Helgarpósturinn - 24.04.1996, Qupperneq 25
MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL1396
25
Þau Silja Hrund Barkardóttir, Auður Rán
Þorgeirsdóttir, Valdís Guðmundsdóttir og
Svavar Pétur Eysteinsson tilheyra viðsjárverðum
skæruliðaflokki sem í daglegu tali nefnist „Unglingar"
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir brá sér í félagsmiðstöðina Undirh
í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti, átti fund með genginu og
reyndi að kynnast þeim — ásamt því að drekka baneitrað
kaffi og reykja sígerettur úti á tröppum.
é g
v e r ð
ánægð í.“
Svavar (hátt): „Ég
ætla að verða moldríkur."
Valdís (ákveðin): „Ég vil
vinna gefandi starf og eiga jafn-
framt peninga tij að geta fara
erlendis. — En á íslandi er bara
eitt flugfélag og það okrar svo
mikið að við komumst ekki
burt.“
Svefninn
Eruð þið alltaf að lœra —
eða gerið þið meira en það?
Valdís: „Ég tek skorpur þar
sem ég læri ekki neitt og aðrar
þar sem ég læri bara.“
Auður Cgeispandi): „Ég bara
sef og sef.“
Svavar (hneykslaður): „Ung-
lingar eru orðnir eins og köttur-
inn Grettir.“
Valdís (örg): „Viltu hætta að
segja unglingar. Þú stimplar svo
rosalega."
Svavar (ásakandi): „Fólk tal-
ar ekki um annað allan daginn í
skólanum en að sofa og sofa.
Það er andlega dautt og hefur
ekki áhuga á neinu nema
svefni.“
Auður (geispandi): „Þetta er
veruleikaflótti.“
Valdís: „Vinir mínir eru svo
lífsglaðir, að þeir eru að kreista
safann úr lífinu til klukkan sjö á
morganana.“
Auður: (Dregur ýsur.)
Silja (skilningsrík); „Eftir
gelgjuna tók ég nokkur ár í að
liggja og sofa. Ég var svo upp-
gefin.“
Auður (áhuggjufull): „Það er
eins og ég sé bara nýícomin yfir
gelgjuna: alltaf sofandi.“
Silja (Hughreystandi): „Æ,
maður er svo þreyttur eftir
þessi ár og veðrið er alltaf grátt
og leiðinlegt."
Auður (geispandi): „Já, en
auðvitað er samt gaman að lifa.
Annars væri þetta of þung-
bært.“
Silja (hrukkar ennið); „Það
ætti að gefa öllum framhalds-
skólanemendum Prozac í stað-
inn fyrir lýsið á morgnana. þá
myndu þeir koma glaðir í skól-
ann.“ (Hlátur.)
Svavan „Já, eða bara E-pill-
una.“
Auður (glottandi): „Já, síðan
fengju allir doum trip eftir
stærðfræðiprófin og færu út og
hengdu sig.“ (Hlátur.)
Kaffi og sígó
Og hvað gerið þið meira en
að sofa?
Silja (hress); „Við förum á
kaffihús, í heimsóknir og partý
— og drekkum mikið kaffi.“
Valdís (bætir við): „Við
þræðum tónleika.“
Silja (hress): „Og drekkum
rosalega mikið kaffi og reykjum
sígarettur."
Auður (mótmælir): „Mikið
kaffi kannski, en engar sígarett-
ur.“
Afhveiju farið þið ekki í er-
óbikk eða jassballett?
Valdís (snýr sér undan í
ógeði): „Ojbara. Ég hef aldrei
vitað annað eins hamstrabúr
og eróbikk."
Svavar (léttur): „Ég hjóla
mikið úti með vasadiskó.“
Valdís (brosandi): „Ég labba
með vasadiskó og dilla mér í
takt.“
Svavan „Ég er líka í hljóm-
sveitinni Múldýrið."
Valdís: „Ég er líka í nafnlausri
hljómsveit sem hefur aldrei
æft.“
Hvað ætlið þið síðan að
segja að lokum?
Valdís (alvarleg): „Við viljum
bara hvetja til jákvæðari um-
fjöllunar um málefni unglinga.“
Svavar (í predikunartóni):
Kenna fólki að hafa gaman af
því góða.“
Auður: „Við ættum bara öll
að vera jákvæðari.“
Ætlið þið þá ekki að segja
neitt Ijótt — ekki einu sinni
um lögguna?
