Helgarpósturinn - 13.02.1997, Page 19
F1MMTUDAGUR13. FHBRÚAR1997
19
ENSKI BOLTINN
íþróttir
Sigurdur Ágústsson
sknfar
STAÐAN
Smeichel með rauða nefið. Ár-
ið 1991 rann út atvinnuleyfi
kappans og hann hélt heim á
leið en sneri fljótlega aftur og
þá til Birmingham. Árið '94
varði hann átta vítaspyrnur og
var öðrum fremur maðurinn á
bak við Coca Cola-bikarinn
sem Villa vann fyrir ári.
Hvað tjcrist næst?
Neitar einhver dómari að fara til ísafjarðar
nema fá dagskort í Seljalandsdal?
Pað er með ólíkindum hvað
dómarar hér á landi kom-
ast upp með. Leik Tindastóls
og Grindavíkur var frestað
vegna þess að einn dómari
kærir sig ekki um að fara norð-
ur á Sauðárkrók, á launum og
dagpeningum, til að dæma
leik. Að mati dómarans var allt
eins líklegt að hann yrði veður-
tepptur fyrir norðan og það
hugnaðist honum ekki. Hingað
til hefur veðurfælni og hr^eðsla
við að verða hríðfastur ekki
verið næg ástæða fyrir lið að
fresta leikjum. Liðsmenn eiga
fyrst og fremst að hugsa um að
koma sér á staðinn þar sem
leikurinn fer fram og hingað til
hefur lítið mark verið tekið á
veðurfælni þeirra. KKÍ hefur
alltaf verið frekar snefsið á að
fresta leikjum, sem eðlilegt er,
á þeirri forsendu að það sé
mikilvægt að fylgja leikjaplan-
inu. Enn sem komið er hefur
dómaranefndin ekki komið
saman til að fjalla um málið, en
það hlýtur hún að gera. Ef ekki
þá er Bleik bru^ðið. Fram-
kvæmdastjórn KKI er vorkunn;
þeir fá að vita með alltof stutt-
um fyrirvara að Bergur vill
ekki fara norður og það er ekk-
ert grín að redda dómara á
hálftíma, þegar heil umferð er
spiluð.
Hljóti viðkomandi dómari
engar ávítur fyrir þetta fram-
tak sitt eða refsingu, þá er
þetta fordæmisgefandi. Fram-
vegis þegar dómarar eru illa
upplagðir þá bara fresta þeir
leikjum! Skítt með liðið sem
bíður úti á velli, skítt með
áhorfendur.
Þetta mál verður dómara-
stéttinni ekki til framdráttar,
sérstaklega ekki ef hér verður
látið við sitja. Hitt er svo einn-
ig athygli vert að í dómara-
nefnd KKÍ eru bara starfandi
dómarar og ef við gefum okkur
að Bergur sé í nefndinni þá
flytti hann líklega tillögu á
næsta fundi þess efnis að hon-
um verði vikið tímabundið frá
störfum í refsingarskyni! Það
hljómar hjákátlega að starf-
andi dómarar fjalli sífellt um
eigin mál.
Áhugamaður um körfubolta
hafði samband við blaðið og
sagði bagalegt að hann og fé-
lagi hans, sem óku um 120 km
leið (fram og til baka) til að
fara á leikinn, færu fýluferðir á
völlinn. Hann hefði hringt á
Sauðárkróksflugvöll og kannað
með flug og þar á bæ var sagt
að leiguflugvél aðkomuliðsins
kæmi, það yrði flogið, svo vin-
urinn ók af stað. Umræddur
dómari ætti að borga þessum
pilti kílómetragjald, bensín-
peninga og laun í tvo tíma fyrir
ómakið. En það er ekkert víst
að Bergur kæri sig neitt um
það, enda er hann dómari og
gerir bara það sem honum
sýnist.
næsta víst að allir — utan Cary
Charles — verði klárir í slag-
inn gegn Coventry 19. feb.
Landsliðsmenn verða þó á
fleygiferð í þessu átján daga
hléi og alls óvíst hvernig lands-
leikirnir fara með þá: Gareth
Southgate, Steve Staunton,
Riccardo Scimeca, Lee
Hendrie, Savo Milosevic og
Sasa Curcic.
