Alþýðublaðið - 25.05.1971, Page 1
j Klóraði úr sér augun í> BAKSÍÐA
ÞaitiJUDAGUR 25. IVIAÍ 1971 — 52. ÁRG. — 104. TBL.
GRÍMUBÚNIR RÆNINGJAR
□ „Láttu okkur fá brennivín”,
sög-ðu íþrír grímuklæddir 'menn
við 62 ára gamlan mann, sem
lieir ruddust inn til um kiukkan
ellefu í gærkvöldi. Réðust þeir
síðan að íhonum og ibörðu og
rændu.
Rúmlega kl. 11 i gærkvöldi vgr
hringt til lögreglunnar og bún
kvödd að húsi við Snorrabraut.
Þegar hún kom á staffinn var þar
fyrir fullorðinn maður í kjallara
íbúð hússins og var hann skorinn
I í andliti, en árásarmennirnir
! bak og burt.
I Var hann fluttur hið skjótasta
á slysadeild Borgarsjúkrahússins,
en aliar lögreglubifreiðar á
Reykjavíkursvæðinu voru látnar
Fiamih. á bls. 4
Tveir hasspiltar teknir
□ Eftir því sem Alþýðublaðið
kemst næst, voru tveir ungir
menn handteknir síðastliðinn
föstudag í Reykjavík fyrir hass-
neyzlu.
Þegar þeir voru teknir voru
þeir undir miklum áhrifum af
hassi. Við leit á þeirn fannst
eitthvert magn af þessu efni og
telja sumir, að þar sé um að
ræða hluta af stórri sendingu,
sem hingað hefur borizt.
Alþýðublaðið bar þetta undir
Kristin Ólafsson, fulltrúa iög-
reglustjóra, og sagði hann, að
ekki væri hægt að skýra frá
þessu að svo stöddu, þar sem
rannsókn málsins stæði enn yfir.
„Við viljum ómögulega vera að
tina til hvert mál“, sagði Krist-
inn. Og varðandi þessa stóru
hasssendingu komst hann svo að
orði, að ekki hefffi lögreglan kom
izt yfir hana. —
□ Sóðaskapur er dýr og þeir,
sem vanrækja að þrífa sæmilega
í kringum sig og f jarlaegja ónýtt
drasl af lóðum sínum , geta átt
yfir höfði sér, að hreinsunar-
deild Reykjavíkurborgar grípi
til eigin ráða og fjarlægi óþrifn-
aðinn á kostnað eigenda hans.
Reikningurinn getur orðið æðl
hár og jafnvel skipt tugþúsund-
um króna,
Þetta kom fram í samtali, sem
Alþýðublaðið átti við Guðjóa
Þorsteinsson hjá hreinsunardeild
Reykjavikurborgar í gær. Fyrir
tíu dögum rann út frestur, sem
Reykjavíkurborg gaf Reykvíking
um til að fjarl. af lóðuni sín-
um hvers konar ónýtt drasl, en
gera má ráð fyrir, að enn dauf-
heyrist allmai-gir aðilar við á-
skorun borgaryfirvalda.
í samtalinu við blaffið sagði
Guðjón, að í þessxun mánuðl
væri verið að kanna ástandið
Og yrði í næsta mánuði byrjað að
fjarlægja drasl, þar sem það hef-
ur safnazt saman, og síðan yrði
Framli, á bia. 8.
□ Undanfarna daga hefur ver-
ið unnið að itví að fjariægja
bílhræ í bílakirkjugarffinum á
Ártúnshöfðanmii í grennd við
sorpeyðingarstöðina. Hræjunum
er ekiff á stórum bílium í mikla
gryf ju og þar enda bílarnir fer-
il sinn sem uppfyllingarefni. Viff
tókum myndina í gærdag.
FRÚIN ER i!
KRÖGGUM |
O Fyrir fáeinum dögum val’
gert opinbert í Bretlandi, að
Elísabet drottning hefði farið
þess á leit við brezka þingið,
að árleg fjárveiting til hirðar-
innar vei’ði hækkuð um lið-
lega 100 milljónir íslenzkra
króna. Engar breyingar hafa
orðiff á þessari fjárveitingu
síðustu nítján árin og nú er
svo komið, að drottning hefur
ekki nóg.
í boffskap sínum til þingsins
segist hennar hátign harma
þá þróun, sem orðið hafi þess
valdandi, að opinber fjárveit-
ing til hirðarinnar hrökkvi
ekki lengur til, svo aff hirðin
geti haldið þeirri reisn, sem
brezka þjóðin óski.
Frsmih. á !bls. 8.
□ Kona á Long Island í Banda
ríkjunum hefur hlotið heiía-
skemmdir vegna þess eins, að
hún borðað'i of mikið af sverð-
fiski, sem var orðinn eitraður
af kvikasilfri.
Eins og fram hefur komið í
fréttum, er nú þegar mikið
magn í sjónum af kvikasilfri
frá iönaði. Kvikasilfursmagn í
fiski eykst með hverjum degin-
um þar til „eftir 50—60 ár verð
ur allur fiskur óætur“, að því
er segir í bandarískri skýrslu
um mengun hafsins.
Þá stafar fiskinum einnig veru
leg hætta af arseniki, sem örver
ur í hafinu breyta í hættuleg
eiturefni.
Þessar óhugnanlegu stað-
reyndir lögðu vísindamenn fyr-
ir bandariska mengunarnefnd,
sem sérsaklega f jallar um meng
un af völdum efnaiðnaðar.
Þegar skýrslurnar höfðu ver-
ið lagðar fram, sagði Philip A.
Hart öldungadeildarþingmaður:
„Hvað erum við eiginlega að
gera sjálfum okkur? Einungis
sú staðreynd, að kona, sem neyt
ir fiskmetls úr sjónum okkar,
skuli hafna á sjúkrahúsi vegna
heilaí kenmida, virðist benda til
einhvers konar geðveiki“.
Umrædd kona er fyrsta til*
fellið í Bandai-íkjunum, sem
sannanlega hefur alvarlega
kvikasilfurseitrun af fisM.
Það var dr. Roger C. Herd-
mann, sem gerði skýrsluna um
kvikasilfurseitrun konunnar og
hann segir: „Þetta eitrunartil-
felli er ekki hægt að líta á sem
einungis óheppni einnar mann-
eskju. Það hljóta að vera fleiri,
ef ekki miklu fleiri, sem eru
á sama báti“.
Árið 1964 hóf konan megr-
unarkúr og því fýlgdi að húm
borðaði eitthvert magn af sverð
fiski á hverjum degi. Hún létt-
ist um rúm tuttugu kiló, en fór
Frainilli. á tíls. 8.