Alþýðublaðið - 22.08.1970, Side 1
Miðstjóm Alþýðu-
flokksins andvíg
þingrofi í haust
□ Á ,fundi miðstjórnar Alþýðuflokksins í gær var
samþykkt, að flokkurinn áliti ekki rétt að rjúfa nú
þing og efna til kaustkosninga. 'Vair þessi samþykkt
tilkynnt forsætisráðherra log í samræmi við sam-
starfssamning stjórnarflokkanna verður því ekki
gengið til kosninga í haust, en í Isamningnum er á"
kvæði þess efnis, að forsætisráðherra noti ekki þing-
rofsheimild sína nema með samþykki beggja stjórn-
arflokkanna.
Að loknilm íuncTi miðstjórnarinn
av var gefin út svohljóðandi til-
kynning:
„Ríkisstjórnin sneri sér nýlega
til lieildarsamtaka launþega og
vinnuveitenda og óskaði við-
ræðna við þessa aðila uni rann-
sókn þeirra vandamála, sem víxl
hækkanir á kaupgjaldi og verð-
lagi hafa i för með sér og inn
uudirbúning og aðferðir við
samningagerð i kaupgjaldsmál-
um ásamt tillögugerð, sem megi
verða tH varanlegra umbóia í
þessum efnum. Báðir aðilar urðu
við þessum tilmælum og ei-u
þessar viðræður nýhafnar.
Með hliðsjón af þessu hefur
miðstjórn Aiþýðuflokksins í dag
ályktað, að ekki sé tímabært að
rjúfa nú þing og efna til haust
kosninga, heldur sé rétt að kanna
til hlítar, hvort samstaða geti
orðið milii aðila vinnumarkað-
arins og ríkisstjórnarinnar um
lausn þeirra vandamála, sem við
ræðurnar eiga að f jalla um“. —
Viðræðunefnd Alþýðuflokksins að loknum miðstjórnarfundinum í gær, Talið frá
vinstri: Óskar (Hallgrímsson, Emil Jónsson, Gylfi Þ. Gíslason, Eggert G. Þor-
steinsson og Benedikt Gröndal.
Formaður Alþýðuflokksins um afstöðu flokksins:
Greinilegur meiri
hluti gegn þingrofi
O Þegar að loknum fimdi miðstíjómar Alþýðuflokks-
ins leitaði Alþbl, til formanns flokksins, Gylfa Þ.
Gíslasonar, og innti hann eftir nánari fregnum af iaf-
greiðslu flokksins á hugmyndinni um þingrof og
haustkosningar. Gylfi sagði
□ Hugmyndin um haustkosn-
ingar er ekki ný. Á síðastliðn-
um vetri var vitað, að almennt
var gert ráð fyrir því, að nýir
kaupgjaldssamningar yrðu einn
ig gerðir á snmrinu. Gera mátti
ráð fyrir því að niðurstaða
sveitastjómakosninganna liefði
einhver áhrif á stjómmálasvið-
inu og að nýir kaupgjaldssamn-
ingar mundu hafa áhrif í efna-
hagsmálum. Ýmsir gerðu ráð
fyrir því, að þessi áhrif í stjóm
málunum og í efuahagsmálun-
um gætu orðið svo víðtæk að
eðlilegt væri að efna tii kosn-
inga þegar í haust og kjósa nýtt
alþingi með nýju umboði til
fjögurra ára. Innau Alþýðu-
flokksins voru þessi viðhorf
rædd rækilega þegar i vor.
Þau voru einnig rædd í Sjálf-
stæðisflokknum og ég geri sömu
leiðis ráð fyrir, að þau hafi
verið rædd meira og mlnna í
stjórnarandstöðuflokkunum öll-
um. Fyrir rúmri viku kusu báð-
ir stj órnarflokkamir neftndjr
tíl þess að ræðast við um mál-
ið. Nefnd Sjálfstæðisflokksins
var kosin til þess að leita sam-
komulags um það við Alþýðu-
flokkinn, að þing yi*ði rofið
nú þegar og efnt til kosninga í
október. En sams konar ákvæði
er í samstarfsamningi núver-
andi stjómarflokka og verið
hefur í stjómarsáttmálum allra
samsteypostjóma undanfama
áratugi, að samkomulag þurfi
að vera mllli samstarfsflokk-
anna til þess að forsætisráð-
herra geti rofið bing. Málið hef-
ur verið rætt mjög ítarlega í
Alþýðuflokknum. Það hefur
verið rætt á þremur fundum í
fniðstjóm U.okksins, í, framH'
kvæmdastjóm hans og þing-
flokki, ank þess sem viðræðu-
nefnd miðstjómarinnar hefur
rætt málið mjög ítarlega. —
Samkvæmt lögum Alþýðuflokks
ins fer miðstjóm lians með
æðsta vald í flokknum milli
flokksþinga. Var því tatið rétt
að miðstjómin tæki afstöðu i
málinu. Það gerði hún í gær
og var greinilegur meirihluti á
fundinum fyrir þeirra afstöðu,
að ekki sé tímabært að rjúfa
nú þing og efna til haustkosn-
inga. Var þessi niðurstaða mið-
stjómarinnar þegar í stað til-
kynnt forsætisráðherra. —
Álit hinna
flokkanna er
hirt á bls. 3