Helgarpósturinn - 15.05.1995, Qupperneq 2
FRETTIR
Myndi ekki Ha bað
kott mér væri hoðið
™ h rf nöf ol/l/1 PApf nff if t^i 71 h nf
„Ég hef ekki sóst eftir því, hef
engan áhuga og myndi ekki
þiggja það þótt mér væri boð-
ið,“ sagði Hrafn Gunnlaugsson,
en þrálátur orðrómur hefur ver-
ið á kreiki að undanförnu meðal
starfsmanna ríkisútvarpsins
um að Hrafn eigi að taka sæti
Halldóru J. Rafnar sem formaður
útvarpsráðs, en skipað verður í
ráðið að nýju þegar þing kemur
saman á næstunni.B
Hrafn Gunnlaugsson:
Myndi ekki þiggja það
þótt mér væri boðið.
Þetta VAR LÍKA
í FRÉTTUM
Norskir sjómenn eru
óhressir með vanmátt
norskra ytirvalda í mál-
efnum Síldarsmugunn-
ar.
Páll Pétursson félags-
málaráðherra œtlar að
komast hjá því að lög-
gilda tilskipanir Evrópu-
sambandsins um há-
marksvinnutíma barna
og unglinga.
íslendingar sigruðu á
Ólympíuskákmóti barna
og unglinga á Kanaríeyj-
um. Þeir sigruðu Eng-
lendinga í lokaumferð-
inni en Ungverjar urðu í
öðru sœti.
Komið hefur í Ijós að
símastefnumótalínan
hefur verið herfílega
misnotuð.
Fleiri stúlkur en strákar
fara imeðferð hjá Með-
ferðarstöð ríkisins.
Umboðsmaður barna
œtlar að heimsœkja
börn á Vesttjörðum.
Viðrœður um stœkkun
álvers eru á fullu, en
lögfrœðingar funda í
nœstu viku.
Hestamaður frá Akra-
nesi fótbrotnaði í fyrri-
nótt þegar hann féll af
baki.
Sex slösuðust í hörðum
árekstri í Borgarnesi og
fíutti þyrla tjóra á slysa-
deild.
Parið ham-
aðist við
fiöldaáhorf í
aagsbirtu
„Dætur mínar og vinkona
þeirra, sem reyndar eru nú orðn-
ar 17 og 22 ára, voru á sundi í lón-
inu um hádegisbilið á sunnudag-
inn þegar þær syntu fram á par
sem var að eðla sig á fullri ferð
niðri í vatninu,“ sagði Ágúst Ág-
ústsson, faðir tveggja systra úr
Reykjavík sem voru í Bláa lóninu
um hádegisbilið á sunnudag.
Stúlkunum brá heldur betur í
brún þegar þær syntu fram á par-
ið, sem virtist ekkert kippa sér
upp við nærveru þeirra. „Samfar-
irnar stóðu yfir í einar fjörutíu
mínútur,“ sagði Ágúst, „og þarna
urðu þær vitni að öllum hugsan-
legum samfaraaðferðum sem par-
inu var unnt að finna upp á. Eldri
dóttir mín varð í byrjun vör við
einhvern annarlegan svip á par-
inu, sem hún veitti athygli, og lét
systur sína og vinkonu vita undir
eins. Fyrst ætluðu þær ekki að
trúa eigin augum en við nánari at-
hugun sáu þær að parinu var full
alvara. Leikurinn endaði þannig
að karlmaðurinn, sem virtist um
25 ára aldur, greip um mjaðmir
konunnar og tók að hamast á
henni að aftanverðu. Stúlkurnar
sáu sér ekki annað fært en að
synda að bakkanum og tilkynna
atburðinn vakthafandi starfs-
mönnum, sem ypptu einungis
öxlum og sögðu ómögulegt að
gera nokkuð við svona löguðu.
Pósturinn fékk þau svör hjá Óla
Eiríkssyni, starfsmanni Bláa lóns-
ins, seint á sunnudagskvöld að
starfsfólk lónsins hefði ekki feng-
ið neinar fregnir af atburðinum
og einnig að það væri ósköp lítið
sem þau gætu gert við svona lög-
uðu: „Það er ómögulegt fyrir okk-
ur að staðhæfa um gjörðir fólks í
lóninu," sagði Óli.H
Manndráp í Haf narfirði
Bjfrejð Júlíusar og reiðhjól Sigur-
geirs á götormf í Flatahauni í Hafn-
arfirði. Grunur leikur á að Júlíus
hafi ekið á Sjgurgeir með fullum
r ásetningi, en hann léstáðuren
' omst á slysadeild.
