Alþýðublaðið - 18.03.1973, Blaðsíða 3
N - KONA
Kona fædd í Bogmanns-
merki og karlmaður
fæddur í
BOGMANNSMERKI
23. nóv. — 20. des.
Enda þótt hún kunni að
dragast að karlmanni, sem
fæddur er undir sama stjörnu-
merki og hún er sjálf, mundi
hún komast að raun um, ef þau
giftu sig, að nokkur ljóður væri
á hjónabandinu. Þó að þau væru
gædd sömu jákvæðu eigin-
leikunum og hefðu sömu áhuga-
mál, þá mundi koma i ljós að
gallar þeirra væru mikið til
hinir sömu, og vegna þess
mundu þau ekki bæta hvort
annað upp. Það Það er ekki ólik-
legt, að þau reyndust svo lik, að
þau fengju tiltölulega fljótt leiða
hvort á öðru, og færu að helga
sig þvi meir tómstundaiðju sinni
og áhugamálum. Eigi að siður
er liklegt að þau væru hvort
öðru ástrik, og eins að þau gætu
skemmt sér vel saman, en hvort
um sig mundi þarnast einbeitt-
ari maka sem beindi orkunni
inn á réttar leiðir. Að siðustu
gæti svo farið, að fátt eitt yrði til
að halda hjúskap þeirra saman,
Ekki samt svo að skilja, að þau
mundu geta sigrazt á þessum
erfiðleikum með einbeitni og
einlægum vilja, þannig að
hjónabandið yrði farsælt.
Kona fædd í Bogmanns-
merki og karlmaður
fæddur i
STEINGEITARMERKI
21. des. — 19. janúar.
Ýmsir örðugleikar mundu
fljótlega gera vart við sig, ef
þau tvö gengju i hjónaband.
Hann er oftast nær hlédrægur,
og lætur ekki vel að opinbera til-
finningar sinar, en hún aftur á
móti opinská og fer ekki i neina
launkofa með ástriki sitt eða
aðrar tilfinningar. Enda þótt
hann geti verið ástriðuheitur á
stundum eru ástriður hans yfir-
leitt eingöngu holdlegar, og
skortir þann innileika, sem
henni er mikilvægur. Hann er
oft alvörugefinn og ákaflega
raunsær og hagsýnn, og eins
vist að hann liti á glaðværð
hennar og löngun til að
skemmta sér, sem kæruleysi og
skort á ábyrgðartilfinningu.
Sökum varfærni sinnar I pen-
ingamálum, gæti hann virzt
nízkur, þar eð hann vildi spara
fyrir framtiðina, heldur en
skemmta sér. Mundi henni þá
að öllum likindum finnast sem
nokkrir fjötrar væru á hana
lagðir, og hneigð hans til að
skipa henni fyrir verkum og
skipta sér af heimilishaldinu
gæti leitt til þess að hún missti
stjórn á skapi sinu. Þau yrðu þvi
bæði að fórna ýmsum sér-
kennum sinum, ætti hjóna-
bandið að verða farsælt.
Kona fædd f Bogmanns-
merki og karlmaður
fæddur í
VATNSBERAMERKI
20. janúar — 18. febrúar.
Fáir mundu reynast Bog-
mannssystur valdari eigin-
menn, en þeir sem i þessu
stjörnumerki eru fæddir. Ættu
litil vandkvæði að verða á þvi að
hjónaband þeirra yrði hið ham-
ingjusamasta. Bæði hafa sterka
trjálsræðishneigð og mundu þvi
ekki beita hvort annað ráðriki
eða drottnunargirni. Bæði eru
harla ástrik, og allar likur þvi til
að hjónabandið byggðist fyrst
og fremst á gagnkvæmum
skilningi og einlægri ást. Bæði
eru yfirleitt mjög vel gefin og
mundu eiga mörg sameiginleg
áhugamál. Vingjarnleg fram-
koma hennar og glaðværð
mundi gera henni auðvelt að
umgangast hina mörgu vini
hans. Ef einhver deiluefni segðu
til sin er eins vist að þau myndu
ræða þau af hreinskilni og skyn-
semi. Hann er venjulega örlátur
og góðviljaður og kann vel að
meta friðsælt heimilislif, og ætti
þvi hjónaband þeirra
undantekningarlitið að verða
hið farsælasta.
Kona fædd í Bogmanns-
merki og karlmaður
fæddur í
FISKAMERKI
19. febrúar — 20. marz
Nokkur vandkvæði mundu
segja til sin i hjónabandi þeirra,
þar eð þau eru ólik að eðlisfari
en þó ekki þannig að þau myndu
bæta hvort annað upp. Senni-
lega mundi og Bogmannssystir
ekki dragast að honum, en ef
svo færi, þá yrði erfitt að halda
við hann friði og samræmi. Geð-
sveiflur hans eru örar, og skapið
harla viðkvæmt og mundi hún
eiga erfitt með að átta sig á
skapbrigðum hans. Astrikur
getur hann verið og umhyggju-
samur, en sennilegt að henni
mundi gremjast stöðug krafa
hans um að fá ást sina endur-
goldna og vel það Eins hvað
hann yrði henni háður um
margt, þar eð hann mundi að
öllum llkindum skorta einbeitni
og viljastyrk, og láta henni ftir
að taka allar mikilvægar
ákvarðanir, og þótt hún skorist
yfirleitt ekki undan ábyrgðinni
að sinum hluta, mundi hún
ætlast til þess að hann tæki
hluta hennar á sig. Það er ekki
óliklegtað hún mundi þreytast á
þessum örgeðja, draumlynda
manni, og mundi það krefjast
mikils umburðarlyndis af
hennar hálfu að hjónaband
þeirra yrði hamingjusamt.
