Alþýðublaðið - 29.05.1971, Side 12
rd&v,i:»«m:i»nj;
SEGJA
3
Tvisynt a
Vesturland
!□ Benedikt Gröndal, al-
þingismaður, er efstur á lista
Alþýðuflokksins í Vesturlands
kjördæmi. Benedikt fæddist
7. júlí 1924 að Hvilft í Ön-
undarfirði og' er sonur Sigurð
ar Gröndals, yfirkennara, og
konu hans, Mikkelínu Sveins-
dóttur. Hann lauk stúdents-
prófi frá M.R. 1943 og A.B.
prófi frá Harvard háskólanum
í Bandaríkjunum 1946.
Benedikt varð landskjörinn
þingmaður fyrir Alþýðuflokk-
inn í kosningunum 1956 og í
kosningunum 1959 varð hann
kjörinn, sem 5. þingmaður
Vesurlandskjördæmis, og hef-
ur verið það síðan. Eenedikt
er varaformaður Alþýðu-
fiokksins.
— Þegar kjördæmabreyting
in var gerð árið 1959 tókst
Alþýðuflokknum að vinna 5.
þingsætið í Vesturlandskjör-
dæmi og hefur hann haldið
því síðan, en það hefur kost-
að mjög harða baráttu í öllum
kosningum til þessa, sagði
Benedikt, er Alþýðublaðið
hafði tal af honum. Nú er enn
sótt hart að Alþýðuflokknum
og fullyrða m.a. bæði Alþýðu
bandalagsmenn og Framsókn-
armenn, að þeir séu nálægt
því að vinna þingsætið af hon
um. M.a. vegna þess, að nú er
nýr listi í framboði í kjör-
dæminu, ríkir nú jafnvel
meiri óvissa, en áður.
Benedikt sagði einnig, að
sameiginlegum framboðsfund
um liefði að þessu sinni verið
fækkað nokkuð í kjördæm-
inu. Áður voru þeir 12—13,
en liafa nú verið ákveðnir 6
og verður 5 þeirra útvarpað.
— Á þann hátt gerum við
okkur vonir um, að fólk í öllu
kjördæminu geti sæmilega
kynnt sér málflutning fram-
bjóðenda, sagði hann.
— Þeir framboðsfundir, sem
enn hafa verið haldnir, liafa
mjög snúist um landhelgismál
ið, sagði Benedikt, enda er
mjög snúizt um landhelgismál
þorpunum á Vesturlandi. Fyr
ir utan landhelgismálið tel ég
veigamesta verkefnið Vestur-
landsáætlun. Það mál flutti
ég á Alþingi fyrir tveim ár-
um og lilaut það mjög- góðar
undirtektir, enda mikill áhugi
á því í héraði.
— Vegna þess, að Alþýðu-
flokkurinn tók frumkvæði að
Vesturlandsáætluninni þykir
Framsóknarflokknum ómögu-
legt að nota það nafn. Því
berjast Framsóknarmenn fyr-
ir „Framfaraáætlun Vestur-
Iands“, sem þeir þykjast sjálf-
ir höfundar að.
Benedikt sagði Alþýðublað-
inu, að enn væri ógerlegt að
spá nokkru um kosningaúr-
slitin á Vesturlandi.
— Alþýðuflokkurinn liefur
lengi haft all-traust fvlgi á
Akranesi, sagði Benedikt, og
eins í kauptúnunum á Vestur-
landi. Til að halda þingsæt-
inu þarf þó að koma tii við-
bótar því verulegur stuðning-
ur. Margt fólk i kjördæminu
hefur til þessa talið æskilegt,
að Alþýðuflokkurinn liefði
eitt af þingsætunum og því
veitt hontun stuðning sinn.
Úrslit kosninganna fyrir Al-
þýðuflokkinn munu að þessu
sinni að verulegu leyti fara
eftir því, hvort svo verður
enn. —
AÐALFUNDUR
LOFTLEIÐA
KAIIPA LiK-
CA 2-3 ÞOTUR
D Á aðalfundi Loftleiða, sem
llaldinn var í Reykjavik í gær,
kom fram, að velta félagsins á
S.L ái’i nam liðlega 2,6 milljörð-
«m króna og jókst um 26,3%
ffá árinu á undan. Hins vegar
varð hagnaður af rekstri félags-
ins á árinu 1970 mun lægri en
arið 1969. Nam hagnaðurinn á
st.l. ári liðlega 2,1 milljón króna
«' móti liðlega 68,7 milljóna
króna hagnaði 1969.
Loftleiðir fluttu samtals 282,-
546 farþega á síðastliðnu ári, en
1969 voi'u farþegarnir 198.825
og nemur aukningin því um
42%. Til og frá Bandaríkjunum
voru fluttir 250.052 farþegar og
er Loftleiðir nú 9. í röð þeirra
flugfélaga, sem halda uppi áætl-
unarflugi yfir hafið miili Evrópu
og Bandaríkjanna, með 3,8%
þeirra fjutninga.
