Alþýðublaðið - 05.01.1970, Blaðsíða 13

Alþýðublaðið - 05.01.1970, Blaðsíða 13
Rilsfjóri: Örn Eiðsson Nýársmót HKRR m helgina: FH sigraði 2. deildar- lið ÍR í lírslitum 13:8 Nýársmót í handknattleik vai- í fyi'sta sinn haldið á vegum HKRR um helgina. Þátttökufé- lög voru úr Reykjavík og Hafnarfixði. Fyrsti leikurinn var milli topp- og botnliðanna í I. deild, KR og Fram. Þeir síðarnefndu léku án Þorsteins og Sigurðar Einarssonar og leiknum lauk með jafntefli 12 gegn 12. Þá var kastað upp 5 kr. pening og viti menn, hann kom upp á rönd, var stigið á hann og upp kom hlutur KR. Haukar og Valur háðu snarp- an leik, sem lauk með sigri Haukanna 10 gegn 7, og ÍR- ingar sigi'uðu Ármann með 13 gegn 10. Mikil markasúpa var í leik FH og Þróttar, þeir fyrrnefndu skomðu 29 mörk gegn aðeins 6. Síðasti leikur fyrri daginn var milli KR og Víkings og KR-ingar sigruðu 8 gegn 7. Er greinilegt, að KR- ingar eru í sókn eftir slappa byrjun í I. deild í vetur. Hinn dugmikli þjálfai'i þeirra, Jón Friðsteinsson, hefur náð góðum tökum á liðinu. Síðari daginn léku FH og Haukar og leikurinn var jafn. FH bar sigur úr bítum, 8 gegn 7. Enn jafnari var viðureign KR og ÍR. Leiknum lauk með jafntefli eftir venjulegan leik- tíma, 11 gegn 11. ÍR tókst að skora 3 mörk gegn 2 í tveimur í framlengingu og sigraði með 14:13. Haukar og KR léku um 3. sæti og til að byrja með var leikurinn jafn, liðin höfðu eitt mark yfh- á víxl. í leikhléi var -staðan 6:4, Haukum í hag, en í síðari hálfleik tryggðu Hauk- ar sér sigur 15 gegn 10. Úrslitaleikurinn var milli ís- landsmeistaranna FH og ÍR, sem leikur í 2. deild. Leikurinn var lengi vel jafn. í hléi var -eins marks munur, FH í vií, 4 gegn 3 og tvívegis tókst ÍR að jafna metin 4:4 og 5:5, en þegar líða tók á leikinn voru yfirburðir FH auðsæir. Annars voru ÍR-ingar ákaflega óheppn ir með skot sín. Hjá FH bar mest á Hjalta í markinu og Geir. Brynjólfur var beztur í liði ÍR, en liðið er jafnt, Ás- •geir, Ágúst og Þói'arinn eru allir snarpir leikmenn. Islandsmólið í körfu hófsl í g ser: Njarðvík erfiður fyrir ÍR og KR sigraðl KFR í jöfnum leik □ Nú cr Íslendsmótið í körfu knattléik hafið, og fóru fyi'stu leikirnlr í 1. deild fram í gær- kvöldi. Fyrst léku KR og KFR, og sigruðu KR-ingar með 58 stigum gegn 51, og þvínæst léku „nýliðarnir“ UMFN gegn ÍR, og tókst mjög vel upp, en töpuðu t , biti 37:46. Svo virtist sem KFR ætlaði að endurtaka byrjunina í.leikn um gegn KR í Reykjavíkurmót- inu, og náði 14 stigum gegn 5, en Einar skorar og síðan Kol- beinn þrjár körfur í röð, og jafnar síðan úr vítakasti, 14:14. Jafnt var í hálfleik, 26:26, en byi'jun síðai'i hálfleiks var góð hjá KR-ingum, og brátt var staðan 45:34, eða ll stiga mun- ur. Þórir Magnússon lék nú aft Fiamh. á bls. 15 I I I i I ! I i s I I I I I I f i s I I Myndin er af leikmönnum og þjálfara Körfuknatt- leiksfélagsins Káts, sem nú hafa allir gengið í Fram, og keppa framvegis