Alþýðublaðið - 23.05.1968, Qupperneq 2
TOYÐ ÍBFAMH'
K*™* B^SÍ ÓIafsson (áb-> °S BenediKt Gröndal. Símar: 14900 -
p490,3: Aug^smgasimi: 14906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið við Hverfisgötu.
fonni,avík‘Í~ Prentsmiðja A1Þýðublaðsins. Sími 14905. — Áskriftareiald kr
120,00. - f lausasölu kr. 7.00 eintakið. — Útgefandi: Nýja útgáfufélagið hf!
ÍSBRJÓTUR
Ríkisstjórnin hefur nú ákveðið
að láta gera nýjar tilraunir til
að rjúfa einangrun þeirra
byggða, sem hafísinn hefur lok-
að. Horfir til vandræða á mörg-
um stöðum, en horfur á að ísinn
hverfi frá landi eru vægast sagt
ekki góðar.
Rætt hefur verið um að fá leigð-
an ísbrjót til landsins. Þarf sjálf
sagt að gera þá tilraun, enda þótt
ýmsir óttist, að slík skip geti ekki
rofið þann ís, sem hér fyllir firði.
ísbrjótar enx yfirleitt gerðir til
'að brjóta lagnaðarís með því að
renna sér upp á hann. Virðist
satt að segja vafasamt, að sú að-
ferð dugi við rekaís, sem oft er
meiri neðan við sjávarmál en of-
an. Ennfremur er talin hætta á,
að renna, sem kynni að myndast,
gæti fljótlega lokazt, þar sem
lausa jaka mundi aftur reka sam
an.
Þrátt fyrir óvissu er sjálfsagt
að gera tilraunina. Ef svo hörmu-
lega fer, að fleiri ísaár fylgja á
eftir þessu, er nauðsynlegt að
vita, hvaða aðferðir koma að
gagni. Eru þau vandræði, sem nú
eru framundan, raunar ærið til-
efni.
Opinberir aðilar bafa því lát-
ið í Ijós við Bandaríkjamenn ósk
um að fá einn af ísbrjótum amer-
íska flotans. Er það skip nú í við-
gerð í Boston, en á að fara til
Suðurheimskautsins í sumar. Er
beðið með nokkurri eftirvænt-
ingu svars um, hvort þetta skip
fáist til að koma hingað og reyna
að opna leið til lokaðra hafna
fyrir norðan og austan.
Auk tilraunar með ísbrjót hef-
ur ríkisstjórnin ákveðið að láta
eitt af (varðskipunum reyna að
komast með eldsneyti til Norð-
fjarðar. Loks verður reynt að
nota flugvélar meir en hingað til
við að leiðbeina skipum, sem
sigla um ísinn.
Þrátt fyrir hrikálegar frétta-
inyndir og ítarlegar frásagnir frá
þeim byggðum, sem enn búa við
algert vetrarríki og eru innilok-
aðar af ís, mun fólk á hinum ís-
lausú svæðum landsins eiga erf-
itt með að gera sér í hugarlund,
hvað hér er að gerast. Ein sú land
plága, sem í sögunni hefur reynzt
íslendingum verst, hefur lagzt á
fæplega helming landsins, meðan
annað landsfólk nýtur seinbúins
en velkomins vors. Fjárhagstjón
er þegar gífurlegt og getur orðið
miklu meira. Fer því ekki hjá því,
að þjóðarheildin — og þá alveg
sérstaklega fólkið á íslausu svæð
unum — verði að taka á sig
byrðar vegna þessarar ógæfu.
Loftslag hefur verið bafnandi
á íslandi undanfarna áratugi,
þótt það hafi verið hlýrra fyrr í
jarðsögunni. Þetta hefur samfara
menntun og tækni gert líf fólks-
ins þægilegra en íbúar þessa
lands hafa kynnzt um aldir. En
hvernig erum við undir það bú-
in, ef aftur kólnar um sinn?
VÍÐ
M0T—
MÆLPM
HYGGINDI, SEM
í HAG KOMA
ÞaÖ verður seint brýnt um of
'fyrir fólki að fylgjast vel með
vöruverðinu, kynna sér verð-
lagið á fleirum en einum stað
áður en kaup eru ráðin. Með
því má í ýmsum tilvikum
spara sér margan skildinginn.
Ég skal nefna dæmi. Ég þurfti
að fá mér lítið gastæki, ferða
tæki, sem um skeið hafa feng
izt hér í búðum og gefizt vel,
gaskúturinn eða fyllingin end
ist tvo til þrjá tíma, ef látið
er loga fullt.
Ég fór í fjórar ferðavöru-
verzlanir í Miðbænum, sem
eru hver í nágrenni við aðra,
þar sem þessi gastæki feng-
ust, og spurðist fyrir um verð
ið, tegundin var allsstaðar hin
sama, stærðin sömuleiðis.
★
í fyrstu verzluninni, sem ég
fór í, kostaði gastækið kr.
445.00. í annarri kostaði það
kr. 400.00. í þeirri þriðju kr.
315.00. í þeirri fjórðu kr.
303.00. Þetta var í öllum til-
vikunum verðið á gastækjun-
um sjálfum án fyllingar. En
Punktar
Ostur og annar iðnaður
ÞAU tíðindi hafa borizt frá'
Hveragerði, að sérstök ostagerð,
sem þar hefur starfað á annað
ár, hafi hætt störfum vegna fjár-
skorts. Sem betur fer fylgir frétt-
inni, að ekki hafi verið um neina
óreiðu að ræða á fjármálum
fyrirtækisins, og er það á sína
vísu lærdómsríkt, að slíkt skuli
þurfa að taka fram hér á landi.
