Alþýðublaðið - 31.03.1973, Page 11
í SKUGGA MARÐARINS
Saga ástar og örlaga eftir Victoriu Holt
Læknirinn sagði: — Það er lik-
lega beztað ég byrji á byrjuninni.
Það er nú orðið alllangt um liðið.
Hann dró djúpt andann. — Sökin
er min að miklu leyti.
— Ættuð þér ekki að huga vel
að þvi sem þér ætlið að segja?
spurði Lucie bliðlega.
— Ég hef ihugað það lengi.
Þetta hefur gert það aðkallandi
Ég ætla að segja sannleikann. Ég
ætla að segja þaö sem ég hefði átt
að vera búinn að segja fyrir
löngu. Það byrjaði þegar lafði
Cardew dó.
— Ég held þér ættuð ekki að
segja þetta, læknir, sagði Lucie
mjög hæglátlega. — Ég held að
þér kynnuð að sjá eftir þvi.
— Ég sé aðeins eftir að hafa
ekki gert játningu mina fyrr.
Hann leit ekki á Lucie. — Lafði
Cardew var ekki raunverulega
sjúk. Hún hafði orðið fyrir von-
brigðum i lifinu og undi þeim illa.
Hún sættist við tilveruna með þvi
að gera sér upp veikindi. Það er
ekki óvenjulegt hjá sumu fólki.
Ég gaf henni gervilyf öðru
hverju. Hún tók þau inn og trúði
þvi að sér yrði gott af þeim. I raun
inni voru bau ekki annað en litað
vatn. Svo lézt hún. Þá hefði ég átt
að segja sannleikann. Hún dó af
of stórum skammti svefnlyfs.
Þetta lyf hafði horfið úr lyfjaskáp
minum og ég hélt að ég hefði gefið
henni það i misgripum fyrir
gervilyfið. Ég hefði átl að játa
þetta, en i stað þess skrifaði ég á
dánarvottorðið að hún hefði látizt
af hjartaáfalli. Hún hafði alltaf
haldið sig vera hjartveika. 1 r'aun
og veru hafði hún sterkt hjarta.
Það sem ég gerði er óafsakanlegt.
Ég var framgjarn. t þá daga
dreymdi mig um sérnám. Að
viðurkenna, að ég hefði gefið
hættulegt deyfilyf i misgripum
fyrir gervilyf, hefði eyðilagt
framtið mina. Ég hefði ef til vill
ekki fengið að halda áfram að
stunda lækningar.
— Þér eruð flón, sagði Lucie
dapurlega.
— Það er rétt hjá yður. Hann
horfði á hana raunamæddur.
— Ég ráðlegg yður að hætta
þessu heimskurausi, sem getur
aðeins komið yður i bölvun, hélt
hún áfram.
— Það mun þó að minnsta kosti
færa mér hugarró. Þvi ég gaf
henni ekki rangt lyf. Það gerði
annar . . . einhver, sem kom heim
til min að mér fjarverandi, færði
ráðskonu minni áfengi og drakk
það með henni þar til hún hafði
misst ráð og rænu, en fór siðan i
lyfjaskáp minn og tók lyfin.
— Ég held að læknirinn sé
sjálfur ekki með réttu ráði, sagði
Lucie.
— Ég var það ekki, svaraði
hai..:, — en nú hef ég fengið vitið á
ný. •
— Sjáið þér ekki að hann er
frávita? spurði hún Stirling.
— Ekki virðist mér það, sagði
Stirling.
— Ég neita að hlusta á meira,
sagði Lucoe. — Ef þér ætlið þá að
halda áfram, Hunter læknir.
— Ég held áfram og segi frá
öllu saman, allt til enda, allt til
þessa dags, er ég uppgötvaði að
kettirnir tveir drápust af sama
eitrinu og varð lafði Cardew að
bana.
Lucie stóð á fætur. — Þér eruð
vissulega frávita, saði hún.
— Ég veit hvernig lyfið var
fengið, sagði læknirinn. — Á ná
kvæmlega sama hátt. Frú Devlin
hefur viðurkennt að þér hafið
komið með viski i þetta skipti.
Smágjöf handa henni? Eigum við
að fá okkur tár? Og hún sat og
drakk þar til hún sofnaði, en þá
tókuð þér lyklana og fóruð i lyfja-
skápinn,_ alveg eins og i fyrra
skiptið. Hún sagði mér að hún
myndi eftir að þetta heföi komið
fyrir áður.
— Ég sit ekki hér og hlusta á
þvilikt bull, sagði Lucie. — Ég næ
i annan lækni. Ég bið hann að ná i
spennutreyju og koma hingað
strax.
Hún stóð viö dyrnar og horfði á
okkur, Minta starði á hana van-
trúaraugum. Andlitssvipur
læknisins var óræöur. Ég
imyndaði mér aö ég sæi þar
eitthvað sem liktist ástúð.
— Lucie, sagði hann, — þér
þurfið umsjár við.
Hún var farin. Við heyrðum
hana hlaupa niður stigana og
skella á eftir sér útihurðinni.
Læknirinn hélt áfram: — Þetta
er heldur óskemmtileg saga, en
ég verð að segja hana. Hún bind-
ur enda á allt fyrir okkur bæði . . .
en það verður að minnsta kosti
komið i veg fyrir annað morð.
Hann horfði á Mintu. — Guði sé
lof fyrir að það tókst ekki i þetta
sinn. Sjáið þér til, ég var mjög
hrifinn af Lucie og bað hana að
giftast mér. Hefði hún gert það..
held ég að ailt hefði farið vel. En
það komst aðeins eitt að hjá
j Áskriftarsíminn er
í 86666
Ingólfs-Café
BINGO 6 sunnudaa kl. 3
Aðalvinningur eftir vali.
11 umferðir spilaðar.
Ingólfs-Café
Gömludansarnir í kvöld kl. 9
Hljómsveit l»orvaldar Björnssonar.
Söngvari: Grétar Guðmundsson.
Aögöngumiðasalan frá kl. 5 — Simi 12826
Bifreiðaeigendur
Ryð er ykkar versti óvinur. — Verið á
verði og gleymið ekki endurryðvörn. —
Pantið i tima.
Bilaryðvörn h.f. — Simar 81390 & 81397
I AIIGLYSIÐI
I ALÞYDUBLADINU
'i;
vetur. sumarVOR
og haust
Á öllum árstímum býður Flugfélagið yður Nú er tími vorfargjaldanna. Venjuleg far-
tíðustu, fljótustu og þaégilegustu ferðirnar gjöld lækka um þriðjung til helztu stór-
og hagstæðustu kjörin með þotuflugi til borga Evrópu.
Evrópulanda. Það borgar sig að fljúga með Flugféiaginu.
Hvergi ó.dýrari fargjöld.
O
Laugardagur 31. marz 1973