Alþýðublaðið - 04.05.1971, Page 8
Útg. Alþýðuflokkurinn
Ritstjóri:
Sighv. Björgvinsson (áb.)
A-listinn í Reykjavík
t dag birtir Alþýðublaðið framboðslista
Alþýðuflokksins í Reykjavík, en listinn
var samþykktur einróma á fundi í full-
trúaráði Alþýðuflokksfélaganna í
Reykjavík, sem haldinn var s. 1. fimmtu !
dagskvöld.
í tveim efstu sætum A-listans eru ráð
'herrarnir Gylfi Þ. Gíslason og Eggert
G. Þorsteinsson, sem á undanförnum
árum hafa farsællega leitt störf Alþýðu
flokksins. Þeir Gylfi og Eggert njóta al-
Kienns trausts og álits fyrir störf sín i
stjórnmálum. Þeir hafa unnið Alþýðu-
flokknum og jafnaðarstefnunni mikið
gagn á umliðnum árum, njóta almenns
álits fyrir sanngirni, réttsýni og grand-
varleik og eiga miklu fylgi að fagna
meðal almennings í landinu.
Sigurður Ingimundarson, sem í und-
anförnum kosningum hefur skipað 3ja
sæti listans hverfur nú úr því sæti sam-
kvæmt eigin ósk og skipar að þessu
sinni heiðurssæti listans. Sigurður hefur
reynzt einn nýtasti þingmaður Alþýðu-
flokksins, traustur, staðfastur og starf-
samur maður.
Sæti Sigurðar Ingimundarsonar á A-
listanum í Reykjavík tekur ungur mað-
ur, Sigurður Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Húsnæðismálastofnunar
ríkisins. Sigurður er þrautreyndur mað
vr í félagsmálum og hefur til að bera
mikla þekkingu á stjórnmálum. Hann
var formaður FUJ í Reykjavík, forseti
SUJ um margra ára skeið, hefur lengi
'átt sæti í flokksstjórn og framkvæmda
Stjórn Alþýðuflokksins og gegnt ýms-
um öðrum mikilsverðum trúnaðarstöð-
um á vegum flokksins.
Sigurður Guðmundsson hefur einnig
tekið mjög virkan þátt í öðrum félags-
málum, Meðal helztu áhugamála hans
má nefna aðstoð við þróunarríkin, en
hann var fyrsti formaður framkvæmda
nefndar „Herferðar gegn hungri“ og
fræðslustarfsemi á vegum alþýðusam-
takanna, en Sigurður var einn af helztu
frumkvöðlum að endurreisn Menning-
ar- og fræðslusambands alþýðu. I starfi
sínu í Húsnæðismálastofnun ríkisins hef
ur hann einnig gerkynnzt húsnæðis-
málunum í landinu og hefur aflað sér
mikillar þekkingar í félagsmálum.
I öðrum sætum A-listans er ýmist
fólk, sem áður hefur verið í framboði
fyrir Alþýðuflokkinn, traust Alþýðu-
flokksfólk og landsþekkt, eins og t. d.
verkalýðsforinginn Jónína Guðjónsdótt
ir, eða ný andlit, eins og t. d. hinn þekkti
listamaður Gunnar Eyjólfsson, sem skip
ar 5. sæti listans.
A-listinn í Reykjavík er skipaður
mætu fólki, sem nýtur virðingar og álits
meðal allra. Listinn er því vel skipaður
og Alþýðuflokksmenn í Reykjavík eru
staðráðnir í því að fylkja sér um hann
í komandi kosningum og fylgja honum
fast fram til sigurs.
7. Björn Vilmundarson,.
deildarstjóri
u. Helgi E. Helgason,
formaffur F U J
13. Jon Ivarsson,
verzlunarmaffur
19. Kristmann Eiðsson,
kennari
14. Guðmundur Magnússon,
skólastjóri
20. Þóra Einarsdóttir,
formaður Verndar
9. Guðmundur Ibsen,
skipstjóri
21. Sigurður Jónsson,
skrifstofustjóri
15. Kristín Guðmundsdóttir,
form. Kvenfél. Alþýðufl.
I Þriðjudagur 4. maí 1971