Virðist reksturinn hreinlega
ekki hafa borið sig.
Þetta eru sorgleg tíðindi. —
Margir góðir menn hafa hirt síð-
ari áh lagt sig fram um að auka
fjölbreytni landbúnaðarfram-
leiðslunnar, ekki sízt ostanna.
Hefur þessu framtaki verið vel
tekið og það jafnan vakið gieði,
er nýr Camembert, Port Saiut
eða Ambassador ostur hefur kom-
ið á markaðinn.
Nú herma fregnir, að vara frá
Hveragerðisbúinu hafi líkað vel
og sala verið góð. Þetta kann að
vera rétt, en ekki munu allir
ostavinir vera sammála fyrra at
riðinu. Það er því miður stað-
reynd, bæði um Hvergerðingana
og önnur mjólkurbú, að gæði
íslenzku ostanna eru svo mjög
misjöfn, að það hefur spillt stór-
lega fyrir sölu þeirra. Venjulega
hafa ostarnir verið góðir í
fyrstu og vakið gleði. En því
miður hefur ekki verið hægt að
treysta því, að sams konar ostur
fáisL aftur. Hver sending hefur
virzt ólík annarri og yfirleitt
farið versnandi eftir því sem
frá hefur liðið.
Þessi galli er að vlsu ekki á
ostum einum hér á landi, held-
ur er mikill hluti íslenzkrar
framleiðslu þessu marki brennd-
ur. Varan er svo kæruleysislega
framleidd, að ekki er unnt að
tala um föst og varanleg gæði.
Mætti nefna mörg dæmi um þetta
og þarf þá ekki frekar vitnanna
við. Fólk hættir að kaupa slíka
vöru.
Neytendur osta telja ekki, að
búið í Hveragerði hafi verið
verra en önnur í þessum'efnum.
Þessi galli fylgir þeim, sem
stærri eru og halda velli í sam-
keppninni. En þeir ættu að taka
gagnrýni alvarlega og sjá til
þess, að dýr ostur, sem þeir
selja undir föstu vörumerki, sé
ekki bragðríkur og góður eina
viku en bragðlaus með öllu þá
næstu. Það eru dýr vonbrigði,
sem ekki gleymast, þegar ost-
stykkið kostar 50—100 krónur.
íslenzkur iðnaður heldur nú
uppi söluherferð. Fólkið vill
kaupa vörur hans, en þœr mega
ekki vera eins misjafnar að gæð-
um og raun ber vitni á mörgum
sviðum.
Norrænir
bygginga-
dagar
NORKÆNN byggingardagur
verður haldinn hér á landi dag
ana 26. - 28. ágúst í sumar. Þátt
takendur verða um 1000, þar af
7-800 frá hinum Norðurlöndun-
um. Hverri ráðstefnu þessarar
tegundar er valið ákveðið verk-
efni. Aðalefni byggingardagsins
hér, sem er sá 10. í röðinni verð
ur „Húskostur" (Boligform).
Byggingardaginn sækja full-
trúar allra greina byggingariðn-
aðarins á Norðurlöndunum fimm,
svo sem fulltrúar þeirra stjórn
valda og stofnana er með bygg-
ingarmál fara í hverju landanna,
ásamt sveitarstjórum, samtökum
í verzlun og byggingariðnaði.
Sameiginlegar ráðstefnur eru
haldnar þriðja hvert ár, til skipt
is í löndunum fimm, og verkefni
þeirra eru helztu vandamál bygg
ingariðnaðarins á hverjum tíma
og þróun byggingarmála. Er
þe'tta í fyrsta sinn, sem þessi ráð-
stefna er haldin á íslandi.
Hér á landi standa 25 aðilar
að ráðstefnunni, og fulltrúaráðið
er skipað einum fulltrúa frá
Framhald á 14. síðu.
fyllingarnar kostuðu í fyrstu
verzluninni kr. 30.00. en í hin-
um stöðunum kr. 22.00. Ég vil
sérslaklega taka fram, að eng
in þessara verzlana, sem ég
fór í, var Haekauo, ég veit
ekki einu sinni, hvort hún
verzlar með siíkar vörur. E£
til vill hefð> ée fengið fleiri
prísa á bessu á«æta tæki, hefði
ég lagt ieið rrnna í fleiri verzl
anir, en bað mun vera nokkuð
víða á boðstólum.
★
Þett.a er aðeins eitt dæmi aí
mörgum um mismunandi vöru
verð ,í verzlunum í bænum
Þeir, sem ekkert leita fyrir
sér, en lát.a filviliunina ráða,
geia bess vegna aiveg eins lent
á hæsta og lægst.a verðinu.
Nú vil ég engu slá föstu um
ástæðuna fvrir bessum verðmis
mun. hvort t.d. er um mismun
andi innkaunsverð að ræða
eða mismunandi verzlunará-
lagningu, á bví kunna aðrir
betri skil, enda skintir það
ekki máli fyrir kaupandann,
bótt bað sé að vísu nokkurt
fróðleiksat.riði. Það sem skipti*
kaunandann máli er hvað hanri
barf að greiða margar krónur
fyrir vöruna, hvað hún kostar.
★
Að sjálfsögðu verður ekki
fylgzt að gagni með vöruverð-
Framhald á bls. 14.
2 23- maí 1968
ALÞÝÐUBLAÐIÐ