Alþýðublaðið - 01.11.1969, Page 2

Alþýðublaðið - 01.11.1969, Page 2
2 Al'þýfiublaðið 1. nóvember 1969 BARNASÍÐAN Umsión Rannveig Jóhannsdóttir Þessa skemmtilegu mynd sendu Þórgunnur 6 ára og Magga 8 ára. jÞær fá báðar senda Molaveifu að launum. Yerðlauna- krossgáta Lárétt; 1 jurt — 4 Skyldir stafir — 5 belti — 6 Slæmi. Lóðrétt: 1 Naut — 2 Litlir ullarhnoðrar — 3 Flugustrákur í Alþýðublaðinu — 5 Eins og 5 lárétt. Kæra barnasíða. Ég sendi þér litla krossgátu, sem ég vona að ungu lesend- urnir geti ráðið. Ef þau lenda í vandræðum finnst mér ekki nema sanngjarnt að pabbi og mamma hjálpi til. Með beztu kveðju. — G. Ó. ! Við þökkum G. Ó. kærlega fyrir og ætlum að verðlauna 3 krakka, sem senda rétta ráðningu. Ráðningar skulu hafa borizt fyrir 1'5. nóvember. — Utanáskriftin er; Bamasíða Alþýðublaðsins, pósthólf 320. i l , I 1 i 3 *f ■ * 6 OKKAR Á MIIJJ SAGT t Halló krakkar! Nú er ein vika liðin af vetrinum, og þið auðvitað komin í vetrarstemningu. í skólanum er nóg að gera, og ég veit, að ykkur finnst ekki síður gaman á vet urna en á sumrin, þó að munurinn sé mikill á þessum árstíðum. Á veturna gerið þið svo margt, sem hreinlega enginn tími V gefst til að sumrinu. Því það eigið þið að nota til að vera sem piest úti að leika ykkur. Eins og þið vitið virka dagarnir styttri á veturna, vegna þess að þá dimmir fyrr. Og á kvöldin, þegar dimmt er orðið, og engir krakkar mega vera úti lengur, er alveg upplagt að setjast við að teikna eða rifja upp gát- ur og skrýtlur og m.>gt annað, sem ykltur hefur verið sagt, og þið haldið jafnvel, að þið séuð búin að gleyma. . Við skulum því efna til SKRÝTLU- IvEPPNI, sem verður þannig, að þið safnið 5—6 skemmtilegum skrýtlum. Þið ráðið því alveg sjálf, hvort þið verðið ei.i eða í félagi við systkini ykk- ar, skólafélaga eða vin. Þegar þið hafið safnað skrýtlunum, skuluð þið senda þær til BARNASÍÐ- UNNAR, innan 14 daga. Veitt verða verðlaim ' fyrir beztu skrýtlurnar, en auk þess munu flestar skrýtlurnar, sem inn koma, birtast á síðunni ykkar, ásamt nöfnum send- endanna. Gangi ykkur nú vel, Ykkar 1 Rannveig. Til hamingju með afmælið Ævinlýri Benna Bangsa í dag er fyrsti dagur nýs mánaðar, nóvembermánaðar. Ég ætla því að biðja yfckur krakkar, sem eruð 10 ára og yngri, og áttuð afmæli í október, að fylla út eyðublaðið hérna fyrir neðan, og senda það til Bamasíðunnar, merkt „Afmælisböm.“ Síðan verða dregin út nokkur nöfn. Og þau heppnu fá smá af mælisgjöf frá Alþýðublaðinu. Ég varð .... ára .... október. Nafn ................. Heimili Sími 1. Frú Kanína á afmæli í dag, 2. og Benni færir henni af- mælisgjöf. Hún er mjög glöð og spennt. Frú Kanína tekur upp pakk ann og finnur þar þessa Iíka stóru og finu matreiðslu- bók. En liún er samt ekki ánægð. Hver á hvað! iHér eru átta myndir af mis- munandi persónum. Og fyrir neðan sjáið þið marga ólíka hluti. Hver hlutur á þó að til- heyra einni ákveðinni persónu. Getur þú séð hver á hvað? Þegar þú hefur fundið hvaða hlutur á við einstaka persónu, skaltu skrifa lausmina á blað ásamt nafninu þínu og heimil- isfangi, og senda bréfið til Barnasíðu Alþýðublaðsins, Pósthólf 320. En þú verður að senda lausn- ina innan 14 dága frá og með deginum í dag (1. nóv.). 3. Allt í einu fer hún að há- gráta, og segir snöktanði, — „ó, Benni, ég kann ekki að lesa.“ 4. „Allt í Iagi,“ segir Bennl. „Fað skal ég kenna þér.“ Nú er frú Kanína glöð. — Og kennslan byrjar strax. ii il

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.