Alþýðublaðið - 26.06.1973, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 26.06.1973, Blaðsíða 7
0 ekki, hvort þeir hafa sannfærzt um, að min visindi séu sannari en þeirra, en ég held það næstum. Annars hefðu þeir áreiðanlega haldið baráttunni áfram. Margir aðrir reyna eins og J>eir geta að stimpla stjörnuspádoma sem hégilju. Hvernig ættu þessar svo ýkja fjarlægu plánetur að geta haft þýðingu fyrir okkur manneskjurnar? Nei, þetta er einnig mjög leyndardómsfullt i minum huga, en ég veit, að þær hafa þessa þýðingu fyrir okkur. Og að við getum ekkert við þvi gert. Nú er klukkan tvö, eftir fimm stundir verður hún sjö, getið þið nokkuð gert til þess að breyta þvi? Nei, og þið getið heldur ekkert gert til þess að hindra plánetuna Úranus að vera i þessari eða hinni afstöðu til mánans árið 2073. Þetta merkir ekki, að við getum ekkert gert til þess að breyta stærri atriðunum svo sem eins og fæðingu, dauða o.s.frv. Það er þarna, sem stjörnuspá- dómafræðin á sér sina stóru rétt- lætingu: Ég get lagt stjörnukort fyrir mann og sagt honum, að hann geti gert svona eöa hinsegin til þess að koma i veg fyrir að sorglegir atburðir gerist. Ég gef aldrei bein ráð heldur segi aðeins frá möguleikunum, sem fyrfr hendi eru. Margir koma til min, þegar þeir eru i giftingarhugleiðingum. Ég legg þá stjörnukort fyrir báða aðila og ber þau saman og i raun- inni get ég fljótlega séð, hvort hjónaband getur staðið en einnig, hvenær vandkvæðin ber að. Fólk kemur einnig til þess að fá að vita um annað: hvernig á það að hegða sér undir þessum eða hinum hringumstæðunum, eða hvernig á það að standa sig bezt i starfi o.s.frv? Margir hafa lika áhuga á peningamálum, en til allrar hamingju ekki eins margir og fólk heldur. Það hefur komið mér þægilega á óvart að komast að raun um, hve mikilvægar ýmsar kringumstæður hins dag- lega lifs eru fyrir fólk. — Nú birtast stjörnuspádómar daglega i sumum dagblöðum og einnig birtast þeir reglulega i mörgum viku- og mánaðarritum. Er óhætt að treysta þessum spádómum? Szöllösi: — Þessir spádómar eru mun minna virði en margir VMERÍKA OVE, Paul McCartney & Wings Apple GROUND IN MY MIND, Clint Holmes Epic )W TALK, Sylvia Vibration ONNA LOVE YOU JUST A LITTLE MORE r, Barry White 20th Century IEL, Elton John WBM IKENSTEIN, Edgar Winter Group Epic IT GO ROUND IN CIRCLES, Billy Preston A8.M ME LOVE (GIVE ME PEACE iARTH), George Harrison Apple \CHROME, Paul Simon Columbia l YELLOW RIBBON ROUND THE OAK TREE, Dawn WBM IT PLACE, WRONG TIME, Dr John Atco j TRAIN RUNNING, Doobie Brothers Warner Bros OF A KIND (Love Affair), Spinners Atlarrtic VIBALA, Three Dog Night Dunhill T AWAY, Dobie Grey Oecca JS POCUS, Focus Sire ARE THE SUNSHINE OF MY LIFE, Wonder Tamla Motown OOING FINE NOW, New York City Chelsea )FLOWER, Skylark Capitol BAD LEROY BROWN, Jim Croce ABC :k in the middle with you, rs Wheel A8tM 'ING ME, Independants Wand -E WILLY, Sweet Bell JRAL HIGH. Bloodstone London .ING IN THE YEARS, Steely Dan ABC NIGHT THE LIGHTS WENT OUT EORGIA, Vicki Lawrence Bell flORE MR. NICE BUY, Alice Cooper Warner Bros MROLLER BLUES/FOOL, Elvis Presley RCA LL NEVER GET TO HEAVEN (IF BREAK MY HEARTi), Stylistics Avco SIE WOOGIE BUGLc BOY, Bette Midler Atlantic Supplied by: BILLBOARD telja, en hins vegar eru þeir lika meira virði, en „hinir vantrúuðu” vilja láta i veðri vaka. Ég myndi segja, að hægt væri að stóla 40% á stjörnuspádóma i blöðum að þvi tilskyldu að spádómurinn sé gerður af raunverulegum stjörnuspádómafræðingi. Til dæmis munu u.