Helgarpósturinn - 10.10.1994, Síða 27
MÁNUDAGUR 10. OKTÓBER 1994
MORGUNPÓSTURINN SPORT
27
Logi skrifar undir.
Logi Ólafsson hefur sem kunnugt
er verið ráðinn þjálfari íslands-
meistara Skagamanna til tveggja
ára. Eins og menn vita er Logi mikill
húmoristi og kann vel að koma fyrir
sig orði.
Á blaðamannafundinum, þar sem
ráðning Loga var tilkynnt, var Logi
spurður hvort hann myndi flytjast
búferlum upp á Skaga vegna þjálf-
unarinnar. Logi svaraði því til að í
vetur myndi hann keyra á milli eða
taka Akraborgina. Sagði þjálfarinn
að þeir gætu þá setið saman hann og
sýslumaður, Sigurður Gizurarson,
og unnið sína vinnu á leiðinni upp á
Skaga, en sem kunnugt er hefur
sýslumaður þeirra Skagamanna leg-
ið undir ámæli vegna fjarvista við
embættið...
Logi var orðinn eftirsóttur þjálf-
ari vegna frábærs árangurs kvenna-
landsliðsins og segja menn að þær
upphæðir sem í A hafi samið við
hann séu miklar og eigi sér aðeins
eitt dæmi í íslenskum fótbolta. Það
sé samningur KR-inga við Skaga-
manninn Gudjón þórðarson. Þeir
Logi eru miklir vinir og segja menn
að ótrúlegur metnaður beggja eigi
eftir að fara inn í nýjar víddir næsta
sumar...
Cjunnar Sigurðsson, formaður
knattspyrnufélags ÍA, er skemmti-
legur maður og fylginn sér. Hann
hefur verið duglegur við að verja
ákvarðanir stjórnar félagsins varð-
andi þjálfaraskiptin og segir mikil-
vægt að blanda ekki saman hags-
munum félagsins og einstakra með-
lima þess, en hann og Hörður
Helgason, fyrrum þjálfari liðsins,
eru mágar. Mun fjölskyldulífið ekki
vera með besta móti þessa dagana
vegna málsins og lítið um fjöl-
skylduboð...
CjuNNAR er einnig óspar á stóru
orðin og er hann var spurður um
framtíð Mihajlo Bibercic svarði
hann því til að hann færi líklega ut-
an og vonandi ekki í vesturbæinn.
Þá var hann spurður hvort ekki
hefði verið rætt við framherjann
snjalla varðandi næsta tímabil hjá
íA og þá svaraði Gunnar því til að
ekki væri víst að Skagamenn hefðu
áhuga á honum. Hann hafði komið
tíu kílóum of þungur í upphafi
móts og þrátt fyrir að hann hafði
staðið uppi sem markakóngur í ár
hafi frammistaðan ekki verið neitt
sérstök. Hjá flestum öðrum félög-
um þættu slík ummæli um marka-
kóng líklega furðuleg en hafa verð-
ur í huga markaskorarana frá Skag-
anum í gegnum tíðina, t.d. Matta
HallgrIms, Pétur Pétursson, tví-
burana Arnar og Bjarka og Þórð
Guðjónsson...
Kynning á riðlum í NBA Miðvesturriðillinn
Barátta Olqjuwon, Robin
son, Malone og Stockton
Riðillinn verður sterkari í ár en
oft áður. Denver Nuggets og Dallas
Mavericks eru á uppleið og ætti
Denver að geta náð langt í úrslita-
keppninni í vor eftir að hafa slegið
þar rækilega í gegn á síðasta ári.
Meistarar Houston Rockets koma
reynslunni ríkari og verða ekki
auðunnir í vetur og það sama má
segja um hin liðin tvö sem unnu yf-
ir fimmtíu leiki í fyrra, San Antonio
Spurs og Utah Jazz. Á botninum
situr svo Minnesota Timberwolves
sem ætti þó að vera betra nú í vetur
en það var á síðasta leikári.
1. Houston Rockets
(58-24)
Mikilvægar mannabreytingar:
Engar.
Styrkleikar: Hakeem Olajuwon
er líf og sál þessa félags. Á meðan
hann sýnir áfrarn þessa ótrúlegu
leiki þá nær ekkert lið að gera út
um meistaravonir Houston. Otis
Thorpe, Robert Horry og
Vernon Maxwell mynda sterkan
kjarna, og varamannabekkurinn er
feikisterkur.
Veikleikar: Þótt liðið hafi yfir að
ráða Olajuwon og Thorpe, tveimur
af bestu frákösturum NBA, dugar
það engan veginn. Einkurn eru það
sóknarfráköstin sem hafa valdið
forsvarsmönnum liðsins áhyggjum.
Af hverju fyrsta sætið?: Jú, liðið er
NBA-meistari og hefur yfir sterk-
asta leikmannahópnum að ráða.
