Alþýðublaðið - 01.11.1969, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 01.11.1969, Blaðsíða 1
©g □ Gistiverð í íslenzkum gisti húsum hækkar mánuðina maí- september um 20%, en 10% aðra mánuði. Er þetta árang- ur samningaviðræðna milli Sambands veitinga- og gisti- húsaeigenda annars vegar og samgöngumálaráðuneytisins hins vegar ,en sem kunnugt er hafði SVG fyrirhugað meiri hækkanir yfir sumarmánuðina, en með þessu er tímabilið sem sumarverðið gildir, lengt. % Hækkun þessi hefur í för með sér um 4% hækkun á al- gengri IT-ferð til íslands. Aðr- ar almennar hækkanir eru ekki fyrirhugaðar að óbreyttum að- stæðum, en Konráð Guðmunds son, hótelstjóri á Hótel Sögu sagði í viðtali við blaðið í gær, að ef um hækkun á matvælum eða launum starfsfólks gisti- og veitingahúsa yrði að ræða hækkaði þjónusta húsanna, önn ur en gisting, sem því næmi. — „Ekki einblína á gólfiff, heldur horfa beint fram. Og svo máttu gjarnan brosa.“ Þaff er frú Unnur Arngrímsdóttir aff leiffbeina um fallegan lima- burff, þegar gengíff er niffur tröppur, en í opnunni er sagt frá Snyrti- og tízkuskólanum nystofnaffa. (Mynd: Gunnar Heiðdal) Mest saltað í Keflövlk Reykjavík VGK □ Heildarsöltun suðvestur- landssíldar í haust nemur sam- tals 58.659 tumium, samkvæmt upplýsingum sem hlaðið hefur fengið hjá síldarútvegsnefnd. Síldarsöltun fór fram á alls 19 höfnum á Suðvesturlandi og Austfjörðum. Hæsti söltunar- staðurinn er Keflavík, en þar voru saltaðar 8.771 tunna. Næst kemur Grindavík með 7.618 tunnur og Akranes með 6.432 tunnur. Undanfarna daga hef- ur engin síldveiði verið, enda ekki gefið á sjó. Suðvesturlandssíldin fer til ýmissa. ianda og eftinspurn eft- ir síld er mikil nú. Stór hluti síldarinnar, eða um helmingur er heilsaltaður og hluti hennar verður flakaður og er flökun u. þ. b. að hefjast á nokkrum höfnum, enda er elzta síldin orðin nægilega verkuð til flök unar. Síld þessi er minni en norðurlandssíldin og fara að' jafnaði 6—800 stykki í tunnu, en 3—400 af norðurlandssíld. 67 þúsund tunnur af Shet- landseyjasíld voru saltaðar í sumar og hefur allt það magn verið selt til Rússlands, Sví- þjóðar og Finnlands. Er nú ver ið að ljúka afskipun á síldinni. □ Þarna er maffurinn hakkaffur í spað. brosmildur á svip, með blóm í höndum. Kannski á þetta aff vera táknrænt: Hakkavélin listgagnrýn endur aff hakka listamanninn í spaff. Ef verk mannsins á mynd- inni eru ekki lakari en þessi sam setning, þarf hann engu aff kvíða en þetta er mynd á boðskorti, sem Magnús Tómasson sendi. út, en hann opnar í dag sýningu á 30— 40 verkum í Gallerí SÚM en sýning in verffur opin frá kl. 4—10 í hálfan mánuð. íslenzkt leikril 'BÖRN ÐAUDáNS í útvarpinu: Fimm króna kaup hjá höfund i Reykjavík — VGK □ „Börn dauðans“, nýtt ís- lenzkt framhaldsleikrit fyrir útvarp eftir Þorgeir Þorgeirs- son hefst á morgun kl. 4 í út- varpinu. Leikritið er byggt á heimildum um morðið á Natan Ketilssyni á í4luSastöðum Á Vatnsnesi, Húnavatnssýslu, ár- ið 1826, en morðingjar Natans voru teknir af lífi 12. janúar 1830 og var það síðasta aftaka á íslandi. Þorgeir upplýsti í gær, að hann hefði unnið að gerð leikritsins í 5 ár, haft hana að aðalstarfi í 3 ár og launin fyrir verkið væru kr. 5 á klst,, miðað við 300 vinnustundir á mánuði. Tók Þorgeir þetta fram vegna þess að á blaða- mannafundinum kom til um- ræðu ný og bætt íeglúg'erð um aukna greiðslu ríkisútvarpsins til rithöfunda, fyrir verk er út varpið flytur efíir þá. „Við erum óskaplégá hrifin af þessu verki og það hefur verið óskaplega gaman að vinna við það’‘, sögðu leikararnir einum rómi í gær. Þorgeir Þorgeirsson hefur kvnnt sér mjög ítarlega heim- ildir um efni það sem leikritið fjallar um, einkum dómsskjöl um málið. — Þá hefur hann á Landsbóka- safninu legið yfir rituðu máli um þetta fræga sakamál, sem svo mikið hefur verið skrifað um og orkað hefur á ímyndun- arafl fólks í landinu í þau rúm 140 ár sem liðin eru frá því Natan Ketilsson var myrtur. Framhald bls. 4

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.