STOÐUGIR, EN YANT-
AR SKÆÐAN SOKN-
ARMANN
Liðinu hefur gengið vel það
sem af er tímabilinu. Strákarn-
ir frá Villa Park hafa einungis
einu sinni lotið óþyrmilega í
gras, en það var 0-3-tap gegn
Liverpool í janúar, á móti kom
að þeir söltuðu Wimbledon 5-0
rétt fyrir jólin. Það má því með
sanni segja að liðið hafi varist
vel og skynsamlega, en sóknar-
leikurinn hefur ekki verið
nægilega beittur. Brian Little
hefur gert margar tilraunir til
að ná sér í sóknarmann, hann
hefur gert tilboð í Stan Colly-
more, (Liverpool) Duncan
Ferguson (Everton) og Peter
Van Hooydonk (Celtic) en
fengið kaldar kveðjur frá stjór-
um leikmannanna, enda ekki
skrýtið. Þó er talað um að Tre-
vor Sinclair gæti verið á leið-
inni til Villa og sá skemmtilegi
leikmaður myndi ljá framlínu
Vill nýja vídd. Dwight Yorke,
Trinidad- og Tobago-búinn,
hefur spilað vel í vetur. Það er
þó talsverður dagamunur á
honum, t.a.m. var hann ekki á
skotskónum gegn Liverpool í
3-0-tapinu. Yorke er þó útsjón-
arsamur og eldfljótur fram-
herji sem hefur splundrað öll-
um vörnum enskra liða á leik-
tíðinni þótt oft hafi vantað
herslumun til að skora. Hann
er ekki sérlega sterkur en mjög
yfirvegaður þegar hann kemst
í færi, skoraði 25 mörk í fyrra
og var valinn leikmaður ársins
hjá liðinu. Aðdáend-
ur elska hann og
hann á sitt eigið lag,
Dwight Yorke (New
York-lag Sinatra).
Serbinn Savo Mi-
losevic er ótrúlegur
jójóleikmaður, einn
daginn gengur allt
upp hjá honum og
þann næsta er hann
eins og slakur firma-
spilari. Óstöðugleiki
hans er ein helsta
ástæða þess að
Little leitar að sókn-
armanni, Savo má
þó reiknast til tekna
að hann er ekki
nema 23 ára og verð-
ur án efa einn af
bestu senterum
heims þegar fram í
sækir. Hann var um
tíma orðaður við
Perugia, en hætti við að fara
eftir að honum fór að ganga
betur.
ÁSTRALI AF SERB-
NESKUM ÆTTUM
Markmaðurinn er sá sem
hvað best hefur spilað í vetur
hjá Villa. Mark Bosnich er 25
ára Ástrali sem spilaði með
Man. Utd. á árunum '89-'91. Á
þeim tíma spilaði hann þrjá
leiki, enda ekki fyrir hvern sem
er að taka stöðu eins besta
markmanns heims, Peters
vinna boltann til baka. Mjög
duglegur.
Mark Draper er „playmaker-
inn“ á miðjunni. Hann getur
gert allt, nema skotið. Hann er
leikinn, sterkur, vinnusamur, á
góðar sendingar og er skap-
andi, en hefði skorað margfait
fleiri mörk í fyrra gæti hann
skotið af einhverju viti. Draper
er þó ein af framtíðarstjðrnum
Villa. Sasa Curcic er framsæk-
inn miðjumaður sem yfirgaf
stóra fiskinn'T litlu tjörninni til
að halda sæti sínu í landsliði
Serbíu. Guðni og félagar í Bolt-
on hafa þó ekki saknað hans
sárt.
Curcic er sprækur miðju-
maður, afar framsækinn og
duglegur að skapa færi og
skora úr þeim. Hann gefur Villa
nýja vídd og hjálpar landa sín-
um Savo mikið. Carl Tiler er
eitt af vinnudýrum Villa á miðj-
unni. Hann er ósérhlífinn og
duglegur en ekki neitt tækni-
tröll. Tommy Johnson hefur
gegnt svipuðu hlutverki en var
oft á tíðum varamaður þangað
til í vetur. Honum finnst fátt
skemmtilegra en að skjóta á
markið og fyrir vikið kalla
áhangendur liðsins hann „Sup-
er Tom“. Mörkin eru ekki alveg
í samræmi við fjölda skota en
hann menn skora ekki nema
skjóta eins og hann segir sjálf-
ur.
