Helgarpósturinn - 05.10.1995, Page 2

Helgarpósturinn - 05.10.1995, Page 2
2 FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 1995 HP spyr Er O J Simpson sekur eða sak- laus? Fjóla Steingrímsdótt- ir nemi: „Ég held að hann sé sekur.“ Þórður Vagnsson dagskrárgerðarmaður: „Ég mundi dæma um það ef ég væri í kvið- dómi. Ég er ekki í að- stöðu til að taka af- stöðu." Kim Larsen, vísinda- maður frá Danmörku: „Ég hef ekki fylgst með þessu frá upphafi og þekki ekki þau sönn- unargögn sem lögð hafa verið fram. En ég hef það á tilfinningunni að hann sé I aðstöðu til að fá bestu lögfræðingana og þannig sýknudóm." Nína Björk Þórsdóttir nemi: „Ég held að hann sé sekur. Allt sem fram hef- ur komið bendir til þess en þeir gátu ekki sannað það. Hann hefur nátt- úrulega efni á að borga bestu lögfræðingum Bandaríkjanna, sem tapa aldrei. Það er því ekkert skrítið þótt hann hafi verið sýknaður." Callie McDonald, eróbikkþjálfari frá Bandaríkjunum: „Þetta er fáránleg spurn- ing. Tólf manna kviðdóm- ur af mismunandi stétt- um, kyni og kynþáttum — ólíkar manneskjur — kemst að því eftir fjög- urra tíma fund að hann sé saklaus. Maður er ekki sekur fyrr en sekt hans er sönnuð. Hann er saklaus. Helsta sönnunargagnið var blóðugur hanski sem var svo lítill að hann, handstór sem hann er, átti ekki möguleika á að komast í hann. Sökinni var komið á hann.“ Egill Ólafsson stórleikari er á leið utan til að taka þátt í sérstakri afmælisuppfærslu á Vesalingunum í Royal Albert Hall í London á sunnudag. Guðrún Kristjánsdóttir ræddi við goðið um heimsfrægðina sem hann ef til vill hafnaði Vesalings Egill Af því tilefni að tíu ár eru lið- in frá því söngleikurinn Vesal- ingarnir var fyrst settur upp í London hefur Agli Ólafssyni, stórleikara og tónlistarmanni með meiru, verið boðið að taka þátt í sérstakri konsert- uppfærslu á söngleiknum sem fram fer í Royal Albert Hall á sunnudag. Að Agli meðtöldum er tíu leikurum, sem brugðið hafa sér í hlutverk Jean Valje- an, boðið til London. „Camer- on Makintosh Ltd.; fyrirtækið sem setur upp Vesalingana, Cats og fleiri söngleiki, hefur af rausnarskap boðið nokkrum vesalingum víðs vegar að úr heiminum til London af þessu tilefni. Það verður örugg- lega afar gaman að hitta japanskan kollega sinn,“ segir Egill Ólafsson, ein af okkar fyrstu söng- leikjastjörnum, sem fyr- ir sjö árum brá sér í þetta hlutverk í til- komumikilli uppfærslu Þjóðleikhússins, og var þá þegar orðinn nokkur sjóaður í söngleikjum. Egill segir að ekki muni mæða mikið á honum í Lond- on. „Við, þessir tíu, verðum að- eins með í nokkrum línum í upphafi og enda verksins. Svo verður partí á eftir þar sem maður sýnir sig og sér aðra og svo framvegis: Að öðru leyti er konsertinn sunginn af þeim einsöngvurum sem upphaflega tóku þátt í sýningunni í Lond- on. Mér skilst að Colm Wilkin- son, sem lék upprunalega Jean Valjean í London en er nú Jean Valjean í New York, verði í að- alhlutverkinu á sunnudag." Augljóst má vera að hróður Egils hefur borist víða, því þetta er ekki í fyrsta sinn sem hann er beðinn að rifja upp Je: an Valjean í Vesalingunum. í vor var leitað til hans frá Mak- intosh og hann beðinn að taka að sér aðalhlutverkið í Hels- inki, í uppfærslu sem frum- sýnd verður eftir áramót. „Ég var þá búinn að ráða mig í Þrek og tár. Maður er alltaf fastur í einhverjum samning- um. Svo er ég svo óttalega heimóttarlegur og trúr upp- runa mínum að ég vil hvergi annars staðar vera en á Is- Egill Olafsson rifjar upp sjö ára gamlar minningar í Royal Albert Hall í London á sunnudag. Honum var einnig boðið aðalhlutverkið í Vesalingunum í Helsinki en þáði ekki. landi. Hitt er svo annað mál að það er allt.af gaman að kynnast einhverju öðru.