Meginskýringin á lakari af-
komu Loftleiðá á s.l. ári er talin
vera „fargjaldastríð“ á Atlants-
•hafinu, s’em leiddu til lækkaðra
fargjalda. Sigurður Helgason,
varaformaður stjórnar Loftleiða
sagði m.a. í skýrslu sinni, að sem
dæmi um áhrif hinna lækkuðu
fargjalda á félagið mætti nefna,
að ef fargjöld ársins 1969 hefðu
verið í gildi 1970, og miðað við
sömu flutninga, hefðu nettótekj-
Framh. á bis. 2.
Kírkjugarður-
inn í Fossvogi
senn fullur
□ „Fossvogskirkjugarður endist
ekki nema í þrjú til þrjú og hálft
ár til viðbótar og verður þá að
taka nýjan kirkjugarð í notkun“,
sagði Hjörtur E. Guðmunde'son,
forstj óri Kirkjugaða R'eykjavík-
u í samtali við Alþýðublaðið í
gær.
Sagði Hjörtur, að það færi
eftir nýtingu þess lands, sem enn
væri ónotað í Fossvogi, hvenær
hætta yrði að greftra þar, en alls
er landsisvæði Fossvogskirkju-
garðs um 17 hektamr.
I samtalinu kom fram, að tals-
vert væri um það, að fólk í fullu
fjöri og jafnvel ungt fólk spyrð-
ist fyrir um það, hvort það gæti
tryggt sér legstæði í Fossvogs-
; kirkjugarði, áður en hann yrði
tekinn úr notkun.
Kiiikjugarðar Reykjavíkur
hafa þegar fengið úthlutað stóru
landsvæði, eða tæplega 60 hekt-
urum lands, í grennd við Korp-
úlfsstaði, fyrir nýjan kirkjugarð.
„Og við lifum í voninni um að
fá þar mun stærra land Og hefur
borgai’ráð verið hvatt til að
leggja þarna stórt land'til, því
að næst, þegar leita þarf uppi
nýtt land fyrir Kh-kjugarða
Reykjavikur, kannski efftir 30—
50 ár, má gera ráð fyrir, að allt
land Verði búið hér í grennd við
borgina, og þá verðum við að
JJlýtja kirkjugarð ReykVíkingal
langt upp í sveit“, sagði Hjörtur.
í samtalinu kom fram, að þeg-
ar er byrjað að skipuleggja þanxi
hluta landsins við Korpúlfsstaði,
sem fyrst verður tekin í notkun
sem kirkjugarður og verðui?
væntanlegra byi’jað að planta
þar trjám í sumar.
Hjörtur sagði ennfremur, afS
líkbreninsla færðist ekki í vöxb
hér á landi, en hæht hefur hlut-
fallið komizt upp í 13%, en er
að jafnaði í kringum 10%. Benti
Hjörtur á, að í Danmörku væri
verið að brleyta lögum, sem miða
að því að auka líkbrennslu þar,
þanmig -að undanþágur þyi’fti til
gneftrunar með þeim hætti, semí
tíðkast hér á landi,
Fossvogskirkjugarður var fyrst
tekinn í notkun árið 1932 og heff-
ur hvað efftir annað Verið bætfi
við það svæði, sem honum vai’
upphafl. ætlað. Rösk 130 ár eru
nú liðin, síðan gamli kiikjugarð-
urinn við Suðurgötu var tekinn
í notkun og má geta þess, að lengi
vel höfðú Reykvikingar. mikið
á móti þeim kirkjugarði vegna
þess, hve langt hann var frá bæn
um. Sem kunnugt er tók -Suður-
götukirkjugarðurinn við af
kirkjugarðinum, sem staðsettur
var við gatnamót Kirkjustrætia
og Aðalstrætis. —
GROF 9 FORNAR-
LÖMB SÍN UNDIR
ÁVAXTATRJÁM
37 ára gamall landbúnaðar-
verkamaður Corona að nafni var
í dag handtekinn af lögreglunni
í Yuba City í Kaliforníu gi*un-
aður um morð á níu mönnum,
en lík þeirra fundust grafin í
appelsínugarði skammt frá Fea-
ther fljóti.
Corona, sem er kvæntur og
fjögurra barna faðir, var hand-
tekinn á heimili sinu skömmu
efftir að likin fundust. Lögreglan
hefur neitað að gafa upplýsingar
um hugsanlega ástæðu fyrir
morðunum, ekki hefur lögreglan
heldur viljað skýra frá því,
hvernig hún komst á snoðh um,
hvar líkin voni grafin.
Hinir myrtu voru allir mið-
aldra hvítir m'enn og eftir öllu
að dæma landbúnaðarverka-
menn. Samlkvæmt þeim upplýs-
ingum, sem lögreglan heíur gefið,
munu mennirnir hafa verið
Stungnir eða saxaðir til ólífis
með sveðju eða stórum hníf. Lík-
ur benda til, að sami maðurinn
hafi orðið öllum mönnunum níu
að bana og ódæðið hafi venð
unnið fyrii’ fimm. til sex vikum
síðan, —