Helgarpósturinn - 10.11.1994, Side 13
FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1994
MORGUNPÓSTURINN
13
Geðsjúkur maður gekk
berserksgang á gæsluvelli
Þrjátíu og sex ára karlmaður olli
nýlega mikilli skelfingu meðal
barna á gæsluvellinum við Sæviðar-
sund þegar hann braut rúðu í æðis-
kasti. Maðurinn, sem á við geðræn
vandamál að stríða, kom á gæslu-
völlinn til að heimsækja móður
sína, Katrínu Karlsdóttur, en hún
er forstöðumaður leikvallarins. Að
sögn Katrínar var erindi mannsins
að falast eftir að fá bifreið hennar
lánaða en hún neitaði þeirri beiðni.
Skipti þá engurn togum að mikið
æði rann á son hennar og sparkaði
hann í gegnurn rúðu á húsi starfs-
manna leikvallarins og gekk ber-
serksgang þar innan dyra.
Bergur Felixson „Þetta er með
erfiðari málum sem hafa komið
inn á borð hjá okkur. Það kemur
ekki til greina að reka Katrínu".
Þær upplýsingar bárust MORG-
UNPÓSTINUM að maðurinn hefði
lagt hendur á Katrínu að börnun-
um ásjáandi en hún vill eldci gera
mikið úr því.
„Hann kom jú við mig en gekk
ekki í skrokk á mér,“ segir hún.
„Hann var óvopnaður en braut
rúðu og skar sig illa og það blæddi
mikið úr sárinu. Peysan mín varð
blóðug og fólk hélt kannski þess
vegna að ég hefði slasast."
Á gæsluvellinum vinna að jafn-
aði tvær konur og forstöðukonan
bað starfsstúlku sína að fara með
börnin út af leikvellinum á meðan
ósköpin dundu yfir og beðið var
effir sjúkrabíl.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
sonur Katrínar kemur á leikvöllinn
og veldur usla og hafa foreldrar
barna sem þangað sækja haft þung-
ar áhyggjur af málinu um hríð. í
þetta sinn keyrði þó um þverbak og
höfðu foreldrarnir því samband við
Dagvistun barna og fóru fram á úr-
bætur. f kjölfarið var Katrín sett í
leyfi en samstarfsstúlka Katrínar,
Sigurborg Sigurbjörnsdóttir
brást við því með því að safna
stuðningsyfirlýsingum við for-
stöðukonuna á meðal foreldranna
og um 6o foreldrar skrifúðu nöfn
sín á þann lista. Katrín var því sett í
starf sitt aftur viku eftir atburðinn,
en hún hefur unnið á gæsluvellin-
Gæsluvöllurinn við Sæviðarsund. Sonur forstöðukonunnar
er geðveikur og itrekaðar heimsóknir hans á völlinn hafa vakið
ugg meðal foreldra barna sem þangað sækja.
íbúð óskast
Þriggja til fjögurra herbergja íbúð óskast
til leigu í nágrenni Landspítalans eða í
Vesturbænum. Öruggum greiðslum
heitið og meðmæli útveguð ef óskað er.
Upplýsingar í síma 812249 eða 14768.
um í tæp 20 ár.
„Auðvitað get ég ekki tryggt að
svona komi ekki fyrir aftur,“ segir
Katrín, aðspurð um hvort öryggi
barnanna sé nú tryggt. „Maðurinn
er búinn að vera svona í tólf ár. Mér
finnst brotið á honum að hann
skuli ekki fá þá hjálp sem hann þarf
á að halda. Honum veitti ekkert af
því að fá vistun á stofnun til lengri
tíma. Þótt hann sé sviptur sjálfræð-
inu og komið fýrir á Kleppi getur
verið að hann sé kominn út daginn
eftir. Ég er orðin dauðþreytt á þessu
og finnst að kerfið mætti taka tillit
til aðstandenda geðsjúkra. Maður
þarf að lúffa fyrir svona
fólki endalaust og mér
finnst ég hafa rétt á að
halda vinnunni."
Bergur Felixson, fram-
kvæmdastjóri Dagvistar
barna, segir að þetta sé
með erfiðari málum sem
hefur komið inn á borð hjá
honum en verið sé að
reyna að finna viðunandi
niðurstöðu fýrir alla aðila
að því.
„Það kemur ekki til
greina af okkar hálfú að
segja Katríiju upp vinn-
unni af því að hún á geð-
sjúkan son. Það væri brot á
lögum. Hins vegar hefði
komið til álita að útvega
henni aðra vinnu hjá borg-
inni ef hún hefði sætt sig
við það sem hún gerði
ekki. Þetta er hennar lífs-
starf og hún hefur unnið
mjög gott starf á þeim
tveimur áratugum sem
hún hefur verið hjá okkur.
Við höfðum samband við
heilbrigðiskerfið og fórum
þess á leit að meiri ábyrgð
yrði tekin á þessum manni.
Þar höfum við fengið lof-
orð um að strangara eftirlit
verði haft með því að hann
taki inn lyfin sín og einnig
var sótt mjög ákveðið um
að hann fengi vist á til-
raunasambýli í öðru sveit-
arfélagi. Hann er á sambýli
hér í Reykjavík eins og er,
en hann gengur þar út og
inn þótt búið sé að svipta
hann sjálfræði.“ Bergur
segir ekki á valdi Dagvistar
barna að leysa heilbrigðis-
málin en skrifstofan beri
að sjálfsögðu ábyrgð á
starfsmönnum sínum og
því starfi sem stofnunin
standi fyrir. „Það er alveg á
hreinu að við höfum hags-
muni barnanna fyrst og
fremst að leiðarljósi, en svo
eru önnur lögmál sem
einnig verður að hafa til
hliðsjónar. Þú tryggir nátt-
úrlega ekki effir á, en við getum
aldrei verið þess fullviss að geðveik-
ir menn komist ekki inn á gæslu-
velli.“
Þeim foreldrum, sem hafa haft
mestar áhyggjur af þessu máli, hef-
ur verið bent á að leita til annarra
gæsluvalla í nágrenninu eftir þjón-
ustu fyrir börn sín, en eins og áður
sagði skrifaði meirihluti foreldr-
anna undir stuðningsyfirlýsingu
við forstöðukonuna.
Hundruð-
barna á aldrinum tveggja til sex ára
sækja gæsluvöllinn við Sæviðar-
sund í hverjum mánuði. -lae
SKEMMTANIR
ÍSPRINSESSAN LEONCIE -
HINN FRÁBÆRI
SKEMIVITIKRAFTUR VILL
SKEMMTA UM LAND ALLT.
MEIRIHÁTTAR
SKEMMTIATRIÐI.
AUKÞESS KENNIÉGSÖNG
0G PÍANÓLEIK. SÍMI 4 28 78
Oþið til kl. 18
' 1 egna gífurlegrar
aðsé nar verða
tllboðsdagar Bílahussin
framlengdir fram a
laugardag
í húsi Ingvars Helgasonar hfað Sœvarhöfða 2. Þar fœrð
þú
á frábœru
og jafnvel
jyrstu 6-8 mánuðina.
fyrsta hálfa árið fylgir bílnum og
Ingvar
Helgason hf.
Sævarhöföa 2
Sími 674848