Helgarpósturinn - 06.10.1994, Blaðsíða 25

Helgarpósturinn - 06.10.1994, Blaðsíða 25
juFMMR FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 1994 MORGUNPÓSTURINN MANNLÍF 25 Móði (Þormóður Karlsson) Móði „á“ borðið og er sálin í hópnum. „Dr.“ Móði, en hann var nýverið sæmdur doktorsnafnbótinni af akademíunni, er fæddur 29/12 1958 og gekk í gegnum grunnskóla eins og vera ber. Síðan lá leið í Myndlista- og handíðaskólann þar sem hann hafði áður verið í nokkur ár á kvöldnámskeiðum í módelteikningu, hlutateikningu og svo framvegis. Síðan hætti hann þar á þriðja ári og flutti til Kaup- mannahafnar 1980 og vann þar í Bella Center við uppsetningu sýningarbása, auglýsingar og fleira. Hann skrapp til Tælands í um hálft ár 1982, aðal- lega til að láta taka úr sér botnlangann. Síðan aftur til Kaupmannahafnar og fór að vinna á bamaheim- ili. Þaðan til San Francisco haustið 1983 til að nema myndlist við San Fransisco Arts Institute þaðan sem hann útskrifaðist í mai 1988 með MFA gráðu með miklu láði og stóðu honum opnar dyr að verða þar prófessor. í San Francisco var hann einnig í hljómsveitinni „Normal Conversation" (eðli- legar samræður) og vann einnig við sviðsmynda- hönnun á nokkrum músíkvídeóum. Á útskriftarsýn- ingunni seldi hann nokkrar myndir, sem þótti mikið afrek, og þurfti að skila þeim til New York þar sem hann var laminn hrottalega og eyddi síðan næstu ellefu mánuðum á sjúkrahúsum. Síðan í nóvember 1989 lá leiðin aftur til San Francisco þar sem hann tók út sitt svokallaða „practical training" ár og vann við teiknimyndaauglýsingagerð hjá Studio Actual Size. Síðan hélt hann aftur til íslands og á „22“ þar sem leiðir lágu síðan beint í Séra ísleif og englabömin, elsku karlinn, því hann er jú soddan engill. Móði drekkur einfaldan vodka í kók á milli þess sem hann hefur vökult auga með borðinu. Ef einhver sest í sætið hans dregur hann sig í hlé, en þó ekki í svo mikla fjarlægð að hann geti ekki mælt sökudólginn út með fyrirlitningaraugum. Móði segir jafnframt að honum skiljist að ríkt aldr- að fólk sé farið að taka það fram i erfðaskrá sinni að það vilji láta jarða sig með farsíma svo það geti hringt upp. (Það er jafnvel til í dæminu að það sé videókamera í kistunni svo nekrófílían fái að upplifa sitt hinsta.) Dr. Fritz (FriðrikH. Ólafsson, tannlœknir) Oft nefndur „Dr. Fritz“ eða í seinni tíð „Séra íslerfur" og þá í tengslum við Englabömin. Fæddur Vog árið 1946, sem sagt besta árgerð. Alinn upp í sveitinni suður með sjó. Nokkuð snemma komu í Ijós fjöl- breyttir hæfileikar sem sumir kynnu að jaðra við snilligáfu en erfitt reyndist að stefna í einn farveg. Lærði upphaflega læknisfræði með kvensjúkdóma- og fæðingarhjálp sem hið göfuga markmið, en af ástæðum sem ekki verður farið nánar út í hér end- aði hann sem tannlæknir. Gárungamir segja að hann hafi fært sig upp um eitt gat. Sem sagt maður á uppleið og „still going strong". Félagslega sinn- aður maður með ríka þörf fyrir að vera innan um fólk, einnig ríka þörf