Helgarpósturinn - 24.04.1996, Page 24
24
MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL1396
fiilutverkaleikir
jJ[onsteRS &
£\ rnazons
• W ''
Magnað spil!
Nafn: Dragon Dice.
Tegund: Teningaspil.
Útgefandk TSR Inc.
Útgáfuár: 1995.
Útsölustaðir: Fáfnir
Hverfisgötu 103, Mf-
þril Bankastræti 4,
Genus Kringlunni og verslanir Ey-
mundsson.
FJöldi spilara: Tveir eða fleiri,
þótt einhver takmörk séu sjálf-
sögðu. Hér er samt komið fram
spil, sem hefur furðu lítil takmörk
hvað varöar fjölda spilara.
Spilatfmi: Mjög breytilegur. Frá
nokkrum mínútum og upp úr. Tím-
inn fer þó eftir fjölda spilara og
stærð orrustunnar. En þar sem
hlutimir gerast hratt þarf leikurinn
alls ekki að taka of langan tíma.
Um spilið: í spilinu táknar hver
spilari hershöfðingja sem stýrir
stórum her er samanstendur af
álfum, dvergum, drekum og ýms-
um öörum kvikindum sem öll eru
táknuö með teningum af ýmsum
stærðum og gerðum. í spilinu er
notast við teninga af ýmsum
stærðum og geröum, þar á meöal
6 hliöa, 8 hliöa, 10 hliða og 12
hliöa til að tákna ýmsa hluti. í
framtíðinni munu koma út tening-
ar af öörum stærðum og gerðum.
Her hvers spilara (6 og 10 hliða
teningar) samanstendur af þeim
teningum sem hann hefur valiö
sér að stýra. Hemum skiptir hann
síðan niður í þrennt og notar síð-
an þessa þrjá hluta til aö berjast
viö andstæðinga sína um land-
svæði sem táknuð em með 8
hliða teningum. Herinn notar
hann meö því ýmist aö kasta
göldmm sem hjálpa honum eða
ráöast beint á heri andstæðings-
ins. Einnig getur það gerst að
drekar blandi sér í slaginn en þeir
em táknaöir með 12 hliða tening-
um. Landssvæöin eru ákveðin í
upphafi og em þau mjög mikil-
væg þar sem takmarkið er að
leggja undir sig tvö landsvæöi og
um leið og einhver spilari nær því
telst hann hafa sigrað.
Útgáfumáti: Spilið er gefið út í
byrjendapökkum sem innihalda
reglur og 18 teninga sem valdir
eru af handahófi og poka undir
teningana. Nú þegar hefur verið
gefinn út einn aukapakki, sem
inniheldur 8 handahófs valda ten-
inga. Til eru hátt í 100 einstakar
gerðir af teningum.
Frumleiki: Spiliö er eitt það fers-
kasta sem komið hefur á markaö-
inn í langan tíma og byggir á mjög
sniðugri hugmynd sem upprunnin
erí Þýskalandi.
Útlitshönnun: Teningarnir eru lit-
skrúðugir meö vel hönnuöum
myndum og enga galla er aö
finna á spilinu útlitslega.
Kostin Spilið er einfalt og hægt
er að læra það á fáeinum mínút-
um, hlutirnir gerast hratt og halda
manni viö efniö. Maður hefur líka
úr mörgum herjum að velja til að
stjórna sem gerir spilið skemmti-
lega fjölbreytt.
Galian Spilið hefur fáa galla
sem nokkru máli skipta, þó er
það nokkuö plássfrekt og vegna
þess hve líkir teningarnir eru
gætu þeir blandast saman og
þess vegna þarf hver spilari að
fýlgjast vel með sínum teningum.
Heildareinkunn: **** Spilið er
hratt, einfalt og skemmtilegt og
fáa galla er að finna á því. Þaö er
líka mjög frumlegt og nokkuð
sem ekki hefur verið prófað áöur.
