Helgarpósturinn - 17.11.1994, Qupperneq 7
FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1994
MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR
7
Fyrir rúmlega tveimur árum tóku ný gjaldþrotalög gildi sem kveða á
um að öll gjaldþrotaskipti skuli fara til skiptastjóra. Yfirgnæfandi
meirihluta gjaldþrotaskipta lýkur hins vegar án þess að eignir finnist
upp í kröfur en þau mál hefðu ekki farið til skiptastjóra fýrir laga-
breytinguna. Þetta fyrirkomulag hefur því fýrst og fremst fært lög-
mönnum auknar tekjur því nú fá þeir mál til meðhöndlunar sem
áður hefðu ekki komið til þeirra kasta.
lligmiiyóna
í fyrra lagði Gjaldheimtan fram 490 beiðnir um gjaldþrota-
skipti, úrskurðað var í um það bil einum þriðja af þessum
málum. Þetta þýðir að í kringum 165 aðilar voru gerðir
gjaldþrota að ósk Gjaldheimtunnar.
tekjuauki fyrir
lögmenn
Samkvæmt gjaldþrotalögum sem
tóku gildi þann 1. júlí 1992 fara öll
gjaldþrotamál til skiptastjóra eftir að
héraðsdómur hefur kveðið upp
gjaldþrotaúrskurð. I lögunum, sem
Markús Sigurbjörnsson, nýskip-
aður hæstaréttardómari, samdi, er
einnig kveðið á um að sá sem biður
um gjaldþrot þarf að reiða fram
150.000 króna tryggingargjald fýrir
því að kostnaður við meðhöndlun
gjaldþrotsins fáist greiddur.
Á síðasta ári urðu 940 gjaldþrot á
íslandi. Kostnaður við gjaldþrota-
meðferð er mjög mismunandi eftir
umfangi hvers gjaldþrots. Ef hins
vegar er gengið út frá því að kostnað-
ur við hvert gjaldþrot nemi upphæð
tryggingargjaldsins, fæst út að gjald-
þrot síðasta árs hafi fært skiptastjór-
um 141 milljón krónur í tekjur.
Áður en nýju gjaldþrotalögin tóku
gildi var meðferð gjaldþrotamála á
þann vega að fúlltrúar fógeta unnu
að þeim og sendu aðeins skipti til
bústjóra (skiptastjóra) þegar kom í
ljós að einhverjar eignir voru fyrir
hendi. Önnur mál var lokið við hjá
embættinu. Gjaldþrotameðferð hjá
fógeta kostaði sáralítið og stundum
kom það fýrir að beiðnir um gjald-
þrot voru sendar inn vegna skulda
upp á örfá þúsund. Þetta kerfi var
komið út í mikið óefni og það var
langt frá því að embætti fógeta réði
við þann mikla fjölda gjaldþrota-
beiðna sem kom á ári hverju.
Hugmyndin að baki 150.000
króna tryggingargjaldinu var meðal
annars sú að færa kostnað vegna
gjaldþrotameðferðar yfir á þá sem
hiðja um gjaldþrotaskipti. Einnig var
vonast til þess að gjaldþrotabeiðnum
myndi fækka og að ekki væri beðið
um gjaldþrot nema einhverjar eignir
væru til staðar, og þar af leiðandi
möguleiki á því að fá eitthvað upp í
kröfur.
Fyrst effir að lögin tóku gildi
fækkaði gjaldþrotabeiðnum nokkuð
en hefur aftur verið að fjölga og
stefnir hraðbyri í sama far og var fyr-
ir lagabreytinguna.
