Alþýðublaðið - 18.03.1973, Side 2
Kona fædd i
Bogmannsmerki
23. nóvember—
20. desember.
Oftast nær er sú kona, sem fædd
er i Bogmannsmerki, i hópi
þeirra sem telja sólskinsstund-
irnar i lífinu, lifsglöð og góð-
lynd. Hún er oft og tiðum um-
hyggjusöm öðrum og vill þeim
allt gott gera, sem hún um-
gengst. Eigi að siður er hún oft
eirðarlaus og hikandi, og kann
þvi öðrum að finnast erfitt að
stofna til náinna og fullnægjandi
tengsla viö hana. Bjartsýni
hennar og trú á fegurð og góð-
leika getur leitt til þess að hún
sjái karlmanninn i rósrauöu
skini, en verði svo fyrir sárum
vonbrigðum, þegar hann reynist
ekki eins alfullkominn og hún
hugði.
Veröi hún á annaö borð ásta-
fangin, er hún yfirleitt traust og
trú og endist sú ást henni þá
ævilangt. En þótt hún eigi til að
vera fljótfær og eirðarlaus,
flanar hún ekki að þvi að kjósa
sér maka, og getur það tekið
hana alllangan tima að taka þar
endanlega ákvöröum.
Og þó að þær Bogmannssyst-
ur séu yfirleitt hamingjusamar
og léttar i lundu, g^ta þær reiðzt
harla skyndilega, ef eitthvað
gengur þeim i mót. En reiði
þeirra er sjaldnast langæ, og
fyrr en varir eru þær aftur glað-
ar og ástúðlegar eins og þær
eiga að sér. Það er i rauninni
þeirra eðli, og sökum margra
ágætra eiginleika geta þær orðiö
mörgum karlmanninum góð
eiginkona.
Kona fædd í
Bogmannsmerki
og karlmaður fæddur í
HROTSMERKI,
21. marz—20. apríl.
Hjónaband með henni og þess-
um karlmanni ætti að geta orðið
þeim báöum hamingjurikt og
fullnægjandi, þar eð ráðandi
eiginleikar hjá báðum eiga
mjög vel saman. Heit ákefð
hennar mundi veita ofsakennd-
um ástaratlotum hans viðhlit-
andi svörun, og mundu þau þvi
eiga vel saman hvað það snert-
ir. Þau mundu skemmta sér vel
utan heimilisins og hafa mikla
ánægju af að kynnast áhuga-
verðu fólki, þar eð bæði eru vel
gefin og eiga auðvelt með að
kynnast fólki. Hún mundi senni-
lega ekkert reiðast honum, þó
aö hann skipti sér eitthvað af
heimilisstjórn hennar, þar sem
hún er sjaldnast sérstaklega
hneigð fyrir húsmóðurstörf —
jafnvel liklegt aö hún tæki öllum
leiðbeiningum hans þakksam-
lega. Sé hún honum aftur á móti
ekki sammála, er eins vist að
hún geri hlutina eins og henni
sjálfri sýnist, en svo litið ber á,
þannig að hann móðgist ekki.
Og þar eð hann er yfirleitt mjög
örlátur á fé, jafnvel dálítið
eyðslusamur á stundum, mundi
hann ekki reiðast henni þótt hún
væri ekki alltaf að horfa i hvern
skilding.
Kona fædd í
Bogmannsmerki
og karlmaöur fæddur í
NAUTSMERKI,
21. april—21. mai.
Skaphöfn og eiginleikar þessa
karlmanns gera hann harla
ólikan þeim Bogmannssystrum
hvað það snertir, og færi svo að
einhver þeirra gengi að eiga
hann, er hætt við að bæði þyrftu
nokkuð á sig að leggja, ef það
hjónaband ætti að verða farsælt.
Reyndar er naumast við aö bú-
ast að Nautsmerkingurinn vekti
ást hjá henni. Þar eð hann er oft
harla lengi að átta sig á hlutun-
um og svifaseinn, er ekkert lík-
legra en að henni fyndist hann
þreytandi og leiðinlegur. Hann
er yfirleitt harla heimiliskær, og
þykir það yfirleitt ákjósanlegast
að eyða tómstundum sinum
heima, en hún vill gjarna fara út
aö skemmta sér, eða hún á ann-
rikt I sambandi við áhugamál
sin utan heimilis. Jafnvel þó að
hann sé sæmilega örlátur og
vilji sjá fjölskyldu sinni vel far-
borða, er honum ekki siður i
mun að safna fyrir ókomna tim-
ann, og þvi er mjög hætt viö að
gálaus meðferð hennar á pen-
ingum mundi oft og tiðum valda
honum gremju. Er liklegt að
henni þættu áhugamál hans lág-
kúruleg og imyndunarafl hans
harla ófrjótt, og það mundi
áreiðanlega kosta hana miklar
fórnir að gera hjónabandið við-
unanlegt, auk heldur farsælt.