-Indriði Stefánsson
l-jeir sem sóttu
Mendurvakta Lif-
unartónleika í
flutningi þekktra
popptónlistarmanna
og Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands í
Iþróttahúsinu í Kefla-
vík haustiö 1993
(sem haldnir voru á
vegum Samtaka um
byggingu tónlistar-
húss) minnast tónleikanna enn meö
gaesahúö. Lifun er sem kunnugt tón-
verk samiö af hljómsveitinni Trú-
brot fyrir allmörgum ár. Tvö ár eru
svo liöin síðan þessi sömu samtök
afhentu styrktaraöilum sfnum aö gjöf
Lifunardisk sem tekinn var upp beint
ð tónieikunum. Þaö þýöir meö öörum
oröum aö diskurinn frá upptöku tón-
leikanna hefur aldrei fengist á ai-
mennum markaöi. Úr þvf veröur nú
bætt ð næstunni þvf félagar Sam-
taka um byggingu tónlistarhúss hafa
í hyggju bjóöa diskinn til sölu f búö-
um á næstunni, en þó ekki í beinni
sölu heldur meö þeim fyrirvara aö
þeir gerist styrktaraöilar Samtaka
um byggingu tónlistarhúss. 3.000
krónur kostar aö gerast styrktraraöili
samtaka og fá þeir svo diskinn í
kaupbæti...
Síðasta vetrardag, á morgun, leik-
ur hlómsveitin A móti sól, frá
Seifossi, fyrir dansi á veitingarhúsinu
Víkinni, f Höfn í Homafiröi. A laugar-
daginn mun hljómsveitin bruna til
Siglufjarðar og tryila lýöjnn á opnum
dansleik á Hótel Læk. Á sunnudag-
inn veröur svo aftur brunaö til baka
tll Hafnar f Hornarfiröi og þá verður
spilaö? sindrabæ...
Sönghópurinn MóöirJörö veröur
á fleygiferö næstu daga ásamt
einsöngvurum og hljómsveit til að
flytja afrfsk- amerfska gospeltónlist
— svarta ryþmatónlist. Meginmark-
mið hópsins er aö syngja kraftmikla
og failega tónlist úr ýmsum ðttum^
með sterkri innlifun og hreyfingu. Á
sunnudagskvöldiö bregöur hópurinn
sér til Ytri-Njarðvíkurkirkju og spilar
svo í Breiöholtskirkju ð mánudags-
kvöld. Á miðvikudaginn veröur síöan
brunaö til Akraness og spilað f safn-
aðarheimili Akraneskirkju...
Hljómsveltin Sixties leikur í félags-
heimilinu Klifi í Ólafsvfk um helg-
ina. Sixties-aödáendur í Ólafsvfk
ættu aö kætast viö þetta þar sem
þetta eru fyrstu tónleikar sveitarinnar
í plássinu. Sixties er nú aö leggja
lokahönd á nýja hljómplötu sem
kemur út f sumar og ber nafniö Ást-
fangnir. Hljómleikagestir f Ólafsvík fá
þvf væntanlega aö heyra hvaöa tórv
verk sú plata hefur aö geyma. í sum-
ar áætlar hljómsveitin síðan aö
halda uppi stífu tónleikaprógrammi
um allt land...
Pétun „Petta vom uppbyggingarár og mik-
ið að gera. Pað er samt svolrtíð broslegt,
að sumt af því sem var á oddinum þegar ég
hætti virðist enn efst á verkefnaskrá."
tekin af viðkomandi og hann sendur f
endurhæfingu. Þetta er enn efst á
dagskrá hjð Umferöarráði," sagði Pét-
ur Sveinbjarharson. -S6
I næstu viku verður hljómsveit Karls Lilliendahl -
sem spilaði sex kvöld í viku fyrir dansi á Hótel
Loftleiðum á sjötta áratugnum — endurvakin. Að-
eins verður þó um að ræða fáeinar kvöldstundir.
Tilefnið er að 1. maí verða þrír áratugir liðnir frá því Loftleiða-
hótelið opnaði. í samtali við Guörúnu Kristjánsdóttur rifjar
Karl Lilliendahl upp eittfjörugasta djammtímabil síðari ára...