“ Erum uið hér á íslandi að koma í veg fyrir heimsfrœgð þína? „Ég veit það ekki,“ segir hann og dregur seiminn, „... ætli það sé ekki eitthvað annað sem kemur í veg fyrir það? Af einhverjum völdum — eins og segir í kvæðinu — hefur það reynst mér um megn.“ Þess má geta að konsertupp- færslan í London verður tekin upp fyrir þarlent sjónvarp. Vonandi fáum við íslendingar að sjá eitthvað af því í framtíð- Hljómsveitin sem mest kraumar undir í dag er sýru-djasssveitin Sælgætisgerðin. — Nýtt og ferskt í íslensku tónlistarlífi, segja þeir sem til þekkja. Djass fyrir þá sem hlusta ekki á djass Þeir líkjast ekki Júpíters, ekki Milljónamæringun- um og ekki Mezzoforte; þeir hafa eitthvað algjörlega nýtt fram að færa í íslensku tónlistarlífi. Þetta er mat manna sem hlýtt hafa á „sýru- djass“-sveitina Sælgætisgerð- ina, sem í gær og á sunnudag tekur upp læf á Glaumbar. Sögur herma að seint á sunnudagskvöld hafi Bubbi Morthens — eftir að hafa sjálf- ur átt annríkt kvöld — verið svo áfjáður í að heyra í sveit- inni að hann hafi hringt niður á Glaumbar rétt í þá mund sem átti að loka staðnum og farið fram á það við þjón nokkurn, sem þar starfar, að Sælgætis- gerðin fengi að spila tvö eða þrjú lög til viðbótar, bara fyrir hann. Þjónninn varð ekki við þessari bón Bubba. Það breytir því ekki að þetta kvöld voru helstu sprautur íslensks tón- listarlífs með eyrun opin á Glaumbar. En hver er þessi sveit sem Bubba fýsirsvo mjög að hlýða á og hvað er sýrudjass? „Sælgætisgerðin varð til á Glaumbar fyrir ári, en auk mín skipa hana Ásgeir Jón Ásgeirs- son, Jón Ómar Erlingsson, Samúel Jón Samúelsson, Birg- ir Nielsen og Snorri Sigurðs- son; allt strákar úr FÍH,“ segir Steinar Sigurðsson saxófón- leikari hljómsveitarinnar. „Djassinn sem við spilum er mjög blandaður. Eins og við tölum gjarnan um er þetta djass fyrir þá sem hlusta ekki á djass. Þetta er enda mun þægi- legri og skemmtilegri tónlist en hefðbundinn djass. Við erum bara nýtt band sem komið er til þess að hleypa nýju blóði í ís- lenskt tónlistarlíf.“ Steinar segir töluverðan lúðrablástur í Sælgætisgerð- inni, en auk saxófóns er einn á básúnu og annar á trompet. „Munurinn á okkur og Júpíters er til dæmis sá að í þeirri hljómsveit voru sjö á blásturs- hljóðfærum og því var þar sá bigbandfílingur sem ekki er að finna í okkar hljómsveit. Svo gaulum við stundum sjálfir eða fáum til liðs við okkur gesta- söngvara." Góður rómur er semsé gerð- ur að þessari nýju hljómsveit, sem í heilt ár hefur slípað sig saman á sunnudagskvöldum á Glaumbar og er um þessar mundir að taka þar upp geisla- disk. Þeir sem vilja vera með í óhljóðunum og klappinu geta því brugðið sér á Glaumbar á sunnudagskvöld og hlýtt á það sem verður á væntanlegri geislaplötu þessarar forvitni- legu hljómsveitar. Strákunum í Sælgætisgerð- inni hefur tekist að skapa sér- stakt andrúmsloft á Glaumbar á sunnudagskvöldum. Helstu sprautur íslensks tónlistarlífs eru farnar að leggja við hlustir. Garðar Vilhjálmsson, bróðir Einars spjótkastara, heldur eftirminnilegt afmælisboð Þrítugsafmæli um borð í Fokker og snekkju Garðar Vilhjálmsson framkvæmda- stjóri varð þrítugur nú seint í