Þá eru ótaldir ungir og efni-
legir menn sem hafa verið að
spila vegna meiðsla: Riccardo
Scimeca, Julian Joachim og
Lee Hendrie. Fyrir þessa
menn verður án efa erfitt að
tryggja sér stöðu í liðinu þar
sem fyrir eru fjórir útlendingar
og fimm írskir landsliðsmenn.
Þrátt fyrir að liðið verði ekki
með í titilbaráttunni nema að
nafninu til munu The Villans
berjast fyrir Evrópusætinu.
Þeir spila skemmtilega knatt-
spyrnu og ef Little selur ekki
lykilmenn má búast við þeim
— firnasterkum — á næsta ári.
Prátt fyrir að Villa hafi unn-
ið sinn fyrsta sigur á árinu
gegn Sunderland fyrir tíu dög-
um veit Brian Little fram-
kvæmdastjóri að á brattan er
að sækja. Urslitin blekkja Little
ekki hætishót. Þrátt fyrir sigur-
mark Milosevic gegn Sunder-
land eru vandamálin mörg.
Markið var nóg til að Serbinn
fengi nafnbótina maður leiks-
ins, sem væri ágætt ef hann
hefði gert eitthvað annað í
leiknum — sem hann gerði
ekki.
Aston Villa er með 39 stig og
því enn með í baráttunni um
titilinn, þótt ekki sé líklegt að
risarnir gefi allir eftir á enda-
sprettinum. Markmið Villa
þessa dagana er Evrópusæti
annað árið í röð. Aston Villa og
Sheffield Wednesday eiga það
sammerkt að hafa treyst á að
sigurvegarar beggja bikar-
keppnanna kæmu úr hópi
fimm efstu liða. Gerðist það
gæfi sjöunda sætið rétt til þátt-
töku í Evrópukeppni félags-
liða. (Efstu sætin tvö í meist-
arakeppninni, næstu fjögur í
UEFA og svo, sjöunda sætið í
Evrópukeppni bikarhafa.) Lík-
urnar á þessu eru þó ekki mikl-
ar um þessar mundir. Eina
leiðin fyrir Little og lærisveina
hans er að skríða upp í fimmta
sætið, upp fyrir Wimbledon og
Chelsea í síðustu 13 leikjunum.
Það gæti reynst Aston villa um
megn því Chelsea leikur betur
og betur og „The Crazy Gang“
á tvo leiki til góða.
Góðu fréttirnar eru þær að
Villa getur farið að stilla upp
sínu sterkasta liði eftir mikla
blóðtöku vegna meiðsla.
Sjúkraþjálfari liðsins telur
Það er lykilatriði fyrir Aston Villa
að Steve Staunton spili vel.
Miðað við leikina sem
Aston Villa á eftir er
ekki ólíklegt að liðið nái
Evrópusæti
Mið. 19. feb. Coventry (h)
Lau. 22. feb. Nottingham Forest (ú)
Sun. 02. mars Liverpool (h)
Mið. 05. mars Leicester CHy (ú)
Lau. 08. mars Wimbledon (ú)
Lau. 15. mars West Ham United (h)
Lau. 22. mars Blackbum Rovers (ú)
Lau. 05. apr. Everton (h)
Lau. 12. apr. Derby County (ú)
Lau. 19. apr. Tottenham Hotspur (h)
Þri. 22. apr. Leeds United (ú)
Lau. 03. maí Middlesbrough (ú)
Sun. 11. maí Southampton (h)
„GUÐ OG ÓSKILGETN-
IR SYNIR HANS“
Það eru engir aukvisar sem
standa pligtina fyrir framan
Bosnich. Villa-vörnin hefur
staðið sig frábærlega og ein-
ungis Arsenal og Liverpool
hafa fengið á sig færri mörk.
