Alþýðublaðið - 18.03.1973, Síða 7
BÍLAR OG UMFERÐ
CITROEN SM
v .í' . ••••.
SilllÍÍS!
•i•. 'm> - -JÉ£' . 'v X ^ '■ v- £ '
v '4-ívAv _ . , ii#| / 1®
Citroen SM er sjaldséður á
islenzkum vegum, enda varla
hentugur fyrir þá. Það er likast
til aðeins einn slikur bill til á
landinu, og keyri eigandi hans
bilinn sinn rétt og gæti þess um
leið að brjóta ekki reglur um
hámarkshraða, má búast við að
hann hafi aldrei sett i þriðja gir,
hvað þá fjórða eða fimmta.
Citroen SM er nefnilega nánast
kappakstursbill, en vélin er
einmitt úr slikum, þ.e.
Maserati. Þetta er 2.8 litra V6
vél, og orkuframleiðslan er 170
bremsuhestöfl við 5500 snúninga
á minútu, og hámarkshraði er
nærri 230 km á klst, enda höfum
við það fyrir satt, að á hrað-
brautum Evrópu séu fáir bilar,
sem hafa roð við honum, — það
er á helzt Jagúar X36 með 4,2
litra vél.
NANASTKAPP
AKSTURSBfLL
Af öörum gerðum Citroen,
þeim sem fluttar hafa verið
hingað til lands, vitum við, að
þessi bill er i flesta staði ólikur
öðrum bilum. Auk þess má full-
yröa, að tæknilega er hann
ennþá jafn mikið framar öðrum
eins og DS hefur veriö frá
upphafi.
I SM er vökvakerfið á sinum
stað og sér um f jöðrunina og sér
jafnframt um það, að billinn
svifur alltaf i sömu hæð, hvernig
sem hjólin láta undir íailunum.
Stýrið er vökvaknúið og diska-
bremsur eru á öllum hjólum, en
þeim er stjórnað með fyrir-
ferðalitlu fótstigi, sem er likast
hálfum tennisbolta i lögun.
Aðalluktirnar eru sex talsins, og
tvær þeirra eru tengdar stýrinu,
en allar breyta sér eftir hæö
bilsins, þannig aö geislinn er
alltaf réttur. Drifið er á fram-
hjólunum eins og á öðrum
Citroenbilum, og girkassinn er
fimmskiptur, — sá fimmti er
yfirgir.
Eins og fyrr segir er varla
hægt að segja, að þessi bill
henti islenzkum aðstæöum, og
er aðal ástæðan sú, að sá ferða-
hraði, sem hentar vélinni bezt
er um 160 km á klukkustund.
Vélin er nefnilega i háværara
lagi, og til þess að hann verði
sæmilega þolanlegur i lang-
keyrslu þarf aö skipta i yfir-
girinn, en ekki er reiknað með,
að hann sé notaður mikið undir
þeim hraða. Þetta meö hávaö-
ann er reyndar smekksatriði,
sumir hafa gaman af hávaöa-
sömum „sportlegum” vélum,
en hinir eru vafalaust fleiri, sem
kjósa heldur, að samræöuhæft
sé i bilnum,og auk þess er mikill
vélargnýr þreytandi til lengdar.
Þrátt fyrir þessa galla er
Citroen SM bill, sem hver
maður getur verið stoltur af,
þ.e. ef hann hefur efni á þvi
stolti, en i Bretlandi kostar hann
5500 pund, eða eina milljón 320
þúsund krónur islenzkar. Ekki
tókst okkur að afla upplýsinga
um verðið hér, — en vafalaust
er það ekki lægra, þar sem
tollar á innfluttum bilum eru
aðeins 13% af FOBverði þar i
landi.
VEROUR GERVIÁREKSTUR
A BÍLASYNINGUNNI HÉR?
1 bilaþætti fyrir hálfum mánuði
var skýrt frá reynslu norsks
blaðamanns, þegar hann reyndi
eftirlikingu af árekstri á sérstak-
lega þar til geröri braut á bila-
sýningu i Málmey. Nú hefur
okkur borizt mynd af brautinni,
en hún hefur verið flutt til Osló,
þar sem gestum á bilasýningunni
i Njardhallen, sem nú stendur
yfir, gefst tækifæri á aö reyna
hana. Nú er veriö að athuga
möguleika að fá hana á bilasýn-
inguna í Reykjavlk i vor.
