Alþýðublaðið - 08.05.1973, Qupperneq 8
LAUGARASBÍÓ Simi :12«75
Hörkuspennandi og afburöa vel
leikin bandarisk sakamálamynd
i litum með islenzkum texta, gerð
eftir sögu Lionels ’ White „The
Snatchers”.
Leikstjóri: Hubert Cornfield
Aðalleikarar: Marlon Brando,
Itichard Boone og Rita Moreno
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Bönnuð innan 16 ára.
STJÖRNUBÍÓ Simi 18936
Hetjurnar
(The Horsemen)
Islenzkur texti
Stórfengleg og spennandi ný
amerisk stórmynd i litum og
Super-Panavision sem gerist i
hrikalegum öræfum Afganistans.
Gerð eftir skáldsögu Joseph
Kessel. Leikstjóri: John
Frankenheimer. Aðalhlutverk:
Omar Sharif, Leigh Taylor
Young, Jack Palance, David De.
Sýnd ki. 5, 7 og 9
KÖPAVOGSBfÚ_ Simi 41985
Uppreisn æskunnar
Wild in the streets
Amerisk mynd i litum.
Spennandi og ógnvekjandi, ef til
vill sú óvenjulegasta kvikmynd
sem þér hafið séð
Islenzkur texti
Hlutverk
Shelley Winters
Christopher Jones
Diane Varsi
Ed Begley
Endursýnd kl. 5,15 og 9
Bönnuð börnum.
?ÞJÓÐLEIKHUSIÐ
Sjö stelpur
sýning miðvikudag kl. 20.
Lausnargjaldiö
þriðja sýning fimmtudag kl. 20.
Indíánar
sýning föstudag kl. 20.
Síðasta sinn.
Miðasala 13.15 til 20.
Simi 1-1200
eiKféiag
YKJAVÍKl
Flóin
i kvöld uppselt.
Miðvikudag uppselt.
Föstudag uppselt.
Atómstöðin
Fimmtudag kl. 20.30
Allra siðasta sýning
Pétur og Rúna
Laugardag kl. 20.30.
Loki þó
Sunnudag kl. 15
5. sýning. Blá kort gilda.
Aðgöngumiðsalan i Iðnó er opin
frá kl. 14 simi 16620.
Austurbæjarbíó
SCPERSTAR
Sýning i kvöld kl. 21.
Sýning miðvikudag kl. 21.
Siðustu sýningar.
Aðgöngumiðasalan i Austur-
bæjarbió er opin frá kl. 16 simi
11384.
TdHABÍð Simi 31182
Listir & Losti
The Music Lovers
Mjög áhrifamikil, vel gerð og
leikin kvikmynd leikstýrö af KEN
RUSSEL. Aðalhlutverk:
RICHARD CHAMBERLAIN,
GLENDA JACKSON (lék Elisa-
betu Englandsdrottningu i sjón-
varpinu), Max Adrian,
Christopher Gable.
Stjórnandi Tónlistar: ANDRÉ
Prévin
Sýnishorn úr nokkrurri dómum er
myndin hefur hlotið erlendis:
„Kvikmynd, sem einungis verður
skilin sem afrek manns, er
drukkið hefur sig ölvaðan af
áhrifamætti þeirrar tjáningar-
listar, er hann hefur fullkomlega
á valdi sinu... (R.S. Life Maga-
zine)
„Þetta er sannast sagt frábær
kvikmynd. Að minum dómi er
KEN RUSSEL snillingur..”
(R.R. New York Sunday News)
Sýnd kl. 5. og 9
A . T . H .
Kvikmyndin er stranglega
bönnuð börnum innan 16 ára
islenzkur texti
HAFHARBIÚ »-i ■««
Spyrjum að leikslokum
Sérlega spennandi og viðburöarik!
ný ensk-bandarisk kvikmynd i lit-
um og Panavision, byggð á sam-
nefndri sögu eftir Alistair
MacLean, sem komið hefur út i
isllenzkri þýðingu.
— ósvikin Alistair MacLean —
Spenna frá byrjun til enda.
íslenzkur texti.
Bönnuð innan 14 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9
Allra siðasta sýningarhelgi
HÁSKÓLABÍÓ sími 2214»
Tjáðu mér ást þína
(Tell me that you love me, June
moon)
Ahrifamikil, afbragðsvel leikin
litmynd um grimmileg örlög.
Kvikmyndahandrit eftir Marjorie
Kellog, byggt á samnefndri sögu
hennar. Tónlist eftir Philip
Springer. Framleiðandi og leik-
stjóri: Otto Preminger. lslenzkur
texti
Aðalhlutverk:
Liza Minelli,Ken Howard
Robert Moore.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Bönnuð innan 16 ára
Þessi mynd hefur hvarvetna hlot-
ið mikið lof og mikla aðsókn.
Auglýsingósíminn
okkar er 8-66-60
Iþróttir 1
Efri myndin er af þremur
efstu mönnum I Islandsglim-
unni. Lengst til vinstri er Jón
Unndórsson með Grettisbeltiö.
Næstur honum er Pétur Yngva-
son, og lengst til vinstri er
Sigurður Jónsson. Hann heldur
á bikar sem veittur er fyrir feg-
urstar glimur.