Segja má að Paul McGrath,
sem aðdáendur Villa kalla
Guð, hafi kennt Villa hvernig á
að spila vörn því hann var
kóngur í sínu ríki og spilaði
varla lélegan Ieik; æfði ekkert
heldur spilaði bara. Þáverandi
framkvæmdastjóri (Big Ron)
sagði eitt sinn um hann og lík-
amlegt ástand hans: „Ef
McGrath væri hestur þá væri
löngu búið að farga honum,
sem betur fer er hann ekki
hestur!"
Southgate, Staunton, Eh-
igou, Nelson og Wright hafa
spilað vörnina að mestu, en
endrum og eins hefur South-
gate spilað á miðjunni, en
hann var keyptur sem miðju-
maður til klúbbsins frá Palace.
Southgate er af nýrri kynslóð
varnarmanna, les leikinn vel
og líður vel hafi hann boltann.
Fernando Nelson var keyptur
frá Portúgal til að leysa af Cary
Charles, sem er meiddur.
Portúgalinn hefur leikið vel í
vörn og á miðju Villa, er fljótur
og leikinn.
Maðurinn með hið óskiljan-
lega og hljómfagra nafn Ugo
Ehiogu er kallaður, öðrum
varnarmönnum fremur, „Son-
ur Guðs“ af aðdáendum Villa
þar sem hann hefur tekið við
stöðu McGraths. Hann er
sterkur og fljótur miðherji og
geysisterkur í loftinu. Hann er
ekki sá teknískasti og stutta
spilið hjá honum er fremur
slappt. Það er þó sjaldgæft að
hann eigi lélega leiki og þeir
eru ekki margir sem hafa betur
í tæklingu gegn honum. Steve
Staunton hefur átt við meiðsl
að stríða og því ekki verið jafn-
öflugur í vetur og ‘93-’95.
Vinstri löppin á
honum er einstök
og fyrirgjafirnar
frábærar. Horn-
spyrnur frá Staun-
ton skapa alltaf
usla og einu sinni
skoraði hann úr
horni. Nái Staun-
ton sér á fullt á
næstunni er
möguleikinn á
Evrópusætinu
ágætur. Alan
Wright er
skemmtilegur leik-
maður, örsmár en
gefur ekki tommu
eftir. Hann er
snöggur, áræðinn
og leikinn vinstri-
fótarmaður sem
hefur nýst Villa
bæði í vörn og á
miðju. Almennt er
talið að hann fái tækifæri með
landsliðinu þegar og ef Stuart
Pearce hættir.
MIÐJAN STERK
Fyrirliði írska landsliðsins,
Andy Townsend, fer fyrir sín-
um mönnum á miðjunni. Kall-
inn er að ná sér á strik eftir
frekar léleg ár með Villa. Hann
nýtur góðs af að hafa unga og
fríska stráka eins og Ian Tayl-
or í kringum sig. Taylor er eini
heimamaðurinn í liðinu og er
vinnuhesturinn, sér um að
Lið Leikir u J T Möri( Mörk Stig
(skor)lá sig)
Manchester United 25 14 8 3 50 28 50
Liverpool 25 14 7 4 4 20 49
Arsenal 25 13 8 4 44 23 47
Newcastle United 25 13 6 6 50 30 45
Chelsea 24 11 8 5 38 33 41
Wimbledon 23 11 6 6 36 28 39
Aston Villa 25 11 6 8 32 25 39
Sheffield Wednesday 24 8 11 5 26 27 35
Everton 25 8 7 10 34 38 33
Tottenham Hotspur 24 9 4 11 27 33 31
Leeds United 25 8 6 11 21 27 30
Sundertand 25 7 8 10 23 32 29
Blackbum Rovers 24 6 9 9 26 25 27
Leicester City 24 7 6 11 25 35 27
Coventry City 25 6 9 10 23 33 27
Derby County 24 5 10 9 22 30 25
Nottingham Forest 25 5 8 12 23 40 23
West Ham United 24 5 7 12 20 32 22
Southampton 23 5 5 13 32 41 20
Middlesbrough 24 5 7 12 30 44 19
Aston Vaa
stefnir á Evrópusæti
„Guð og synir hans" hjá Astonvilla heimsóttir