Silja (heilög): „Löggan er
stimpluð alveg eins og ungling-
arnir.“
Svavar (kinkar kolli): „Við
þekkjum bara eina hlið á henni
eins og hún á okkur.“
Auður: (glottandi) „Áfram
löggubandið."
Minnismerki
HUGSKOT
Ljósmyndastofa
Nethyl 2 Sími 587-8044
NÝ ÞJÓNUSTA
Framköllun og kópering á
35mm litftlmum.
Kynningarverð:
24 mynda kr. 1000
36 mynda kr. 1360
Ný 24 mynda Fuji-
litfilma innifalin
óþekka ungling
Silja: „Það er alltaf fjallað um
unglinga eins og hóp eða
eins og þeir séu æxli. Orðið
unglingar hefur neikvæð áhrif
og þetta hefur áhrif á sjálfs-
myndina."
Valdís: „Fréttir bera keim af
ótrúlegri þröngsýni.“
Silja: „Það er alltaf einblínt á
þetta slæma.“
Auður: „Mér finnst þetta allt í
lagi. Afhverju alltaf að vera að
kvarta."
Valdís: „Grunnskólanemend-
ur fá þessa mynd af unglingum
og það hefur markviss áhrif á
hvernig unglingar þeir verða.
Það er látið eins og allir ung-
lingar séu í dópi og ungir krakk-
ar missa siðferðistilfinninguna
þegar þeir sem þau líta upp til
eiga að vera í dópi.“
Silja: „Það er alltaf verið að
taka nokkra einstaklinga og al-
hæfa út frá þeim.“
Auðun „Það er nú samt meiri
umræða núna en þegar ég var
tólf ára.“
Svavar: „Já, er ekki bara ver-
ið að gera frekar jákvæða
hluti?“
Valdís: „En þegar menn eru
jákvæðir er einnig sama til-
hneigingin til að falsa hlutina.
Eins og þegar það kom ljós-
myndari frá Mogganum á Lagn-
ingardaga upp í MH. Hann
mætti bara á eina uppákomu og
þá var hljómsveit að spila, en
hann missti alveg af hljómsveit-
inni því hann var bara að elta
sætar stelpur á röndum. Einu
myndirnar af tónleikunum voru
af sætum stelpum. Það var eng-
in af hljómsveitinni uppi á
sviði.“
Silja: „Það var nú einn strák-
ur á myndinni."
Valdís: „Já, það var fyrir til-
stuðlan stelpnanna. Ljósmynd-
arinn féllst á að taka eina mynd
af honum að rokka stíft ef það
yrðu sætar og hressar stelpur
með líka. Það er þessi útlits-
fíkn.“
Silja: „Já, fólk vill sjá fallegt
fólk. Ekki feitt fólk með vörtur."
Auður: „Já, þetta er eins og í
auglýsingunni frá Grillhúsi Guð-
mundar: Besta kjötið í bœnum.
Svo var mynd af sætri stelpu.“
Silja: „Það eru alltaf litlar sæt-
ar stelpur og svo slefandi gaml-
ir kallar. Ég skil ekki afhverju
það er alltaf verið að gera ung-
linga fullorðinslega. Afhverju
eru bara ekki notaðar fullorðn-
ar manneskjur þar sem það á
við?“
Svavar: „Það eru margar
stelpur sem lifa í þessari anor-
exíutísku."
Valdís: „Stelpur hætta meira
segja í námi vegna þess. Ég
þekki eina sem fékk búlimíu og
þurfti að fara í meðferð."
Silja (spekingslega); „Það
sem þótti áður vera grannt er
feitt núna.“
Áróður
Hafið þið ekki svipuð við-
horfog biskupinn og kirkjan
þegar kemur að fjölmiðlum?
Svavar: (mærðarlega) „Fólk
hefur náttúrlega mest gaman af
því sem er vont. Eins og í fjöl-
skylduboðum... þá vill það tala
um sjúkdóma og slys.“
Myndirþú vilja sjá mikið af
fréttamyndum af öllum já-
kvœðu hlutunum sem verið
er að gera í Félagsmiðstöð
aldraðra - - öllu fína föndr-
inu og fjöldasöngnum á eft-
ir? Eða myndirðu ekki frekar
vilja lesa grein um glœpa-
klíku aldraðra sem rænir
spilakassa í miðbœnum?
