Helgarpósturinn - 10.11.1994, Blaðsíða 21

Helgarpósturinn - 10.11.1994, Blaðsíða 21
FiMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1994 MORGUNPÓSTURINN FÓLK 21 Súlunes 15 Stærð: 460,4 m2 Fjöldi íbúa: 4 Brunabótamat: 47.346.000 krónur Þetta er líklega það íburðarmesta af húsunum tólf hér á opnunni og hrópar á athygli vegfarandans. Gárungarnir segja steypuna í girð- ingunni einni duga í heilt hús og hliðið á heimreiðinni minnir helst á Beverly Hills. Til að kóróna dýrð- ina hefur tveimur ljónum verið komið fyrir á verönd „Hvíta húss- ins“, eins og það er gjarnan nefnt, og taka þau á móti gestum með kuldalegri þögn og ramm-enskum virðuleika. Eigandi villunnar er Jón Tryggvi Kristjánsson, end- urskoðandi hjá Endurskoðenda- þjónustunni í Skipholti. Húsið var reist árið 1984 og það var að sjálf- sögðu Kjartan Sveinsson sem hannaði herlegheitin. króna Sólevjargata 1 Stærð: 425.1 m2 Fjöldi íbúa: 1 Brunabótamat: Elsta og að margra mati glæsileg- asta húsið hér á opnunni. Það var Björn Jónsson, ráðherra og eig- andi ísafoldar, faðir Sveins Björnssonar forseta, sem byggði húsið árið 1912 eftir teikningum Rögnvalds Ólafssonar. Björn bjó í Ráðherrabústaðnum í nokkur ár áður en hann byggði þetta hús, og mun kona hans, Elísabet Sveins- dóttir hafa verið lítt sátt við það hús. Kallaði hún bústaðinn Sval- barða, því mikið næddi um Björn í hans ráðherratíð. Nýja húsið við Sóleyjargötuna var nefnt Staðar- staður eftir kirkjustað þeim á Snæ- fellsnesi, sem Elísabet var ættuð ffá. Ekki fékk Björn þó notið hins nýja húss lengi, því hann lést sama ár og hann flutti inn í það. Elísabet flutti sig þá á efri hæðina og bjó þar með Ólínu Andrésdóttur skáldkonu, en sonur hennar, Sveinn, flutti á neðri hæðina með fjölskyldu sína. Hann bjó í húsinu þar til hann var sendur til Kaup- mannahafnar árið 1920. Árið 1922 eignaðist Magnús Guðmundsson ráðherra húsið og bjó í því til árs- ins 1938. Þá keypti það Þorsteinn Scheving Thorsteinsson apótek- ari í Reykjavíkurapóteki. Kristján Eldjárn keypti það af erfingjum Þorsteins árið 1974. Félagsvísinda- stofnun Háskóla Islands leigði hús- ið af Kristjáni og var Ólafúr Ragnar Grímsson einn þeirra, sem þar uppfræddu nemendur sína. Krist- ján flutti í húsið árið 1980, en Stað- arstaður hf., núverandi eigandi hússins, keypti það af erfingjum hans árið 1986. Staðarstaður hf. er hlutafélag, sem samkvæmt hluta- bréfaskrá, hefur það markmið að „kaupa, eiga og reka fasteignir.“ Húsið var leigt Reykvískri endur- tryggingu hf. þar til í fyrra, en þá flutti Gísli Örn Lárusson, sem er einn af stjórnarmönnum Staðar- staðar hf., í húsið. Hann býr þar einn, en í samtali við blaðamann sagðist hann síður en svo einmana í þessu virðulega húsi í hjarta bæj- arins. Að sögn Gísla hefur mikið verið falast eftir húsinu til kaups undanfarin ár, en það er ekki á dagskránni í nánustu framtíð að selja það. Stærð:317m2 & i , Fjöldi íbúa: 0 n&æfcza ■"> Brunabótamat: 39.448.487 krónur Það var Guðmundur Jensson, framkvæmdastjóri og annar eig- andi Nýja bíós, sem byggði húsið á árunum 1926-1927. Þorleifur Eyj- óifsson og Sigurður Pétursson húsameistari teiknuðu