sem Fraraacas, gj i : , : Káfur í öruggri höfn: Fram stofnar körfu- knattleiksdeild - og keppir í 4. flokkL Íslandsmófsins □ Knattspyrnufélagið Fram hefur nú stofnað hjá sér körfu- knattleiksdeild, og leikur í fyrsta sinn með í Islandsmótinu sem hófst í gær. Þetta skeði fyrir nokkrum dögum, en aðdragandi þess hefur verið nokkur. Það má segja að saga .körfu- knattleiksins í Fram hafi hafizt undir vegg LaugalækjarSkólans, þar sem Eiríkur Bjöi'gvinsson, ungur múrari úr Laugarnesinu með ódrepandi áhuga á körfu- knattleik, safnaði að sér nokkr- um áhugasömum di-engjum úr Laugalækjar- og Laugarnesskól unum, og leiddi þá fyrstu spor- in á hinni vandlærðu braut körfuknattleiksins. Á hverjum degi, þegar veður var eitthvað annað en slæmt, mátti sjá Eirík með hópinn sinn austan við Laugalækjarskólann hamast við æfingar; körfuskot, sendingar, knattiæk og allt það sem nöfnum tjáir að nefna, og einu launin, sem Eiríkur hafði fyrir sinn snúð, var að sjá ár- angur ei-fiðis síns birtast í stór stígum framföi'um drengjanna. Áhuginn og g'leðin skein út úr hverju andliti, ekki sízt E.yíks sjálfs, og loks var stofnað fé- lag, sem hét Körfuknattleiks- félagið Kátur. Kepptu drengirn ir sem gestir í Reykjavíkurmót- inu í haust, stóðu sig með mik- illi prýði, óg þóttu mjög efni- legir 4. flokks leikmenn. Til þess að geta fært út kví- arnar, aukizt og eflzt, þui'ftu hinir ungu köi'fuknattleiksmerin að fá aðra og betxá aðstöðu, heldur en vagga félagsins þeirra, m.albikið austan við Laugalæ,kj- arskólann, gat veitt þeim. Þá kom það sér vel að einn strák- urinn átti pabba, sem var í innsta hring hjó Fram, og því var leftað ásjár hjá stjórn Fram um að félagið unga fengi að starfa undir verndarvæng Fram. Þetta mætti miklum skiln ingi hjá stjórn Fram, og af stór- hug og framsýni tók Fram Körfuknattlei ksfélagið Kát upp á sína arma. Mun því Kátur heyra minningunni til, en Fram, sem hingað til hefir verið þeklct ast fyrir knattspyrnu, og síðari árin fyrir handknattleik, er orð ið þátttakandi í körfuknattleilc einnig. Strákarnir ungu kunna svo sannarlega að kasta á körfu og grípa bolta, og alls eicki ó- hugsandi að Fram eignist sína fyrstu fslandsmeistara. í körfu- knattleik f ár. Fleiri félög hafa stofnun körfu knattleiksdeildar í bígerð, og önnur hafa nú þegar hrint því f framkvæmd. ÍKF. sem stofn- að var á Keflavíkurflugvelli'fyr ir nær 20 árum síðan, hefur riú gengið f heilu lagi inn í Ung- mennafélg Njárðvíkur, og KFR, sem hefur starfað'yfir 15 ár, hefur nú óskað eftir því við stjórn Knattspyrnufélagsins Vals að fá að æfa og keppa undir merki Vals framvegis. Er það mál nú í athugun hjá stjórn og fulltrúaráði Vals, og ekki ó- sennilegt að það nái fram að ganga — ekki sízt eftir að annað stórt félag, Fi'am. hefur riðið á vaðið. Og nú verður það spm'n- ingin stóra': hvenær kemur réð- in að Víking og Þrótti? — gþ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.