2. San Antonio Spurs
(55-27)
Mikilvægar mannabreytingar:
Komnir eru Avery Johnson, Se-
an Elliot og Chuck Person og far-
inn er Dale Ellis.
Styrkleikar: Eins og Olajuwon er
miðherjinn David Robinson aðal-
ástæðan fyrir góðurn árangri liðsins
undanfarin ár. I fyrra varð hann
stigakóngur deildarinnar og naut
þar aðstoðar frákasta- og varnar-
konungsins Dennis Rodman. Frá-
bært frákasta- og varnarlið.
Veikleikar: Dennis Rodman var í
fyrra gangandi tímasprengja; nú er
hann gangandi atómsprengja!
Skyndilegt brotthvarf þjálfarans
John Lucac varð ekki til að róa
„Orminn“ niður. San Antonio er
veikt fyrir í leikstjórnandastöðunni.
Af hverju annað sætið?: San An-
tonio á að geta sigrað hvaða lið sem
er á góðum degi en stöðugleika
vantar upp á til að vinna riðilinn.
3. Utah Jazz (53-29)
Mikilvægar mannabreytingar: Alls
engar mannabreytingar.
Styrkleikar: í sjö ár hafa Karl Mal-
one og John Stockton myndað
besta tvieyki NBA og enn lætur það
engan bilbug á sér finna. Jerry
Sloan er í óskemmtilegri aðstöðu
Jalen Rose eru réttu mennirnir þótt
ágætir séu. Reynsluleysi hefur skap-
að óstöðugleika í leik Denver síð-
ustu ár og það þarf að laga.
Af hverju fjórða sætið?: Af hverju
ekki þriðja sæti? Reynsla Utah veg-
ur upp reynsluleysi Denver. Það
kænri þó ekki á óvart ef liðin skiptu
um sæti.
5. Dallas Maverícks
(13-69)
Mikilvægar mannabreytingar:
Kominn er nýliðinn Jason Kidd.
Styrkleikar: I Ijótum kindahópi
leynist alltaf ein falleg kind. Dallas,
sem vann ótrúlega fáa leiki á síðasta
leiktímabili, hefur þá Jim Jackson
og Jamal Mashburn sem eiga eftir
að láta rnikið að sér kveða á næstu
árum. Dallas valdi Jason Kidd, sem
er yngsti leikmaðurinn í NBA
(fæddur 1974), og á hann bjarta
framtíð.
Veikleikar: í ljóturn kindahópi
leynast alltaf margar ljótar kindur.
Engin breidd, enginn til að taka frá-
köst, engir stórir menn og léleg
stjórnun. Þetta lið er sem sagt núll
og nix.
Af hverju fimmta sætið?: Dallas er
lélegt lið en þó öllu skárra en Min-
nesota.
6. Minnesota
Timberwolves (20-62)
Mikilvægar mannabreytingar:
Konrinn er nýliðinn Donyell
Marshall og farinn Chuck Pers-
on.
Styrkleikar: Isaiah Rider kom
skemmtilega á óvart, þá sem nýliði,
á síðasta og ári og sigraði í troðslu-
keppninni. Christian Laettner,
Michael Williams og Donyell
Marshall mynda sterkan kjarna.
Veikleikar: Á pappírnum lítur
þetta lið út fyrir að vera mun betra
en það er í raun og veru. Léleg
þjálfun, slaemt viðhorf leikmanna
til leiksins (einkum Laettner) og lé-
legur miðherji (Stacey King) á
ekki eftir að bæta árangur liðsins.
Af hverju sjötta sætið?: Að það sé
til lélegra lið en Dallas er nánast
óhugsandi en þannig er það nú víst
með Minnesota. ■
Þessir tveir rísar eiga eftir að vera áberandi í vetur. Shawn Kemp (t.v.) og Hakeem Olajuwon hafa löng-
um verið í hópi bestu manna í sínum liðum og engin breyting verður þar á í vetur.
að starfa fýrir ruglaðasta eiganda
NBA en hefur sannað hversu frá-
bær þjálfari hann er með því að
leiða Utah tvisvar í úrslit Vestur-
deildarinnar. Mikið mun mæða á
bakverðinum Jeff Hornacek, sem
spilaði vel á síðasta ári.
Veikleikar: Utah er eitt elsta liðið í
NBA svo það er nú eða aldrei að
vinna titil. Það vantar margt upp á
til að svo verði, t.d. er skortur á
sterkari leikmönnum en þeim sem
fyrir eru mjög mikill í herbúðum
liðsins.
Af hverju þriðja sætið?: Utah er
reynt lið en jafnframt hungrað að
ná lengra. Liðið á þó ekki mörg ár
eftir í toppbaráttunni.
4. Denver Nuggets
(42-40)
Mikilvægar mannabreytingar:
Kominn er nýliðinn Jalen Rose.