„Ógleymanlegur
frá 1966 tíl
1970, skemmtí
hljómsveit Karls Lilli-
endahl alls sex sinnum í
viku í Víkingasal Hótels
Loftleiða — eða alla
daga vikunnar nema
miðvikudaga sem þá
voru landslögum sam-
kvæmt íslenskir þurrk-
dagar, hvergi máttí þá
sjá deigan víndropa á
veitíngastöðum.
„Já, svona var lífið í þá
daga,“ segir Karl sem hefur að
mestu lagt tónlistina á hilluna
og starfar í Húsasmiðjunni
daglangt. „Stemmningin var
alltaf góð á Loftleiðum, sér-
staklega fyrstu árin — enda
var þetta nýjasti og heitasti
staðurinn í bænum. Það sem
dró ekki síður fólk að var að
Loftleiðir — sem á þessum ár-
um voru eiginlega svona ríki í
rikinu — áttu hægt um vik með
fá hingað til lands heims-
þekkta erlenda skemmtikrafta
sem þeir sáu fyrir fari og gist-
ingu. En því miður er mér er
eitthvað farið að bresta minnið
svo ég man ekki hvað hvað all-
ir þessir skemmtikraftar
heita.“
Karl ætlar 1. til 5. maí að
freista þess að skapa stemmn-
ingu, ásamt fleiri starfsmönn-
um Loftleiða, í likingu við það
einstaka andrúmsloft sem ríkti
þar á sokkabandsárum hótels-
ins. í tilefni afmælisins verður
einnig boðið upp á kalt borð
og kaffihlaðborð í gamla stíln-
um að hætti Silvíu smur-
brauðskonu, sem í upphafi sá
um veitingarnar á Loftleiðum.
Jafnframt verður boðið upp á
fjólubláa Apollo-kokteilinn,
sem fæstir vita að er alíslensk
uppfinning er hönnuð var af
Jónasi Þórðarsyni þá barþjóni
þar á bæ. Veislustjóri verður
Emil Guðmundsson sem var
móttökustjóri á Loftleiðum fyr-
ir 30 árum. Verð á 1. maí-
skemmtunina er 1966 krónur.
Og verður svo skemmtuninni
framhaldið til sunnudags, en
við höldum áfram að forvitn-
ast um hljómsveit Karls.
Hvað var spilað á þessum
árum?
„Bæði innlend og erlend lög.
Þá var reyndar ekki hægt að fá
erlend lög á nótum og maður
þurfti að standa í því að pikka
lögin upp með segulbandi og
skrifa þau niður af böndum.“
Karl segir dansgólfið í Vík-
ingasalnum eina lókalið sem
ekki hafi breyst á Loftleiðum í
öll þessi ár. „Dansgólfið var
reyndar ekki stórt, en við hlið-
ina á Víkingasalnum er kaffiter-
ía sem skar sig frá með gríðar-
lega stórri og mikilli renni-
hurð. Þannig að þegar Víkinga-
salurinn var orðinn fullur —
um helgar sérstaklega — var
oft opnað á milli til þess að
koma öllum fyrir.“
Hvaða fólk sótti staðinn?
„Fólk á öllum aldri og mikið
af starfsmönnum Loftleiða
sem voru — ef ég man rétt — í
heildina 1.200 þegar allt er tal-
ið.“
Á að spila núna í viðeig-
andi klœðandi: gömlu, góðu
fötunum?
dagur'
„Heldur þú að við kæmust í
þau í dag? Onei... Ætli við
dressum okkur ekki bara upp í
smóking, enda viljum við hafa
klassa yfir þessu — eins og
gilti á þessum tíma. Þá voru
velflestar hjómsveitir í sér-
saumuðu júníformi og söng-
konan okkar, Hjördís Geirs-
dóttir sem ennþá er víðáttu-
hress í tónlistinni, í fallegum
kjólum.“
Manstu eftir opnunardeg-
inum, 1. maí 1966?