fyrir að skrifa, umgangast lista- fólk og jafnvel performera en hefur aldrei haft nægilegt bein í nefinu til að stíga skrefið til fulls. Þess vegna töluverð togstreita milli listræna þáttar persónuleikans og hins borgaralega. Trúir því að hver sé sinnar gæfu smiður en þykir þjóðfélagið hafa gerst æ mannvonskulegra í seinni tíð með aukinni kröfuhörku og þeirri græðgi sem virðist hafa gripið um sig. Kom fyrst inn á „22“ fýrir tæp- um þremur árum eftir þungbært tímabil krabba- meins og ýmissa búsifja og fann sig fljótt í léttleika, skemmtilegheitum og fjölbreytileika mannlífsins þar. Komst snemma i akademíu staðarins og upp í svonefnda efri deild þar sem fágætir skapandi and- ar og góðir drengir ieiða gjaman saman hesta sína. En fyrst og fremst þar sem hver og einn getur fengið að vera hann sjálfur í friði. „Séra ísleifur" drekkur gin í greip þegar það á við. „Dr.“ Bjami Þórarins alías Kokkur Kyrjan Kvæsir Sjónháttafræðingur, myndlistarmaður og skáld. Er gúrúið i hópnum enda heimspekingur sem hefur smíðað nýtt heimspekikerfi, sjónhátta-, vísi- og bendufræði sem inniheldur nýja listspeki, lífspeki og akademía - allt samhliða - og tekur til allra þátta mannlífsins og listarinnar. Ef hugtakið „alhliða lista- maður" er til þá á það við Bjama. Bjami er fæddur árið 1947 og hefur diplómur frá MR og Myndlista- og handíðaskólanum. Myndlistin hefur verið helsti vettvangur Bjama en hann er með fimm bækur í smíðum, meðal annars mikla kviðu, Kvæsivopna- búrið, þar sem hann kynnir nýtt Ijóðform, Lýsistrítu. Vendipunkturinn í lífi hans var 21. júlí 1988. Þá uppgötvaði hann að Aðalsteinn Ingólfsson haföi klikkað á að geta hans í bókinni Northen Poles of Art í kafla um Galleri Suðurgötu 7, en Bjami var frumkvöðull að því. Til að sefa reiði sína kvað hann Ijóðsmælkið „oss í té“ en út frá því kviknaði hug- myndin að nýrri heimspeki sem hann hefur helgað sig æ síðan. Meira um það síðar, en viðtal við meistarann er í vinnslu. Samkvæmt upplýsingum starfsfólks drekkur Bjarni Rjómanoff sem er 1 vodka á móti 1 Baleys og ef vel er að honum farið og hann í góðu formi er vel hugsanlegt að telja hann á að fara með kvæsur fyrir sig. Það eru frum- samin kvæði, eða kvæsur eins og skáldið kýs að kalla það, og Bjami kvæsir skáldskapinn að við- stöddum. Allir sem þekkja kveðskap Bjama segja að þar sé um einstakan skáldskap að ræða og séra ísleifur nefnir Ijóðið „The brown over the river kvæs“ sem sérlega skemmtilegt dæmi. Og fyrir að- dáendur „Dr.“ Bjama er gaman að geta sagt frá því að mikið sjónháttaþing verður haldið í Nýlistasafn- inu 1 .-20. nóvember. það skyldað til að bergja á öllum lit- um, en það á helst ekki að klára úr glösunum. I lokin verður tekin önnur mynd úr þyrlu og vídeó- mynd af fólki í lokin þegar það kemur af sýningunni.“ „Séra Isleifur“ er foringi í rupp- hljómsveitinni (stundum spila þeir ripp — rappið er þegar til) „Séra ís- leifur“ og englabörnin en engla- börnin eru Móði og Ríkharður III. Þeir tróðu til dæmis upp á listahá- tíð á Akureyri í sumar við mikinn fögnuð áhorfenda — svo mikinn að „Dr.