Alþýðublaðið - 29.11.1969, Page 16
Alþýðu
blaðið
29. nóvember 1969
Skotið
út um
gluggann
□ Það er cft freistandi aS horfa
út um gluggann í vinnutímanum.
Og satt bezt að segja: Það ganga
oft mestu fyrirmyndarmenn og
konur fyrir gluggann. Því var það
að sú hugmynd skaut upp kollin-
um að hefja skothríð út -um glugg
ann (nei, nei, með myndavél auð
vitað) og festa þetta merkisfólk á
filmu. Þannig varð þetta saklausa
fólk á götunni fyrir skoti úr ,mynda
vélinni með aðdráttarlinsunni, al
gjörlega þó án sársauka og meira
að segja án þess að hafa hug-
mynd um það, með einni undan-
tekningu. Og hér er afrakstur fag-
urs haustdags við gluggann, með
myndavél með aðdráttarlinsunni,
kominn á baksíðuna með glæsi-
brag, að sjálfsögðu, og sjáið bara
hvað þið takið ykkur miklu betur
út, þegar á ykkur er skctið án vit
undar, með einni undantekningu.
Á myndunum eru: nr. 1. Sighvat
ur Björgvinsson, ritstjóri Alþýðu-
blaðsins, nr. 2. dr. Gunnar G.
Schram, nr. 3. Óskar Haligrímsson
nr. 4. Runólfur Þórarinsson, hjá
menntamálaráðuneytínu (sá í frakk
anum) nr. 5. Agnar Þórðarson, rit.
höfundur, nr. 6. Ríkharður Páls-
son, blues sérfræðingur m.m., nr.
7. Jón Eyjólfsson, sendiboði Þjóð
leikhússins og nr. 8 Guðrún Egil-
son, blaðakona á Þjóðviljanum. —
ATH.: Ómerkingarnir eru engir ó-
merkingar, heldur er ekki vitað
um nöfn kvennanna, en myndirnar
eru ekkert verri fyrir það.
(Ljósm. VGK).
n
V*
8