Helgarpósturinn - 13.02.1997, Blaðsíða 12
12
\
FIMMTUDAGUR13. FEBRUAR1997
Klám & kvenfyrirlitning,
samfélag & þegnskapur,
stríðsskaðabætur til HHfters
arti
Witl
ut M
rheliew'Sbi^Reirk
of Booics
‘Hamlet’ & Co.
- Geoffrey O’Brien
Louis Menand tekst það
sjaldgæfa í New York Book
Review; að stækka verkið sem
til umfjöllunar er með því að
gera gagnrýnina um það að
sjálfstæðu listaverki. Svo ís-
lensk hliðstæða sé tekin þá
gerði Þórbergur Þórðarson
það sama fyrir Hornstrendinga-
bók áður en lýðveldið var
stofnað.
Viðfangsefni Menands, sem
er reglulegur skríbent í bók-
menntatímaritið sem kemur út
aðra hverja viku en kennir ann-
ars ensku í City University í
New York, er kvikmynd Milos-
ar Formans, The People vs.
Larry Flynt, sem stuttlega var
getið í þessum dálki fyrir
þremur vikum.
Larry Flynt stofnaði herra-
tímaritið Hustler á áttunda ára-
tugnum í kjölfar kynlífsbylting-
arinnar. Fyrir voru tímarit eins
og Playboy og Penthouse sem
gáfu sig út fyrir að vera annað
og meira en berar stelpur í lit.
Viðtöl við frægðarmenni, dýrir
bílar og nýjustu hljómflutn-
ingstækin voru á síðum P-tíma-
ritanna. Hustler gaf lítið fyrir
giassúrinn. Fastur dálkur var
„Asshole of the month“ og í
öðrum birtist klámfengið
veggjakröt sem lesendur
sendu inn og fengu greiðslu
fyrir.
Sá sem þetta skrifar átti um
skeið kost á tímaritum ættuð-
um frá bandaríska sjóhernum
á Miðnesheiði en þurfti að bít-
ast um lesninguna við aðra
unglinga. Aldrei brást að Hustl-
er gekk fyrst út. Myndirnar
voru sexaðri, brandararnir
grófari og tildrið minna. Hvaða
áhuga höfðu strákar í Keflavík
á viðtali við Jimmy Carter eða
nýjustu línunni frá Pioneer
sem hvort eð er var ófáanleg á
íslandi og þær gömlu handan
kaupgetu þeirra? 1 þessu sam-
hengi er ákaflega hressandi að
heyra lesendaprófíl Hustlers.
Utangátta og fjárvana, segir
Menand um dæmigerðan les-
anda Hustlers og má heimfæra
það bæði á þá sem bjuggu í
Brooklyn og Keflavík.
Hustler náði sér á strik eftir
að það birti nektarmyndir af
Jacqueline Kennedy sem
Flynt keypti fyrir 18 þúsund
dollara af laumuljósmyndara
er sat fyrir fyrrverandi forseta-
frú Bandaríkjanna undan
grísku eyjunni Skorpios.
Blanda af ósvífni og tilhöfðun
til forvitni sem flestir hafa og
skammast sín fyrir (en svala í
laumi) gerði það að verkum að
tímaritið seldist mánaðarlega í
2,5 milljónum eintaka undir lok
áttunda áratugarins.
Dómsmálið, sem mynd For-
mans dregur nafn sitt af, hófst
með því að Hustler sneri út úr
Campari-auglýsingu. Campari
var auglýst í tímaritum með
mynd af þekktum einstakling-
um og í þykjustuviðtali sögðu
þeir hvernig hefði verið að fá
það í fyrsta skipti með óbeinni
tilvísun til fyrstu kynlífsreynsl-
unnar. Hustler birti mynd af
drykknum og sjónvarpspredik-
aranum Jerry Falwell og lét
hann lýsa því að hafa fyrst
fengið það hjá mömmu sinni í
útihúsi og að hafa oft predikað
drukkinn.
Falwell hafði engar vöflur á
og stefndi Flynt fyrir meiðyrði
og krafðist skaðabóta. Hann
efndi líka til fjáröflunarátaks til
að verja minningu móður sinn-
ar og sendi tæplega 800 þús-
und bréf til stuðningsmanna
sinna. Fjáröflunin skilaði Fal-
well 700 þúsund dollurum.
Menand segir að í dómsmál-
inu kristaliist annars vegar
klámritaiðnaðurinn sem spratt
upp á áttunda áratugnum og
hins vegar uppgangur krist-
inna trúarsafnaða sem náðu
saman undir regnhlífarsamtök-
unum Moral Majority, Sið-
vandi meirihlutinn. Hvort-
tveggja eru afturhaldsöfl sem
eigi það sameiginlega markmið
að setja skömmina aftur inn í
kynlífið.
Playboy, skrifar Menand, var
stofnað 1953 sem tímarit um
lífsstíl. Nektarmyndirnar voru
ekki af konum sem maður
skammaðist sín fyrir að kynna
fyrir fjölskyldunni. Konurnar í
Playboy voru heiðvirðar og
ekki minnsti vottur um að þær
hefðu þörf fyrir kynlíf. Konurn-
ar í Hustler og álíka útgáfum,
aftur á móti, voru með kynlíf á
heilanum. Kvenímyndin í
Hustler var í anda poppsál-
fræði ‘68-kynslóðarinnar sem
undir yfirskini frjálsra ásta
kynti undir þeirri hugmynd að
konur nytu kynlífs á groddara-
legan hátt, gjarnan með ívafi
ofbeldis. Nektarmyndirnar af
Jacqueline Kennedy voru inn-
rás í einkalíf hennar. Blaðið
með forsetafrúnni fyrrverandi
seldist í metupplagi en tímarit-
ið var fordæmt fyrir tiltækið.
Larry Flynt hafði það til sann-
indamerkis um hræsnina í
samfélaginu og undir það er
tekið í kvikmyndinni. Menand
lítur öðrum augum á málið.
Ekkert óeðlilegt er við það
að vilja sjá nektarmynd af
frægri konu en álíka náttúru-
legt er að finna til sektar um
leið í ljósi þess hvernig birt-
ingu myndanna bar að. Löng-
unin til að sjá myndirnar er
fullkomlega í takt við sannfær-
inguna um að það sé rangt,
löngunin er í sjálfu sér niðr-
andi.
Hustler stuðlaði ekki að
heiðarlegri og jafnréttissinn-
aðri kynlífsumræðu. Þvert á
móti. Tímaritið vísaði veginn
afturábak, til þess tíma þegar
konan átti að skammast sín
fyrir kynhvötina. Playboy
gerði út á léttúð en Hustler á
sektina.
Og það sama gerðu kumpán-
ar eins og Jerry Falwell. Hann,
ásamt mönnum eins og Jim
Bakker, Jimmy Swaggart og
fleiri sjónvarpstrúboðum,
hefði verið óhugsandi fyrir
daga kynlífsbyltingarinnar. Og
það er engin tilviljun að í kjöl-
far klámiðnaðarins óx sjón-
varpstrúboðunum fiskur um
hrygg. Falwell boðaði aftur-
hvarf til for-
tíðar, þar sem
karlmenn voru
útivinnandi og
konan beið
heima stillt og
prúð og bóndan-
um til þjónustu.
Andstæðan við
þennan heim er
konan sem lætur
kynlíf sf íkn
stjórna sér og
breiðir úr sér á síð-
um Hustlers.
Hnignun klámrit-
anna og sjónvarps
trúboðanna bar að á
sama tíma. Bakker og
Swaggart voru á forsíð-
um dagblaða fyrir hór-
lífi og samneyti við
vændiskonur og ekki
síður fyrir græðgi og fjár-
málamisferli. A síðasta
áratug féil útbreiðsla
Hustlers og P-tímaritanna,
bæði fyrir tilstilli hins opin-
bera og almennrar óánægju
með holskeflu klámiðnaðarins.
Árið 1987 þegar mál Flynts og
Falwell fór fyrir Hæstarétt var
hvorugur svipur hjá sjón.
Eftir klám og kvenfyrirlitn-
ingu er gott að lesa um samfé-
lagshyggju og þegnskap. í Tim-
es Literary Supplement skrifar
Richard Sennett um nýjustu
bók bandaríska félagsfræð-
ingsins Amitai Etzioni, The
New Golden Rule. Etzioni er
helsti frumkvöðull samfélags-
hyggjunnar í bandarískum
stjórnmálum og hefur m.a.
sannfært gáfaðri helminginn af
Clinton-hjónunum sem skrif-
aði bók í anda hennar, It Takes
a Village eða Þorp þarf til.
Sennett, sem kennir félags-
fræði við New York University,
er ekki par hrifinn af speki Etzi-
onis og finnst hún grunn. Sam-
félagshyggja í þessari útgáfu er
flöt, leitast við að finna sam-
nefnara með því að slétta út
ólíkar skoðanir. Þorgeir Þor-
geirson í HP í dag gerir grein
fyrir sömu viðleitni eins og
hún birtist í meðferð tungu-
málsins.
í flötu útgáfunni vantar af-
stöðuna í samfélagshyggjuna.
Maður breiðir ekki yfir ágrein-
ing með því að setja jafnaðar-
merki milli ólíkra siðferðis- og
menningargilda. Farsælla er að
PORN AND
RY FLYNT’
UfS MENAND
m
Tiepolo at the M<
rancis Haskc
Jrr**
m,
Louis Menand skrifar glæsilegan kvik-
myndadóm í New York Book Review
þar sem rök eru færð fyrír gagn-
kvæmni klámiðnaðaríns og sjónvarps-
trúboðsins...
samfélagshyggja Etzionis fær háðulega
útreið í Times Literary Supplement...
og Die Zeit upplýsir að Hitler hefði átt
rétt á bótum frá þýska ríkinu sem
stríðsfómaríamb, samkvæmt þeim
reglum og hefðum sem í gildi eru.
vaða í um-
ræðuna, taka afstöðu og
leitast við að útskýra
hvers vegna samféiagið
ætti að taka þessa stefn-
una eða hina í velferðar-
málum (utanríkispólitík,
menntamálum o.s.frv.).
Dýpri hugsuðir en Etzi-
oni, t.a.m. Michael
Waltzer og Michael
Sandel, taka háskann
með í reikninginn þegar
þeir leita valkosta við
ríkjandi pólitíska hugs-
un, en báðir Mikkarnir
samfélagssinnar.
ZEIT
ilajj fui dic lam í ■ H
iM. i/r Á ■ *):
eru
Lífsháskinn er fyrir hendi hjá
Þjóðverjum. Umræðan um líf-
eyri stríðsglæpamanna komst
á dagskrá með heimildaþættin-
um Panorama sem sýndur var
á A7?D-sjónvarpsstöðinni.
Vikublaðið Die Zeit fer í saum-
ana á málinu og varpar ljósi á
mótsagnakenndan veruleika
lífeyrisgreiðslna þýska ríkisins
til stríðskynslóðarinnar. Böðl-
arnir í fangabúðum nasista fá
lífeyri og hafi þeir orðið fyrir
líkamstjóni fá þeir sérstakar
bætur fyrir það á meðan fang-
arnir sem böðlarnir mis-
þyrmdu fá engar bætur. Sam-
kvæmt reglunum, segir í Die
Zeit, hefði Hitler fengið skaða-
bætur frá þýska ríkinu ef hann
hefði lifað stríðið. Hitler slas-
aðist í tilræði sem honum var
sýnt 20. júlí 1944, tilræðis-
mennirnir voru þýskir herfor-
ingjar sem vildu semja frið að
foringjanum látnum. Nú eru
engar líkur til að Hitler hefði
sloppið lifandi frá Núrnberg-
réttarhöldunum eftir stríð en
Eva Braun, ekkja foringjans,
hefði átt tilkall til bóta að
bóndanum gengnum. Hún
kaus hins vegar að fylgja hon-
um inn í eilífðina. Ekkja Rein-
hards Heydrich lifir í hárri elli
og fær opinberar bætur vegna
þess að þýskur dómstóll
dæmdi henni þær. Heydrich,
sem nefndur var böðull Tékkó-
slóvakíu og tékkneskir and-
spyrnumenn felldu eins og
lesa má í bókinni Sjö menn við
sólarupprás eftir Antony Bur-
gess og kom út á íslensku, var
úrskurðaður sem stríðsfórnar-
lamb og þar með fór frúin á
framfærslu hins opinbera. Á
meðan fá þúsundir fórnar-
lamba nasismans ekki krónu
með gati frá þýska
ríkinu.
Fimm söluhæstu smáskífurnar á Bretlands-
eyjum árið 1996 voru: „Say you’ll be there“
með Spice girls númer 5, „Return of the Mack“
með Mark Morrisson númer 4, „Spacemen"
með Babylon Zoo númer 3, Spice girls með lag-
ið „Wannabe“ númer 2 og „Killing me softly"
með Fugees númer 1.
Fimmta breiðskífa Blur kom í verslanir 10.
febrúar. Platan inniheldur 14 lög, upptöku-
stjóri er Stephen Street og hljóðritað var í
London og á íslandi eins og innfæddir aðdáend-
ur muna. Undanfari breiðskífunn-
ar, söngullinn „Beetlebum“, kom
út 20. janúar og náði strax í fyrstu
atrennu toppsæti breska listans.
Damon Albarn var inntur eftir því
hvort rétt væri að nýja platan
hljómaði virkilega eins og „The
Fall“? Hann svaraði því til að þeir
væru ein af fáum breskum hljóm-
sveitum sem notuðust við sams-
konar upptökuferli og Blur við
gerð nýju plötunnar. Þá er ekkert
verið að liggja langtímum saman
yfir hlutunum heldur er
þeim lokið af fljótt og
örugglega. Damon segir sveitina hafa orðið fyrir
töluverðum áhrifum frá Pavement og sé
spenntari fyrir nýja efninu frá þeim en U2. Þá
sagði hann að ekki hefði verið mögulegt að
vinna nýju plötuna ef þeir hefðu ekki horfið úr
sviðsljósinu og látið stórar tónleikauppákomur
lönd og leið.
I
ramir í U2 hafa verið að tjá sig um aðdáun
sína á danstónlist og þau áhrif sem hún hefur
á nýju breiðskífuna „Pop“ sem kemur út 3.
mars. Hljómsveitin segist hafa komist að
því að þeir hafi hver í sínu horni verið að
hlusta á samskonar músík. Bassistinn Ad-
am Clayton á Leftfield, Massive Attack og
Underworld á meðan Bono og Edge
hlýddu á Prodigy, Chemical Brothers,
Oasis og fleira. Þeir fullyrða að áhrifanna
verði vart á nýju plötunni, segja að mikil-
vægt sé að vera opinn fyrir ferskum vind-
um í því sem maður tekur sér fyrir hendur.
Á plötunni verða því andstæður, annars
vegar tónlist í anda Lennons/McCartneys
og Lous Reed og hins vegar tækni-
vædda hip-hoppið sem fer svo
geyst á þessum lokaárum 20. aldar-
innar.
Bresku tónlistarverðlaunin verða
afhent 24. febrúar. Spice girls
hljóta fimm tilnefningar og jafna þar
með met Oasis frá síðasta ári. Mælt
er með stúlkunum sem bestu
bresku hljómsveitinni og bestu ný-
liðunum og „Wannabe" sem bestu
bresku smáskífunni. Manic street
preachers, sigurvegararnir í lesendakosningum
blaða eins og MM og NME, fylgja fast á eftir
Spice girls með fjórar tilnefningar, einnig sem
besta hljómsveitin.
w
Ilesendakosningu Melody Maker var Beck val-
inn besti karlkynsflytjandi og Björk Guð-
mundsdóttir besti kvenkynslistamaðurinn og
þar að auki kona ársins. Bjartasta vonin er talin
Kula Shaker í valinu um bestu hljómsveit,
breiðskífu og smáskífu ársins. Þá hlutu Manic
street preachers fyrsta sætið í öllum þremur
: :
j
L
a» 4
i tilvikunum með
, plötuna
‘ „Everything must
go“ og lagið „A de-
; sign for Iife“.
Oasis gerir út
frá óháðu fyr-
irtæki á Bretlandi
sem heitir Creati-
on, og eru þá að
sjálfsögðu sjánleg-
ir á óháðu vin-
sældalistunum sem birtir eru í bresku tónlistar-
blöðunum. í ársuppgjörinu var lagið „Don’t
look back in anger" númer 1 á smáskífulistan-
um og á breiðskífulistanum áttu þeir Oasis-
drengir tvö efstu sætin; „What’s the story
morning glory" í fyrsta sæti og fyrri platan, sem
gefin var út í ágústmánuði 1994, var önnur sölu-
hæsta á óháða breiðskífulistanum yfir árið
1996. Eina vikuna í desember sl. áttu Oasis níu
sæti í röð á óháða smáskífulistanum. „Sha-
kermaker" númer 19, „Supersonic" númer 18,
„Roll with it“ númer 17, „Some might say“ núm-