það. Árið 1978 seldi ekkja Guðmundar, Þór- dís Sigríður Sigurðardóttir, hús- ið. Kaupandi var Ebenezer Þ. Ás- geirsson, forstjóri Hansa hf. í Reykjavík. Karl Steingrímsson, eða Kalli í Pelsinum, eins og hann er gjarnan kallaður, keypti húsið af Ebenezer árið 1988 í nafni fýrirtæk- is síns Kirkjuhvols hf. Nú er það hins vegar komið í eigu Islands- banka, sem vill selja. Vilja banka- menn fá um það bil 30 milljónir fýrir húsið, sem er allt hið glæsileg- asta og mikið til í upprunalegu ástandi. Brunabótamat: 47.087.042 krónur Hofsvallagata 1 Stærð: 482,8 m2 Fjöldi íbúa: 2 Brunabótamat: 46.602.711 krónur Bára Þórarinsdóttir, eigandi tískuverslunarinnar Lilju og móðir Lilju Hauksdóttur í Cosmo byggði þetta slot í Laugarásnum á svipuðum tíma og Guðjón B. Ól- afsson var að byggja sitt aðeins of- ar, eða á árunum 1985-1987. „Gull- Bára“, eins og sumir kalla hana, fékk einnig Kjartan Sveinsson til að hanna sína glæsivillu, eins og nágranni hennar, Guðjón. Sam- kvæmt þjóðskrá veitir þetta hús syni Báru, Hauki Erni Haukssyni, skjól fýrir veðri og vindum auk hennar sjálfrar. Valhúsabraut 39 Stærð: 424 m2 Fjöldi íbúa: 5 Brunabótamat: 44.537.000 krónur Ragnhildur Pétursdóttir, sem á verslunina Body Shop á íslandi ásamt bróður sínum Oddi G. Pét- urssyni, er skráður eigandi þessa glæsilega húss. Það stendur efst á Valhúsahæðinni og býður upp á Útsýni yfir Skerjafjörðinn á aðra hliðina og Faxaflóann á hina. Ragnhildur nýtur þessa útsýnis í félagi við eiginmann sinn, Þorvald Jónsson skipamiðlara, og þrjú börn þeirra hjóna. Úlrik Árthúrs- son teiknaði húsið, en það var byggt árið 1991. Vallá á Kialarnesi Stærð: 549,1 m2 Fjöldi íbúa: 4 Brunabótamat: 38.018.000 krónur Einbýlishús hjónanna Hjördísar Gissurardóttur og Geirs Gunn- ars Geirssonar að Vallá á Kjalar- nesi er líklega best þekkta einbýlis- hús iandsins. Þau byggðu sjálft íbúðarhúsið árið 1974 eftir teikn- ingu Einars V. Tryggvasonar, en það var ekki fyrr en þau bættu við- byggingunni við árið 1989 að fólk fór að veita því verulega athygli. Það voru þau Vífill Magnússon og Halla Hannesdóttir sem teiknuðu hana og hafa þau Geir og Hjördís varla haft flóafrið fyrir forvitnum ferðalöngum alla tíð síðan hún var reist. Húsið blasir við öllum þeim, sem aka Vesturlandsveginn, og hafa ófáir þeirra tekið á sig krók til að skoða húsið. Að sögn Hjördísar eru þau hjónin orðin langþreytt á þessum ágangi óviðkomandi fólks, sem hikar jafnvel ekki við að ganga alveg upp að húsinu og gægjast þar á glugga. Að öðru leyti eru þau afar ánægð í húsi sínu, og segir Geir það vissulega yndislega tilfinningu að búa í þessu sérstæða og fallega húsi. I viðbyggingunni, sem meðal annars þjónar þeim tilgangi að skýla íbúðarhúsinu fýrir Kjalarnes- rokinu, er bílageymsla og lítið „brúðuhús“, sem ætlað var dætr- um þeirra hjóna, en hefur lítið nýst til slíks ennþá þar sem dæturnar voru orðnar full gamlar fýrir svo- leiðis skemmtilegheit þegar það var tilbúið. Hjördís segir viðbygging- una ekki jafn stóra og hún lítur út fyrir að vera, því miklar og breiðar grjóthleðslur í útveggjum þeki stóran hluta grunnflatarins. Af- gangurinn af viðbyggingunni