Alþýðublaðið - 10.05.1971, Síða 11

Alþýðublaðið - 10.05.1971, Síða 11
! n/o I J *- r >íwí 10. 5. Waage sími 34527. Magnúsi Þór- arinasyni sími 37407. Stefáru Bjarnasyni sími 37392. Minning- arbúðinni Laugaveg 24._________ FF.LftGS9TARF_________________ Munið frímerkjasöfnun Geð- ■vemdarfélagsins. — Skrifstofa» Veltusundi 3 eða pósthólf 1308, Reykjavík. Handritasýningin I Árnagarði. Aðsókn hefur verið mjög mikil að sýningu Flateyjarbókar og Konungsbókar í Árnagarði, og hafa þegar skoðað hana nm 7500 manns. Fyrst um sinn verður sýn ingin opin á laugardögum og sunnudögum kl. 1,30—7, aðra daga kl. 1,30—4. íslenzka dýrasafnið fer opið frá kl. i—6 í Breiðfirð- ingabúð við Skólavöi-ðustíg. GERI GAMLAR Harðviðarhurðii SEM NÝJAR Sími 20738 GALLABUXUR 13 oz. no. 4- 6 kr. 220.00 — 8-10 kr. 230.00 — 12-14 kr. 240.00 FullorSinsstærífir kr. 350.00 Litli Skógur Snorrabraut 22. Sími 35644. Foreldrar Sumardvalaheimili í Stykkis- hólmi tekur til starfa frá 1. júnf n.k. tii 31. ágúst. Enn geta nokkur börn komizt að. Tekidf er á móti pöntunum í síma 8128, Stykkishólmi. ST. FRANCISKUSSYSTUR Áskriftarsím- inn er 14900 103 dyrnar, á vegg. Hann rankar fljót'lega við sér og hendist út úr húsinu. ú-ú.: Hann skilur ekkert hvað hefur gerzt. Hann veit ekki að þýzkur hermaður, sem varð að hörfa undan óvinunum, hafði útbúið þetta að gamni sínu, áður en þeir fóru. ■ Fangi prófessorsins kemst ekki langt. Hann reýnir að komast til Ameríkananna, en lendir í miðri skothríð,- Hann hleypur að öðru húsi og kastar sér á hálfopna hurðina. Þá springur næsta sprengihleðsla. Það eina sem eftir verður eru nikkelgleraugun. Þau kastast yfir götúna og hafna í göturæsinu. Ennþá einu sinni notar Karsten höfuðsmaður alla sína herkænsku. Hann skipuleggur varnarsveitir, gefur skip- anir um skyndiárásir. Hann er ætíð í fremstu' víglínu. Hann gerir allt sem þarf að gera — en án sannfæringar. Hann heldur áfram bardaganum, þó hann viti að hann er löngu taþaður. „Haldið stöðunni eins lengi og mögulegt ér!“ kallar hann til Walters. Bróðurinn lítur upp. Andlitið er svart af óhreinindum, ryki og púðurreyk, augun rauð og bólgin. Hann bölvar forlögunum, sem hafa sent hann beint til helvítis, áður en hann er búinn að ná sér eftir veruna á fiallinu bölvaða. ,,Og þegar það ekki dugir lengur?“ hvæsir hann. „Þá förum við í leyfi“, svarar deildarforinginn. Þetta er alveg eins og í Cassino. Það er barizt um hvert hús, hvern fermetra, hvern rústahaug. Líkin liggja í stór-' um hrúgum, eins og í Cassino — aðeins miklu verra. Brest stendur í ljósum logum. Ameríkanarnir skjóta með lýsandi skotum sem spýtast eftir götunum eins.og flugeldar. Walter Karsten liggur á bak við vélbyssu í rústunum. Það hringsnýst allt fyrir augunum á honum. Ameríkani hringsnýst, vélbyssan geltir. Maðurinn fellur þungt til jarðar. Þá koma hinir á fleygiferð. Vélbyssa Walters geltir viðstöðulaust. Hamingjan góða, eru þessi skot aldrei búin? hugsar hann. Þá gæti maður bundið enda á þetta með þvi frá himnarfki til helvítis að rétta upp hendurnar. Ameríkanarnir stöðva árásina í bili. Það er ekkert vit í að ana beint inn í skothríðina frá vélbyssunni. Þeir berj- ast fyrir land, sem