Helgarpósturinn - 03.08.1995, Síða 10
10
FIMIvlTUDAGÚ RoTTÍGU ST'1'9’9'5
lögfræðing og með-
ferðarfulltrúa, til
T ryggingastofnunar.
Skúli hefur undanfar-
ið unnið að margvís-
legum meðferðar-
stofnunum í Svíþjóð
og á íslandi en flest-
ar hafa þær farið í
þrot með einum eða
öðrum hætti. Má þar
nefna Meðferð hf. og
Saga Svartnes. Ekki
er alveg ljóst hvað
Skúli á að gera innan
stofnunarinnar en
starf það sem hann
hefur verið ráðinn í
var ekki auglýst. Inn-
an stofnunarinnar er
rætt um að kunn-
ingsskapur hafi ráðið
einhverju um ráðn-
inguna en ljóst má
þó vera að fáir eða
engir hafa jafn mikla
þekkingu og Skúli á
áfengismeðferðar-
málum...
s
FT
Leigjendur í Húsi framtíðar-
innar, Faxafeni 10, hafa sent
beiðni til Heilbrigðiseftirlits rík-
isins um að kanna hávaðameng-
un sem berst frá útvarpi á
fyrstu hæð hússins, en sam-
kvæmt upplýsingum PÓSTSINS
hefur heyrst þaðan hátt stillt sí-
bylja allan sólarhringinn frá því
um miðjan júlí. Tónlistin berst
nánar tiltekið frá eiganda tísku-
verslunarinnar Lilju, Báru Þor-
steinsdóttur, sem þar rekur aðra
af tveimur verslunum sínum.
Um hríð hefur Bára átt í stríði
við íslandsbanka vegna stórs
ops sem er á milli fyrstu og ann-
arrar hæðar hússins sem hún
vill láta loka. En þess má geta að
íslandsbanki, sem auk þess að
vera að mestu eigandi efstu
hæðar Húss framtíðarinnar,
seldi Báru fyrstu hæðina fyrir
um einu og hálfu ári síðan á 96
milljónir króna.
„Ástandið er sérstaklega
óþolandi fyrir þá sem þarna
vinna á kvöldin og nóttunni,
einkum þá sem þarna eru að
vinna í prentbransanum og að
auglýsingagerð, því eftir lokun
verslunarinnar á daginn virðist
hún hækka enn frekar í tækjun-
um,“ sagði formaður húsfélags-
ins, Heimir Óskarsson, í samtali
við blaðið. „Hún hefur útvarpið
líka ótrúlega hátt stillt á daginn
miðað við að hún er sjálf að
reyna að stunda viðskipti
þarna,“ bætir hann við.
Það munu einkum hafa verið
leigjendurnir sem hafa kvartað
undan hávaðanum og hafa þeir
þegar leitað aðstoðar lögregl-
unnar sem ekkert hefur viljað
aðhafast í málinu.
Hús framtíðarinnar var upp-
haflega reist utan um eina starf-
semi, eða bílasölu Sveins Egils-
sonar. Þegar fyrsta hæðin var
seld var jrví gerður eignaskipta-
samningur, en á fyrstu hæðinni
þar sem nú er tískuverslunin
Lilja var upphaflega gert ráð fyr-
ir bifreiðasýningarsal, á meðan
efri hæðin, sem má segja að sé
aðeins byggð á svölum, var ætl-
uð undir skrifstofur. Um það bil
300 fermetra op blasir því við á
milli fyrstu og annarrar hæðar
hússins.
Samkvæmt heimildum PÓSTS-
INS gerði Bára Þorsteinsdóttur
sér enga grein fyrir afleiðingum
þessa ops þegar hún keypti hús-
næðið af íslandsbanka á sínum
tíma, en í gegnum opið er nokk-
uð hljóðbært og hefur Bára
meðal annars kvartað um há-
vaða sem heyrist frá prentþjón-
ustunni. Formaður húsfélagsins
sem jafnframt er eigandi Offset-
þjónustunnar mótmælir því
harðlega og segir engan óeðli-
legan hávaða berast frá prent-
þjónustunni né öðrum fyrirtækj-
um í kring.
Að mati viðmælenda PÓSTSINS
er málið bara þannig vaxið að
Bára keypti köttinn í sekknum;
Hörður Óskarsson, formaður húsfélagsins, segist hafa orðið vitni að ýmsum furðulegum
uppákomum í Faxafeni 10. „Hún hefur útvarpið líka ótrúlega hátt stillt á daginn miðað við
að hún er sjálf að reyna að stunda viðskipti þarna," segir hann.
hún hafi ekki gert sér grein fyrir
annmörkum hússins fyrr en of
seint og nú vill hún rifta samn-
ingnum við bankann. Það breyti
þó ekki því að hún eigi sjálf að
reyna að virða umhverfi sitt.
LOKAÐI
LEIGJEIUDUR IIUIUI
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
Bára lætur til sín taka í Húsi
framtíðarinnar því þegar hún
um tíma reyndi að koma upp
eins konar „Kolaporti" í húsinu,
sem ekki gekk upp, mun hún
hafa lokað inni leigjendur sem
ekki greiddu fyrir húsaleigu.
„Ég hef orðið vitni af nokkrum
furðulegum uppákomum hérna.
Meðal annars get ég staðfest
það að eitt sinn voru leigjendur
lokaðir hérna inni. Frá því
greindu leigjendurnir okkur
sjálfir. Hins vegar held að það
hafi bara verið létt grín hjá
henni; hún hafi rokið út og læst
á eftir sér en svo komið skömmu
síðar og hleypt þeim út,“ sagði
formaður húsfélagsins.
Bára Þorsteinsdóttir neitaði
alfarið að tjá sig um málið við
PÓSTINN og vísaði því til föður-
húsanna.B