Maðurinn var á leið heim til
sín frá vinnu sinni, Bifre'ðin
slkemmdist ndklkuð við árelkst
urinn, en maðurinn var lagð
ur inn á sjúkrahús. —
Skrifstofusiúlka
óskast við bókhald. Verzlunarskóla- eða
Samvinnuskólamenntun æskileg. Laun skv.
launakerfi opinberra starfsmanna.
Umsóknir ásamt upplýsilngum um menntun
og fyrri störf sendist fyrir 30. þ.m.
Skrifstofa Rannsóknastofnana
atvinnuveganna,
Skúlagötu 4.
Tilboð óskast í lögun lóðar Á.T.V.R. við
Dragbáls. Um er að ræða jöfnun lóðar, girð-
ingu, malbikaða vegi, gras'fleti, gróðurreiti
og framræslu.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri
gegn kr. 1.000,— skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð mánúdáginn 29. sept-
ember n.k.
Náimsflckkar Reykjavíkur taka til starfa um
n.k. mánaðamót/
Imnritun hefst 26. september n.k., o'g verður
nánar auglýst þann dag.
Upplýsingar eru veittar í fræðsluskrifstofu
Reykjavíkur, Tjamargötu 12, sími 21430.
TILKYNNING
Vér viljum hér með vekja athygli heiðraðra
viðskipatvina vorra á því, að vörur, sem
liggja í vörugeymslúhúsum vorum, em ekki
tryggðar af oss gegn bruna, frostum eða öðr-
um skemmdum og ’liggja því þar á ábyrgð
vörueigenda.
H.F. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS.