Helgarpósturinn - 21.11.1996, Side 8
8
FIMMTUDAGUR ZL NÓVEMBER1396
Umræöa um unglinga hefur veriö mikiö í fjölmiölum aö undanförnu og helst þá í sambandi viö ofbeldi, vopnaburö, fíkniefni ogfleira neikvætt. Samkvæmt
fjölmiölum viröist sem hinn almenni unglingur veröi sífellt ofbeldisfyllri, annar hver unglingur ber á sér hníf og allir eru þeir meira eöa minna byrjaðir í neyslu
vímuefna. En er þessi mynd sem dregin er upp af unglingum í fjölmiölum rétt? í staö þess aö tala við yfirvöld, foreldra eöa aöra fullorðna um heim unglinga
ákvaö blaðamaður Helgarpóstsins aö setjast niður meö hópi unglinga úr Breiðholtinu og ræöa viö þau um hiö svokallaða unglingavandamál.
Eldri konur hræddar
við okkur
vegna umfiöllunar fiölmiðla
Akveðið var að hittast í fé-
lagsmiðstöðinni Fellahelli
og þegar blaðamaður kom
þangað biðu þau Einar Öm
Einarsson, Jón Óskar Arason,
Valur Gunnarsson, Berglind
Ósk Viðarsdóttir, Magnús Guð-
mundsson, Reynir Gannt, Jó-
hanna Kristbjörg Sigurðardótt-
ir og Nína Kristjánsdóttir. Ung-
lingar á aldrinum 13-15 ára.
„Ofbeldi hefur farið vaxandi,
en ekki bara meðal unglinga,
heldur frekar svona almennt,“
segja þau. Þau segjast öll ein-
hvern tímann hafa séð ein-
hvern laminn. Það ætti samt lít-
ið skylt við hart ofbeldi, því
eitthvert smátusk fylgdi því
bara að vera unglingur, — skól-
aslagsmál, eins og einn strákur-
inn orðaði það. Nokkur segjast
þó hafa séð alvöruslagsmál, en
ekki þorað að grípa inn í. „Mað-
ur þorir ekkert að blanda sér í
svoleiðis. Maður yrði bara bar-
inn sjálfur," segir ein stelpan.
Þau sögðust ekki vita um að
nokkur glæpagengi unglinga
væru í Breiðholti en vissu um
nokkra einstaklinga sem væru í
glæpum. „Ég veit um nokkra
hér í hverfinu sem eru upp-
rennandi glæpamenn en ég veit
ekki um glæpaklíkur,“ segir
einn strákurinn. Að sjálfsögðu
hafa krakkarnir fylgst með frétt-
unum um unglingaofbeldi í fjöl-
miðlum og finnst sá fréttaflutn-
ingur og viðbrögð fullorðinna
nokkuð skrýtin. „Þetta er allt
stórlega ýkt hjá blessuðu full-
orðna fólkinu. Það veit oft lítið
um hvað er að gerast hjá okkur
unglingunum, en þykist síðan
hafa svör við öllu, til að mynda
hvernig við eigum að haga okk-
ur og hvað er rétt og rangt fyrir
okkur."
Hvað með hnífaeign? Er al-
gengt að unglingar hér í
hverfinu gangi með hnífa á
sér?
„Það er fáránlegur misskiln-
ingur að halda að það að eiga
hníf sé eitthvað sem er í tísku
meðal unglinga. Hnífaburður er
langt í frá algengur," segir einn
strákurinn. „Auðvitað eiga ein-
hverjir hnífa, en það eru bara
litlu gæjarnir sem halda að það
sé svalt. Ég held að ég tali fyrir
munn flestra unglinga þegar ég
segi að okkur finnst lítið töff að
bera hníf. Ef eitthvað er þá ber
hnífanotkun vott um mikla
minnimáttarkennd. Þeir halda
að þeir verði stórir með því að
bera á sér hníf.“
Alltaf verið
að alhæfa um okkur
Unglingarnir telja fréttaflutn-
ing um unglinga undanfarið
sýna alranga mynd af hinum
venjulega unglingi. „Ég meina,
alltaf þegar verið er að tala um
einn ungling þá er eins og verið
sé að tala um alla unglinga,"
segir ein stelpan. „Allir ungling-
ar í Reykjavík eru eins og þessi
unglingur." „Þegar slagsmál eru
í bænum þá er eins og allir ung-
lingar í bænum hafi verið í
slagsmálum. Svona er þetta líka
þegar verið er að tala um eitt
hverfi. Ef einn unglingur er
slæmur þá eru allir unglingar í
hverfinu slæmir," bætir önnur
stelpa við. „Það er alltaf verið
að alhæfa um okkur unglinga,"
segir strákur. „Það eru ef til vill
fimm prósent unglinga í vond-
um málum en svo eru hin 95
prósentin í góðum málum. Það
er bara aldrei talað um það.“
Þau segja fullorðið fólk
stundum hrætt við hópa af ung-
lingum og þá sérstaklega eldri
konur. „Þær hafa örugglega
„Það er fáránlegur misskilningur að
halda að það að eiga hníf sé eitt-
hvað sem er í tísku meðal unglinga.
Hnífaburður er langt í frá algengur,"
segja unglingarnir í Fellahelli.
horft of mikið á fréttirnar,"
segja þau. „Þar heyra þær að
unglingar séu upp til hópa
slæmir og trúa því. Fullorðna
fólkið horfir oft á okkur sem
einhverja vandræðagripi og
það finnst okkur leiðinlegt.
