Helgarpósturinn - 24.04.1996, Qupperneq 2
2
MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL1996
Klæðskiptingamyndir
tileinkaðar Arna Johnsen
„Segir það sig ekki sjálft?“, sagði Ijós-
myndarinn Sóla, Sólrún Jónsdóttir, þeg-
ar HP spurði hvers vegna sýning sem
hún er að opna væri tileinkuð Arna John-
sen. Ljósmyndasýning Sólu verður opn-
uð á veitingahúsinu 22 við Laugaveg á
laugardaginn kemur. Myndirnar á sýn-
ingunni verða liðlega 20 — „sennilega
22,“ segir Sóla — og eru af klæðskipt-
ingum í San Fransiskó. Þegar sýningin
verður opnuð klukkan 18:00 munu hinir
sígildu söngvar Árna Johnsens hljóma af
snældum. Sóla hefur áður haldið sýning-
ar bæði erlendis og hér heima.
...fær Sophia Hansen fyrir bar-
áttu sína til að fá
dætur sínar frá
Tyrklandi. Sophia
hefur þurft að
berjast við ofur-
efli þar sem er
fyrrum eigin-
maður, Halim
Al, og gjörvallt
tyrkneska rétt-
arkerfið. Bar-
áttan hefur
staðið árum
saman og þótt
það hafi komið
fyrir að Sophia
bogni um stund
hefur hún aldrei
brotnað. Nú virðist
loks einhver mögu-
leikí á aö allur þessi
málarekstur taki enda með sigri
Sophiu. Hinn tyrkneski lögfræð-
ingur Sophiu segir að 600 konur
annars staðar í heiminum, sem
líkt er ástatt fyrir, bíði niöur-
stööu þessa máls. Þótt margir
hafi orðið til að leggja Sophiu lið
í baráttunni þarf meira til ef
duga skal. Hún skuldar háar
fjárhæðir vegna málarekstursins
og nú ættu allir að leggjast á
eitt um að létta henni róðurinn
á lokasprettinum. Margt smátt
gerir eitt stórt og við minnum á
söfnunarreikning Sophiu I Bún-
aöarbankanum í Kringlunni.
Reikningurinn er númer 9.000.
Áhugi almennings á málinu hef-
ur vaxið og dalaö á víxl eins og
gengur en nú ríður á að Sophia
fái allan þann stuðning sem
unnt er að veita henni. Með því
að styrkja hana fjárhagslega er
fólk að sýna stuöning sinn í
verki. Við skulum sameinast um
aö gefa Sophiu Hansen myndar-
lega sumargjöf og létta þar með
fjárhagsbyrðar hennar. Sophia
hefur sýnt einstæöan kraft og
dugnað í erfiöu máli og fyllsta
ástæöa til aö hrósa henni í hás-
tert...
Jón Ólafsson tónlistarséný: „Ég
þarf ekki lengur að treysta á ball-
spilamennsku til að hafa ofan í
mig og á. Ég er farinn að vinna
mikið við leikhús — nokkuð sem
mér líkar mjög vel — og hef i si-
fellt ríkari mæli verið við stjórn á
upptökum á skyldum plötum."
förnu starfað mikið að upp-
tökum á leikhússtónlist.
Ertu alveg búinn að gefast
upp á hljómsveitabröltinu?
„Við skulum orða það þann-
ig, að ég er farinn að vinna al-
veg jafnhliða við þetta tvennt.
Ég þarf ekki Iengur að treysta á
ballspilamennsku til að hafa
ofan í mig og á. Ég er farinn að
vinna mikið við leikhús —
nokkuð sem mér líkar mjög vel
— og hef í sífellt ríkari mæli
verið við stjórn á upptökum á
skyldum plötum, eins og Jesus
Crist Superstar, Hárinu, Rocky
Horror og Gauragangi.
-EBE
Upptökur standa nú yfir á
tónlistinni úr leikriti Jim
Cartwrigt, Stone Free.
Upptökustjóri er tónlistar-
maöurinn og stórpopparinn
Jón Ólafsson...