var hugsaður sem vinnuaðstaða fyrir Hjördísi, en er óinnréttaður og varla nema fokheldur ennþá. Þau hjónin segjast hafa ákveðnar hug- myndir um framtíðarhlutverk þessa hluta byggingarinnar, en segja það vera leyndarmál enn um sinn bvað það verður. Þetta er hið síðasta af þeim örfáu íbúðarhúsum, sem Guðjón Samú- elsson, fyrrum húsameistari ríkis- ins, teiknaði. Það var Vilhjálmur Þór, íýrrverandi ráðherra, Lands- og Seðlabankastjóri, fulltrúi Is- lands hjá Sameinuðu þjóðunum og fulltrúi allra Norðurlanda hjá Al- þjóðabankanum, fyrsti formaður Flugfélags Akureyrar (sem síðar breyttist í Flugfélag Islands) og heiðursborgari New York borgar með meiru, sem fékk Guðjón til að teikna húsið fyrir sig. Hann byggði það árið 1946, eða sama ár og hann settist á forstjórastól Sambands ís- lenskra samvinnufélaga. Björgólf- ur Guðmundsson, forstjóri Vik- ing- Brugg og fýrrum Hafskipa, keypti húsið af ekkju Vilhjálms ár- ið 1983, en seldi það Herluf Clau- sen íjársýslumanni árið 1988. Herluf missti húsið á nauðungar- uppboði snemma á þessu ári í kjöl- far langvarandi og alvarlegra íjár- málaörðugleika. Hann býr þó enn í húsinu, því núverandi eigandi þess er sambýliskona hans, Sigríður Ingvarsdóttir, umboðsmaður enska uppboðsfyrirtækisins Sothe- by’s á Islandi. Hún mun hafa keypt það skömmu eftir uppboðið. Tjaldanes 15 Stærð: 392,8 Fjöldi íbúa: 3 Brunabótamat: 43.264.000 krónur Ólafur Ólafsson læknir fékk Hall- dór Gíslason arkitekt til að teikna þetta hús fyrir sig árið 1990. Ólafur seldi Boga Ó. Pálssyni, fram- kvæmdastjóra P. Samúelssonar húsið hálfklárað. Bogi átti það ekki lengi, því skömmu síðar seldi hann það íýrirtækinu sem hann stýrir. Hann býr þar þó enn, því Páll Samúelsson, faðir hans, gekk frá leigusamningi við hann fýrir hönd fyrirtækisins, Eins og fram kom í Eintaki þann 10. febrúar síðastlið- inn, borgar Bogi leiguna með því að gangast í ábyrgðir fyrir fyrirtæk- ið. Þetta er fallegt hús og einkenn- andi fyrir stíl Halldórs, en hann brýtur gjarnan hús sín og þök upp í margar að því er virðist sjálfstæð- ar einingar, sem þó mynda eina rökrétta heild. Skildinganes 24 Stærð: 475,2 m2 Fjöldi íbúa: 4 Brunabótamat: 37.405.627 krónur. Vífill Magnússon, sá hinn sami og hannaði viðbygginguna við Vallá, teiknaði þetta sérstæða hús í Skerjafirðinum. Það voru þau Gísli Guðmundsson, forstjóri Bifreiða- og landbúnaðarvéla og Bessí Jó- hannsdóttir, sjálfstæðis- og veit- ingakona sem byggðu húsið eftir teikningum Vífils á árunum 1986-1987. Séð frá götunni er það ekki ýkja ólíkt mörgum einbýíis- húsum öðrum, enda þótt sérstök áferð útveggjanna vekji óneitanlega nokkra athygli. Hjólreiðamenn og göngugarpar, sem leggja leið sína eftir hinum nýja hjóla- og göngu- stíg meðfram sjónum, gera hins vegar oftar en ekki stuttan stans við þetta hús. Sjávarmegin blasir nefnilega við turn einn mikill, sem líkist einna helst gömlum vita á Bretlandsströndum. Myndarlegur stjörnukíkir er í turninum ásamt koníaksstofu svokallaðri, og við þeim, sem þar sitja og dreypa á íiinum dýru veigum, blasir Skerja- fjörðurinn í allri sinni dýrð.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.