Alþýðublaðið - 08.05.1973, Side 10
Auglýsing
íbúð fræðimanns i húsi Jóns Sigurðssonar
i Kaupmannahöfn er laus til ibúðar 1.
september næstkomandi.
Fræðimönnum eða visindamönnum, sem
hyggjast stunda rannsóknir eða vinna að
visindaverkefnum i Kaupmannahöfn, er
heimilt að sækja um afnotarétt af ibúð-
inni. tbúðinni, sem i eru fimm herbergi,
fylgir allur nauðsynlegasti heimilisbúnað-
ur, og er hún látin i té endurgjaldslaust.
Dvalartimi i ibúðinni skal eigi vera
skemmri en þrir mánuðir og lengstur 12
mánuðir.
Umsóknir um ibúðina skulu hafa borizt
stjórn húss Jóns Sigurðssonar, íslands
Ambassade, Dantes Plads 3, 1556 Köben-
havn V, eigi siðar en 1. júni næstkomandi.
Umsækjendur skulu gera grein fyrir til-
gangi með dvöl sinni i Kaupmannahöfn,
svo og menntun og fyrri störfum. Þá skal
tekið fram, hvenær og hve lengi er óskað
eftir ibúðinni.
Æskilegt er, að umsókninni fylgi umsögn
sérfróðs manns um fræðistörf umsæki-
anda.
Stjórn húss Jóns Sigurðssonar.
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS
Tónleikar
i Háskóiabiói fimmtudaginn 10. mai kl. 8.30
Stjórnandi ALEXANDER RUMPF
Einleikari GUDNV GUÐMUNDSDÓTTIR
A efnissrká: Brahms: Tilbrigði um stef eftir Haydn,
Dvorak: Fiðlukonsert í A-moll
Beethoven: Sinfónia nr. 2.
Aögöngumiðar i Bókabúð Lárusar Blöndai, Skólavörðu-
stig 2, og Bókaverziun Sigfúsar Eymundssonar, Austur-
stræti 18.
Laus staða
Staða húsvarðar við Kennaraháskóla Is-
lands er laus til umsóknar.
Laun samvk. launakerfi starfsmanna rik-
isins. Umsóknir, ásamt upplýsingum um
fyrri störf sendist menntamálaráðuneyt-
inu, Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 4. júni
n.k.
Menntamálaráðuneytið,
3. ma! 1973.
Félagsstarf
eldri borgara
Langholtsvegi 109-111
A morgun miðvikudag, verður opiö hús frá kl. 1.30 e.h.
Meðal annars koma i heimsókn Sigfús Halldórsson, tón-
skáld,og Kristinn Bergþórsson, einnig verða gömlu dans-
arnir, Jóhannes Benjaminsson leikur á harmoniku.
töpp af kónguló, og roð af ál eru beztu vinir
ógiftu stúlkunnar - vel að merkja
HYGGI HÚN Á
TÖFRABRÖGÐ
til þess að finna „hinn eina, rétta”
Þaö er ekki hægt aö
lasta karlmenn þótt þá
gruni/ að með hverri
konu búi brot af galdra-
kerlingu. Einkum og sér
i lagi þegar svo stendur
áð/ að kvenmaðurinn er
að reyna að plata karl-
manninn til þess að
kvænast sér.
En fyrst þarf
kvenmaðurinn að finna
„þann eina/ rétta". Og
það er einmitt þar, segir
rithöfundurinn Jack
Thomas, sem töfra-
brögðin og verndar-
gripirnir njóta sín.
Hann.segir, að til sé ótölu-
legur grúi ástardrykkja,
ástarverndargripa og ástar-
töfrabragða til þess að nota á
öllum timum og við öll tæki-
færi. Til eru töfrar til nota að
vorlagi. í fyrsta sinn, sem
stúlka heyrir gauk gala á voru
þarf hún ekki annað en að fara
úr skónum og lita ofan i hann
til þess að komast að raun um,
hver verða eigi hennar
ástkæri ektamaki, rifjar
Thomas upp.
Samkvæmt þjóðtrúnni á
stúlkan að finna i skónum eitt
einstakt hár af sama lit og
höfuðhár hins væntanlega
eiginmanns.
Jómfrúin
Ef ekkert hár er i skónum,
þá gæti það merkt, að sá
væntanlegi verði sköllóttur.
Einnig leggur fyrsta gauks-
galið grundvöllinn að annari
aðferð með sama markmiö.
Um leið og jómfrú heyrir
fyrsta gauk gala á vorin á hún
að spyrja: „Gaukur, seg mér
hversu mörg ár eiga að liða
þar til ég giftist?” Siðan á
stúlkan að telja hversu oft
ATHUGIÐ
—Vesturbæingar—
ATHUGIÐ
Munið skóvinnustofuna
að Vesturgötu 51.
Ef skórnir koma i dag,
tilbúnir á morgun.
Virðingarfyllst
Jón Sveinsson
gaukurinn svarar með gali —
það er fjöldi áranna þar til sú
stóra stund rennur upp.
En til þess að fremja reglu-
lega galdurslega galdra, þá á
hin áhugasama unga stúlka að
freista gæfunnar að kvöldi
þess 24. april — en þá er
Markúsarmessa. Þá á hún að
setja logandi kerti út i eitt
hornið á herbergi sinu,
slökkva á öllum öðrum
ljósum, krjúpa frammi fyrir
spegli og hvisla lágum rómi
svo enginn annar heyri:
„Komdu elskan komdu
hratt/ komdu mig svo fáir
glatt/ Eiginmaður minn munt
þú/ mér þitt andlit sýndu nú”.
