Helgarpósturinn - 10.11.1994, Síða 17
FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1994
MORGUNPÓSTURINN FÓLK
17
INGÓ & ÁRNI
Þessir gömlu góðu fjölmiðlamenn —
ja, fjöllistamenn liggur manni við að
segja — sem hafa gefið landsmönn-
um svo mikið í gegnum tíðina bjóða
nú upp á sjóðbullandi heitan út-
varpsþátt sem heitir „Þriðji maður-
inn". Stórsnjallt og viðeigandi nafn
því þeir tveir taka þann þriðja tali
auk síteringarinnar í kvikmyndasög-
una en Árni er, eins og mönnum er
kunnugt, kvikmyndarýnir par exel-
ance. Árni er góður kostur fyrir Ingó í
staðinn fyrir Völu því auk þess að
vera með sítt og fagurt hár, eins og
Vala, þá toppar hann hana með því
að vera með skegg.
SVÍAVINIR
Þeireru kannski ekki margirá íslandi
í dag, sem gerir þá enn heitari. Það
er hallærislegt að vera að setja sig
upp á móti Svíum í einhverjum taps-
árindum. Þeir komu hingað og sýndu
drengilegan og góðan leik, einkum
íaxi, sem dónalegir afdalamenn á
pöllunum púuðu látlaust á. Svíar eru
í raun gull af þjóð sem stendur í
fremstu röð á hvaða vettvangi sem
er og tilgangslaust að berja hausnum
við steininn í því samhengi.
Salome Þorkelsdóttir
Hún er alveg við 0°. Þetta prófkjör er
auðvitað áfall en er úr svo háum
söðli að falla? í alvöru. Að sitja eins
og uppstríluð lukkuhjóladrottning í
eldri kantinum fyrir aftari Steingrím
Joð, Geir Haarde, Stínu Ást., Rönnsu
og þau öll, slá í bjöllu og segja:
„Ekki gleyma að segja, hæstvirtur
ráðherra!" er ekki eitthvað sem fólk
almennt ætti að leggja fyrirsig. Sal-
ome! Við mælum með skemmti-
ferðasiglingu um Karabíska hafið. Þú
átt það sicilið. „Levðu lívenu leee-
vandeeee," eins og popparinn í Vin-
um vors og blóma leggur þunga
áherslu á þegar hann syngur fyrir
æskulýðinn.
Karlmenn MEÐ TAGL
Heldur fer þetta síða sleikta hár,
bundið í tagl, kólnandi. Það hefur
reyndar verið lengi á niðurleið og
jafnvel þó Arnór gúmmíönd sé orð-
inn að helsta píslavotti þjóðarinnar
þá hefur það engin áhrif á stígandi
hallærisgang þessarar hárgreiðslu.
(Arnór! Þú mátt þó ekki skilja þetta
sem svo að þú eigir að farga taglinu.
Nei, þetta er einmitt hárgreiðslan
sem þú átt að hafa til að undirstrika
það hvað þú stendur einn og ýtir
undir samúð almennings.) En sem
sagt, einhverjum fannst þetta töff
þegar Jeff Bridges birtist svona útlít-
andi í fischer King fyrir margt löngu
en nú eru aðdáendur tagltískunnar
teljandi. Ps. Glóðvolgarfregnir
herma að Arnór hafi látið stífa taglið
og er því á hraðferð til vinstri miðað
við hitakvarðan hér að neðan.
Hitamælirinn í Austurstræti
Hvað er hann búinn að vera lengi bil-
aður? Eðli málsins samkvæmt er hér
um hagsmunamál þessa dálks að
ræða sem setur það fram sem ský-
lausa kröfu að þessu sé kippt í lag og
það strax. Það er algjört „rnust" að
það sé hægt að taka hitann á mið-
borginni.
GSM-símar
Þessi uppatæki geta svo sem verið
handhæg en nýtast flottræflunum þó
best í því að sýnast bissí og ómiss-
andi. Nú, uppismi er ekki bara kald-
ur, hann er ekki einu sinni á kortinu.
Menn sem eru að veifa þessu í tíma
og ótíma eru greinilega ekki allir þar
sem þeir eru séðir — það er ómögu-
legt að svo margir séu þetta miklir
viðskiptajöfrar að símalínan sé log-
andi út í eitt. Þetta er svona svipað
og þegar kærustupar er sleikjandi
hvort annað og helst framan i aðra.
Það er eitthvað bogið við það. Því er
það svo að tíðir stuldir á GSM-símum
eru jákvæðir á sinn hátt. Það má ylja
sér við það að tuldra, þegar GSM-
menn verða í veginum: Þjófur, þjóf-
ur, þjófur.
Spoon er að verða einhver heitasta hljóm-
sveitin á markaðinum í dag. Það varð degin-
um Ijósara þegar hijómsveitin með Emilíönu
Torrini fremsta í fiokki sté á svið á útgáfu-
tónleikum sínum í Tunglinu síðastiiðinn
þriðjudag. Stappað var í húsinu og múgur-
inn hátt stemmdur, hann hreinlega orgaði af
fögnuði. Ekki er langt siðan stúlkan atarna
var kjörin bjartasta vonin. Allt bendir til að
sú von sé að rætast.
Hárgreiðslu-
meistarar ís-
lands sýndu um
helgina hvað
tískan í þeim
efnum hefur upp
á að bjóða. Eins
og glöggt má
sjá var ekki
frumlegheitun-
um fyrir að fara.
Strákarnir eru
farnir að minna
á Elvis Presley,
enda náfölir í
framan með
bikasvart hár,
og ekki spillti
klæðnaðurinn
fyrir. Öðrum
þræði kom vax-
myndasafn Ma-
dam Tussaud í
London upp í
hugann. Stelp-
urnar voru hins
vegar stutt-
hærðar og flest-
ar rauðbirknar.
Allt lítur því út
fyrir að framfar-
irnar felist helst
orðið í því að
skærin séu orð-
in beittari og lit-
irnir fari betur
með hárið, og
ekki síst hár-
svörðinn. Nú
hlýst víst engin
flasa af sterku
efnunum.
Emilíana
Torrint
stjörf
öllum
fögnuðinum
Bakraddir Spoon voru í
fötum frá Sævari Karli
og Frikka og dýrinu.
Vinir Emilíönu úr Hár-
inu spiluðu fyrir hana á
bakraddir.
Sunnudasskvöldín
eru tj()lskyídukv()ld!
Heiinilisleg þjónusta.
Hollasti og ljúffengasti maturinn í bænum!
Opið mánudaga-föstudaga frá kl. 11:30 - 14:00 og 18:00 - 22:00
sunnudaga frá kl.18:00 - 22:00.