BOGMAÐURIN
Stjörnuspekin spurö
áiits um sambúðina
Kona fædd í
Bogmannsmerki
og karlmaöur fæddur í
TVÍBURAMERKI,
21. maf—20. júní.
Þar eð eiginleikar þessa karl-
manns eru harla ólikir eigin-
leikum hennar, svo og skap-
gerðin yfirleitt, yrðu vafalitið
nokkrir örðugleikar hjá þeim i
hjónabandi, ef til kæmi. Þótt svo
að ástriðuhiti hennar mundi
honum mjög að skapi, er hætt
við að henni fyndist ást hans
flöktkennd, og aldrei á hann að
ætla tilfinningalega. Hann
skortir oft nokkuð ábyrgðartil-
finningu og kviðir yfirleitt ekki
morgundeginum, og er þá ekki
óliklegt að hún hafi áhyggjur af
framtiöinni. Þar eð áhugamál
hennar eru mörg og margvis-
leg, er eins liklegt að hún hafi
áhuga á ýmsu utan sins hvers-
dagslega sviðs — en áhugi hans
er yfirleitt harla skammlifur
varðandi öll hin mikilvægari
mál, svo og hrifning hans. Hún
er mjög umburðarlynd og tekur
tillit til tilfinninga annarra,
hann getur aftur á móti verið
harla gagnrýninn og á stundum
kaldhæöinn, þegar aðrir eiga i
hlut. Annað mál er svo það, að
þau eru bæöi mjög góö i um-
gengni og vel lynt, og má þvi vel
vera að hjónaband þeirra geti
oröið farsælt og hamingjusamt,
þegar þau hafa gert sér grein
fyrir agnúunum og einsett sér
að lagfæra þá.
Kona fædd í
Bogmannsmerki
og karlmaður fæddur í
KRABBAMERKI,
21. júnt—20. júlí.
Mikiö umbyröarlyndi þyrfti til
þess og þolinmæöi af beggja
hálfu að það yrði hamingjusamt
hjónaband, ef kona fædd i Bog-
mannsmerki færi i hnappheld-
una meö Krabbamerkingi.
Hann er oft ákaflega hörundsár
og móögunargjarn, en þar eð
hún tekur mjög tillit til tilfinn-
inga annarra, ætti henni að tak-
ast að komast hjá sliku. En
eigingirni hans og ráðriki mundi
hins vegar gera henni það erfitt
að vera eins og hún helzt kysi,
vegna stöðugra afskipta hans.
Hún mundi risa gegn kröfum
hans um að hún sinnti honum
öllum stundum, og ekki reynast
fús til að stjana við hann. Hann
er yfirleitt heimiliskær og það
er þrátt fyrir allt ekki að vita
nema hann hjálpaði henni að
einhverju leyti við heimilis-
störfin, svo hún fengi tima til að
sinna hugðarefnum sinum. Og
ef þau bæði væru staðráðin i að
laga sig hvort eftir öðru og gera
hjónabandið farsælt, er ekki að
fullurða nema þeim tækist það.
Kona fædd í
Bogmannsmerki
og karlmaöur fæddur i
LJÓNSMERKI,
21. júll—21. ágúst.
Þessi karlmaður ætti að reynast
áðurnefndri konu hinn ákjósan-
legasti eiginmaður, og ber
margt til þess. Það er eitt, að
hann er yfirleitt manna glæsi-
legastur, bæði i sjón og fram-
komu, ástrikur mjög og ástriður
hans ofsafengnar og heitar, svo
að hann mundi vekja með henni
þá svörun, sem báðum yrði að
hin mesta nautn. Hin almenna
kvenhylli hans, mundi öllu
fremur vekja með henni stolt en
afbrýðissemi. Þá mundi henni
þykja mjög til þess koma að
sækja með honum samkvæmi,
og glaðværð hennar og hrifning
mundi honum til þóknunar. Vin-
gjarnleg framkoma hennar
mundi og gera hana vinsæla
meðal kunningja hans og þar
sem hún er yfirleitt mjög fær
um að taka vel á móti gestum,
þá kæmi það sér oft vel fyrir
hann. Hneigð hans til að hafa
hönd i bagga með heimilishald-
inu mundi að hennar sjálfrar
dómi létta mjög á henni, og
þannig fengi hún aukinn tima til
að sinna sinum mörgu hugðar-
efnum. Og þó að hann geti verið
þver i skapi og fljótur að reið-
ast, mundi umgengnislipurð
hennarog glaðværð verða til að
draga mjög úr þvi. Þannig er
liklegt að samkomulagið yrði
gott i hjónabandi þeirra, gagn-
kvæmt traust og trúnaður, og
fátt sem bæri á milli.