Ef hún er heppin ætti hún þá
að geta séð bregða fyrir i
speglinum andliti þess manns,
sem hún á eftir að giftast.
Það krefst hins vegar meira
hugrekkis að fara að öðrum
ráðum tengdum þessu kvöldi.
Eitt ráðið er á þá lund, að
hringsóla 12 sinnum
umhverfis kirkju á miðnætti
og muldra fyrir munni sér:
„Hampfræi ég sái, hampstrá
spretti löng. Maðurinn sem ég
á að giftast safni þeim saman i
föng”.
Sýnir
Að þvi loknu á stúlkan að
kosta aftur um öxl sér
nokkrum hampfræjum og það
á að framkalla sýn, þar sem
væntanlegur eiginmaður
stendur og slær með sigð. En
ef stúlkan er dæmd til þess að
pipra á hún að sjá likkistu.
Skemmtilegri miklu er sá
siður að tæma á gamlárs-
kvöldi siðasta glasið úr
vinflösku um leið og klukkan
slær tólf. Sú stúlka, sem það
nær að gera, á að vera sú
fyrsta af viðstöddum ógiftum
stúlkum, sem giftist á næstu 12
mánuðum.
En þá er einnig til sérstakur
Nýársdags-ástarbolli. Hér er
um að ræða brugg úr hálfpotti
af köldu lindarvatni, sem
eggjarauðu úr eggi hvitrar
hænu er hrært út i ásamt löpp
á kónguló og muldu þurrkuðu
roði af ál.
Stúlkan á að drekka seyði
þetta og þá á hana að dreyma
væntanlegan eiginmann sinn.
Jónsmessan
Jónsmessukvöld — sá timi,
þegar galdrakerlingar áttu að
ganga ljósum logum I fyrnd-
inni — er kjörinn timi til töfra-
bragða. Ef stúlka tekur sér
stöðu á þvi kvöldi á kirkju-
tröppum og biður þar unz
klukkan slær 12, þá á hún að
geta séð svipmynd væntanlegs
eiginmanns sins.
Eilitið minna kviðafull
aðferð er að ganga aftur á bak
inn i næsta garð og slita þar
upp rós. Sauma siðan rósina
innan i hvitan bréfpoka, stinga
pokanum ofan i skúffu og
geyma hann fram að næstu
jólum. Þá á að taka pokann
upp og setja hann við brjóst
sér, þegar farið er til kirkju.
Önnur eins
Maðurinn, sem stúlkan á
eftir að giftast, mun þá annað
hvort spyrja um rósina eða að
reyna að gripa til hennar.
Onnur aðferðin er sú, að tina
þrjár rósir i stað einnar.
Þær á stúlkan svo að taka
heim og leiða að þeim brenni-
steinsgufur kl. 3 á Jónsmessu-
nótt. Eina rósina á siðan að
setja undir tré, aðra niður i
nýtekna gröf og þá þriðju
undir koddann næstu þrjár
nætur i röð, en siðan á að
brenna hana við viðarkolaeld.
Þessi aðferð á ekki aðeins að
hjálpa stúlkunni til þess að
dreyma væntanlegan eigin-
mann sinn — heldur á aðferðin
jafnframt að gera það að
verkum, að hún ásæki hann I
draumum, hans unz hann
stenzt ekki mátið og kemur
fram með bónorðið.
Hjér er svo ein aðferðin enn,
sem stúlkur eiga að geta
gripið til svo þær geti komizt
að þvi fyrirfram, hver verða
eigi eiginmaður þeirra.
Taka á heslihnetur — eina i
einu — og skira sérhverja
þeirra i höfuðið á einhverjum
liklegum. Siðan á að setja
hneturnar á rist yfir kolaeld.
Sú þeirra, sem brennur jafnt
og örugglega, er til marks um,
að maðurinn, sem hún var
heitinn eftir, muni verða
góður eiginmaður og faðir. En
hneta, sem brennur ekki eða
skreppur út af ristinni er til
marks um, að maðurinn, sem
hún heitir eftir, verði ekki
konu sinni sem tryggastur i
hjónabandinu.
Martröð
Og ef þú skyldir þrátt fyrir
þetta allt ekki vera búin að
finna „þann eina, rétta” á
næstu jólum, þá er ekki um
annað að ræða fyrir þig, en að
verða þér úti um mistiltein.
Taka á niu mistilsteins ber,
Saxa á þau út i blöndu af . öli,
hunangi, ediki og vini og láta
blönduna standa nær allan
daginn. Siðan á að drekka
hana rétt áður en að farið er
að sofa.
Þessi aðferð á að gera það
að verkum, að stúkuna dreymi
væntanlegan eiginmann sinn.
En þar sem drykkur þessi er
ekkert sérstaklega bragð-
góður né hollur fyrir
meltinguna, þá megið þið ekki
ásaka Alþýðublaðið, þótt þið
fáið martröð i stað þess að
dreyma hinn eina rétta.
HAPPDRÆTTI HÁSKÖLA tSLANDS
Á fimmtudag verður dregið i 5. flokki.
4.100 vinningar að fjárhæð 26.520.000 krónur.
Á morgun er siðasti endurnýjunardagurinn.
Happdrætti Hásköla Ssiands
5. flokkur
4 á 1.000.000 kr. 4.000.000 kr.
4 á 200.000 kr. 800.000 kr.
180 á 10.000 kr. 1.800.000 kr.
3.904 á 5.000. kr. 19.520.000 kr.
Aukavinningar:
8 á 50.000 kr. 400.000 kr.
4.100 26.520.000 kr.
Þriðjudagur 8. mai 1973