Helgarpósturinn - 10.10.1994, Blaðsíða 5
Ákærður íyrir að selja svikna vöru
Sýslumaður
ábyrgist ekki
vörur seldar
á uppboðum
Lögð hefur verið fram í Héraðs-
dónri Reykjavíkur kæra á hendur
Þórmundi Hjálmtýssyni, fyrrurn
eiganda verslunarinnar Strætisins í
Hafnarstræti. Þórmundi er gefið að
sök að hafa selt eftirlíkingar af Le-
vis-gallabuxum en stefnandi í mál-
inu er Levis Strauss & Co. Þór-
mundur hafði orðið sér úti um
buxurnar með þeim hætti að hann
keypti 370 pör af gallabuxum á
nauðungarsölu sem haldin var af
Sýslumanninum í Reykjavík 20.
nóvember 1993. Buxurnar voru
boðnar upp að beiðni Tollgæslu ís-
lands en þær höfðu áður verið
gerðar upptækar handa ríkissjóði
með dómi Héraðsdóms Reykjavík-
ur. Þórmundur keypti buxurnar í
þeirri trú að hér væri um original
Levis-buxur að ræða og í kvittun
Sýslumannsins í Reykjavík fyrir
greiðslu uppboðsverðsins kemur
skýrt fram að þær séu af Levis-gerð.
Engar athugasemdir voru gerðar
við sölu á buxunum fýrr en í febrú-
ar síðastliðnum er krafist var lög-
banns á sölu þeirra en í mars voru
þær buxur sem enn voru óseldar
gerðar upptækar úr verslun Þór-
mundar. Þórmundur telur að ekki
hafi verið staðið rétt að lögbanns-
beiðninni og buxurnar hafi verið
teknar úr sinni vörslu án þess að sér
hafi verið tilkynnt um hana. Á
þeirri forsendu fór hann fram á í
Héraðsdómi að vera sýknaður af
greiðslu sekta og skaðabóta til Levis
Frá uppboði í Tollstöðvar-
húsinu.
Strauss og að buxunum verði
skilað til sín aftur.
MORGUNPÓSTURINN fékk
þær upplýsingar hjá fulltrúa
Sýslumannsins í Reykjavík að
allur varningur sem seldur
væri á uppboðum á lausafjár-
munum af hálfu embættisins
væri seldur án ábyrgðar emb-
ættisins og kæmi það skýrt
fram í auglýstum söluskilmál-
um. Vísar embættið því allri
ábyrgð á sölu meintra effirlík-
inga af Levis-gallabuxum al-
farið á hendur Þórmundar
Hjálmtýssonar. -LAE
OBVIOUS
by ChoLrO/ tr £6¥*.jLcLKy„
mmMorgun A \
Posturmn
Áskrifta- og auglýsingasími 222-11
DUX-
Bakið er ekki að drepa þig - það er líklega dýnan!
DUX rúmdýnan - einstök og frábær hönnun.
DUX dýnan er mjúk og lagar sig fullkomlega
að líkama þínum.
Þú liggur ekki á henni - hún umvefúr þig.
Það er stundum dýru verði keypt að kaupa ódýrt.
10% staðgreiðsluafsláttur á takmörkuðu magni.
Á harðri dýnu liggur
hryggsúlan í sveig
Á DUX-dýnu liggur
hryggsúlan bein
HÆTTU AÐ REYKJA NÁÐU STJÓRN Á MATARÆÐINU
Á TVEIMUR KVÖLDUM Á TVEIMUR KVÖLDUM
Tvö kvöld, tveir tímar í senn.
Þú losnar við alla löngun og
vöntun gagnvart reykingum.
FJöldi takmarkast við sex
manns á hvert námskeið
Dáleiðsla hjálpar þér að ná strax tökum
og stjórn á mataræðinu íyrir fullt og allt.
Skjótur og varanlegur árangur.
FJöldi takmarkast við sex
manns á hvert námskeið
Friðrik PáU Ágústsson
R.P.H. C.Ht.
Friðrik er menntaður í dáleiðslumeðferð og hefur unnið víða um
heim við dáleiðslu.
Viðurkenndur af International Medical
and Dental HypnotherapyAssociation.
UPPLYSINGAR I SIMA:
Einniy bjóðast einkatímar í dáleiðslumeðferð
BACKMAN angiýii,