Okkur finnst fjölmiðlar eiga
mikla sök á þessu.“ „Það var
skrifað um eitthvert atvik sem
varð í partíi í bænum og svo var
sagt að áfengi hefði meðal ann-
ars verið haft um hönd,“ segir
einn strákurinn. „Ég veit að j)að
var ekkert nema áfengi notað í
þessu partíi, en í fjölmiðlum
kom það fram sem „meðal ann-
ars“. Þarna er verið að ýja að
því að eitthvað meira hafi verið
í gangi þarna. Alger æsifrétta-
mennska.
Hvað gerið þið í frístund-
um?
„Slæpumst,“ segja þau og
hlæja. „Það er ekkert að ger-
ast,“ segir ein stelpan. Það kem-
ur síðan í ljós að flestir stunda
einhverjar íþróttir. Eins eru
þau öll fastagestir í Fellahelli.
Þeim finnst flestum að það
mætti gera meira fyrir ungling-
ana og það fyrsta sem kom upp
var skemmtistaður. „Það er
enginn staður til fyrir unglinga
og þá þvælast þeir bara um í
bænum. Af hverju ekki að hafa
ball í Fellahelli á laugardags-
kvöldum?"
Það sem er
bannað er spennandi
Aðspurð um eiturlyfjaneyslu
meðal unglinga segjast þau vita
að hún sé einhver en alls ekki
mikil. Sumir unglingar séu farn-
ir að fikta við eiturlyf en ekki
komnir í raunverulega neyslu.
„Okkur finnst vitlaust farið í
meðferð á þeim unglingum sem
farnir eru að fikta við eiturlyf
eða farin að drekka," segja þau.
„Af hverju að senda krakka,
sem rétt eru farin að fikta við
þessi efni, á meðferðarheimili?
Þar hitta þau aðra unglinga sem
eru komnir á fullt í eiturlyfjum
og verður jjannig miklu hætt-
ara við að lenda í svoleiðis
sjálf." „Ég þekki stelpu sem fór í
meðferð og kom út miklu
verri," segir ein stelpan. „Það er
mikill misskilningur að ungling-
ar séu mikið í E-töflunum. Ef
þau eru á annað borða að fikta í
fíkniefnum þá er það í mesta
lagi hass sem þau prófa,“ segir
einn strákurinn. „E-pillan er
bara dauð hjá unglingum og er
miklu frekar notuð hjá eldra
fólki.“
Þau segja það vitlausa leið í
forvörnum að banna allt. Það
eina sem öll þessi bönn geri er
að hlutirnir verði meira spenn-
andi. „Fullorðna fólkið fær að
drekka en við ekki. Og eina
svarið sem við fáum er í raun:
„Af því bara. Þetta er bannað,
punktur." Fullorðna fólkið ræð-
ur,“ segja þau.
En ef þið fengjuð að ráða?
„Ætli við værum ekki bara eins
Fréttaflutningur
abyrgðarlaus
StaðietnTno
bílattæAa er
jjotukor t um
Þíónustuskr
áðhús Reykjavíkur
innkeyrsla í kjallara fráTjarnargötu séuiwsi
Bilastæðasjóður
Fjölmiðlar eru mjög dugleg-
ir að draga upp allt það
neikvæða í fari unglinga," seg-
ir Linda Udengaard, forstöðu-
maður Fellahellis. „Það hefur
reynst mjög erfitt, þegar eitt-
hvað jákvætt hefur verið að
gerast, eins og til dæmis í fé-
lagsmiðstöðvunum, að
hreinlega fá fjölmiðla til
okkar. Um leið og eitt-
hvað neikvætt gerist hins
vegar þá er það umsvifa-
laust frétt. Stundum
finnst mér fréttaflutning-
ur fjölmiðla mjög ábyrgð-
arlaus og eina spurningin
hjá fréttamönnum er
hvort þetta selji blaðið.
Enginn hugsar út í afleið-
ingarnar. Umfjöllun fjöl-
miðla getur jafnvel haft
þau áhrif á suma unglinga
að þeim finnist þetta of-
boðslega töff og vilji vera
eins og myndin sem dreg-
in er upp í fjölmiðlum.
Við höfum þurft áð taka á
nokkrum svoleiðis mál-
um. En það er auðvitað
lítill hluti unglinga sem
verður fyrir þessum nei-
kvæðu áhrifum. Þetta
virkar ekki á stærsta hlut-
ann, en við höfum áhyggj-
ur af þessum litla hóp.
Svo er þessi litli hópur,
sem gerir eitthvað af sér,
gerður að stóra hópnum.
Það gleymist oft að lang-
stærstur hópur unglinga
er að gera fullt af góðum
hlutum og því má ekki
gleyma. Unglingar eru
ekki upp til hópa til vand-
ræða. Langt í frá. En það
er auðvelt að gleyma
þessu og alhæfa. Ég man
eftir að eitt sinn sagði ég
við krakkana hérna í
Fellahelli hvað þau
„Eg hef það stundum á tilfinningunni að fjölmiðlar séu beinlínis að leita
eftir einhverju slæmu sem unglingar hafa gert um helgina,“ segir Linda.
gengju illa um staðinn. Þá
benti einn unglingurinn á að
ekki gengju allir unglingar illa
um!
Ég hef unnið með unglingum
síðustu tíu árin og mér finnst
umfjöllun um unglinga í fjöl-
miðlum mun meiri í dag en áð-
ur og þá meina ég á neikvæðu
nótunum. Eftir hverja einustu
helgi er eitthvað í fjölmiðlum
um unglinga. Ég hef það stund-
um á tilfinningunni að fjölmiðl-
ar séu beinlínis að leita eftir
einhverju slæmu sem ungling-
ar hafa gert um helgina.“