Alþýðublaðið - 28.04.1973, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 28.04.1973, Blaðsíða 1
ALÞYÐU- BLAÐIÐ UPPLÝSIR MMM ALHLIDA m ™ Presturinn um Viðlagasjóð 'LOFORÐAGUMS’ „Um Viðlagasjóö ræði ég ekki hér, en þar virðist enginn i hvorugan fótinn geta stigið eftir allt lof- orðagumsið”, segir sr. borsteinn Lúther Jónsson, sóknarprestur Vestmanna- eyinga, i grein i „Samfé- laginu” — „Blaði Vest- mannaeyinga i dreif- ingunni”, sem þeir Vest- mannaeyjaprestar Þor- Forseti ASÍ: JÁKVÆÐ ADGERÐ — Ég tel þetta vera jákvæða aðgerð, sagði Björn Jónsson, forseti ASl, þegar Alþýðu- blaðið bað um álit hans á gengishækkuninni. Með þessu er reynt að hægja á hinum allt of hraða snUningi verð- bólguhjólsins og hamla gegn þeirri verðhækk- unaröldu, sem dunið hefur yfir undanfarið. Slikt hlýtur að vera æskilegt frá sjónarmiði launafólksins. — Já, ég styð aðgerðina, sagði Björn ennfremur. Ég reikna þá með þvi, að treysta megi þvi áliti sér- fræöinga rikisstjórnar- innar, að bættur hagur Utflutningsatvinnu- veganna vegna hækk- andi verðlags á Ut- flutningsafurðunum erlendis hafi skapað það svigrUm, sem geri þessa aðgerð mögulega. steinn og Karl Sigurbjörns- son eru ritstjórar og ábyrgðamenn aö. Grein sr. Þorsteins, sem ber fyrirsögnina: „Þetta verður að breytast” er hörð gagnrýni á starfsemi Viðlagasjóðs og fram- kvæmd aðstoðar við Vest- mannaeyinga og um bæjarstjórn Vestmanna- eyja segir i greininni: „Vilji forráðamenn bæjar- félagsins sundra I stað þess að sameina samborgara sina og þjappa þeim saman i samhuga heild, þá er leiðin til þess að halda áfram sömu vinnu- brögöunum, sem þeir hafa iðkað i bæjarmálefnum, siðan við komumst i dreif- inguna.” Við birtum þessa grein sr. Þorsteins i heild á bls 2. „Samfélaginu” er dreift ókeypis til Vestmannaey- inga. „Þetta blað á að hjálpa okkur að halda hópinn,” sagði sr. Þor- steinn i viðtali við Alþ.bl. i gærkvöldi. LOGUM! NU koma aðgeröirnar hver af annarri, þegar þingið er farið heim. Full- yrt er, að eftir helgina muni verða sett bráöa- birgðalög um töluverða niöurfærslu á veröi á vöru og þjónustu innanlands og muni verðið látið lækka um ca. 2%. Með þessu móti er verið að reyna aö eyða sem mest hinni miklu hækkun á kaupgreiðsluvisitölu, sem orðið hefur — en hana ber að reikna Ut 1. mai n.k. og greiða svo hækkunina i hækkuðu kaupgjaldi hinn 1. jUni. Er talið, að visitalan hafihækkaðum a.m.k. 10% en samsvarandi kaup- hækkun i jUni er haldin valda nýrri, óstöövandi skriðu verðhækkana. Gengishækkunin, sem afráðin var i gær, lækkar kaupgreiðsluvisitöluna, um 2,5 stig og næsta ráðstöfun — niöurfærsla verðlafTs á vöru og þjónustu með bráðabirgðalögum, sem sett verða eftir helgina — lækkar visitöluna enn meira, þótt ekki sé talið að þessar ráðstafanir nægi til þess að eyða með öllu þeim áhrifum til hækkunar á kaupgreiðsluvisitölu, sem verðhækkanirnar undan- farnar vikur hafa haft. Er þvi talið, að rikisstjórnin muni gripa til þriöja Urræöisins — aukningar niöurgreiöslna og mun það raunar nU þegar vera orðið afráöið. Hafa um málið verið talsveröar deilur innan rikisstjórnarinnar þar eð sumir ráðherranna hafa barizt fyrir þvi aö fá að skerða sjálfar visitölu- bæturnar, sem launafólk á aö fá. Telur Alþýöublaðið þvi frekar liklegt, að heimiluð veröi einhver kauphækkun 1. jUni n.k. — þ.e.a.s. greiðsla á þeim eftirstöövum kaup- greiðsluvisitöluhækkunar- innar, sem raðstafanirnar þrjár: gengishækkun, verðlækkun og auknar niðurgreiðslur; hafa ekki náð að jafna Ut. Gæti sU kauphækkun orðið eitthvað nálægt 2%. Niöurfærsla sU á verði á vöru og þjónustu, sem ákveðin verður nU um helgina, kemur neytendum og iaunafólki að sjálfsögðu til mikils góðs. Hins vegar má vænta þess, að engin sérstök ánægja muni rikja i herbUöum kaupsýslu- manna og eigenda þjónustufyrirtækja, þvi staflarnir af hækkunar- beiðnum liggja nU fyrir á skrifstofu Verðlagsstjóra frá þessum aðilum. FYRSTA GENGISHÆKKUNIN I HALFA ÖLD - VAXTAHÆKKUN Með samþykki rikis- stjórnarinnar hefur Seðla- bankinn ákveðið að hækka gengi isienzku krónunnar um 6%, og um leið verða vextir hækkaðir og aukin innlánsbinding viöskipta- bankanna i Seðlabank- anum. Ráðstafanir þessar eru fyrst og fremst gerðar sem viöspyrna gegn verðbólgu. Gengishækkun islenzku krónunnar ætti að koma neytendum til góða f lækk- uðu innflutningsvöruverði. Hins vegar kemur gengishækkunin illa við út- flytjendur og útflutningsat- vinnuvegina, en banka- stjórn Seðlabankans telur, að vegna mikilla verð- hækkana á mörgum mikil- vægum útflutningsafurðum muni útflutningsfram- leiðslan geta staðið undir þessari auknu byrði. Vaxtahækkanirnar og aukning innlánsbindingar eru geröar i sama skyni — til þess að draga úr spennu og verðbólguþróun. Innl- ánsvextir á sparifé munu hækka um 2-3%. Þá munu útlánsvextir einnig verða hækkaöir til samræmis við þetta eða um þvi sem næst 2%. Nokkuð minni hækkun veröur á vöxtum afurðalána og minnst verður hækkunin á vöxtum lána út á útflutn- ingsafurðir, cða 1%. Þá var þriðja ráðstöfun sú, að auka lágmarks- bindingu innlánsstofnana viö Seðlabankann úr 20% I 21%. Það kom fram á blaða- mannafundinum, að ráð- stafanir þessar eru allar við það miðaðar aö verka sem heinill á verðbólguna hér innanlands. Gefur bankastjórnin þvi undir fótinn, að fleiri ráðstafanir eigi eftir að fylgja og vonar, að um þær náist samstaða.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.