„Hvort ég geri — enda var
þetta ógleymanlegur dagur.
Fyrir það fyrsta var hótelið
byggt á mettíma. Nákvæmlega
fimmtán og hálfur mánuður
leið frá því jarðýta kom að
morgni til þess að grafa fyrir
grunninum þar til fyrstu gest-
irnir gengu inn á hótelið. Það
þýddi líka að síðustu dagana
var unnið dag og nótt. Þótt
rúmir fimmtán mánuðir þyki
ión Möller, Hjördís Geirs<
sem er enn að, Sveinn Óli
danski), Árni Scheving o§
paurinn Karl Lilliendahl. I
lega byrjaði Árni Elvar með
hljómsveitinni og verður liann
með á Loftleiðum 1. maí í stað
ións Möllers. Guðjón Pálsson pí-
anóleikari lék einnig með hljóm-
sveitinni um tíma. Að öðru leyti
breyttist hljómsveitin ekki í nærri
þau sjö ár sem hún spilaði allt að
þvi sex daga vikunnar i Víkinga-
salnum.
ekki stuttur tími í dag þá var
það mettími miðað við tækn-
ina fyrir 30 árum. Reyndar var
suðurálman á hótelinu, Krist-
alssalirnir sem notaðir eru
sem ráðstefnusalir, ekki byggð
fyrr en nokkru seinna.“
Hvernig kom það til, að
þér var boðið að spila á heit-
asta staðnum í bœnum?
„Það er saga að segja frá því.
í fjöldamörg ár áður en ég byrj-
aði á Loftleiðum var ég búin að
vera með mínar eigin hljóm-
sveitir víða á veitingahúsum
bæjarins, sem voru þá allt
Karl Lilliendahl: ,,Þó að mér þætti mikill heiður að vera beðinn um að
spila hjá svo háttskrifuðu fyrirtæki sem Loftleiðir voru á þessum árum
tók ég mér tveggja daga frest til að hugsa málið ... Með mannskapinn
kláran sló ég til og þar nieð voru örlög okkar flestra ráðin næstu rúm-
lega sex árin.“ Mynd: Jim Smart
öðru vísi en í dag. Það má
segja að Þorvaldur
Guðmundsson í Síld og fiski
hafi ýtt skútunni á flot — líkt
og hann gerði með Hótel Sögu
nokkrum árum áður.“
Þess má geta að Þorvaldur
var ráðinn til vera eins konar
innanhússarkitekt og hug-
myndafræðingur við uppbygg-
ingu hótelsins. „Ég hafði unnið
í mörg ár hjá Þorvaldi. Þegar
hann rak Leikhússkjallarann
spilaði ég þar ásamt Magnúsi
heitnum Péturssyni píanóleik-
ara sem lengst af spilaði undir
með morgunleikfimi Valdi-
mars Ömólfssonar og bassa-
leikaranum Kristni Vilhelms-
syni, sem síðustu 30 ár hefur
verið búsettur í Kaupmanna-
höfn. Tríó þetta spilaði saman
í Leikhússkjallaranum í bara
þó nokkuð langan tíma. Þá
byggði Þorvaldur Lídó þar sem
í dag er Tónabær og úr varð að
við spiluðum þar úr því Þor-
valdur fann enga aðra sem
hann var nógu ánægður með.
Þá var afráðið að stækka
hljómsveitina og við bættust
tveir. Þar vorum við í nokkur
ár uns Svavar Gests tók við.
Spiluðum þá aftur í Leikhús-
skjallaranum í millitíðinni þar
til Klúbburinn var opnaður. Á
endanum í Klúbbnum vorum
við komnir með þýska söng-
konu, sem vakti mikla eftirtekt
— enda söng hún á sjö tungu-
málum. Að lokum leystist sú
hljómsveit upp þannig að ég
var eiginlega bara einn eftir.