Engar eignir finnast
í flestum tilvika
Sigurjóna Símonardóttir dóm-
arafúlltrúi hefur umsjón með gjald-
þrotamálum hjá Héraðsdómi
Reykjavíkur. Að hennar sögn lýkur
gjaldþrotaskiptum i langflestum til-
vikum án þess að nokkrar eignir
finnist í búum. Sigurjóna vildi ekki
nefna ákveðið prósentuhlutfall í
þessum efnum en heimildir blaðsins
herma að um það bii 75 prósent
gjaldþrotaskipta ljúki án þess að
eignir fmnist upp í kröfur. Meðferð
eignarlausra búa er í flestum tilvik-
um tiltöiulega einföld aðgerð og út-
heimtir ekki mikla vinnu. Hlutverk
skiptastjóra er í grófum dráttum að
auglýsa eftir kröfum í búið, leita
eigna og ef einhverjar eignir finnast,
halda veðhafafund. Einnig þarf að ná
í þann sem hefúr verið úrskurðaður
gjaldþrota og láta viðkomandi gefa
skýrslu. I mörgum tilfellum er þetta
lítil vinna og í raun og veru ekkert
sem þarf að að fá skiptastjóra til að
sjá um. En nýju lögin eru skýr og all-
ir gjaldþrotaúrskurðir þurfa að fara
til skiptastjóra þrátt fyrir að einsýnt
sé að engar eignir séu fyrir hendi upp
í kröfúr. Þetta fýrirkomulag hefur
því fyrst og ffemst fært lögmönnum
auknar tekjur því nú fá þeir mál til
meðhöndlunar sem áður hefðu ekki
komið til þeirra kasta. Ef það er haft
til hliðsjónar að 75 prósentum gjald-
þrota lýkur án þess að eignir finnist
og að þau mál hefðu ekki farið til
skiptastjóra fyrir lagabreytinguna,
má gróflega áætla að nýju gjaldþota-
lögin hafí fært lögmannastéttinni
rúmlega 80 milljóna króna tekju-
auka.
Tollstjórí og Gjald-
heimta eiga helming
Um það bil helmingur allra gjald-
þrota á síðasta ári voru úrskurðuð að
beiðni Tollstjóraembættisins og
Gjaldheimtu Reykjavíkur. Kostnað-
ur þessara rikisstofnanna vegna
tryggingargjalda skiptir tugum millj-
óna króna. Nokkur misbrestur er
talinn á því að ávinningur ríkisins af
því að óska eftir gjaldþroti sé rétt
metinn innan þessara stofnana.
Venjulegur kröfuhafi metur málin í
samræmi við upphæð kröfunnar og
þær líkur sem eru á því að fá eitthvað
upp í hana við gjaldþrotaskipti en
dæmi eru um það að embætti Toll-
stjóra óski eftir gjaldþroti þótt skuld-
ir séu aðeins óverulegar og einsýnt
að ekkert fáist upp í þær. Skynsam-
legra og kostnaðarminna væri fyrir
ríkið að afskrifa lágar skuldir að
Arið 1993 voru 940 aðilar úrskurðaðir gjaldþrota á Islandi. I ár stefnir í
að gjaldþrotin verði umtalsvert fleiri.
Nokkur misbrestur er talinn á því að ávinningur ríkisins af því að óska eftir gjaldþroti sé rétt metinn hjá Toll-
stjóra en dæmi eru um það að embættið óski eftir gjaldþroti þótt skuldir séu aðeins óverulegar og einsýnt
að ekkert fáist upp í þær. ,
loknu árangurslausu fjárnámi í stað
þess að borga há laun til skiptastjóra
þegar einsýnt er að ekkert fáist upp í
kröfur.
Opinber gjöld sjaldan
afskrífuoan gjaldþrots
Þórður Þórðarson, skrifstofu-
stjóri hjá Gjaldheimtunni í Reykja-
vík, segir að þar sé ekki beðið um
gjaldþrot fyrr en allar aðrar leiðir
hafa verið reyndar. f fyrra lagði
Gjaldheimtan ffam 490 beiðnir um
gjaldþrotaskipti árið 1993. Að sögn
Þórðar var úrskurðað í um það bil
einum þriðja þessara mála en í lang-
flestum tilvikum var um fýrirtæki að
ræða. Útlagður kostnaður Gjald-
heimtunnar í tryggingagjöld var 9,6
milljónir, eða 60.000 krónur að
meðaltali við hvert gjaldþrot. Að-
spurður um hvort farið sé fram á
gjaldþrot þó skuldir séu ekki umtals-
verðar svaraði Þórður að svo væri
ekki.
