Alþýðublaðið - 08.05.1973, Qupperneq 12
alþýðu
! n Rimsi
INNLÁNSVIÐSKIPTILEIÐ
TIL LANSVIDSKIPTA
UNAÐARBANKI
ÍSLANDS
KÓPAVOGS APÓTEK
Opið öll kvöld til kl. 7,
nema laugardaga til
kl. 2, sunnudaga milli
kl. 1 og 3-Símj40i02.
MIKID UM
KVARTANIR
OTAF
VERDSVINDLI
Mjög viröist hún misjöfn fram-
kvæmdin á bráöabirgðalögum
rikisstjórnarinnar um 2% verð-
lækkun á vörum og þjónustu.
Samkvæmt lögunum átti verð-
lækkunin að hafa komið til fram-
kvæmda i siðasta lagi i gær —
þann 7. mái — en nokkur mis-
brestur virðist á þvi vera ef
marka má stutta simakönnun,
sem Alþýðublaðsmenn gerðu i
gær.
Hringt var i ýmsa seljendur
heimilistækja og spurt um verð á
vörum þeirra. Viðast hvar hafði
orðið lækkun — sums staðar
vegna gengishækkunarinnar,
annars staðar vegna bráða-
birgðalaganna og á enn öðrum
HÚSAVÍK
NÝJA HÖTELIÐ
BRÁTT TILBÚIÐ
,,Hér hefur verið af-
bragðsveður að undan-
förnu, og mikil vinna.
Skipakomur eru tiðar bæði
að taka kisilgúr og fiskaf-
urðir,” sagði Sigtryggur
Albertsson hótelhaldari á
Húsavik er við siógum á
þráðinn til hans i gær.
Sigtryggur mun i júni i
sumar opna eitt flottasta
hótel landsbyggðarinnar,
með 34 tveggja manna her-
bergjum, þar af 24 með
baði. Þá verða glæsilegar
setustofur og veitingasalir
i nýja hótelinu. Milli 25-30
manns vinna þar i sumar.
Þegarermikið bókað fyrir
sumarið.
,,Hér er alltaf nóg að
gera, og alltaf vantar fólk.
Það er sama sagan all-
staðar. Ég held að væri
réttast að banna helv. pill-
una með landslögum,”
sagði Sigtryggur hótelhald-
ari i lokin.
stöðum vegna beggja ástæðn-
anna. Annars staðar var þó gefiö
upp gamla verðið, en þegar
afgreiðslufólkið var spurt, hvort
þetta væri hið lækkaða verð sam-
kvæmt fyrirskipun stjórnvalda
var kveðið nei við og sagt, að
lækkunin yrði þá gerð um leið og
keypt væri. Er þvi betra að muna
eftir að spyrja, ef fólk er i
innkaupahugleiðingum.
Nokkuð loðnari svör fengust þó
frá verzlunum, sem selja smærri
varning en heimilistæki. Eitt
svarið var þó afdráttarlaust með
öllu. Það fengum við frá snyrti-
vöruverzlun einni.
— Nei, við höfum ekkert
lækkað, svaraöi afgreiöslu-
stúlkan.
— Hvers vegna ekki?
— Það væri svo voðalegt verk
að reikna nýtt verð á allar
vörurnar hjá okkur. Við látum
það bara biöa þangaö til nýjar
sendingar fara aö koma.