Svo var það bara einn daginn
að Þorvaldur Guðmundsson
hringir í mig og segir: Jœja, nú
er ég að fara opna nýtt hótel eft-
irþrjá mánuði. Ertu til í að taka
músíkina að þér? Þó að mér
þætti mikill heiður að vera
beðinn um að spila hjá svo
háttskrifuðu fyrirtæki sem
Loftleiðir voru á þessum árum
tók ég mér tveggja daga frest
til að hugsa málið og fékk til
liðs við mig þau Áma Elvar,
Svein Óla Jónsson, Hjördísi
Geirssdóttur og Áma Sche-
ving. Með mannskapinn kláran
sló ég til og þar með voru ör-
lög okkar flestra ráðin næstu
rúmlega sex árin.“
Pétur Sveinbjarnasson
Gulldrengurinn í Umferðarráði
Hér f eina tfð var einn maöur sam-
nefnari fyrir allt þaö sem laut aö
umferð á íslandi. Hann baröist af
miklum krafti fyrir úrbætum i umferö-
armálum og var óþreytandi að brýna
fyrir fólki, aö fara varlega — og fara
aö lögum. Hér er aö sjálfsögöu átt viö
Pétur Sveinbjarnarson, fýrsta fram-
kvæmdastjóra Umferöarráös. Hann
var aöeins 24 ára gamall þegar hann
var skipaður I embættið og nær eins-
dæmi aö svo ungur maöur sé settur
yfir rfkisfýrirtæki. Pétur mótaöi allt
starf ráösins og stýröi því frá 1968 til
1978. Pétur var tíöur gestur á öldum
Ijósvakans og stundum hélt hann úti
löngum dagskrám f útvarpinu, til
dæmis um verslunarmannahelgar. En
Pétur er þekktur fýrir ýmislegt fleira,
Hann var til dæmis afar snjall knatt-
spyrnumaöur á sínum tfma og fýrsti
gulldrengur Vals f fótboltanum. Eftir
aö Pétur hætti störfum hjá Umferðar-
ráöi rak hann meðal annars veitinga-
húsiö Ask og sinnti síöan ýmsum
stjórnunarstörfum. Þegar Þróunarfélag
Reykjavíkur var stofnaö áriö 1990 var
Pétur ráðinn framkvæmdastjóri þess.
„Félaginu ber aö sinna öllu þvf er
varðar beint og óbeint skipulag og
mannlíf í miöborginni; þaö er svæöiö
frá Hlemmtorgi aö Grjótaþorpi og frá
Grettisgötu niöur aö sjó. Þar meö var
miðborgin skilgreind f fýrsta sinn, en
margir litu á miöborgina sem bara
Kvosina eða Laugavegssvæöiö. Þetta
er mjög fjölbreytt og lifandi starf,"
sagöi Pétur f spjalli viö HP.
En þegar þú lítur til baka til ár-
anna hjá Umferðarráði. Var þetta
skemmtilegur tími?
„Já, þetta voru uppbyggingarár og
mikið aö gera. Þaö er samt svolítið
broslegt, aö sumt af þvf sem var á
oddinum þegar ég hætti viröist enn
efst á verkefnaskrá. Meö þessu er ég
ekki aö gagnrýna mfna eftirmenn, en
þetta sýnir aö það tekur tíma aö
koma hlutunum áfram. Mér eru minn-
isstæöir allir þessir fordómar sem
voru gagnvart ýmsu sem taliö er sjálf-
sagt f dag. Það voru til dæmis gífur-
legir fordómar gagnvart notkun örygg-
isbelta, sem kallast bflbelti í dag.
Þessi fordómar óöu uppi hjá stjórn-
völdum, almenningi og ekki sföur á Al-
þingi. Þaö tók mörg ár að koma bfl-
beltanotkun á. Ég get Ifka nefnt aö
þegar ég fór frá Umferðarráði var efst
á blaöiö að koma á samræmdri öku-
ferilsskrá fýrir allt landiö og koma á
punktakerfi þar sem hver ökumaður
heföi vissan fjölda punkta. Sföan væri
hvert umferðarlagabrot metiö til
ákveöins fjölda punkta þar til hámark-
inu væri náö og ökuréttindin þar meö