þ.b. 40% af spá- dómunum um tvibura- og nauts- merkinga ganga eftir, en það eru ekki sömu 40%, sem ganga eftir hjá sömu tvibura- og nauts- merkingum. Ef maður er dæmigerður tvi- buri, hrútur, vatnsberi eða hvaö það nú heitir, þá verður nákvæmnishlutfallið hærra, en við erum langt i frá öll dæmigerö fyrir þau stjörnumerki, sem við erum fædd i. Sjálfur er ég dæmigeröur vog- merkingur — i þvi felst m.a., að ég er að eðlisfari jafnlyndur — en það er ég aðeins vegna þess aö ég var fæddur á ákveðnum stað á ákveðnum tima. Maður er „dæmigerður” ef plánetan, sem rikir i stjörnumerki manns, stendur i stjörnumerkinu þegar maður fæðist og ef um leið ascendensinn — hið svonefndá risandi tákn — einnig er innan merkinins á fæðingarstundinni. Ef það er ekki tilfellið, þá veröur maður ekki aðeins fyrir áhrifum af sinu eigin stjörnu- merki, heldur einnig af tveim öðrum, sem nefndar plánetur hreyfast i. Ef maður er fæddur undir lok stjörnumerkis, þá getur hann einnig verið undir áhrifum frá næsta merki þar á eftir. Hins vegar er maður aldrei undir áhrifum frá merkinu næsta á undan þvi, sem maður er fæddur i. Stjörnuspádómafræðingur þarf ekki að hitta manneskju augliti til auglitis til þess að geta lagt stjörnukort fyrir hana og spáö um einföldustu örlagaatriði, sem aðeins eru undir fæðingarstað og fæðingartima komin. — Fólk getur hringt til min og þá mun ég geta sagt margt um örlög viðkomandi, segir hann. — Ef sá, sem hringir er t.d. dæmi- geröur krabbamerkingur eða vatnsberi þá get ég einnig — enn án þess að lita viðskiptavininn augum — sagt til um, hvernig hún eða hann er I hátt. Útlit fólks er nefnielga einnig undir þvi komið i hvaöa sljörnumerki viðkomandi er fæddur. Ég er sjálfur gott dæmi þar um. Faðir minn, móðir og allir i minni fjölskyldu eru svarthærðir, þau hafa brún augu og dökka húð eins og svo margir Ungverjar, en ég — vegna fæðingarstundar minnar — fæddist hvithærður með blá augu og ljósa húð. En auövitað gilda þessar reglur ekki ávallt. Ef t.d. dönsk hjón flytja til Miö-Afriku og eignast barn, þá ætti það eftir plánetu- áhrifunum að dæma aö verða negri, og það verður aldrei. Út frá hreinni stjörnuspádómafræði er enn ekki hægt að segja til um, hvers vegna það finnast i heim- inum svo margir ólikir kynþættir, en ég er viss um, að ef við fengjum nægan tima og næg tæki- færi til þess að rannsaka þessa gátu, þá tækist okkur að finna hið rétta svar. Umhverfið getur einnig ráöið mjög miklu. Ef manneskja er þvinguð eða lokuð inni, þá nær hún ekki að þroska þau tækifæri og þá möguleika, sem plánetur- nar segja að viðkomandi eigi kost Hinn þekkti, ungverski stjörnu- spádómafræðingur, Ferenc Szöllösi, sem býr í Danmörku, hefur allt frá bví hann eekk í Það tekur tima og krefst mikillar fyrirhafnar aö leggja stjörnuspá- ~ ö dómskort en þá verður nákvæmni þess, sem spáð er, lika mjög mikil. skóla vitað, hvenær hann á að deyja. Hann staðhæfir að geta sagt sérhverri manneskju fyrir um hvenær dauðastund hennar rennur upp. Hann þarf aðeins á tvenns konar upplýsingum að halda............. Allt þetta gerir það að verkum, ■ að stjörnuspár geta verið mjög raunsannar ef stjörnuspádóma- fræðingur reiknar þær út fyrir eina og eina manneskju i einu. Spámaðurinn þarf að vita nákvæmlega hvenær og hvar við- skiptavinurinn er fæddur. Hið siðarnefnda er svo mikilvægt, að fjögurra minútna munur á fæöingartima getur merkt heils árs feilreikning i stjörnuspánni! Nú er þaö svo, að jafnvel Þjóð- skráin og skýrslur sjúkrahúsa eru ekki svo nákvæmar, að ekki geti skeikað þar minútum á upp- gefnum fæðingartima og skýrslu- gerðarmenn telja algeran óþarfa að fara lengra og nákvæmar