Alþýðublaðið - 26.06.1973, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 26.06.1973, Blaðsíða 4
 ■ <••'•>'C:' . ;; 1 \\ "A J || RÍKISSPÍTALARNIR lausar stöður HJÚKRUNARKONUR óskast til starfa nú þegar við KLEPPS- SPÍTALANN, einkum i Viðihlið og á deild IX. Vinna hluta úr starfi kemur til greina. Upplýsingar veitir forstöðukonan, sima 38160. SKRIFSTOFA RÍKISSPÍTALANNA EIRÍKSGÖTU 5, SÍM111765 Sumarnámskeið 10—12 ára barna Hið seinna sumarnámskeið fyrir 10—12 ára börn hefst mánudaginn 2. júli og lýkur 21. júli. Námskeiðsefni: föndur, iþróttir, leikir, kynnisferðir um borgina, heimsótt söfn, fyrirtæki og stofnanir. Daglegur námskeiðstimi er 3 klst. frá kl. 9—12 eða 13 16. Væntanlegir kennslustaðir: Austurbæjarskóli og Breiðagerðisskóli. Námskeiðsgjald er kr. 700.- Innritun fer fram i Fræðsluskrifstofu Reykjavikur, Tjarnargötu 12 á morgun, miðvikudaginn 27. júli, kl. 15—18. Fræðsluskrifstofa Reykjavikur AUGLÝSINGASÍMINN OKKAR ER 8-66-60 Tónskáldið ferðast um í 150 millj. krónaþotu „Mér finnst ég dekraður,’ sagöi Gilbert O’Sullivan, tón- skáld og poppstjarna, þegar hann teygði úr sér i hægindasæti I 150 milljón króna einkaþotu M.A.M. umboðsfyrirtækisins á leið frá London til Irlands, þar sem hann átti að koma fram á nokkrum konsertum. Gilbert hefur allur breytzt i útliti frá þvi i fyrra, eða eins og Islenzkir sjónvarpsáhorfendur sáu hann nú i vor. Þá var hann klæddur of stuttum buxum, með skringilega húfu og i gamaldags jakka og götóttri peysu. Nú er þessi 27 ára gamla stjarna poppheimsins, búin að láta sér vaxa sitt hár — hann klæðist tizkufatnaði — og eftir flugferð- ina hefur hann viðurkennt að hann ætti i rauninni að láta þann munað eftir sér að ferðast um á eilitið finni máta en áður. Þotan er notuð af umboðs- fyrirtækinu til að fljúga með dýrustu poppstjörnurnar milli konserta — og I henni hafa iðu- lega flogið Tom Jones og Engel- bert Humperdinck. 1 þessari fyrstu ferð sinni i milljónaþotunni hafði Gilbert O’Sullivan með sér mömmu sina, stjúpa og tvituga systur. Flugfreyjan var valin sérstak- lega. Hún heitir Ann Hermsen, 29 ára gömul, og lagði áður stund á mál i Sorbonne i Frakk- landi og starfar nú yfirleitt sem túlkur. JOHN DEAN, fyrrum lögfræði- legur ráðunautur Nixons fyllyrti í gær við fyrstu opinberu yfir- heyrslur yfir honum I Water- gate málinu, að forsetinn væri sjálfur viðriðinn hneykslis- málið. Hann sagðist hafa skýrf Nixon sjálfur frá tilraununum til að þagga málið niður, og sagöi einnig að forsetinn hefði sagt við sig að það væri ekkert i ■ vegi fyrir þvi að borga allt að ■ milljón dollara fyrir það að láta ■ þá sem brutust inn i Watergate- ■ bygginguna, halda sér saman. ■ Hann sagði einnig að þegar J hann hafi skýrt Nixon frá þeim J tilraunum, sem gerðar hefðu S verið til að þagga málið niður ■ hafi forsetinn ekki gert sér grein ■ fyrir þvi hversu alvarlegar af- ■ leiðingar það gæti haft fyrir ■ hann að blanda sér þannig inn I ■ málið. \ i 150 síðna greinargerð nefnir ■ Dean fjölda manna sem við- ■ riðnir voru tilraunirnar til að ■ breiða yfir málið. Þar er hópur ■ manna úr starfsliöi Hvita ■ hússins og margir úr nefnd 5 þeirri, sem sett var á laggirnar J til að vinna að endurkjöri S Nixons, en eins og kunnugt er S sigraði hann með meiri yfir- S burðum en nokkur annar ■ Bandarikjaforseti hafði áður ■ unnið. ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ TYRKIR 0G HASSIÐ FREISTUÐU STÚLKUNNAR Krafizt hefur verið tveggja ára óskil- orðsbundins fang- elsisdóms yfir 19 ára gamalli noskri stúlku, sem ákærð hefur verið fyrir að smygla inn, reykja og selja, tvö kiló af hassi. Stúlkan hefur játaö að hafa haft inn i landið þessi tvö kiló, og að hafa reykt hass um nokkurtc skeið. Stúlkan kynntist i Kaupmannahöfn Tyrkja nokkrum fyrir fáum árum sið- an, og bauöst til að selja fyrir hann hass i Noregi. Þau fóru saman til Porsgrunn i Noregi, og hafði stúlkan hassið falið á sér, en Tyrkinn var vopnaður skamm- byssu. Stúlkan átti að fá þriðjung hagnaðarins, en þegar hassið hafði verið selt hvarf Tyrkinn úr landi án þess að láta stúlkuna fá nokkuð. Er stúlkan fór aftur til Kaupmannahafnar að reyna að hafa upp á Tyrkjanum kynnt- ist hún öðrum landa hans, sem gaf henni hass til eigin notk- unar. Með þessum Tyrkja varö hún svo ólétt. Frá mönnum og málefnum Deilan um keisarans skegg Það leið auðvitað ekki á löngu þangað til öll tiltæk pólitik var dregin inn i landhelgismálið. Aður hefur verið bent á það i þessum pistlum, að viðhorfin til Nato ættu eftir að reynast þýðingarmikil, áður en landhelgismálið yrði til lykta leitt. Það er engin tilviljun, að Þjóðviljinn hermir hvert eitt orð, sem gengur út af munni manna um afstööuna innan Nato, og Kristján Albertsson hefur á ný tekið upp gamla tóntegund um rauðu hættuna. Nú þreytast þessir tveir aðilar um blindgötur fastmótaðrar rökræðu, og hafa raunar harla litið um landhelgismálið að segja. Sagt er að Alþýðubandalagið sé reiðubúið i kosningar með haustinu. Spjaldskrár séu I lagi og kosningamaskínan öll i viðbragðsstöðu. Ýms rök ligga að þvi að heppilegt sé fyrir Alþýðubandalagið að fá kosningar alveg á næstunni. Slikar kosningar, ef yrðu, myndu bera meiri keim af þjóðaratkvæðagreiðslu en alþingiskosningar yfirleitt, og veldur þvi stórmál einsog landhelgismálið, varnarliðið og Nato, ef svo tekst til að þátt- taka i Nato verði brennandi spursmál vegna afstöðuleysis og gagnsleysis samtakanna i landhelgismálinu. Þegar svo kjósandinn gengur I kjörklefann i svo einföldum kosningum, lætur hann afstöðu til annarra stefnumiða biða. Hann segir annað hvort ja eða nei, og þeir flokkar, sem þá geta gengið heilir til leiksins með eða á móti t.d. þátttöku i Nato, munu eiga litlu fylgi að fagna. Það er þvi von að einstakir stjórnmála- menn séu farnir að halda aftur af sér i sambandi við afskipta- leysi Nato. Þeir eru ef til vill ekki i aðstöðu til að standast kosningar, sem snúast um já, eða nei. En það verður forvitnilegt að fylgjast með þvi fram á haustið hvernig bilið breikkar milli helztu samstarfsflokka i rikisstjórn út af afstöðunni til Nato. Þeir sem hófu leikinn árið 1956 undir stjórn Hermanns Jónssonar, fóru ekki langt út fyrir aðalatriðin. Nato komst þá ekki svo mjög á dagskrá. Eftir á sáu menn betri leiki. Þeir, sem vilja landhelgis- málið i höfn, finnst kannski deilt um keisarans skegg, þar sem Nato er. Má vel vera að svo sé. En samt er nú þetta keisarans skegg i landhelgismálinu að verða eitthvert alvarlegasta kosningamál, sem hér hefur risið upp i lengri tima, einkum vegna þess að öfgarnar á báða bóga eiga leikinn. VITUS ATHUGIÐ —Vesturhæingar— ATHUGIÐ Munið skóvinnustofuna að Vesturgötu 51. Ef skórnir koma i dag, tilbúnir á morgun. Virðingarfyllst Jón Sveinsson Þriðjudagur 26. júní 1973

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.