Alþýðublaðið - 29.11.1969, Page 2
ÍifiÉÍ
lill
g
ý-MÚ
Z -
iiii
■:: •;
'y.-'-, > «:
..... V •:•:•• ••
•?? ’ '•: <■' ■<•£
□ -Þó að enn sé töluverður
tími til jóla, eru margir byrj-
laðir á ýmiss konar jólaundir-
búnjngi, og ekki veitir af, því
að tíagarnir í jólamánuðinum
viljá vera svo fljótir að líða!
Allir vilja gera eitthvað fallegt
fyrit jólin, og það er sannar-
lega líka af nógu af taka.
Ég ætla að segja ykkur hvern
ig þið getið sjálf búið ykkur
til jólaalmanak. Þið þekkið öll
jólaalmanökin sem hægt er að
kaupa í búðum en það er mik
ið skemmtilegra að búa þau til
sjálf.
Efni: 1. teiknipappír stærð
76x46, litur hvítur (fæst m. a.
í Pennanum). 2. Lím. 3. Þekju-
litiit vatnslitir, eða venjulegir
vaxiitir. 4. Klippa út myndir
■af gömlum jólapappír.
Stærð trésins: Hæð um 38
cm. Efst um 8—10 cm. Neðst
um 35—40 cm. Stærð hvers
glugga um 5x5 cm.
Búið til snið með því að
brjóta tvöfalt umbúða- eða dag
blaðapappir og teiknið snið
jólatrésins. Klippið sniðið út
og leggið á helming teiknipapp
írsins (örkinni skipt í tvennt),
og leggið miðju við miðju og
teiknið eftir jólatrésforminu.
Klippið siðan út.
Teiknið á jólatréð glugga um
5x5 cm á stærð á víð og dreif
um tréð og klippið (skerið) þá
þannig að þeir opnist. Leggið
síðan jólatréð á hinn hluta ark-
arinnar, teiknið fyrir útlínum
þess og merkið fyrir gluggun-
um. Undir hvern glugga er
hægt að teikna eða líma t. d.
jólabjöllur eða kerti af gömlum
jólapappír og líma undir glugg
aran.
Einnig er hægt að teikna
fjölda smámynda á pappírinn
(þarf ekki að vera nákvæm-
lega undir gluggunum) svo að
þegar giuggi er opnaður, er
gaman að sjá hvað kemur í ljós
t. d. gæti komið hálfur jólá-
•sveinn. Þegar búið er að út-
búa myndir fyrir gluggana,
límið þá stykkin saman og iát-
ið útlínur mætast. Litið síðan
jólatréð með þekjulitum, vatns
litum (tvisvar sinnum) eða
venjulegum vaxlitum. Skreytið
síðan jólatréð eftir vild og lát-
, ið hugmyndaflugið ráða. Mun-
ið að dagsetja gluggana.
Á toppi jólatrésins er hægt
að útbúa stjörnu, sem er opn-
uð á aðfangadagskvöld. Þið get
ið notað kork, tré með rauf í,
eða leir eða eitthvað annað. —
Gangi ykkur nú vel. —
□ Hér birtast fyrstu skrýtlurnar
úr skrýtiukeppninni. Þær eru frá
Unni Ingadóttur Bor^arbraut 46,
Bcrgarnesi.
Unnur! Eg ætla að hrósa þér
fyrir reglulega vel skrifað og snyrti
legt bréf.
Móðirin: Hvað ætlar þú að
gera við gullin þín, Gunna
mín, þegar þú verður stór
og hætt að leika þér að
þeim?
Gunna: Þá ætla ég að gefa
börnunum mínum þau.
Móðirin: En ef þú eignast
engin börn?
Gunna: Þá barnabörnunum.
Lítil stúlka átti bróður,
sem kunni ekki að ganga, en
skreið á gólfinu. Einu sinni
kom hún þjótandi til mömmu
sinnar og sagði: „Nei, mamma
hann litli bróðir er farínr»
að ganga á afturfótunum.“
Frændi (í heimsókn, er orð-
inn svangur); Hvenær borð
ið þið miðdegismatinn
hérna, Emma litla?
Emma: Mamma sagði, að það
yrði borðað undir eins og
þú værir farinn.
Halli: Ég á nýja treyju —
það átt þú ekki.
Siggi: Nei, en ég á nýja húfu
en það átt þú ekki.
Halli: Nei, en pabbi min-^a
nýja byssu, það á pabbi
þinn ekki.
Siggi hugsar sig um litla
stund og segir svo sigri
hrósandi: Nei, en á morgun
verður amma mín jörðuð,
það verður þín ekki.
Andri: Blessaður, hafðu. e}íki
orð á því, sem ég var að segja'
þér, það er leyndarmál, sem
Framh. á bls. 11
2 Alþýðublaðið 29. nóvember 1969
BÁRNASÍÐAN
Umsjón Rannveig .Tóhannsdóttir
Hér eru tvær skemmtilegar myndir frá lesendum. Myndina til vinstri gerði
Hjördís Gunnlaugsdóttir 5 ára frá ísafirði og hina myndina gerði Birna Rósa
Gestsdóttir í Neskaupstað. Þær fá báðar þakkir og bráðlega bréf frá okkur.
- EFSr
Klíppjfsr
(?LUCr(rÍ
ForueluH