„Þetta er vegið og metið í hverju
tilviki. Forsaga málsins er skoðuð,
upphæð skuldarinnar og hversu
gömul hún er. Það er alveg ljóst að
við förum ekki með menn í gjaldþrot
fyrir lágar upphæðir. Gjaldþrota-
beiðni er algjört neyðarúrræði af
okkar hálfu.“
Tollstjóraembættið er öllu stór-
tækari en Gjaldheimtan í þessum
efúum. Á síðasta ári lagði embættið
fram 838 beiðnir um gjaldþrotaskipti
sem er um það bil 22 prósent allra
beiðna sem lagðar voru ffam á land-
inu. f flestum tilvikum var farið fram
á gjaldþrot hjá einstaklingum. Á
þessu ári hefúr gjaldþrotabeiðnum
Tollstjóra fjölgað umtalsvert. Ef
fýrstu sex mánuðir ársins 1993 eru
bornir saman við sama tímabil í ár er
aukningin um það bil 25 prósent en
Þórður Sveinsson, lögfræðingur
hjá Tollstjóra, segir að gjaldþrota-
beiðnir embættisins á þessu ári séu í
kringum 100 á mánuði. Að sögn
Þórðar eru um það bil 40 prósent af
beiðnum tekin til gjaldþrotaúr-
skurðar, en það þýðir að á síðasta ári
hafi í kringum 335 gjaldþrotaúr-
skurðir verið felldir að ósk Tofl-
stjóraembættisins. Fulltrúar emb-
ættisins treystu sér ekki til að gefa
upp hver kostnaður þess hefði verið í
fyrra vegna tryggingargjalda, en ef
reiknað er með því að meðaltals-
kostnaður Tollstjóra við hvert mál
hafi verið sá sami og hjá Gjaldheimt-
unni hefur embættið þurft að leggja
út í kringum 20 milljónir í trygging-
argjöld. Það hefúr lengi loðað við
Tollstjóra að þar séu skuldarar hik-
laust settir í gjaldþrot fýrir tiltölulega
lágar skuldir. Þórður staðfesti að það
væri stefna embættisins að sýna
skuldurum fúlla hörku.
„Flest gjöld sem embættið hefur til
innheimtu fara sjálfkrafa í gjald-
þrotabeiðni, hvort sem skuldir þeirra
eru háar eða lágar.“
Þórður leggur áherslu á að gjald-
þrotabeiðni reynist oft árangursrík
innheimtuaðferð þegar skuldir eru
lágar en hins vegar sé því svo farið að
sjaldan fáist nokkuð upp í kröfur
þegar til gjaldþrotaúrskurðar komi.
Þórður tók undir að það gæti verið
hagstæðara fýrir ríkið að afskrifa
kröfur þegar það má vera ljóst að
ekkert fáist upp í þær en hann benti
jafnframt á að ákveðnar vinnureglur
væru hjá embættinu varðandi af-
skriftir skulda.
„Þessar vinnureglur eru mótaðar í
samráði við fjármálaráðuneytið. f
þeim er kveðið á um að það skuli
metið hverju sinni hvað eigi að fara í
gjaldþrot og hvað ekki.“
Þórður bætir því við að það sé ein-
ungis í mjög sérstökum tiifeflum sem
skuldir séu afskrifaðar án þess að
gjaldþrotaleiðin sé farin.
Samkvæmt upplýsingum blaðsins
er verið að skoða þann möguleika í
stjórnkerfinu að láta menn sæta
frekari ábyrgð en hefúr tíðkast vegna
skilasvika á ’vörsluskatti. Skilasvik á
til dæmis virðisaukaskatti eru í raun
og veru ekkert annað en fjárdráttur
og hugmyndin er að menn verði
sóttir til saka fýrir dómstólum á
sama grundvelli fýrir þessi brot.
Baríst um búin
Eftir að nýju gjaldþrotalögin tóku
gildi var settur saman listi hjá hér-
aðsdómum yfir þá lögmenn sem
höfðu áhuga á að taka að sér starf
skiptastjóra og síðan hefur verið bætt
við hann nöfnum þegar menn óska
eftir. Eina skilyrðið sem lögmenn
þurfa að uppfyíla til að fá starfið er
að skila inn afriti af starfsábyrgðar-
tryggingu sinni. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Héraðsdómi Reykjavíkur
eru langflestir starfandi lögmenn í
Reykjavík á þessum lista sem sýnir
glögglega áhuga lögmanna á að fá bú
til skipta.
