Alþýðublaðið - 09.03.1973, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 09.03.1973, Blaðsíða 3
- < ; •*' > n SETJUM FAST!! Nú bindum viö fast! sög&u sjómennirnir á togaranum Úranusi, þegar skipiö kom til Reykjavikur úr annarri misheppnuöu loönuveiöi- feröinni i röö, og meö sáralitinn afla eins og úr fyrri feröinni. I fyrri feröinni, sem skipiö för, slitnaöi flot- varpan þegar aöeins var búiö aö innbyröa röskar 100 lestir af loönu. Gert var viö vörpuna og haldiö aftur á veiöar. Tókst þá ekki betur til en svo, aö varpan fór i skrúfu skips- ins og festist þar. NY HOFUÐBORG IJAPAN? Japanski húsnæðismálaráö- herrann, Shin Kanamaru, hefur skýrt frá áætlunum um byggingu nýrrar höfuðborgar i Japan. Kanamaru reiknar með, að ibú- ar hinnar nýju höfuðborgar verði 1 milljón og borgin nái yfir 76 fer- kilómetra landssvæði. Til samanburöar má nefna, að i núverandi höfuðborg, Tókió, búa 11,15 millj. manns og þekur borg- in 2,140 ferkilómetra. Húsnæðismálaráöherrann' sagði, aö hina nýju höfuöborg ætti að reisa i tveim áföngum. — Þegar fyrri áfanganum er lokið mun hin nýja höfuðborg hafa hálfa milljón ibúa og ná yfir 43ja ferkilómetra landssvæði, sagði Kanamaru. í kjölfar þess mun ibúafjöldanum verða leyft aö hækka upp i 1 milljón og borgin verður jafnharöan stækkuð unz hún þekur 76 ferkilómetra lands. Stærri fær hún ekki að verða. Kostnaöurinn viö byggingu borgarinnar er áætlaður 450 til 500 milljaröar isl. kr. og brott- flutningur stjórnarskrifstofa frá □ HITI A SUÐURNES Tókió er þáttur I áætlun um að leysa fólksfjölgunarvandamáliö i þessari risavöxnu borg. MÁ BYRIA A HUNDINUM NÆSTA ÁR EN ÞAÐ ER UNDIR PENINGAVALDINU KOMIÐ ,,Viö miöum okkar áætlanir við, aö framkvæmdir viö „hund” norður geti hafizt á næsta ári, — hvaö sem fjár- málayfirvöld svo gera”, sagöi Jakob Björnsson orkumála- stjóri, þegar Alþýðublaðið hafði tal af honum i gær. „Þaö var gert ráð fyrir, aö einhverjum tugum milljóna yrði eytt i fram- kvæmdir strax i haust, en það var skoriö niöur”, sagði Jakob einnig. Talsvert rannsóknarstarf hef- ur verið unniö i vetur á linustæði á hálendinu á vegum Orku- málastofnunarinnar, og nýlega var lokið við að setja upp til- raunalinu á Eyvindarstaða- heiði, upp af Mælifellsdal, en annað slikt haf er nokkuð sunn- an við Nýja-bæ, sem er á há- lendinu suður af Eyjafirði. A þessum tilraunahöfum eru mæl- ar, sem sýna mesta átak, sem linan verður fyrir, og leitazt er við að finna þá staði þar sem mest mæðir á. Auk hafanna eru röragrindur til þess að mæla isingu á 7—8 stöðum á hálendinu, m.a. við Sigöldu og á Hveravöllum. Jafnframt þessum athugun- um er unnið að undirbúningi frumáætlana um framkvæmdir við linulagninguna, og stöðugt er unnið að styrkleikaútreikn- ingum eftir þvi sem gögn ber- ast, — en þau berast m.a. dag- lega frá athuganastööinni að Nýjabæ, sem sett var upp sl. haust. VARASTÖÐIN ANNAR ÞVÍ NAUÐSYNLEGASTA „Við sjáum fram á mikinn rafmagnsskort hér á Akureyri i náinni framtlð, og þess vegna hefur verið