“ Bjarna þótti nóg um og þegar átti að klappa þá upp sagði liann: „Þetta er nóg, þetta er nóg.“ Gervitungl og aðrir í hópnum Það þarf engum að koma á óvart að straumur lista- og mennta- manna á leið hjá Hringborði dauð- ans en enn er eftir að nefna menn sem tilheyra hópnum. Ríkharður III er staddur á Húsavík í lamba- kjötinu. Móði segir að viðurnefni hans sé ekki til komið vegna þess að hann sé með kryppu eins og frægur nafni hans, persóna Shakespeares, né heldur að hann sé þriðji maður- inn í rupphljómsveitinni „Séra Is- leifur" og englabörnin, hann er ein- faldlega þriðji Ríkharðurinn í sinni fjölskyldu. Birgir Andrésson er annar aðsópsmikill karakter í hópnum. Birgir er myndlistarmað- ur úr Vestmannaeyjum og fóst- bróðir Bjarna. Einnig má nefna Vö- lund Björnsson sem er mikill spekúlant. Þessa menn var ekki hægt að festa á filmu né á blað og kannski eins gott — MORGUN- PÓSTURINN hefði þá líklega lent á einkennilegri sporbraut og ekki átt afturkvæmt. Enda sagði „Dr.“ Bjarni við blaðamann: „Eg á eftir að sjá þig fá það upp úr Völundi hvað hann er búinn að sjóða margar ýsur um ævina, þó að hann láti ýmislegt vaða.“ Eðlilega leita kvenmenn eftir félagsskap við þessa yfirburða- menn,- ein þeirra er Kristrún Gunnarsdóttir sem kynnir sig sem vídeóvísi akademíunnar. Fullt af gervitunglum eru á sveimi í kringum borðið og hlotn- ast stundum sá heiður að fá að sitja við það. Ægir stjörnuspekingur er einn þeirra. Einnig má á góðri stundu sjá Jón Óskar og Huldu Hákon myndlistarmenn við borð- ið. Infernógengið — Ómar Stef- áns, Öddi Ingólfs og Guðjón bak við tjöldin — eru og tíðir gestir og sækja þangað andlega inspírasjón. Allir þeir sem MORGUNPÓSTUR- INN hafði samband við eru sam- mála unr að sé einhvers að væntá varðandi stefnubreytingu í menn- ingu og listum á íslandi þá sé ein- sýnt að riddararnir við Hringborð dauðans verði þar í fremstu víglínu. Jakob Bjarnar Grétarsson POPP Fimmtudagur Á Tveimur vinum verður brjálað fjör en þar spilar skoska rokkhljóm- sveitin Dawson ásamt íslensku hljómsveitinni Maus. Á Kaffi Reykjavík spila engir aðrir en Hálft í hvoru. Arnar Freyr og Þórir haida uppi löðrandi diskóstemmningu á Café Amsterdam. Jón Ingólfsson trúbador spilar á Fógetanum. Á háaioftinu verður boðið upp á djass. KK spilar á Blúsbarnum. Tunglið býður gestum sínum upp á „Virtual Reality" eða sýndarveru- leika, sem mun vera það nýjasta í skemmtanabransanum. Þetta kvöld mun DJ Áki sjá um dans- tónlistina.Húsið opnar kl. 22.00 og aðgangur er ókeypis. Föstudagur Á Fjörukránni spilar Vikinga- sveitin aiirahanda músik. Hljóm- sveitina skipa meðal annarra Her- mann Ingi og Smári Eggertsson. Á Ömmu Lú spila Aggi slæ og Tamlasveitin. Tweety spilar i Sjallanum á Ak- ureyri. Tweety skipa þau: Andrea Gylfadóttir, Þorvaidur B. Þorvalds- son, Eiður Arnarsson, Ólafur Hólm Einarsson og Máni Svavarsson. Fánar skemmta á Feita dvergn- um. Fánarnir eru að hluta