KARLI
BOGA-
MERKI
Ylfur um nætur og
sundurskorin konulík
Stjörnuspekingur í Lubeck fyrir rétti —
ákærður fyrir að hafa myrt fjórar konur
A hverjum morgni safnast
fólk I biðröð fyrir utan dóms-
húsið I Liibeck, þar sem réttað
er i máli stjörnufræðingsins
Arwed Imiela, sem ákærður
hefur verið fyrir morð á f jórum
konum. Hinn ákærði hefur
endanlega skýrt réttinum frá
ástriðu sinni: Veiðimaðurinn
stendur yfir næturbráð sinni og
ýlfrar eins og úlfur.
Aðeins hefur tekizt að finna
lik tveggja fórnarlamba. Þau
höfðu verið hlutuð sundur og
grafin I grennd við veiðikofa
ákærða i Fehmern. Lögreglan
hefur árangurslaust leitaö
hinna likanna tveggja i tvö ár.
En peninga þeirra hafði ákærði
lagt inn á bankareikning sinn I
Celle.
Imiela neitar sekt sinni, og
hann hefur ekki sagt stakt orð I
réttarsalnum i margar vikur.
Dómarinn og verjandinn, sem
báðir eru konur, deila um laga-
leg' atriði. Þar kom, að
verjandinn ætlaði að draga sig i
hlé, en dómarinn neyddi hana til
að halda áfram störfum.
Akærði hefur skýrt svo frá, að
konurnar tvær, sem fundust
sundurbrytjaðar nærri kofa
hans, heföu framið sjálfsmorð,
og einhver ókunnugur væri
valdur að hvarfi þeirra.
Konurnar voru mæðgur, og
sama er að segja um konurnar
tvær, sem eru enn ófundnar.
Hann sagði, að þær hefðu ekki
aðeins leitað til hans eftir sálar-
styrk, heldur hefðu þær einnig
leitað ráða i fjármálum, og þvi
hefðu þær fengið honum allt sitt
reiðufé.
Imiela var handtekinn I
iburðarmikilli ibúð sinni ágúst
1970. Ástæðan var sú, að það
hafði vakið furðu bankastarfs-
manna i Celle, að peningar
höfðu verið yfirfærðir á reikning
hans af reikningi, sem auðug 47
ára gömul Ekkja Ilse Evels og
19 ára dóttir hennar áttu. Þær
höfðu verið týndar I tvo mánuði.
Tveimur dögum eftir hand-
tökuna fundust lik þeirra við
veiðikofa stjörnufræðingsins.
Hann er einnig grunaður um að
hafa myrt hina 71 árs gömlu
Mariu Onnu Kiegerle og
Annemarie dóttur hennar. Fé
þeirra hafði verið flutt á
reikning Imielas og loðkápur
þeirra og skartgripir fundust i
ibúð hans.
Rithandasérfræðingar hafa
lýst þvi yfir i réttinum, að
' Imiela hafi falsað rithendur
kvennanna, er peningar þeirra
voru fluttir á bankareikning
hans. Fyrrverandi unnusta
ákærða, hin 27 ára gamla Ulrike
Roland, hefur skýrt frá þvi, að
hún var send til Stokkhólms i
dularfullum erindagerðum.
Imiela hafði sagt henni, að hann
ynni á vegum bandarisku
njósnastofnunarinnar CIA.
Ulrike Roland póstlagði bréf i
Stokkhólmi samkvæmt fyrir-
mælum, og með þeim ætlaði
Imiela að láta svo lita út sem
hinar týndu væru á ferðalagi i
Sviþjóð.
Imiela segir fyrir rétti, að
Ulrike Roland hafi verið við-
stödd, er konurnar frömdu
sjálfsmorð, en hún neitar þvi.
Hún hefur hins vegar skýrt frá
þvi, að Imiela vakti hana einu
sinni, neyddi hana til að af-
klæðast og skrifa foreldrum sin-
um hinzta bréf. Siðan neyddi
hann hana til að leika
„rússneska rúlettu”. Hún fékk
að velja á milli tveggja byssu-
kúlna, og var önnur þeirra
sprengikúla. Hann hlóð skamm-
byssu og þrýsti henni að likama
hennar, en hætti við að hleypa
af. Hann segist hafa gert þetta
til að þvinga hana til að segja
sér allt af létta um sjálfsmorð
kvennanna.
Þessi réttarhöld, sem hafa
varað i fjóra mánuði, eru hin
lengstu og dularfyllstu I sögu
Vestur-Þýzkalands. Svo virðist,
sem þessi 43 ára stjörnu-
fræðingur hafi furöulegt vald á
kvenfólki. Meðal annars hefur
hin fyrrverandi unnusta hans
skýrt réttinum grátandi frá
þessu. Annars eru grátandi
konur engin nýlunda i máli
þessu, og konan sem annast
málsvörnina hefur oft misst
stjórn á skapi sinu við réttar-
höldin.
** *
Sunnudagur 18. marz 1973
Q