Engar ákveðnar úthlutunarreglur
eru fýrir hendi í gjaldþrotaskipta-
málum. Héraðsdómarar úthluta
málum til skiptastjóra eftir að gjald-
þrotaúrskurður hefúr verið kveðinn
upp og að sögn fulltrúa héraðsdóms-
ins er reynt að „jafna málum á milli
manna“.
Þrátt fýrir að skiptastjórar beri
mjög mismikið úr býtum eru gjald-
þrotaskiptamál mjög eftirsótt meðal
lögmanna, eða eins og einn viðmæl-
anda blaðsins sem starfar að inn-
heimtumálum sagði: „þeir berjast
um búin“. Eins og áður hefur komið
fram lýkur yfirgnæfandi meirihluta
gjaldþrotaskipta án þess að eignir
finnist. f þeim tilfeflum útheimtir
gjaldþrotameðferðin yfirleitt ekki
mjög mikla vinnu en heimildir
blaðsins segja að það sé mjög mis-
munandi hversu háa reikninga lög-
menn senda fýrir vinnu samsvarandi
búa, sumir rukka alltaf 150.000
króna tryggingagjaldið á meðan aðr-
ir senda mun hógværari reikninga.
-jk
m síðustu heigi var rúða brotin
í glugga hljómplötuverslunarinnar
Hljómalindar og pappalíkneski í
fullri stærð af Madonnu stolið. Eig-
andi verslunarinnar, Kristinn Sæ-
mundsson, hefur um nokkra hríð
safnað líkneskjum af söngkonunni
kynþokkafullu en eintakið sem var
numið á brott var það nýjasta í safni
hans. Þeir sem hafa upplýsingar um
ferðir Madonnu eru beðnir um að
hafa samband við Kristin en hún
var aðeins klædd pallíettubikiníi af
minnstu gerð þegar hún hvarf...
Líbanski veitingastaðurinn Mar-
haba við Rauðarárstíg mun gefa
konum tækifæri til að snæða frítt á
næstunni. Skilyrðið er að þær
hringi sjálfar og panti borð og gang-
ist undir að dansa magadans í þar
til gerðum búningi áður en þær setj-
ast að snæðingi. Hugmyndin að
þessari nýbreytni mun vera komin
frá Aladin Yassin, eiganda veitinga-
hússins, en hann leggur áherslu á að
konurnar láti vita af uppákomunni
fyrirfram því ekki mun vera skortur
á tilboðum um slíkan dans cftir að
þær eru búnar að teyga veigar húss-
ins. Þegar þjónustustúlka á Mar-
haba var spurð hvort hún óttaðist
ekki að íslenskir karlmenn færu
með málið fyrir Jafnréttisráð stóð
ekki á svörunum. Hún sagði að
magadans hefði orðið til í upphafí
sem æfing fyrir ófrískar konur til að
styrkja vöðva þeirra og hún vissi
ekki af neinum karlmönnum sem
hefðu orðið vanfærir. Þar með væru
þeir átómatískt útilokaðir...
XJttekt Loga Bergmanns Eiðsson-
ar á klámi í Internetinu í Kastljósi
hefur vakið mikla athygli. Freyr
Þórarinsson, kennari við Tölvuhá-
skólann, hefur sakað Loga um
fréttafölsun á þeim forsendum að
ekki sé hægt að nálgast klámið
nema með því að panta það sérstak-
lega. Aðrir halda þvi fram og þykj-
ast hafa sannreynt að það séu marg-
ar leiðir til að nálgast þetta for-
boðna efni sem getur verið mjög
subbulegt svo vægt sé til orða tekið.
Farið sé inn á gagnabankann og
megi fínna svokallaða „sex diepers"
inn á alt-skrám. Tölvufræðingar eru
sérstaklega argir út í Loga og telja
hann hafa unnið talsvcrt ógagn með
umfjöllun sinni. Þeir vita að Logi er
sjálfur enginn tölvuspekingur og
leita nú logandi ljósi að hjálpar-
manni hans án þess að það komi
fram hvað gert verði í framhaldi af
því. Talsverðar bréfaskriftir hafa
farið fram inni á menntanetinu og
hefur Logi tekið þátt
í þeim þar sem
hann meðal annars
líkir netinu við
garð þar sem
finna megi ang-
an óteljandi
blóma en það
þýði ekkert að
loka augunum
fyrir því að
það sé arfi í
tölvugarð-
inum og
hann beri
að reita...