stendur ekki aþveg á sama hvernig synir þess falla. Hvern fjandinn er nú þetta? veltir Walter fyrir sér. Eru þeir búnir að fá nóg í dag? Hann veit ekki að fótgönguliðið hefur fengið nýjar fyrirskipanir vegna vélbyssu hans. Nokkrum mínútum seinna, verður honum ljóst hver á-í stæðan er. Hann beygir sig niður, reynir að gera eins lítið úr sér og hann getur. Sprengjurnar springa allt í kringum hann. Veggir hrynja með braki og brestum. Glóandi málmhlutar þeytast um allt. Allt í einu sér hann skært ljós fyrir framan sig. Hann verður að loka augunum. Fyrsta fosforsprengjan hefur sprungið. Hann bítur saman tönnunum. Hitinn er óþolandi. Hann verður að komast burt, burt.; ? Hann hleypur af stað, hendir sér niður, hleypur, hraðar en hann hefur nokkru sinni hlaupið. Logarnir hvæsa allt í kringum hann. Honum finnst vélbyssan vera að slíta af sér handlegginn. Ég fleygi helvítinu í fyrstu holuna sem ég finn, hugsar hann. En bæði hann og vélbyssan dettur niður í næstu holu. Hann klöngrast upp aftur og hleypur áfram. Hvert hann ætlar, veit hann ekki. Hann hefur ekki hugmynd um hvar hann er staddur. Ekkert sést fyrir reyk, eldi og blossum. Hann finnur stingandi sársauka í báðum fótum. Hann lít^ ur niður .meðan hann hleypur, en augu hans eru full af tárum. Hann fer með hendina niður eftir lærunum. Það blæðir ekki, að minnsta kosti. Þetta er líklega ekkij mjög hættulegt, hugsar hann. Heim . .. Hvítt rúm . .. Sjúkrá-í hús . . . Eymdinrii lokið ... jj Hann fleygir sér flötum áður en næsta fosforsprengja springUr. Nú kannast hann aftur við sig. Aðeins hundrað metrar að næsta sjúkraskýli. Þú verður að fyrirgefa, kæri Söiubörn Sölubörn SL YS A VARN A|DEILD ARINNAR INGÓLFS 'Í v. ýf r _ ■ ;■ ■ er á þriðjuda'ginTf H. maí — Lokadaginn. Merkin verða afgreidd til sölubarna frá kl. 09.00 á þriðjudag áeftirtöldum stöðum: Melaskóla Vesturbæjarskóla Anddyri sundhallarinnar Hlíðaskóla Höfðaskóla Álftamýrarskóla Breiffa'geiðisskóla Vogaskóla Langholtsskóla Laugarnesskóla Hvassaleitisskóla Félagsheimili Framfarafélags Árbæjarhverfis Breiðholtsskóla Húsi SVFÍ viff Grandagarff 10% sölulaun. — Söluverðlaun. — 10 sölu- hæstu börnin fá að verðlaunum flugferð með þyrlu, og ,auk þess næstu 25 sölu'hæstu börn- in sjóferð um Sundin. Foreldi'ar! Hvetjið börnin til að selja merki. Auglýsingasíminn er 14906 Bifreiðaeigendur athugið Félagsskírteini F.Í.B. 1971 Veitir ,m.a. rétt-til eftirfar- andi bjónustu: Sjálfsþjónusta — skyndiþjónusta. Bílaverkstaiði Skúla og- Þorsteins, Sólvallagötu <79, veitir félagsmönnum F.Í.B. 20% afslatt á sjálfsþjónustu. Þá fá félagsmenn l’.Í.B. aðstoff við smáviffgerðir á|sa,ma stað. Ljósastillingar — nýjung Bílaverkstæði Friðriks Þórhallssonar, Ármúla 7, sími 8Í345, veítir félagsmönnum F.f.B. 33.3% afslátt (á ljósa- stillingum. Fyrir þá félagsmenn, sem eiga erfitt meff aff láta stilla ljósin á (venjulegum vinnutíma, verffur haft opiff til kl. 10 e.h. á næstkomandi fi,mmtudagskvöldum. Gerizt meðlimjr í ,F.Í.B. og efliff meff iþví samtakamátt bifrciffaeigenda. Félag íslenzkra bifreiðaeigenda Ármúla 27. ~ Símar 33614—38355. Mánudagur 10. maf 1971 11

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.