Þarf ekki
lengur að
treysta
áböllin
Jón Ólafsson tónlistarmað-
ur hefur á undanförnum
misserum fært sig í sífellt rík-
ara mæli frá hljómsveitabrölt-
inu og ballspilamennsku yfir í
upptökur á leikhússtónlist og
söngleikjum. Þessa dagana er
hann þannig önnum kafinn við
upptökur á tónlistinni úr leik-
riti Jim Cartwright, Stone
Free. Alheimsfrumsýning leik-
ritsins verður á íslandi 12. júlí.
Úrvalslið listamanna syngur á
plötunni. Fremst í flokki fara
þau Daníel Ágúst Haraldsson,
Emilíana Torrini, Eggert Þor-
leifsson, Guðmundur Péturs-
son, og Ingvar Sigurðsson.
Jón, segðu mér aðeins frá
þessari tónlist...
„Þetta er aðallega tónlist frá
sjöunda áratugnum; einskonar
blanda af sýru- rokk- og hippa-
tónlist. Margir frægir lista-
menn koma við sögu, eins pg
Bítlarnir, Donovan, Melanie,
Jimi Hendrix og fleiri. Það hef-
ur myndast ákveðin hefð fyrir
því, að gefa
út tónlist úr
verkum sem
þessum til
kynningar — hvort sem um er
að ræða leikrit og söngleiki.“
Hvenœr á svo að gefa grip-
inn út?
„Upptökur á verkinu hafa
staðið yfir frá páskum og á að
ljúka 10. maí. Og ég býst við að
platan verði gefin út um miðj-
an júní. Til liðsinnis við mig
fékk ég til landsins íðilsnjallan
og þaulreyndan upptökumann
frá Englandi, Ken Thomas að
nafni. Eg kynntist honum við
upptökur á Himnasendingu,
plötu NýDanskrar, sem inni-
hélt meðal annars lagið Horfðu
til himins. Þar sem þetta er
tónlist í gömlum anda vildi ég
fá svona reyndan og rútínerað-
an mann, en hann hefur meðal
annars unnið með Stevie Won-
der, Charlatans, Sykurmolun-
um og fleirum stórstjörnum."
Nú hefurðu að undan-
...Bryndísi Schram sem verður
gestur í viðtalsþætti Jónasar
Jónassonar í Ríkisútvarpinu á
föstudagskvöld. HP hefur heyrt
að þar muni Jónas þjarma að
Bryndísi og bera upp á þessa
drottningu landsins að hún sé
dekurdrós! Einnig mun Jónas
vera spenntur að vita hvaö menn
tali um í ráðherraveislum...
...Bitte Nú, næstsíðustu sýningu
Borgardætra og Ragga Bjarna á
Hótel Sögu á laugardagskvöldið.
Frábær nútímagamaldags-
skemmtun...
...Bóhem og Vegas um helgina.
Maður veit aldrei gerist næst á
þessum nektardansstöðum þar
sem mögnuð starfsemi og illdeil-
ur í mafíustíl eiga sér stað. Svo
eru kanadísku stelpurnar víst
flestar með háskólagráður og
græða hundrað þúsund kall á
kvöld. Það er ekki amalegur fé-
lagsskapur að eyða kvöldinu í —
ef maður er þannig innréttaður...
...allsheijar partýstandi, veislu-
haldi og djammi um helgina í
tilefni af sumri og hækkandi sól.
Það er hvað sem er leyfilegt á
vordögum sem þessum þegar
hormónarnir taka völdin í náttúr-
unni ogtrylla meðal annarra
mannskepnuna blessaða...
Hvers vegna
skrifaði Jón
Baldvin ekki
undir?
ingmenn krata — að Jóni
Baldvin undanskildum,
einhverra hluta vegna — hafa
Iagt fram tillögu til þingsálykt-
unar um rannsóknir á beitu-
kóngi. í greinargerð með tillög-
unni er farið víða og má þar
finna margan fróðleik. Við get-
um ekki stillt okkur um að
vitna í upphaf þess kafla grein-
argerðinnar sem fjallar um Jón
lærða:
„í íslenskum ritum er fyrst
getið um kuðungaát í einu rita
Jóns lærða Guðmundssonar
sem var lítt menntaður en þó
sannkallaður fjöilistamaður o,g
fjölfræðingur á fyrri hluta
sautjándu aidar. Hann skar til
dæmis dýrgripi af furðulegum
hagieik úr tönnum hvala og
rostunga, málaði einnig falleg-
ar altaristöflur og var því
stundum líka nefndur Jón
tannsmiður eða Jón málari.
