Helgarpósturinn - 15.05.1995, Page 8
FRETTIR
G. Pétur Matthíasson. „Það standa mörg hundruð fermetr-
ar auðir og ókláraðir uppi í Efstaleiti, en þar á meðal ann-
ars að vera stúdíó fyrir fréttamenn Sjónvarpsins."
Fr^tuimenp í
:ulltrúi Vinnueftirlitsins hélt nýveriö fund með
starfsmönnum Sjónvarps og kynnti niðurstöður úr
könnun sem það gerði á vinnuaðstöðu þeirra. Á
fundinum kom fram að Vinnueftirlitið krefst þess af
forsvarsmönnum stofnunarinnar að nú þegar verði
gerðar tímasettar tillögur til lagfæringa og úrbóta,
en fyrri tillögur Vinnueftirlitsins hafa verið virtar að
vettugi.
Það standa mörg hundr-
uð fermetrar auðir og
ókláraðir uppi í Efstaleiti,
en þar á meðal annars að
vera stúdíó fyrir frétta-
menn Sjónvarpsins."
Pétur segir fréttamenn
Sjónvarps hafa sam-
þykkt mótmæli varðandi
„Ástandið á fréttastof-
unni er mjög slæmt og
fer versnandi. Vinnu-
svæði hvers manns á að
vera um sjö fermetrar en
á fréttastofunni er það
allt niður í þijá fer-
metra," segir G. Pétur
Matthiasson, formaður
Félags fréttamanna sjón-
varps og útvarps.
„Fulltrúi Vinnueftirlits-
ins á fundinum sagði að
Vinnueftirlitið fylgdi ekki
reglugerðum eftir heldur
benti bara á það sem
miður færi, þótt hér væri
um lögbrot að ræða. Ég
held að þetta sé bara eitt
af þeim málum þar sem
ekki er farið eftir reglu-
gerðum.“
G. Pétur telur ástæð-
una fyrir að ekki hefur
verið ráðist í úrbætur á
aðstöðu fréttamanna
Sjónvarps þá að undan-
farin ár hefur staðið til að
flytja frétjastofu Sjón-
varpsins í Útvarpshúsið.
„Við erum alltaf á leið-
inni upp í Efstaleiti en
það er beðið eftir endan-
legri ákvörðun,“ segir G.
Pétur. „Ég veit ekki hvar
þetta mál er statt því það
er alltaf að breytast. Síð-
astliðin tíu ár hefur stöð-
ugt verið sagt að frétta-
stofan verði flutt eftir tvö
ár í Útvarpshúsið, en
staðið hefur á efndunum.
C „Síöastliöin
tíu ár hefur stöð-
ugt verið sagt að
fréttastofan
verði flutt eftir
tvö ár í Útvarps-
húsið en staðið
hefur á efndun-
aðstöðuleysi sitt og lagt
fram þá ósk að bætt
verði úr því með því að
flytja í Efstaleiti eða að
fréttastofan fái aukið
rými við Laugaveginn.
„Yfirmenn Sjónvarpsins
viðurkenna að vandinn
sé mestur á fréttastof-
unni, en ég á eftir að
senda samþykktir okkar
út og það mun ég gera
þegar ég mæti í vinnuna
í dag,“ segir G. Pétur
Matthíasson.B
lllaléslð macgfaldaði sölnna
Salan á Camel Filters- og Camel Lights-sígarettum hefur marg-
faldast á flestum stöðum í heiminum á undanförnum árum og
margir telja það fyrst og fremst vera vegna nýrra leiða sem fyrir-
tækið hóf að fara í auglýsingum sínum seint á síðasta áratug.
Árið 1988 hélt framleiðandi Ca-
mel, RJ Reynolds, upp á 75 ára
afmæli sitt og kynnti við það
tækifæri teiknimyndafígúru að
nafni Joe Camel í auglýsingum
sínum fyrir Camel Filters og Ca-
mel Lights. Joe er svalur töffari
og gagnrýnendur tóbaksauglýs-
inga segja auglýsinguna sérlega
ísmeygilega og að markhópur-
inn sé óharðnaðir unglingar. í
fyrsta lagi er þarna um teikni-
myndafíguru að ræða sem höfði
fyrst og fremst til ungra reyk-
ingamanna og í öðru lagi sé and-
litið á Joe eins og getnaðarlimur.
Hönnuðir auglýsinganna bera á
móti því að ætlunin hafi verið að
láta Joe vera eins pg titling í
framan heldur sé hann með
snoppu af kameldýri.