Svavar (alvarlegur): „Fólk á
rétt á að lesa um félagsmiðstöð
aldraðra ef það hefur gaman af
því.“
Silja (mæðulega): „Unglinga-
þátturinn Ó er nú að skapa já-
kvæða ímynd. Bjarga því sem
bjargað verður.“
Auður (pirruð): Ég bara
nenni ekki þessari sjálfs-
vorkunn."
Svavar (tekur undir
með Auði): „Við erum
sjálf farin að byggja
upp neikvæða ímynd
með kvarti og kveini.
Við erum bara hópur
fólks: unglingar. Fólk á
aldrinum 13 til 20 ára.
Maður hættir í raun
ekkert að vera ungling-
ur fyrr en maður hætt-
ir í framhaldsskóla."
Valdís (hækkar röddina):
„Það er rosalegur eðlismunur á
fólki innan þessa hóps. En um-
ræðan var neikvæð á meðan
forvarnar og eiturlyfjaumræð-
an gekk yfir í vetur.“ (í trúnað-
artóni.) „Þetta var bara hreinn
og klár hræðsluáróður til for-
eldra sem breikkaði bilið milli
foreldra og barna. Filmuboxin
fengu ekki að vera í friði og ál-
pappírinn hvarf af heimilinu.“
Auður (góð með sig): „Það fá
ekki allir foreldrar paranoju-
kast, ef þeir á annað borð geta
treyst börnunum sínum.“
Valdís (í fyrirlestrartón):
„Sko, ég heyrði ágætis kenn-
ingu um áhrif svona áróðurs.
Þegar umræðan byrjar fer lögg-
an að taka fleiri dópsala. Dópið
fer meira öndergránd og hækk-
ar í verði og útkoman er sú að
glæpum fjölgar."
Silja (alvarleg): „Ég held að
það þurfi að fara ofsalega var-
lega í þennan áróður.“
Valdís (samsinnir): „Þetta
skapar mikla spennu hjá yngri
krökkum."
Silja (íhugul): „Þegar maður
les í könnun að 98% allra fram-
haldsskólanema hafi prófað
hass er auðvelt að hugsa að
maður þurfi að prófa líka.“
En hvað með ykkur. Hafið
þið til til dœmis reykt hass?
Svavar (hikandi): „Ja, við ætl-
um ekkert að tilheyra þessum
tveimur prósentum.“ (Hlær.)
„Þá værum við nördar.“
Silja (í vörn): „Það er eitt að
prófa og annað að henda sér út
í þetta.“
Valdís (í vörn): „Ég hugsa að
það sé meira að segja erfitt að
finna fullorðið fólks sem hefur
ekki prófað hass.“
Auður: „Það er hinsvegar
ekki sama að prófa og reykja
reglulega.“
Valdís (alvarleg): „Það er nú
þannig að flestir prófa. Annars
er sagt að hassgróðinn fari allur
í vopnakaup. Að taka smók úr
hasspípu er næstum því það
sama og að senda byssukúlu
gegnum hausinn á einhverj-
um.“
Svavar (hugsandi): „Það fer
eftir hópum hversu margir
prófa. fþróttakrakkar prófa
þetta ekki, hugsa ég.“
„Unglingar“
Eruð þið í einhverjum
íþróttum?
Valdís (hneyksluð): „Það er
mjög lítið til af íþróttum sem
hægt er að stunda án þess að
vera í einhverri brjálaðri
keppni.“
Silja (í trúnaðartóni): „Églætl-
Silja (með fyrirlitningu): „Kennarar eru eins og þeir eru
af því að það er svo illa borgað fyrir kennslu. Þeir hæf-
ustu fara annað. Vanhæfir kennarar gera það að verkum,
að nemendurnir verða vanhæfir einstaklingar.“ Auður:
„Við erum ekki bara að hugsa um peninga. Ég ætla að
velja mér starf sem ég verð ánægð í.“ Svavar (hátt): „Ég
ætla að verða moldríkur." Valdís (ákveðin): „Ég vil vinna
gefandi starf og eiga jafnframt peninga til að geta fariðx
erlendis. — En á íslandi er bara eitt flugfélag og það
okrar svo mikið að við komumst ekki burt.“
aði einu sinni að fara að æfa
blak að gamni mínu. Þjálfarinn
talaði við mig og sagði mér að
fara að hlaupa úti allt sumarið.
Síðan gæti ég prófað að koma
aftur.“ (Hlær.)