Frægur varð hann einnig á
sinni tíð fyrir að taka svari Ga-
skóna sem komu til hvalveiða í
norðurhöfum en brutu skip
sitt vestra og Ari sýslumaður í
ögri lét hundelta og drepa.
Jón skrifaði varnarrit fyrir
þeirra hönd og hraktist fyrir
vikið af Vestfjörðum. Þekkingu
Jóns lærða á varnargaldri var
viðbrugðið, enda frægur fyrir
að setja niður drauga.“
á geta keilarar farið að
góðgleðjast _við iöju sína.
Keiluhöllin í Öskjuhlíð hef-
ur lengi sóst eftir leyfi til vín-
veitinga en borgaryfirvöld dauf-
heyrst viö þeim óskum til
þessa. Keilarar og fylgifiskar
þeirra hafa því oröiö aö láta
sér nægja að svala þorsta sín-
um með gosdrykkjum. Nú hef-
ur borgarráö hins vegar sam-
þykkt með fjórum atkvæöum
gegn einu að veita Keiluhöll-
inni léttvínsleyfi til reynslu í
sex mánuöi. Ef að líkum lætur
er því kátt í höllinni um þessar
mundir...
Sólstöðuhópurinn stend-
ur fyrir fýrirlestri undir yfir-
skriftinni Æðruleysisbœnin og
listin að lifa í Norræna húsinu
á laugardaginn klukkan
14:00. Fyrirlesarar eru þau
Vilhjálmur Ámason heim-
spekingur og Ragnheiður
Óladóttir ráðgjafi. Ragnheiöur
ræðir um æöruleysisbænina
og þegar afdrifaríkar breyting-
ar veröa í lífi einstaklings eöa
erfiðleikar steöja aö. Vilhjálm-
ur mun fjalla um þá lífsspeki
sem æðruleysisbænin byggir
á og hvernig hún getur oröið
lykill aö því að einstaklingur-
inn taki ábyrgö á eigin lífi.
Sumarhátíð Sólstööuhópsins
verður svo haldin helgina 19.
til 21. júlí að Laugarlandi í
Holtum. Hátíðin ber yfirskrift-
ina fhjartans einlœgni — eins
og í fyrra...
Stjórnmálaskýrendum ber
ekki alltaf saman um hvað
gerist í kjölfar áhrifamikiila at-
buröa. Fréttastofur gefa því oft
misvísandi upplýsingar um
slík mál. i útvarpsfréttum í
gærkvöldí skýrði Ríkisútvarpið
frá því að fráfall Dúdajev for-
seta uppreisnarmanna í Tét-
sjeníu myndi styrkja stöðu
Jeltsin í rússnesku forseta-
kosningunum. Nokkrum mínút-
um síðar fjallaöi Stöð 2 um
sama atburð og kvaö þá við
annan tón. Fréttamaður hélt
því nefnilega fram að fráfall
uppreisnarmannsins myndi
leiða til þess aö friður —- sem
Jeltsín þarfnast fyrir kosning-
arnar — yrði úti í Rússlandi.
Þar meö veikti dauðsfalliö
stöðu Jeltsíns á Stöð 2, en
styrkti hana hjá Ríkisútvarp-
inu...
Ljóða- og tónleikdagskráin
IVegurinn er vonargrœnn
sem sýndur hefur verið í
Kaffileikhúsinu frá því 20.
janúar hefur notiö gífurlega
vinsælda og slegiö í gegn.
Bjuggust aðstandendur þess-
arar grísku menningarsýningar
um fjöllistamanninn Mlkis
Þeodórakis síöur en svo við
allri þessari aösókn og eru nú
sýningarnar farnar að nálgast
30. Það var söngkonan Slf
Ragnhíldardóttir sem átti
hugmyndina aö sýningunni og
fékk til liös við sig þau Sigurð
A. Magnússon, Krlstján
Ámason, Jóhann Kristins-
son, Eyrúnu Ólafsdóttur og
leikstjórann Þómnni Sigurð-
ardóttur. Hópurinn hefur
einnig fariö út á land og voru
þau nú fyrir skömmu á ísafiröi
og I Borgarfirði. Næstu sýning-
ar verða í Kaffileikhúsinu á
síðasta vetrardag og svo aftur
næsta laugardag...