rætt um það innan sjúkrahússtjórnarinnar að festa kaup á vararafstöð”, sagði Torfi Guðlaugur Torfason, framkvæmdastjóri sjúkrahúss- ins á Akureyri, þegar blaðið ræddi við hann I gær. Rafstöðin var reyndar sett upp i sjúkrahúsinu fyrir fimm árum, að sögn Torfa, en sökum stækkunar á sjúkrahúsinu og mikillar viðbótar á tækjakosti annar hún ekki lengur nema allra nauösynlegustu tækjum á skurðstofunni. Auk þess hefur sjúkrahúsið disilvél, sem sér um kyndinguna i rafmagns- leysi. „En ég vil allra sizt halla á rafmagnsveituna hér, en hún hefur veitt okkur ómetanlega þjónustu I rafmagnsleysi með þvi að veita okkur forgang að toppstöðvunum, þannig að hing- að til hafa rafmagnstruflanir aldrei valdið skaða”, sagði Torfi. En rafmagnsskorturinn á Akureyri vex hröðum skrefum, og ómögulegt er að segja, hvað lengi sjúkrahúsið fær nægilega mikið rafmagn án varastöðvar. Sem dæmi um ástandið má nefna, að neita varð um raf- magn i nýtt hverfi á Akureyri, sem er i byggingu. Alþýðublaðiö ræddi við Knút Otterstedt, rafveitustjóra á Akureyri, og sagði hann ljóst, að með núverandi ástandi féllu all- ar áætlanir um frekara raf- magn til húsahitunar úr gildi. Hvað við tekur i rafmagns- málum Akureyringa, kvaðst Knútur ekki vilja ræða að svo komnu. „Við eiginlega vitum ekki neitt meira, en að ráðherra hefur sagt að lina eigi að koma norður”. En sú framkvæmd verður ekki fullunnin „á einum degi” og margt er óljóst og umdeilt um hana. NOTA ABOTINA TIL AO SPLÆSA A KUNNINGJA „Ég tel að maturinn sem Félagsstófnunin selur sé 30—40% ódýrari en á venjuleg- um veitingastöðum, þrátt fyrir að við fáum ekki verðið greitt niður nema sem svarar 5—6 krónum á hvern matar- skammt”, sagði Þorvarður örnólfsson framkvæmdastjóri Félagsstofnunar stúdenta er við ræddum við hann i gær. Vildi Þorvarður leiörétta villur sem komu fram I fréttatilkynningu frá stúdentum, og viö sögðum frá í fyrradag. Þorvarður sagði að Félags- stofnunin yrði aö greiða allan kostnað við matarsöluna, og eini styrkurinn sem fengist væru 400 þúsund krónur frá rfk- inu. Þetta væri þvi ekki sam- bærilegt við rikismötuneyti, þar sem fólkið þyrfti einungis að greiða hráefniskostnaö, allt annað væri fritt. „Frá þvi matsalan tók til starfa i október 1970, og fram á mitt sumar 1972, var verðið ó- breytt. Þar sem tap var á rekstrinum 1971, og bullandi tap fyrri hluta árs 1972, var ekki umflúið að hækka verðið þá. Hækkunin nú varð ekki heldur umflúin vegna aukins kostnaö- ar, og ekki siður vegna þess aö þrátt fyrir hækkunina 1972, var tap á rekstrinum”, sagði Þor- varður. Og hann bætti þvi við að stúdentar væru nú búnir að draga I land með flest atriði i til- kynningu sinni enda heföu þeir ekki verið betur að sér en svo, að rugla saman reikningum milli ára. Þá sagði hann að verðið sem stúdentar gæfu upp væri ekki rétt. Þeir gætu fengið matinn ódýrari með framvisun miða, og kostaði til dæmis dýr kjötmáltiö til þeirra 130 krónur. Þá hefði ekki orðið hækkun á kaffi og kökum. Þá minntist Þorvarður