út i þá sálma. En Szöllösi segir, að þaö skipti ekki svo miklu máli, þvi þegar hann sé kominn vel af stað meö að leggja stjörnukort fyrir mann þá hafi hann fengið svo miklar og margvislegar upp- lýsingar um viðkomandi, að hann geti sjálfur sagt fyrir um, hvort hinn uppgefni fæðingartimi geti verið réttur. Geti hann það ekki, þá getur Szöllösi i fljótheitum lag- fært það og reiknað upp á nýtt með hinum nákvæmlega rétta tima. á. A hinn bóginn þá mun stjörnu- kortið fyrirfram geta sagt til um, hvort viðkomandi verður lokaður inni. Það er allan tímann hægt að læra eitthvað. Þegar ég t.d. set upp stjörnukort með spádómstið til eins árs fyrir einstakling, þá mun það reynast 80% rétt. Það er svo sem nógu áhrifamikið, en ekki nógu áhrifamikið fyrir mig. Sem 'stendur hef ég mikinn áhuga á nýjustu niðurstöðum rannsókna stjörnufræðinga. Stjörnuspádómafræðin notast við 12 stjörnumerki, en aðeins tiu af þeim hafa rikjandi plánetu, sem menn þekkja — hinar átta plánetur i sólkerfinu auk sólar og mána. Vogin og tviburarnir hafa enga rikjandi plánetu. En nú telja bandariskir visindamenn, að i sólkerfi okkar fyrirfinnist tvær plánetur til viðbótar. Menn eru sannfærðir um, að þessar tvær plánetur eru til. Sennilega reynast þær vera „Minerva” og „Vulkan”. Ég tel, að i ljós muni koma, að Minerva sé rikjandi pláneta i vogarmerkinu. Minerva mundi þá reynast sú plánetan, sem fjarlægust er þeirra allra. Nú gætu menn haldið, að upp- götvun nýrrar plánetu myndi um- bylta öllu i stjörnuspddómafræö- inni, en þanng er það þó ekki. Slikt myndi aðeins hafa I för með sér, að við gætum lagt stjörnu- spákort með enn meiri nákvæmni. Mannfólkið hefur ávallt verið undir áhrifum frá Plútó, einnig þegar einginn vissi, að sú stjarna væri til. Sama máli gegnir um Minervu og Vulkan. En spurningin er einnig um persónuleika viðkomandi. Menn geta notað útvarpið til saman- burðar. Sé útvarpsmóttakari ekki sérlega fullkominn getur hann t.d. aðeins tekið við þvi, sem sent er á FM bylgju, en við vitum samt vel, að einnig eru til mið- bylgjur, langbylgjur og stutt- bylgjur. En þær verða aðeins numdar af betri móttökutækjum. Sama máli gegnir um manneskjurnar. Sumar þeirra hafa betri móttökutæki innbyggð en aðrar og geta þess vegna numið geimgeisla, sem eru svo veikir, að annað fólk verður ekki fyrir neinum áhrifum af þeim. Þannig er það með snillinga á sviði lista og visinda. Það hafa veriö áhrif frá fjarlægum himin- hnöttum, sem Beethoven varð fyrir og hann með sinum góöu innbyggðu „móttökutækjum” breytti i undursamlegar sym- fóniur. Og það var hið sama, sem t.d. olli þvi, að Leonardo da Vinci málaði sina Monu Lisu! Szöllösi tekur jafnvirði 6000 isl. kr. fyrir að leggja fæðingar- stjörnukort ásamt flóknara stjörnuspákorti til næstu 12 mán- aða. Hann endurnýjar árs- stjörnuspákort fyrir jafnvirði 2000 króna.... Ef menn óska eftir alveg nákvæmum upplýsingum um ákveðin timabil er gjaldið meira, en þá getur vinnan við gerð spádómsins lika staðið i heila viku. Szöllösi kennir ekki lengur við kvöldskólana þar sem hann i þrjú ár kenndi fimm bekkjum með 12- 20 nemendum á vetri hverjum. Nú hefur hann sinn eigin stjörnu- spekiskóla á Toravej á Nörrebro i Kaupmannahöfn. Þar er gjaldið fyrir 12 klst. kennslu á mánuði jafnvirði 1500 isl. kr. Hins vegar eru bekkirnir mjög fámennir. Szöllösi skortir aldrei nemendur. Stjörnuspádóma- fræöin er i sókn. Upp til stjarn- anna, sem eru svo miklu eldri en við mannverurnar. — Og svo miklu vitrari, segir Szöllösi. Þriðjudagur 26. júní 1973. o

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.