gamla Brimkló og spiia gamia slagara. Fógetinn. Þar spilar Haraldur Reynisson trúbador á gítarinn JJ Soul verður á Blúsbarnum í kvöld. Hálft í hvoru spila á Kaffi Reykjavík. Tveir vinir bjóða upp á Karaoke og geta gestir valið úr tæpiega 3000 lögum. Jet Black Joe verður með út- gáfutónieika i Rósenberg. Á Café Amsterdam spila félag- arnir Arnar Freyr og Þórir gamla diskósmelli. Laugardagur Á Feita dvergnum heldur hljóm- sveitin Fánar uppi fjöri. í Sjallanum á Akureyri spilar SSSól. Hljómsveitin mun meðal annars spila efni af væntanlegri hljómplötu sinni. Dúndrandi diskóstemmning verður á Café Amsterdam. Þar halda Arnar Freyr og Þórir uppi fjöri og öðru rassabomseríi. í Rósenberg verður Los Angeles Clamrock Fashion Show. Sem þýðir tiskusýning frá Plexiglas undir dúndrandi rokki. 22 verður með Hólmar í búrinu og þvílíkt stuð. Víkingasveitin spilar á Fjöru- kránni með þá Hermann Inga og Smára Eggerts í fararbroddi. Á Kaffi Reykjavík spila Hálft í hvoru. Tweety verður i Sjallanum á ísa- firði. Sunnudagur Dóri Braga verður með lokatón- leika ásamt Vinum Dóra. Allir Vinir Dóra fyrr og síðar koma og spila með honum. Atburður helgarinnar er tvímœlalaust tónleikar Donovans í Þjóðleikhúss- kjallaranum. Þar verða Árni Þórarins, Hrajh Gunnlaugs og allar stelpurnar sem féllu fyrir Donovan í gamla daga - aukyngri spámanna sem voru að átta sig á því að þessi kappi hafi yfirleitt verið til. SVEITABOLL Föstudagur SSSÓL spilar í Víkurröst á Dal- vík. Hljómsveitin mun meðal ann- ars spila efni af væntanlegri plötu sem poppfræðlngar segja bestu plötu sveitarinnar til þessa. KLASSIK Jónas Sen Fimmtudagur Norræna húsið kl. 20.30 Maria Schauman söngkona heldur Ijóðatónleika, Ville Lindström píanóleikari spilar und- ir. Hér er á ferðinni prímadonna frá Finnlandi sem lærði á sínum tíma við tónlistarháskóla Vínar- borgar. Kennari hennarþar var is- lensk söngkona, Svanhvit Egils- dóttir, og eru tónleikarnir i Nor- ræna húsinu haldnir henni til heið- urs. Laugardagur Þjóðleikhúsið kl. 20.00 Vald örlaganna. Kristján Jó- hannsson þrumar yfir áheyrend- um á sinn óviðjafnanlega hátt. I upphafi óperunnar vippar hann sér yfir grindverk. Missið ekki af því. Mánudagur Þjóðleikhúsið kl. 20.00 Vald örlaganna. Kristján Jó- hannsson og fleiri, meðlimir úr Sinfóníuhljómsveit íslands og þjóðleikhúskórinn. Þriðjudagur Islenska óperan kl. 21.00 Opnunartónleikar danskra daga. Dönsk leikkona, Bodil Ud- sen, les upp úr verkum H. C. Andersens og Karenar Blixen. Einnig leikur Kammersveit Reykja- vikur og Pro Arte kórinn tekur nokkur lög. Miðvikudagur Þjóðleikhúsið kl. 20.00 Vald örlaganna isiðasta sinn í bili. T ó n 1 i i s t G a u k s i n s n æ s t u 1 V i k u FIMMTUDAGUR 6. október FÖSTUDAGUR 7. október LAUGARDAGUR 8. október SUNNUDAGUR 9. október MÁNUDAGUR 10. október ÞRIDJUDAGUR H.október MIÐVIKUDAGUR 12. október BP & ÞEGIÐU LOFTUR LOFTUR VINIR DÓRA VINIRV0RS0G VINIR VORS 0G N1 + INGIBJÖRG BLÓMA BLÓMA

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.