I lokin á skammtinn, og sagði að þeim hefði frekar veriö álasað fyrir of stóra skammta en hitt, og auk þess væri hægt að fá ábót. Sllk yrði kannski að fella niður, þvi að það hefur sýnt sig að sumir stúdentar hafa notað þetta til þess að verða sér út um ókeypis mat fyrir kunningja sina. Væntanlega liða ekki mörg ár þar til ibúar á Suðurnesjum fá hitaveitu, en nýlega var lokið samantekt áætlunar þar að lút- andi, á vegum Jarðhitadeildar Orkustofnunar. 1 skýrslunni er talið heppilegt að fá hitann I Svartsengi, skammt frá Grinda- vik, og leiða hann i Innri- og Ytri- Njarðvlk, til Keflavikur, Sand- gerðis og Gerða, auk Grindavik- ur. Lagt er til, að næsta sumar verði varið fjögur hundruð þús- und krónum til rannsókna á jarð- hitasvæðinu, en áætlað er, að kostnaður við undirbúningsrann- sóknir verði alls 15,4 milljónir króna. Við ýmis vandkvæði er þó að strlða, m.a. þau, aö vatnið á þessu hitasvæöi er saltmettað og mengaö kisli; en hugmyndin er að leysa vandann með þvl að bora utan svæöisins eftir fersku vatni og leiða þaö I varmaskiptistöð þar sem það yröi hitað með gufu úr jarðsjónum og þaðan færi það 95 stiga heitt og kæmi 80 stiga heitt til byggöa. FALSADI VIÐ- STOÐIJLAUST Með stolið ávlsanahefti upp á vasann, lagði pariö af stað i inn- kaupaferð, og falsaði viöstöðu- laust ávisanir fyrir ýmsum munaði, þar til rannsóknar- lögreglan 1 Hafnarfirði komst I spilið. Þurftu Iögreglumennirnir m.a. að færa dömuna úr nýju flnu kápunni, þvi hún reyndist iila fengin. Þegar parið var að verzla I Hafnarfirði fékk afgreiöslustúlka ein þá hugmynd, að ekki væri allt með felldu þótt maðurinn sýndi henni nafnskirteini, væri vel til fara og ódrukkinn. Hringdi hún I bankann og fékk þar þær upplýs- ingar að númerið á ávlsunarheft- inu væri rangt, en nafnið rétt, þar sem falsarinn hafði einnig stolið nafnskirteini eiganda heftisins. Lét hún þá lögregluna vita, sem ekki var sein á sér að góma parið, sem er úr Reykjavlk. Þessi hand- taka var rannsóknarlögreglunni I Reykjavik einnig kærkomin, þar sem hún hefur manninn grunaðan um sitthvað misjafnt að undan- förnu. — NORRÆN TEIKNI- RÁÐSTEFNA Teiknarar vilja aukna sam- vinnu við arkitekta við „merk- ingu á stöðum og húsum”, segir i tilkynningu um aðalfund Félags islenzkra teiknara, sem haldinn var fyrir nokkru. 1 félaginu eru nú 29 manns og er Hilmar Sigurös- son formaður. Stjórn félagsins vinnur nú að undirbúningi ráðstefnu norrænna teiknara, sem haldin verður i Reykjavlk 7.-—12 júní nk. □ ÁRSRIT Arsrit Sögufélags Isfirðinga er komið út 116. skipti og er 190 siður að stærð. 1 ritinu eru staðalýsingar, frá- sagnir og fróðleikur ýmiss konar og stökur. Ritinu fylgir félags- mannatal 1971. Ritstjórar Arsrits Sögufélags Isfirðinga eru: Jó- hann Gunnar Ólafsson, Kristján Jónsson frá Garðsstöðum og Ólafur Þ. Kristjánsson. UR Ub SKAKIGKIPIR KCRNELÍUS JÖNSSON skölavOrðust ig s BANKASTRÆTI6 4*+ 1H*>88 18600 Föstudagur 9. marz 1973 o

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.