Alþýðublaðið - 31.03.1973, Qupperneq 7
Iþróttir 1
Unglingaliðin á NM:
VINNINGUR OG TAP
Það var sigur og tap i fyrstu leikjum unglingaliðanna okkar ytra
i gærkvöldi. Piltarnir töpuðu fyrir Dönum 25:18 í Svfþjóð, er og eru
þvi liklega úr leik. Stúlkurnar stóðu sig hins vegar betur i
Nyköbing í Danmörku, þær unnu núverandi Noröurlandameist-
ara, norsku stúlkurnar 13:12, og eiga þvi mikla möguleika á sigri,
þvi Sviþjóð og Danmörk skildu jöfn 10:10.
Þetta er unglingaliö pilta, efri röð frá vinstri: Hörður Harðar-
son, Val, Gisli Torfason, ÍBK, Gunnar Einarsson, FH, Viggó
Sigurðsson, Vikingi, Þorbjörn Guðmundsson, Val, Hannes Leifs-
son, Fram, Hörður Hafsteinssop, 1R og Páll Björgvinsson, þjálf-
ari.
Fremri röð frá vinstri: Jóhann Ingi Gunnarsson, Val, fyrirliði,
Gisli Arnar Gunnarsson, Val, Einar Guðlaugsson, Armanni, As-
mundur Vilhjálmsson, ÍBK, Einar Asmundsson, KR, Stefán Hall-
dórsson, Vikingi og Janus Guðlaugsson FH. Þvi miður tókst ekki
að ná i mynd af stúlknaliðinu. — SS.
BOBBY
MOORE
Nú fer að liða að þvi að
iþróttafréttamenn i Bretlandi
kjósi kanttspyrnumann ársins,
en það þykir að sjálfsögðu mik-
ill heiður. Skoðanir eru óvenju
skiptar um það hver verði val-
inn, en Bobby Moore er talinn
liklegastur. Þá hafa þeir verið
nefndir Pat Jennings, Derek
Dougan, Alan Clarke, Alan,Ball,
Emelyn Hughes og fleiri. Hér
kemur listi yfir þá sem hlotið
hafa kosningu frá upphafi:
1947- 4® Stanlev Matth*w» (Biackpool)
1948- 49 Johnny Carcy (Man. Unitcd)
1949- 50 Joe Mcrccr (Arsenai)
1950- 51 Harry Johntton (Biackpool)
1951- 52 Billy Wricht (Wolvcs)
1952- 53 Nat Lofthoute (Bolton)
1953- 54 Tom Finney (Prctton)
1954- 55 Don Bevic (Man. City)
1955- 56 Bcrt Trautmann (Man. City)
1956- 57 Tom Finncv (Pretton)
1957- 58 Danny Blanchflowcr (Spurt)
1958- 59 Syd Owen (Luton)
1959- 60 Bill Slatcr (Wolvct)
1960- 61 Danny Blanchflower (Spurt)
1961- 62 Jimmy Adamton (Burnley)
1962- 63 Stanlcy Matthcwt (Stokc)
1963- 64 Bobby Moore(West Ham)
1964- 65 Bobby Collins (Lccdt)
1965- 66 Bobby Charlton (Man. United)
1966- 67 Jack Charlton (Lecdt)
1967- 68 Gcoric Best (Man. United)
1968- 69 Tony Book (Man. City)
Dave Mackay (Dcrby)
1969- 70 Billy Brcmncr (Lccdt)
1970- 71 Frank McLintock (Arscnal)
1971- 72 Gordon Bankt (Stokc)
BIRMINGHAM
— COVENTRY
Sjónvarpsleikurinn á morgun
verðui leikur Birmingham og
Coventry frá siðustu helgi, nokk-
uð fjörugur leikur. Þá flýtur einn-
ig með syrpa frá leik Leeds og
Wolves, en sá leikur þótti frekar
slakur. Inn á milli verður Billy
Wright með viðtalið sitt.
ER SIGURÐUR OSIGRANDI?
Landsflokkagliman 1973 verður háð i Fim-
leikasal Vogaskóla á morgun, sunnudaginn 1.
april kl. 19,00. Keppt verður i þremur þyngdar-
flokkum og þremur unglingaflokkum. Áður var
keppt i Sjónvarpssal, en þvi verður ekki komið
við núna.
Skráðir þátttakendur eru 42
frá 8 félögum og samböndum.
Meðal þátttakenda i 1. flokki
verða Sigurður Jónsson Vik-
verja, Ingi Þ. Yngvason H.S.K.
Jón Unndórsson K.R. og Pétur
Ingvarsson Vikverja.
1 2. flokki Gunnar Ingvarsson
Vikverja, Omar Úlfarsson
K.R., Kristján Yngvason H.S.b.
1 3. flokki Rögnvaldur Ólafs-
son K.R., Guðmundur Freyr
Halldórsson Armatini og Þor-
valdur Aðalsteinsson ú.l.A.
t yngri flokkum glima margir
ungir og efnilegir glimukappar.