Itannk
•Um kl. 22.30 á föstudagskvöldið var ekið aftan á hjólreiðamann
þar sem hann var á ferð vestur Flatahraun í Hafnarfirði. Farið var
með hann á slysadeild Borgarspítalans en hann var látinn er
þangað var komið. Maðurinn hét Sigurgeir Sigurðsson, 43 ára
byggingaverktaki, og lætur hann eftir sig konu, uppkomna dóttur
frá fyrra hjónabandi auk sjö ára dóttur frá fyrri sambúð.
Sigurgeir hafði verið töluvert í
fréttum undanfarið ár vegna um-
gengnisdeilu við barnsmóður
sína, Katrínu Gerði Júlíusdóttur.
Júlíus Norðdahl, nítján ára son-
ur Katrínar, ók á Sigurgeir og
leikur grunur á að um ásetnings-
verk hafi verið að ræða. Hann
hafði ítrekað haft í hótunum við
Sigurgeir og unnið skemmdar-
verk á eignum hans.
Sigurgeir var á Ieiðinni heim af
AA-fundi og var staddur í
grennd við Kaplakrika þegar bíll-
inn lenti á honum. Júlíus er nú í
haldi Rannsóknarlögreglunnar.
Bifreið Sigurgeirs stóð fyrir
utan heimili hans meðan hann
var á fundinum, en nú hefur
komið í ljós að skorið var með
eggjámi á hjólbarða hennar
sama kvöld og Sigurgeir lést.
Júlíus hefur gengist við þeim
verknaði að sögn Gísla Pálssonar
rannsóknarlögreglumanns. Gísli
segir rannsókn málsins á frum-
stigi, en Júlíus var í stöðugum yf-
irheyrslum í gær. í gærkvöldi
hafði ekki verið farið fram á
gæsluvarðhald yfir honum en
ákvörðun um það verður tekin
seinna í dag.
• „Sigurgeirkærði
skemmdarverkin
jafnóðum til lögregl-
unnar í Hafnarfirði
og óskaði eftir að
hún aðhefðist eitt-
hvað í málinu, en því
varsynjaðáþeim
grundvelli að hér
væri um fjölskyldu-
erjurað raeða.“
FSOKNIR OG SKEMMDARVERK
í frétt Póstsins 13. mars síðast-
liðinn kom fram að Júlíus hefði
játað við yfirheyrslur hjá RLR að
hafa kastað kókflösku í gegnum
rúðu á heimili Sigurgeirs í Hafn-
arfirði. Þá sagði Sigurgeir meðal
annars: „Ég hef ekki frið heima
hjá mér fyrir eldri börnum
barnsmóður minnar. Þetta
gengur það langt að þau ráðast
á eignir mínar. Viðhorf Katrínar
til mín eru slík að eldri börnin
eru farin að eyðileggja eigur
mínar. Það hafa ítrekað verið
brotnar rúður í húsinu mínu og
bílar sem standa fyrir utan verið
skemmdir með spörkum og syk-
ur verið settur í bensínið."
Sigurgeir kærði skemmdar-
verkin jafnóðum til lögregl-
unnar í Hafnarfirði og óskaði
eftir að hún aðhefðist eitthvað
í málinu, en því var synjað á
þeim grundvelli að hér væri
um Qölskyldueijur að ræða.
Árið 1991 var tekin fyrir um-
gengni Sigurgeirs við dóttur
hans og Katrínar vegna ásak-
ana hennar um að hann hefði
misnotað dóttur þeirra kyn-
ferðislega. Sigurgeir neitaði
staðfastlega að nokkuð væri
hæft i þeim ásökunum og fór
fram á að RLR rannsakaði mál-
ið. Rannsóknarlögreglan
Bifreið Sigurgeirs, sem Júlíus hef-
ur þegar viðurkennt að hafa eyði-
lagt hjólbarðana á kvöldið sem
hann ók Sigurgeir niður.
komst að þeirri niðurstöðu að
ekki væri ástæða til að rann-
saka hvort fótur væri fyrir
ásökunum Katrinar eftir að
hafa sett sig í samband við fé-
lagsmáiayfirvöld í Hafnarfirði.
Slíkar beiðnir ber þó að rann-
saka samkvæmt lögum.
Sigurgeir lagði fram kæru til
RLR á hendur Katrínu vegna
ásakana hennar auk kæru á fé-
lagsmálastjóra í Hafnarfirði,
sem hann sagði hafa borið Ijúg-
vitni í málinu, og Gissur Krist-
jánsson, lögfræðing og fyrrver-
andi formann Barnaverndar-
nefndar Hafnarfjarðar. Sagði
Sigurgeir Gissur hafa vikið sæti
við afgreiðslu málsins vegna
fjölskyldutengsla hans og Katr-
ínar, en hann hafi séð til þess að
enginn lögfræðingur væri skip-
aður í sinn stað í málinu. „Hann
studdi systurdóttur sína í aðför-
inni að mér,“ sagði Sigurgeir.