En það er ekki vist, að verð-
lagsstjóri samþykki þaö — ef
starfslið hans hefur þá tima til
þess að sinna áþekkum málum I
öllum þeim verkefnum, sem
hlaöast nú á verðlagseftirlitið. Að
sögn skrifstofustjóra verölags-
eftirlitsins var töluvert mikið um
það i gær að fólk hringdi inn
kvartanir vegna varnings, sem
það taldi aö hefði ekki lækkað
sem skyldi. Þar að auki var þá
ekki fullgengið frá þvi, hvaða
vörur og þjónusta ætti að lækka
og hvað ekki, þvi ákveönar
undantekningar munu hafa verið
heimilaðar i lögunum og var
einmitt verið að fjalla um fjölda
slikra undanþáguumsókna á
fundi verðlagsráðs i gær. Þeir
átta eða niu verðlagseftirlits-
menn sem annast eftirlit með
verðlagningu i verzlunum á
Reykjavíkursvæðinu, munu þvi
hafa meira en nóg að gera á næst-
unni, en að sögn skrifstofu-
stjórans hefur eftirlitsmönnum
ekki verið fjölgaö þrátt fyrir hin
stórauknu verkefni.
— Þetta kom allt svo fljótt og
óvænt, sagði hann.
Góðir prísar
ó skrani
,,Ég fór einu sinni að spyrja
mann, sem kemur á hverju ári,
hvers vegna hann keypti alltaf
vettlinga. Mér þótti þetta dálitið
grunsamlegt. Hann svaraði þvi
til. að hann væri meö kartöflu-
rækt, og það væri betra að fá
krakka til að vinna i görðunum,
ef hægt er að láta þá hafa vett-
linga”.
Þetta sagði Haraldur
Jóhannesson, sem hefur eftirlit
með týndum munum hjá rann-
sóknarlögreglunni, þegar við
spjölluðum við hann um hið
árlega uppboð, sem fór fram á
laugardaginn var i portinu á
bak við Borgartún 7.
A uppboðinu voru ein 70 reið-
hjól, útvörp, vettlingar, höfuð-
klútar og margt fleira, og allt
seldist, — eins og venjulega. Að
þvi er Haraldur sagði er þetta
mest sama fólkið, sem kemur á
uppboð lögreglunnar, ár eftir
ár, og þaö er furöulegt hvað
boðið er i hina fáfengilegustu
muni. Allt að 5500 krónur voru
boðnar i reiðhjól, og meira að
segja hjól, sem var litið annað
en stellið og beygluð gjörð, fór á
1200 krónur.
Einn náöi sér þarna i nýleg en
skitug alföt á spottpris, en
flestir urðu að láta sér nægja
kassa þar sem eru yfirleitt einar
buxur, jakki, húfa, klútur og
sitthvað fleira smávegis.
Þegar tók að liða á uppboðið
tók að rigna litilsháttar. Það
kom uppboðshöldurum til góða,
þvi menn tóku að bjóða óspart i
regnhlifarslitur, sem fór á 2-600
krónur stykkið.
Nú er allt autt og tómt i
geymslunni hjá Haraldi, en það
stendur áreiðanlega ekki á þvi
að eitthvaö miki þangað af
týndum munum, og eftir ár
verður að hreinsa til með
uppboði aftur.,
AKUREVRIHGAR VIUA VfST EKKI
SPAHARTOGARAHA HVORT SEM ER
1 gær var haldinn stjórnar-
fundur i skipasmiðastöðinni
Astilleros Luzuriga á Spáni. Ekki
hafði frétzt i gærkvöldi hvort
stjórn stöövarinnar ákvað þar að
hætta við smiði Akureyrartogar-
anna svonefndu eða ekki. Enda
bendir flest til þess að sú
ákvörðun skipti ekki máli,
(Jtgeröarfélag Akureyringa hafi
einfaldlega ekki áhuga á þvi að
spænska skipasmiðastöðin smiði
skipin, eftir allt það sem á undan
er gengið.
Akureyringar hafa mestan hug á
þvi að fá fjóra skuttogara af
meðalstærð, þ.e. af sömu stærð
og Sólbakur, eini skuttogari
félagsins. Þvi er það óheppilegt
fyrir félagið að fá tvo togara af
stærri geröinni, en Spánar-
togararnir eru einmitt af þeirri
stærð.
