Alþýðublaðið - 16.05.1970, Síða 1

Alþýðublaðið - 16.05.1970, Síða 1
OPNA: EMIL UM TRYGGINGARNAR Laugardagux 16. maí 1970 — 51. árg. 104. tbl. ■fe Heiðmclí'kursvæðið þarf að stækka og tryggja þar betri aðstöðu fyrir borgarbúa. Þar þarf að ge'ra greiðfærari leiðir og merkja götuslcðir. 'ÍZ Stefna ber tað því, að (koma upp fleiri slíkum svæðum í grennd við borgina. ÍZ Vernda þarf isvaeði, sem eru sérstæð frá jarð- sögulegu isjónarmiði, svo sem í Fossvogi, við Elliðaárvog og Elliðaárnar sjálfar. Í£ í barna- og unglingaskólum borgarinnar þarf að taka upp ke(rfisbundna fræðslu f Umhverfis- og náttúruvernd. ÍX Reykjavíkurborg þarf að taka frumkvæðið í náttúruverndarmálum, og koma |í veg fyrir, að frekari spjöll verði xmnin. Bdrgin þarf að koma á fót sumardvalarheimilum fyrir reykvísk börn. ÍZ Koma þarf á helgarferðum á stunrin fyrir efna- lítið fólk, sem á þess ekki kost iað komast úr borg- . I mm. 1 Efla þarf starfsemi Æskulýðsráðs í Isambandi við veiðiklúbba og námskeið í hagnýtum sveita- störfum. BORGIN OKKAR OG UMHVERFIÐ □ Borgin okkar er orðin stórborg með öllum þeim kost um og göllum, sem fylgja slík um samfélögum manna. Hvert borgarhverfið af öðru rís af grunni. Þar sem áður voru gróin tún eða gráir melar eru nú steinsteypt hús og stein- lögð stræti. Þar sem áður ríkti kyrrð og friður íslenzkrar nátt úru eru nú borgarbörn að leik milli háreistra húsa. I borginni er allt mannlíf með sérstökum blæ stórborg- arinnar. Sífellt lengist bílaröð- in við götuljósin. Oftar og oft- ar þurfa menn að taka til fót- anna yfir göturnar á leiðinni heiman og heim. Fleiri og fleiri ókunnug andlit verða á vegi okkar á daglegri veg- ferð um borgarstrætin. Hávað- inn af vélmenningu tuttugustu aldar lætur sífellt hærra og hærra í eyrum okkar. Öll borg in endurómar af ys og þys hins daglega lífs í stórborg vorra tíma. En innan um þessi stein- Iögðu stræti, innan veggja há- reistra húsa, mitt í þys stór- borgarinnar er fólklð sem borg ina byggir. Innan borgarinnar jafnt sem utan hennar leitar þetta fólk íslenzkrar náttúru. Það leitar kyrrðarinnar í fögru um.hverfi þar sem unnt er að létta af sér áhyggjum hvers- dagslífsins. Það leitar niður að ströndinni á síðkvöldum og úr borginni um helgar. Það Ieitar á vit óspilltrar íslenzkrar nátt úru, gleðst yfir ilmandi aílgan gróðursins, andar að sér hreinu fjallalofti, drekkur úr tærri bergvatnsá og gleðst yfir því að búa í fögru og ósnortnu landi. Reykvíkingar eiga enn- þá þann ómetanlega auð, sem finna má í fögru umhverfi, en þessum auði má ekki glata því þá hefur maðurinn á hinum steinlögðu strætum glatað hluta af sjálfum sér — tengsl- um sínum við lifandi náttúru. Þessum tengslum mega íbúar stórborga sízt við að glata en þó er engum hættara við því en einmitt þeim. Og Reykja- vík er orðin stórborg. En það eru ekki aðeins hin- ir fullorðnu sem eiga hér hags muna að gæta. í borginni eru þúsundir bama, sem eiga sér athvarf í leikjum sínum á strætum hennar og í húsasund um. Fyrir fáum árum var það litlum erfiðleikum bundið að koma borgarbörnum til sumar- dvalar í sveit, þar sem þau nutu héilbrigðs lífs, lærðu að umgangast dýralíf og náttúru landsins. En dyr þess mikil- væga skóla eru nú lokaðar hundruðum ef ekki þúsundum Reykjavíkurbarna. Með hverju sumri sem Iíður af æsku þess- ara borgarbarna fara þau því á mis við þessi mikilvægu upp- eldisáhrif. Eftir því sem borgin vex og húsunum fjölgar f jar- lægjast þau því sífellt meir og meir náttúru landsins síns, — landið sjálft. í efstu sætum á lista Alþýðu flokksins í Reykjavík er ungt fólk, sem flest á börn í barna- skólum borgarinnar. Þetta fólk vill ekki, að börn þess fari á mis við þau tengsl við íslenzka náttúru, er það sjálft naut í uppvexti sínum. Það vill veriída náttúrlegt umhverfi borgarinnar og lilúa að gróð- urvinjum innan hennar. Það býr í stórborg og vill búa í stór borg. En það vill vernda ís- lenzkt land fyrir þá sem það land eiga að erfa, kenna þeim að umgangast það, virða það og meta. Þau skilyrði vill það búa börnum sínum, — börnun um í borginni. — Alþýdu bla •J

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.