Pósturinn talaði við Friðrik
Theodórsson, framkvæmda-
stjóra hjá Rolf Johansen, um-
boðsfyrirtæki Camel á íslandi, en
hann segir að tilkoma Joe Camei
hafi ekki haft nein áhrif á söluna
hér á landi þrátt fyrir að myndir
af honum birtist reglulega í er-
lendum tímaritum sem fást í ís-
lenskum bókabúðum.
Eigi að síður hefur sala á Ca-
mel Filters og Camel Lights auk-
ist um nær helming síðastliðin
þijú ár á fslandi og ungir reyk-
ingamenn eiga mestan þátt í
þeirri aukningu.H
Andlitið á Joe Camel vakti strax
mikla athygli og mörgum fannst
það minna á getnaðarlim. Salan á
Camel Filter og Camel Lights hefur aukist
um nær helming hérlendis á síðastliðn-
um þremur árum.
stofur erlendis en Elite, Ford og
Next pg þannig mætti áfram
telja. Ásta segir einnig öflugan
markað vera í Asíulöndunum
fyrir norrænar hávaxnar fyrir-
sætur og bindur hún sterkar
vonir við þann markað. „Þessi
aðferð hefur aldrei verið reynd
áður hérlendis og það verður af-
ar áhugavert að sjá hvert hún
leiðir okkur. í það minnsta lofar
byrjunin góðu og nú þegar hefur
geysilega sterk svörun skilað
sér til okkar hér í Eskimo Mod-
els og stúlkurnar streyma inn.“
Til gamans má geta þess að á
öllum stúdíómyndum verður
klæðnaður fyrirsætanna íslensk-
ur, þannig að erlendar umboðs-
skrifstofur kynnast alíslenskri
hönnun jafnframt því sem feg-
urð stúlkna okkar verður brátt
sýnileg á erlendum markaði í
ríkara mæli en áður. Hönnuður
fatnaðarins er Alda Guðjónsdótt-
ir, en flíkurnar selur hún í versl-
uninni Frikka og Dýrinu.B
Ungar og hávaxnar stúlkur sem stunda fyrirsætustörf geta átt
von á góöum tíðindum ef marka má ágæta byrjun nýrrar módel-
skrifstofu hérlendis er ber nafniö Eskimo Models.
Ásta Sigríður Kristjánsdóttir og fæturna sem fyrst og geta unnið
Kanadamaðurinn Mark Bradbury
standa að baki firmanu, sem ný-
verið hóf starfsemi, en Ásta
mun einnig starfa sem ljós-
myndari á umboðsskrifstofunni.
Ásta var sjálf við fyrirsætustörf
um nokkurra ára skeið víða um
heim og flutti aftur til íslands í
febrúar síðastliðnum frá Tai-
wan, þar sem hún starfaði.
Nokkur tölvuvinnsla er við úr-
vinnslu ljósmynda, þannig að
fyrirsætur geta átt von á sterk-
um ljósmyndum sem segja sex.
Námskeið fyrir fyrirsætur, þar
sem þær læra allt frá A til Ö í
starfi áður en á hólminn er kom-
ið, virðast nú vera orðin úrelt í
augum þeirra sem starfa að fyr-
irsætumálum og segir Ásta aðal-
áherslu Eskimo Models vera á
að kenna stúlkunum að standa í
að módelstörfum sjálfstætt.
„Ætlun fyrirtækisins er að ráða
fáar stúlkur til starfa en leggja
þess í stað áherslu á gæði og
þokka fyrirsætanna sem hjá Es-
kimo Models starfa. Til að byrja
með legg ég mesta áherslu á há-
vaxnar stúlkur, sem eru afar eft-
irsóttar í dag hér sem erlendis,
en við stefnum óneitanlega inn
á erlendan markað í einhverjum
mæli.“
ÍSLENSK HÖNNUN FRÁTOPPI
TILTAAR
Fyrirsæturnar sem verða
ráðnar til umboðsskrifstofunnar
munu því óneitanlega leggja lín-
urnar fyrir útllt fyrirtækisins og
hafa nú einar fjórar íslenskar
stúlkur verið ráðnar til starfa
hjá Eskimo Models. „Ég el þá
Sigrún frá Eskimo Models í fatnaö
frá Frikka og Dýrinu.
von með mér að geta hjálpað
stúlkunum til sjálfsbjargar í
heimi fyrirsætunnar, jafnframt
því sem ég mun standa að baki
þeim og aðstoða við að komast
áfram í bransanum.“
Eskimo Models mun vera í
tengslum við ekki ófrægari skrif-