Styrkleikar: Leikmenn liðsins eru
ungir og gífurlega áhugasamir. Dan
Issell, þjálfari Denver, hefur skap-
að góða stemmningu innan hóps-
ins eins og sást vel í úrslitakeppn-
inni í fyrra þegar liðið sló í gegn.
Dikembe Mutombo bindur vörn-
ina vel saman og Mahmoud Ab-
dul-Rauf er potturinn og pannan í
sóknarleiknum.
Veikleikar: Denver vantar tilfinn-
anlega leikstjórnanda til að stýra
spilinu. Hvorki Robert Pack né
Fróðleiksmolar um
Miðvesturriðilinn
■ í engum öðrum riðli var eins
mikill munur á unnum leikjum og
hjá Houston og Dallas. Houston
vann 45 fleiri leiki en Dallas sem
hefur aðeins unnið 24 leiki síð-
ustu tvö leikár.
■ Dallas og Minnesota skoruðu
fæst stig allra liða I fyrra. Dallas
skoraði 95,1 stig að meðaltali í
leik en Minnesota 96,7.
KJapp á
öxíína
...fá Vals-
menn sem
virðast ver;
feiknaformi
þessa dagana.
Það virðist alveg
sama á hverju
gengur hjá félaginu,
hvaða menn koma og
fara og hversu margir þeir eru, alltaf
skal liðið vera i allra fremstu röð.
Þorbjörn Jensson virðist vita allt
um handbolta og út á hvað hann
gengur. Hann veit hvenær er best
að nota lykilmenn og á réttum
augnablikum ieyfir hann hinum
yngri að spreyta sig. Liðið er það
allra besta á landinu og á bjarta
framtíð fyrir höndum. Þetta er vert
eftirbreytni. ■
Evrópukeppni landsliða
Wales í vandræðum
Walesverjar eru í vandræðum
með meiðsli og iíkur eru á að
margir lykilmenn liðsins verði frá í
Evrópuleiknum gegn Moldavíu á
miðvikudag. Ryan Giggs bættist á
sjúkralistann um helgina eftir að
hafa meiðst á æfingu, en áður var
ljóst að fyrirliðinn lan Rush gæti
ekki leilcið og ekki heldur Dean
Sounders, sem tekur út síðasta
leikinn í þriggja landsleikja banni.
Þar að auki eru litlar líkur taldar á
því að félagi Giggs hjá United,
Mark Hughes geti leikið en það
mun koma í ljós við læknisskoðun
á þriðjudag.
Landsliðsþjálfari Wales, Mike
Smith, er þvi í töluverðum vand-
ræðum og er talið að hann muni
gefa nokkrum nýliðum tækifæri í
leiknum mikilvæga.
írar einnig í vanda
írar virðast litlu betur settir fyrir
leik sinn gegn Lichtenstein, en Is-
lendingurinn Bragi Bergmann á
einmitt að dæma þennan leik í
vikunni. Fyrirliðinn Andy Town-
send verður eldci með og sömu-
leiðis eru litlar líkur á því að Ray
Houghton geti leikið. Þá er einnig
ljóst að miðvallarleikmaður Unit-
ed, Roy Keane, verður frá í leikn-
um sem írar telja nánast formsat-
riði að leika.
Til að bæta gráu ofan á svart í
þessum hnjaskfréttum er nú ljóst
að Skotar verða án fyrirliðans
Ryan Giggs Enn einn Walesbú-
inn á sjúkralista.
Gary McAllister í Evrópuleikn-
um við Færeyinga á miðvikudag-
inn. McAllister meiddist í ósigri
Leeds gegn Norwich á laugardag
og verður frá í viku. ■
HM í blaki lauk á laugardag
Ílalía heimsmeistari
annað árið í röð
ítalir urðu á laugardag heims-
meistarar í blaki í annað sinn, en
síðast unnu þeir titilinn 1990 í Bras-
ilíu. Italir unnu Hollendinga 3:1 í úr-
slitaleik en Bandaríkjamenn unnu
Kúbumenn í leik um þriðja sætið,
3:1.
Eftir að vera 5:10 undir í fýrstu
lotu skoruðu Italir tíu stig í röð og
unnu þar með lotuna 15:10. Hol-
lendingar unnu næstu lotu 15:11 og
munaði þar mestu um stórleik Olof
van der Meulen sem átti hvern
þrumuskellinn á fætur öðrum. Hon-
um gekk ekki eins vel í þriðju lotu og
smössin hans smullu flest á Andrea
Giani. ítalirnir unnu lotuna 15:11 eft-
ir það var eins og Hollendingarnir
Lokastaðan
í HM í blaki
1. Ítalía
2. Holland
3. Bandaríkin
4. Kúba
5. Brasilía
6. Grikkland
7. Rússland
8. Suður-Kórea
gæfust upp.
Mótstaðan var lítil í fjórðu lotu og
Italir unnu 15:1, og þar með leikinn
3!i-■