Svavar (alvarlegur): „Ég
þekki strák sem var í KR og
hann dalaði aðeins eitt sumarið
og þá var hann beðinn um að
fara í annað lið og æfa með
þeim þangað til hann næði sér
á strik. Þetta lið má ekki tapa.“
(Hneykslaður.) „Ef þú spilar
Trivial Pursuit við íþróttamenn
ertu laminn ef þú vinnur.“
Silja (baráttuglöð): „Við þurf-
um bara að skrifa eitthvað sjálf
og laga þessa ímynd af ungling-
um.“
Valdís (hress); „Það er ekki
hægt að steypa okkur öll í sama
farið. Unglingar eru allskonar
fólk. Það er allur fjandinn í
tísku. Nördar eru meira að
segja í lagi — þótt þeir séu með
flöskubotnagleraugu."
Silja: „Já, sérstaklega töivun-
ördar. Út af netinu!“
Auður (fúl): „Mér finnst fá-
ránlegt að kalla fólk nörda þótt
það sé ekki á einhverju
ákveðnu borði með einhverjum
ákveðnum krökkum"
Silja (Samsinnir:) „Já, þetta
eru allt ákveðnar klíkur. Hérna í
FB eru það snyrtibrautin, lista-
hópurinn og svo framvegis.
Fólk hópar sig saman — til
dæmis eftir fötum, tónlistar-
smekk og meira að segja vaxt-
arlagi. Sérstaklega á þetta við
hjá stelpum. Þær stelpur sem
eru grannar eru oft með grönn-
um stelpum og feitar með feit-
um stelpum.“
Framtíðin
Auður (niðurdregin): „Mér
finnst framtíðin frekar dökk.
Maður á ekki peninga og
þar af leiðandi ekkert mikla
möguleika. Ég á sjálf líka erf-
itt með að ákveða hvert ég vil
stefna. Margir eru mjög ráðvillt-
ir.“
Svavar (sammála): „Það hafa
allir svo rosalega háar hug-
myndir, en þegar allt kemur til
alls getur þetta orðið eitt langt
svekkelsi."
Silja (spekingslega): „Það er
nauðsynlegt að hafa takmark
bara til þess að hafa takmark.
Svo er náttúrlega þessi tog-
streita í gangi milli foreldra og
barna."
Svavar (efins): „Er hún nú
ekki á undanhaldi?“
Silja (hugsandi): „Það er al-
gengt hjá menntuðum foreldr-
um að gera háar kröf-
ur.“
Valdís (dramatísk):
„Og verða bara fyrir
hræðilegum vonbrigð-
um.“
Ætlið þið þá að
gera það sama og for-
eldrar ykkar?
Silja (ákveðin):
„Neinei, foreldrar mínir
eru prófessorar. Ég
ætla ekki að verða pró-
fessor. Og þau verða bara að
sætta sig við það.“
Auður (efins): „Mamma er
listamaður og pabbi vinnur í
prentsmiðju. Eg held að ég fari
ekki sömu leið.“
Svavar (hlæjandi); „Pabbi er
eðlisfræðingur, en ég kann ekki
að leggja saman fjóra og sjö.
Mig langar mest í fjölmiðlafræði
en ég vil samt ekki verða frétta-
maður á Stöð 2.“
Valdís (hugsandi): „Mig lang-
ar að sameina sálfræði og efna-
fræði.“
Silja: „Ég myndi vilja læra
læknisfræði og myndlist, en
saman tekur það tíu ár.“
En þið hafið ekki áhuga á
að vinna með unglingum?
Valdís (glaðlega): „Jú, ég
hefði aiveg áhuga á því. Eða
bara með fójki.“
Auðun „Ég gæti líka alveg
hugsað mér það.“
Hvað með kennslustörf?
Valdís (glottandi): „Það er
svo illa borgað að vera kennari,
að maður þyrfti að vera pizza-
sendill um helgar til að lifa af.“
Silja (með fyrirlitningu):
„Kennarar eru eins og þeir eru
af því að það er svo illa borgað
fyrir kennslu. Þeir hæfustu fara
annað.“
Það meta kannski ekki all-
ir störf eingöngu eftir pening-
um...
Silja (ákveðin): „Vanhæfir
kennarar gera það að verkum,
að nemendurnir verða vanhæf-
ir einstaklingar.“
Eruð þið þá vanhœfir ein-
staklingar á leiðinni út í van-
hœft þjóðfélag til að ala af
ykkur vanhœf börn sem fara
í vanhœfa skóla?
Auður: „Neinei, við erum
ekki bara að hugsa um peninga.
Ég ætla að velja mér starf sem