Kona fædd í
Bogmannsmerki
og karlmaður fæddur í
MEYJARMERKI,
22. ágúst—22. september
Það virðist ekki margt sem
bendir til þess að það hjónaband
gæti orðið hamingjusamt, ef
þau stofnuðu til hjúskapar meö
sér, Meyjarmerkingurinn og
einhver af þeim Bogmanns-
systrum. Skapgerð þeirra hvors
um sig er slik, svo og helztir
eiginleikar, að mikil hætta er á
að sú sambúð gæti ekki blessazt.
Hann mundi til dæmis ætlast til
þess af henni að hún fórnaði
bæði heimilinu og honum
persónulega mun meiri tima, en
hún kærði sig um, hann mundi
og gagnrýna mjög heimilishald
hennar, sem vart mundi sam-
rýmast smámunasömum kröf-
um hans um ýtrustu fullkomn-
un. Ekki mundi hann hafa neina
skemmtun af að sækja sam-
kvæmi hennar vegna, né heldur
taka þátt i áhugamálum hennar
utan heimilisins, og glaðværð
hennar og gáttskapur er hætt
við að hann kallaði ábyrgðar-
leysi. Þvi miður er hann oft og
tiðum harla dulur og hlédrægur,
og þvi hætt við að ást hennar og
ástriður fyndu litla svörun af
hans hálfu, og yrði þvi hinn lik-
amlegi þáttur hjúskaparins
harla vanræktur. Skortur hans á
imyndunarafli og hugdettum
mundi valda henni gremju. En
þrátt fyrir allt er ekki unnt aö
fullyrða að hjónaband þeirra
væri fyrirfram dæmt til að mis-
takast, ef bæöi einsettu sér hið
gagnstæða.
Kona fædd í Bogmanns-
merki og karlmaöur
fæddur
VOGARMERKI
23. sept. — 22. okt.
Þessi framkomuglæsti og ást-
riki maður mundi flestum betur
fallinn til að ganga i hjónaband
með Bogmannssystur. Hann er
oft ákafur og heitur i ástum og
mundi það dýpka tilfinningar
hennar og veita ástriðum
hennar innilegustu fullnægingu.
Hann er venjulega prúður og
bliður og veit eins og ósjálfrátt
hvernig hann á að koma fram
við eiginkonu sina hverju sinni.
Yfirleitt er það einskonar sér-
gáfa hans að kunna að koma
fram við alla þannig að þeim
falli vel, og á hann þvi auðvelt
með að afla sér vina, og svipað
er um hana. Kvenhylli hans
mundi ekki valda henni neinum
áhyggjum, þar sem öll eigin-
girni og sjálfselska er henni
fjarri, enda ekkert liklegra en
hún ætti sér sina vini. Hann er
mjög hugulsamur og loks er lik-
legt að hann kynni vel að meta
glaðværð hennar og hafa
svipaðan fegurðarsmekk. Og þó
að hann sé heimiliskær, er hann
óliklegur til að vera með
smáámugulega gagnrýni hvað
snertir hússtjórn hennar. Þegar
allt er skoðað, bendir allt til
þess að hjónaband þeirra yrði
hið farsælasta, og ekki mörg eða
mikilvæg vandamál, sem þau
þyrftu að sigrast á til að svo
mætti verða.
Kona fædd í Bogmanns-
merki og karlamður
fæddur í
KREKAMERKI
23. október — 22. nóv.
Orðugt mundi það geta orðið
fyrir Bogmannssystur að lynda
við þann karlmann, sem fæddur
er i Drekamerki þar eð hann er
nú einu sinni þannig skapi
farinn, að þau eiga ekki vel
saman. Hitt er ekki fyrir að
synja, aö hún kynni að laðast
mjög að þessum dugmikla og
skaprika persónuleika, en samt
sem áður mundi hún naumast
skilja einstefnuakstur hans &
fléstum sviðum. Ástaratlot hans
yrðu vafalitið helzt til ofsa-
fengin fyrir hana, honum mundi
aftur á móti þykja svörun
hennar ófullnægjandi. Henni
mundi og gremjast mjög tor-
tryggni hans og grunsemdir,
þar sem hún mundi að öllum lik-
indum treysta honum gersam-
lega og ætlast til hins sama af
honum. Eflaust mundi hann lika
vilja neyða hana til að eyða
meiri tima heimilisins vegna,
og stöðug kröfuharka hans og
skipanir mundu ræna hana allri
ánægju. En þetta er almennt
sagt, og ekki fyrir það að synja
að þau tvö gætu, ef einlægur
vilji væri fyrir hendi lagað sig
svo hvort eftir öðru að hjóna-
bandið yrði hamingjusamt.
o
Sunnudagur 18. marz 1973