Athugaðir hafa verið mögu-
leikar á þvi að aðrar skipasmiða-
stöðvar taki að sér verkefni
spænsku stöðvarinnar. Sú athugun
leiddi i ljós, að afgreiöslufrestur
er yfirleitt langur, nema helzt hjá
norskum skipasmiðastöðvum.
Verðið er nokkuð hátt hjá norsku
stöðvunum, en á móti kemur, aö
norsku skuttogararnir, sem
hingað eru komnir nú þegar hafa
reynzt afbragðsvel, liklega bezt
af öllum nýju togurunum.
Frakkland býður upp á svipuð
kjör og Noregur, og einnig
Japan, en Pólland er töluvert
ódýrara. Þar er afgreiðslufrestur
hins vegar langur, og pólskar
skipasmiðastöðvar hafa reynzt
ófáanlegar til að taka við ýmsum
hlutum i skipin, sem þegar var
búið að panta.
Vilhelm Þorsteinsson forstjóri
Útgerðarfélags Akureyringa
hefur undanfarið kannað tilboð
hinna ýmsu skipasmiðastöðva, og
er hann nú staddur i Frakklandi
þeirra erinda.
SBNDIBIL ASTÖDIN Hf
ENGINN
FUNDUR
EINARS
OG SIR
ALECS?
„Ég mun aðeins dvelja einn
dag i Strassbourg, og flytja þar
ræðu um landhelgismálið. Ég tel
óliklegt að við Sir Alec Douglas-
Home eigum viðræður saman.
Siikur fundur hefur ekki komið til
umræðu”.
Þetta sagði Einar Agústsson
utanrikisráðherra i gær, er blaðið
innti hann eftir hugsanlegum
viðræðum við utanrikisráöherra
Breta á ráðherrafundi Evrópu-
ráðsins sem hefst i Strassbourg
næsta mánudag.
Alþýöublaðið skýröi frá þvi i
fyrri viku, að brezkir fjölmiðlar
hefðu spáð þvi að ráðherrarnir
myndu ræða saman við þetta
tækifæri. Einar Agústsson sagði
hins vegar að það væri afar ólik-
legt. Alec Douglas Home verður
fyrripart vikunnar i Strassbourg,
en Einar mun flytja sina ræðu
fimmtudaginn 17. mai.
1 dagskrá ráðherrafundarins
segir að Einar Ágústsson muni
taka þátt i efnahagsumræöum 17.
og 18. mai, og fylgja umræðunum
úr hlaði með yfirlýsingu. „Þetta
hlýtur að vera á misskilningi
byggt. Ég mun aðeins dvelja einn
dag i Strassbourg, og ég mun ein-
ungis halda ræðu um landhelgis-
málið. Ég tek ekki þátt i efna-
hagsumræöunum, og þess hefur
ekki verið farið á leit við mig, að
ég fylgi þeim úr hlaði”, sagði
Einar Agústsson.
HÚSAVÍK
Johns Manville
og Landsbankinn
undir sama þaki
Landsbankaútibúið á Húsa-
vik flutti nýlega i nýtt og
glæsilegt húsnæöi að Garðars-
braut 19. Framkvæmdir við
byggingu hússins hófust i mai-
lok 1971, er húsiö er 290
fermetrar að stærð.
Hið nýja húsnæöi gerbreytir
alveg högum bankans, en
hann hefur til þessa verið i 50
fermetra húsnæði. Skattstofan
á Húsavik tekur við þvi hús-
næði.
Nú eru 10 ár liðin siðan
Landsbankinn yfirtók Spari-
sjóö Húsavikur, en hann hafði
starfað frá 1895. Útibússtjóri
er Sigurður Pétur Björnsson,
og hefur hann veitt spari-
sjóðnum og útibúinu forstöðu i
30 ár. Starfsmenn eru átta.
Johns Manville fyrirtækið
hefur fengið inni i nýja banka-
húsinu fyrir söluskrifstofu
sina á kisilgúr.