Sigurður Jónsson hefur
verið ósigrandi i vetur.
Tekst honum að fylgja
sigrum sinum eftir og
vinna flokkaglimuna'’
ALLISON TIL CP!
Malcolm Allison var i gær-
kvöldi ráöinn framkvæmdastjiri
Crystal Palace. Arslaun hans
verða þrjá milljónir. Allison
hefur verið hjá Manchester City
siðan I3G5, en hætti þar í vikunni
vegna missættis. Palace er i
mikilli fallhættu. Allison er
þekktur fyrir ofsa sinn og málæði.
KARFAN ER KOMIN A LOKASTIQ
Senn liður að þvi að 1. deildar- helgi á þann heföbundna hátt að ur, og er þetta úrslitalcikurinn
keppninni i körfuknattleik Ijúki.
Liðin eiga efti þetta 1—3 leiki, og
um hclgina fara fram þrir leikir i
1. deild. Mótinu lýkur um næstu
ÍR og KR leiða saman hcsta sina.
1 dag klukkan 1G fer fram á
Akureyri afar mikilvægur lcikur i
I. deild. Þá eigast við Þór og Val-
um fallið. Tapi Þór, cr liðið falliö,
að öðrum kosti eru liðin jöfn.
A morgun leika á Seltjarnar-
nesi ÉR og ÍS, KR og Armann.
I HREINSKILNI SAGT
AUGLÝSINGARNAR...
Auglýsingar á keppnisbúningum leikmanna hafa rutt sér æ meir
til rúms. Handknattleiksmenn riðu á vaðiö i þessu máli, og lengi
vel hafa auglýsingarnar veriö bundnar við handknattleikinn. Nú
er þetta að breytast, knattspyrna, körfuknattleikur og jafnvel enn
aðrar iþróttagreinar eru farnar að taka slikar auglýsingar upp.
Þessi þróun hlýtur þó að vera hcldur hægfara, þvi markaðurinn er
fjarska þröngur i okkar litla þjóðfélagi, og fá fyrirtæki sem hafa
bolmagn til að taka slikar auglýsingar.
1 fyrstu voru margir hræddir
við að ganga inn á þessa braut,
litu á búning sinn sem helgan grip
sem ekki mætti fórna fyrir
fáeinar krónur. Þetta hefur
breytzt, einkum vegna þess að i
dag þarf svo mikið fjármagn til
reksturs iþróttafélaga, að slikri
tekjulind má eigihafna, og svo
það að menn hafa tekið eftir þvi
að smekklegar auglýsingar geta
gert keppnibúning mun fallegri
en ella. Fyrirtæki sjá sér hag i að
auglýsa á þennan hátt, á þvi er
enginn vafi. Myndir frá kapp-
leikjum eru algengar i blöðum, og
nú upp á siðkastið eru þær orðnar
algengar i sjónvarpi, eftir að
banninu margfræga var lyft. Um
leiö er þetta styrkur fyrir-
tækjanna til iþróttafélaganna,
styrkur sem kemur sér vel i dag,
þegar iþróttafélög eru orðin
nánast sem fyrirtæki, umsvifin
eru það mikil.
Mörg stórfyrirtæki hafa notfært
sér þennan auglýsingamöguleika,
en þó verður hér sérstaklega að
geta þáttar Loftleiða. Það fyrir-
tæki hefur auglýst i vetur á
búningum hvorki fleiri né færri en
f jögurra liða, svo hér er á ferðinni
ekki svo litill búhnykkur fyrir
iþróttahreyfinguna. Loftleiðir
njóta einnig góðs af þessu á þann
hátt, að félögin fá greitt I
farseðlum, sem félögin siöan nota
oftast á þann hátt að taka heim
erlend lið, Þessi lið eru tekin heim
á þeim tima sem daufastur er hjá
Loftleiðum, og flokkarnir eru
einnig látnir gista á hóteli
félagsins á þeim tima sem nýting
þess er léleg.
A þennan hátt heldur félagið
óbéint uppi starfsemi sem hafði
að mestu leyti lagzt niður, og það
til ills, nefnilega heimsóknir
erlendra félagsliða. Þær voru
orðnar mjög fátiðar, en aug-
lýsingarnar opnuðu þá leið að
nýju, og er það vel. Heimsóknir
erlendra félagsliða hafa meiri
þýðingu en marga grunar. Fyrir
þennan þátt sinn og annan, eiga
Loftleiðir og önnur fyrirtæki
þakkir skildar.
Auglýsingar á keppnis-
búningunum hafa sannað kosti
sina áþreifanlega. Það voru
bjartsýnismenn sem komu
þessari hugmynd á framfæri á
sinum tima, og þeim tókst að
koma henni i gegn, og er það vel.
bað sanna dæmin.
Sigtryggur Sigtryggsson.
LYFTISTÖNG FÉLAGSLEGU STARFI
Laugardagur 31. marz 1973.