sept- ember. í sjálfu sér er ekki í frásögur færandi þegar menn ná þeim áfanga nema hvað sumum er lagnara en öðrum að láta á sér bera. Afmælisdagur Garðars rann upp 21. september og var efnt til veislu tveimur dögum síðar, þann 23., sem bar upp á laugardag. Alls var hátt í eitt hundrað mönnum og konum boðið í fagnaðinn, sem hófst með því að gestir voru boðaðir á Reykjavíkurflugvöll. Þegar þangað kom var hersingin kölluð út í tvær af fokkervél- um Flugleiða sem voru að búa sig undir flugtak á leiðinni til Nuuk á Grænlandi. Fólkið þusti út í vél og var þar lesin hin hefðbundna rulla „... hæð yfir Grænlandi, skyggni ágætt...“ o.s.frv. Flugferðin náði þó ekki öllu lengra því þar við sat og var nú gestunum, eftir þetta litla glens, vísað út í rútu pg haldið á vit skemmtisiglinga- skipsins Árness. Endanlegur áfangastað- ur afmælisveislunnar var semsé um borð í Árnesi. Siglt var um sundin blá fram und- ir morgun í dýrlegum fögnuði. Þótt afmælisveisla þessi teljist með frumlegra móti kom það vinum og kunn- ingjum Garðars — sem er einn aðstand- enda Sumarhúsaiðjunnar, fyrrverandi bílasali og einnig fyrrverandi sólbaðs- stofueigandi — ekki svo mjög á óvart, því Garðar er þekktur fyrir að berast mikið á, eða eins og einn vina hans orðaði það: „Ef Garðar væri kvenmaður myndi hann ör- ugglega nota lykkju frá Cartier.“ , Hvar vprður Amundl Amunda- son á næstunni? Ámi dansar kalypsó á Ba- hamaeyjum! Það er ljóst að það gustar um Alþýðuflokkinn um þessar mundir eins og sjá má á bréfi Sigurðar Tómasar Björgvins- sonar hér á öðrum stað í blaðinu. En það vegur ekki síður þungt að lífið og sálin í flokksstarfinu, Amundi Ámundason, lét nýlega af störfum sem auglýsingastjóri Alþýðublaðsins. Menn spyrja sig: Hvað verður um Áma? — en margir telja hann töfra- mann á sínu sviði. „Það er búið að bjóða mér vinnu á öllum fjöl- m i ð 1 u m 1 a n d s i n s nema Tíman- umý sagði Ámundi þeg- ar blaðamað- ur HP hitti hann á förnum vegi í gær. En Ámundi er ekkert að stressa sig. „Nú er stefnan tekin á Bahamaeyjar,“ sagði hann hinn brattasti. „Þar vérð ég frá 12. þessa mánaðar til þess 18. og fer með breiðþotu Atlanta. Þar ætla ég að dansa kalypsó og er einmitt núna í Kramhúsinu að læra samba og tjatjatja til að vera við öllu búinn. Nú, ég geri ekki langan stans á íslandi þegar ég kem frá Bahamas því þann 19. fer ég í helgarferð til Amsterdam. Þegar ég kem aftur skulum við sjá hverjir verða í starfi hjá Alþýðublaðinu og flokkn- um.“ Ámi segist núna vera að beita sér fyrir því að fá at- vinnuleysisbæturnar hækkað- ar og segist ekki muni slá hendinni á móti forstjóra- stöðu hjá Atvinnuleysistrygg- ingasjóði ef til hans verði leit- að. En að endingu, Ámundi: Er OJ Simpson sekur eða sak- laus? „Ég mundi segja að hann væri sekur. Mér finnst réttar- kerfi Bandaríkjanna gersam- lega hafa brugðist. Það er út úr korti að halda níu mánaða réttarhöld og svo eru ein- hverjir menn í kviðdómi, sem ekkert hafa til brunns að bera, og segja að hann sé sak- laus eftir stutta fundarsetu. Því miður er ég ekki eins myndarlegur og Simpson og yrði örugglega dæmdur sekur ef ég færi til Bandaríkjanna.“ Hrósið fœr Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir borgarstjóri fyrir að vera eina hugsanlega forsetaefnið sem hafði vit á að aftaka framboð með öllu. Nú situr hún landsmóðurleg í ráðhúsinu á meðan hinir rífa í hár sér af angist...

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.