Neðri myndin er af úrslita-
glimu þeirra Jóns og Péturs,
sem lauk með sigri Jóns eftir
snörp átök. Myndirnar tók
Smarsi.
Gekk úr glímu og gerði
félaga sinn að glímukóngi
islandsgliman var glimd á sunnudaginn. Glimukóngur islands
1973 varð Jón Unndórsson KR, og hlaut hann að launum Grettis-
beltið. Er þaö annaö árið I röð. Fyrir siðustu umferðina var Jón
vonlaus um sigur, en þá gekk Rögnvaldur Ólafsson KR úr
glimunni, en hann haföi áður lagt Jón að velli. Við þetta þurrkaðist
tap Jóns út, og hann fékk tækifæri á aukaglimu við Pétur Yngva-
son Vlkverja. Lauk viðureign þeirra meö sigri Jóns eftir töluverða
baráttu.
Hér verður þvl alls ekki haldið
fram að Rögnvaldur Ólafsson
hafi gengið úr glímunni án þess
að um meiðsli hafi verið að
ræða. Hins vegar er full ástæða
til að benda hér á, aö um er að
ræða gloppu I framkvæmd
glimumóta. Læknir er til taks,
og það hlýtur að vera hægt að
virkja hann i þessu sambandi.
Allavega er það ófært, að menn
skuli geta labbaö úr glímu
hvenær sem er.
Niu keppendur mættu til leiks,
frá fjórum félögum og héraðs-
samböndum. Fljótlega var ljóst
að keppni yrði afar hörð og
skemmtileg, þvf sumir þeirra
sigurstranglegustu hlutu fljót-
lega byltur. Má þar nefna að
Jón Unndórsson féll fyrir Rögn-
valdi, Sigurður Jónsson féll
fyrir Jóni, Pétur Yngvason féll
fyrir Ómari tilfarssyni og Ómar
féll fyrir þeim bræðrum Inga og
Kristjáni Yngvasonum.
Við síðari byltuna meiddist
Ómar illa, fór úr liði, og varð að
hætta. Var þetta mikil áfall
fyrir Ómar, þvl svo virtist sem
hann ætti góða möguleika á
sigri. Um þetta leyti var Ingi
byrjaður að haltra, og gekk sið-
an úr glimu að læknisráði. Stóðu
leikar þá þannig að bara Pétur
Yngvason og Sigurður Jónsson
áttu möguleika á sigri, og þeir
áttu að glima seman undir lok-
in.
En þá gekk Rögnvaldur úr
glímunni sem fyrr segir, tap
Jóns þurrkaðist út, og þar sem
Pétur lagði Sigurð, þurfti auka-
glimu milli Jóns og Péturs.
Lauk henni með sigri Jóns.
Lokastaðan varð þá þessi:
1. Jón Unndórss. KR 4+1 v
2. Pétur Yngvas. Vik. 4+0 v
3.Sig. Jónss. Vikv. 3 v
4.Guðm. Freyr Halld. A 2 v
5-6.Hjálmur Sig.s. V 1 v
5-6.Kristj. Yngvas. HSÞ 1 v
Jón og Pétur glímdu áþekkt,
en Jón virtist ekki i eins góðri
þjálfun og siðasta ár. Sigurður
Jónsson glimdi áberandi bezt,
og þvi vakti það athygli að hann
skyldi ekki hafa meiri yfirburði
I keppninni um fegurðarverð-
launin er raun bar vitni — SS.
Héldu upp á 50 ára sund í KR
Sunddeild KR fagnaði á sunnudaginn 50 ára
afmæli sundiþróttarinnar innan félagsins með
glæsilegu hófi i Félagsheimili Fóstbræðra við
Langholtsveg.
Sund var tekið á stefnuskrá KR
16. april 1923 og var þaö að frum-
kvæöi þáverandi formanns fé-
lagsins Kristjáns L. Gestssonar
og fór aðalstjórn KR með mál
sundflokksins, sem og annarra
flokka félagsins innan félagsins
og er svo enn.
Fyrstu sundnefnd KR skipuðu:
Björgvin Magnússon, Kirkjubóli
og bróðir hans Magnús, Pétur
Arnason, Óskar Friðbergsson,
yfirvélstj. og Benedikt heitinn G.
Waage, er seinna varð forseti
l.S.l. eins og öllum er kunnugt.
A aðalfundi KR 1948 var sam-
þykkt: „aðfélaginu skipta i deild-
ir og hver deild skyldi hafa sina.
stjórn og eigin fjárhag og sér hún
um daglegan rekstúr deildarinn-
ar undir einni yfirstjórn.”
Fyrstu stjórn sunddeildarinnar
skipuðu þeir Magnús Thorvalds-
son, form., Einar Sæmundsson,
Sigurður Jónsson, Helgi Thor-
valdsson, Einar Sigurvinsson og
Pétur Kr. Jónsson.
Margt hefur á dagana drifið hjá
sundfólki KR á þessum 50 árum
og það marga hildi háð og vonast
stjórn sunddeildarinnar til að sjá
eitthvað af eldri félögum og mót-
herjum i dag.
Þriðjudagur 8. maí 1973