Eins og sjá má á myndinni er
þarna um að ræða tvo bila af Mini
gerð frá British Leyland, og eins
og við höfum þegar skýrt frá er
bilunum ekiö saman á 13 km
hraða eftir brautinni, en hún er 18
metra löng. Viö áreksturinn 3.5
faldast likamsþungi þeirra, sem i
bilunum eru, þannig aö 70 kiló-
gramma nvaður veröur næstum
250 kiló á þvi augnabliki sem
áreksturinn verður.
Við höfðum samband við Sigfús
Sigfússon hjá Heklu, en hann
hefur nýlega tekiö viö umboöinu
fyrir British Leyland, og bárum
það upp við hann, hvort möguleiki
væri á aö fá þessa braut, sem
gengur undir nafninu „Crash-
Test”, á bilasýninguna, sem hefst
i Reykjavlk 27. april nk. Sigfús
hafði ekki heyrt getiö um þessa
braut, en gerði þegar i stað ráð-
stafanir til þess að afla upplýs-
inga um hana. Sé möguleiki á aö
fá hana hingað kvaðst hann hafa
fullan hug á þvi.
Aö sögn þeirra, sem bezt
þekkja er brautin eitt bezta
meðaliö til að fá menn til að nota
öryggisbelti, — að þvi er sagt er
hafa velflestir, sem hafa reynt
hana gerzt stækir öryggisbelta-
menn. Þetta væri vafalaust vel
þegið innlegg I baráttu
TJmferðarnefndar fyrir nolkun
öryggisbelta,- og sennilega enn
áhrifarikara en nokkurt öryggis-
beltahappdrætti — þarna reyna
menn þaö sjálfir, hvað gerist við
árekstur og finna það svo ekki
verður um villzt til hvers
öryggisbelti eru raunverulga
ætluð.
Arg. Tegund Verð í þús. kr.
1967 Peugeot 220
1967 Taunus 17m station 220
1967 Austin Mini 115
1972 Cortina GT 460
1969 Volkswagen Variant 300
1968 Ford Taunus 17m 375
1971 Ford Taunus 26m 550
1972 Fiat 128 285
1964 Cortina 60
1972 Fiat 125p 335
1967 Jeepster Commando 280
1967 Mercury Monterey 300
1964 Opel Record 125
1967 Dodge Dart 320
1971 Ford Escort 275
1971 Fiat 850 210
Fyrir um það bil ári var hann
settur á skrá, en þó var norska
bifreiðaeftirlitinu ekki sérlega
vel við hann. Þeir sáu sig líka
um hönd hjá eftirlitinu og tóku
af bilnum númerin og fóru fram
á, að hannfengi viöurkenningu
hjá V o lk s w a g e n v er k -
smiðjunum. Þaö voru sérstak-
lega festingar hússins við
botninn, sem sett var út á.
Margir bilfróðir menn höfðu
skoðað bilinn hátt og lágt, en
ekkert fundið athugavert þar til
þeir fundu þetta hálmstrá til aö
vikja bilnum úr umferð.
Fyrir tveim árum kom á
götuna islenzkur bill, sem var
gefiö heitið „Minkur”, og siðan
hefur hann vakið mikla athygli
á götum borgarinnar. Eins og
margir muna vafalaust eru
höfundarnir tveir ungir menn,
Stefán Ingólfsson, og Steinn
Sigurðsson, og er sá fyrrnefndi
smiðurinn og eigandi bilsins en
sá siöarnefndi höfundur útlits-
ins, — og nýlega sögðum við frá
þvi, aö hann vann i samkeppni
við útlitsteikningu á nýjum
Voivo sportbil.
Minkurinn er byggður á
Volkswagen undirvagn, og vélin
er úr sama bfl, og er þetta
ekkert óvanaleg samsetning.
Bfllinn á myndinni er norskur
frændi Minksins, en yfirbygging
hans er reyndar úr fibergleri.
Um þessar mundir er hann á
bflasýningu i Osló, en saga hans
er einkar sorgleg.
EKKI
SKODIIH
UMSJÓN: ÞORGRIMUR GESTSSON
? _________________——
Sunnudagur 18. marz 1973
o