HGENGNISDEILAN
Við vinnslu fréttar Póstsins um
meintar ofsóknir barna Katrínar
á hendur Sigurgeiri var rætt við
Katrínu, þar sem hún gekkst við
að Júlíus hefði kastað flöskunni
inn um gluggann hjá honum en
Frétt Póstsins frá 13. mars
1995 þar sem Sigurgeir
kvartaði yfir skemmdar-
verkum Júlíusar á heimili
sínu.
hj.***.
það hefði ekki verið að
undirlagi sínu. Hún
sagði Sigurgeir hafa
beitt Júlíus slíku and-
legu ofbeldi þegar
þau bjuggu saman að
hann væri ekki bú-
inn að jafna sig enn-
þá. „Það er ýmislegt
sem situr enn í börn-
unum frá þessum
tíma,“ sagði Katrín. í
kjölfar fréttarinnar
sagði Sigurgeir hins
vegar í samtali við
blaðamann Póstsins
að barnsfaðir eldri
barna Katrínar
hefði haft forræði
yfir börnunum
meðan á sambúð
þeirra stóð yfir
og því hefði hann
sjálfur haft lítið
af þeim að segja.
Undanfarin ár litaði umgengn-
isdeilan allt líf Sigurgeirs. Hann
taldi Katrínu hafa brotið um-
gengnisrétt sinn og gagnrýndi
félagsmálayfirvöld harðlega
vegna afskiptaleysis þeirra um
meint brot hennar á umgengn-
inni. Katrín þvertók fyrir nokkur
samskipti Sigurgeirs við dóttur
þeirra og hann hafði ekki fengið
tækifæri til að sjá hana frá því
hún var tveggja ára, eða í fimm
ár. Til að reyna að knýja fram
umgengni við dóttur sína greip
Sigurgeir til þess ráðs árið 1994
að „depónera" meðlagið með
henni inn á bankareikning
(greiðslu haldið fram að upp-
fylltum skilyrðum), en allt kom
fyrir ekki og yfirvöld aðhófust
ekkert í málinu.
- ‘r.Srr"*
. u
\RATTA I
BARNAVERNDARMALUM
í vor sagði Sigurgeir að hann
hefði í raun og veru gefist upp í
baráttunni fyrir að fá að eiga
samskipti við dóttur sína, en
hann ætlaði aldrei að hætta að
berjast fyrir endurskoðun á
barnaverndarmálum hérlendis.
Taldi hann eðlilegt að fjallað
væri um slík mál af dómstólum
eins og önnur dómsmál og birt-
ust greinar hans um þessi efni í
dagblöðum. Gagnrýndi hann
sérstaklega að rannsóknaraðili
og úrskurðaraðili væri hinn
sami í bamavemdar- og for-
ræðismálum og taldi það brot
á mannréttindum. Þá dró hann
í efa faglega þekkingu þeirra
sem starfa að barnaverndarmál-
um og kærði starfsmann barna-
verndarnefndar og félagsmála-
stjóra Hafnarfjarðar til ríkissak-
Frétt Póstsins frá 22. desember
1994 um kærur Sigurgeirs til rík-
issaksóknara á hendur félags-
málayfirvöldum í Hafnarfirði.
sóknara fyrir brot í starfi, þar á
meðal skjalafals.
Vísaði hann þar til þess að sá
aðili, sem hafði mál hans til
meðferðar hjá félagsmálastjórn
Hafnarfjarðar, titlaði sig félags-
ráðgjafa en hafði ekki prófgráðu
til grundvallar því starfsheiti.
Sagði Sigurgeir félagsmálayfir-
völd „skáka í skjóli fagmennsku
sem engin er“ í Póstinum 22. des-
ember 1994.
Sigurgeir var ötull liðsmaður
samtakanna Fjölskylduverndar
og starfaði margvisst að bar-
áttumálum sínum innan þeirra.
Pétur Gunnlaugsson, lögfræð-
ingur og formaður félagsins,
sendi félagsmálayfirvöldum í
Hafnarfirði bréf fyrir um það bil
einum og hálfum mánuði þar
sem hann lýsti yfir áhyggjum
sínum yfir máli Sigurgeirs og
gagnrýndi „vanhugsaðar að-
gerðir“ félagsmálayfirvalda.
Taldi hann þessar aðgerðir hafa
lagt líf margra fjölskyldna í rúst
en segir bréfinu einungis hafa
verið svarað með skætingi.
Eins og áður sagði var Sigur-
geir byggingaverktaki auk þess
sem hann hafði umboð fyrir ým-
is efni til notkunar í byggingar-
iðnaði. Að undanförnu hafði
hann þó að mestu einbeitt sér
að listmálun og tónlist.
Rannsóknarlögreglan vildi
ekki staðfesta hvort Júlíus ætti
við geðræn vandamál að stríða,
en hann hefur leitað sér með-
ferðar végna eiturlyfjaneyslu.B