Alþýðublaðið - 27.10.1973, Side 1

Alþýðublaðið - 27.10.1973, Side 1
Nú er komið að iþróttamönnum að hljóta rós í hnappagatið. Hann hefur að vísu ekkert hnappagat þessi ungi maður, enda ekki siður ungra manna nú til dags að ganga i jakka- fötum. En rósinni var samt komið i barm hans, og blómarósin sem það gerði heitir Ingibjörg Rich- ards. Laugardagur 27. okt. 1973 álg. Jólaprestur sjónvarps kaþólskur Þjóðkirkjan er ekki lengur alls ráðandi í helgistund sjónvarpsins, því i desember— sjálfum jólamánuðinum — verður hún i umsjón kaþólsk prests, séra Sæmundar Vig- fússonar í Landa- koti. — Þetta þýðir þó ekki endilega, að þar með hafi sjónvarpið verið opnað fyrir öllum trúflokkum, sagði séra Emil Björnsson, yfir- maður frétta- og fræðsludeildar sjón- varpsins, í viðtali við fréttamenn blaðsins í gær. — Þessi til- högun er aftur á móti í fullu sam- ræmi við umræður í útvarpsráði. Sjálfum þykir mér þetta sjálfsögð víðsýni. Hins vegar vil eg ekki þvertaka fyrir að öðrum trú- f I okk um gef ist kostur á að sjá um helgistundina, þótt það hafi ekki verið rætt mér vitanlega. Sumardraumur unga mannsins — þotuferð í mjöllinni — fer nú senn að rætast. Við kveðjum gott sumar, og heilsum vetri í dag. IMA-MARK- AÐURIHN í KÓPAVOGI Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti á fundi i gær aö heimila IMA kaup- mönnum að setja upp stórmarkað i 500 fermetra plássi i húsnæði trésmiðaverkstæðis Axels Eyjólfssonar, við Smiðjuveg i Kópavogi, og gildir heimildin til næstu fimm ára. Að þeim tima loknum hyggjast IMA kaupmenn fá lóð i nýju hverfi, sem á að risa innst á Kópavogshálsinum. Þetta er i annað sinn, sem IMA kaupmenn sækja um heimild til þess að koma upp stór- markaði. 1 fyrra skiptið sóttu þeir um lóð i svo- nefndri Mjódd i Breið- holti, og sóttu O. Johnson og Kaaber og Eggert Kristjánsson einnig um lóð þar. 1 það sinn fengu Kaupmannasamtökin þvi framgengt, að úthlutun verslunarlóða á þessum stað yrði frestað, og sagði Gunnar Snorrason, for- maður Kaupmannasam- takanna, við Alþýðu- blaðið, að samtökin hefðu farið fram á, að úthlutun yrði frestað til fimm ára „til þess að kaupmenn- irnir i hverfinu fái tæki- færi til að koma undir sig fótunum,” sagði Gunnar. Sagði hann, að Kaup- mannasamtökin hafi verið á móti stórmarkaði á þessum stað, án þess að þau gerðu nokkuð til að koma i veg fyrir tilkomu hans að þessu sinni. Kaupmenn i grennd við þennan fyrirhugaða stór- markað eru ekki ýkja hrifnir af hugmyndinni, að sögn Jóns Þórarins- sonar i Vörðufelli, og sagði hann, að mark- aðurinn komi tvimæla- laust til þess að draga úr verslun hjá þeim. Hins- vegar sagðist hann siður en svo vera á á móti mörkuðum sem þessum, en benti á, að setja ætti þá niður þar sem gert er ráð fyrir þeim, ,,en ekki i kjallara á trésmiðaverk- stæði”, eins og Jón sagði Fiskiskip fyrir tvo milljarða A yfirstandandi ári hafa verið flutt til landsins fiskiskip fyrir meira en tvo miljarða króna fram til ágúst- loka. A hinn bóginn voru á þessu ári veittar til hafnarbóta 270 miljónir króna, og stór hluti þessarar fjárhæðar fór til greiðslu á eldri fram- kvæmdum. Þetta kom fram á ársfundi Hafnarsam- bands sveitarfélaga. 1 ræðu komst formaður sambandsins, Gunnar B. Guðmundsson, þannig aðorði-. ,,Má fukyrða, að með þvi framlagi hafi engar ráðsta fanir verið gerðar til þess að veita hinum ört vaxandi fiski- skipaflota viðhlitandi hafnaraðstöðu. Ýmsar hafnir eru vanbúnar þvi að taka á móti nýjum fiskiskipum, sem til staðanna hafa verið keypt, og nauðsynlegt er, að samræmi sé milli fjárfestinga i fiskiskipum, hafnar- mannvirkjum og fisk- vinnslusöðvum á sama stað.” A fundinum kom einnig fram, að sveita- stjórnir telja,að á árunum 1973-1976 þurfi að verja 2600 milljónum til hafnarframkvæmda, ef vel eigi að vera. Kristján Ben. borgarfulltrúi: ,EKKI ALLT FENGIÐMEI SAMEIGIN- LEGUM LISTA’ — Ef við værum 100% vissir um að öll atkvæði flokkanna fjögurra, það er Alþýðuflokksins, Al- þýðubandalagsins, Framsóknarflokksins og Samtaka frjáls- lyndra og vinstri manna, kæmu á sam- eiginlegan lista, þá væri það náttúrlega best. Og ég útiloka enga mögu- leika. Svo fórust orð Krist- jáni Benediktssyni, borgarfulltrúa Fram- sóknarflokksins, þegar fréttamaður Alþýðu- blaðsins spurði hann um fund ,,um borgarmál og samvinnu og samstarf vinstri flokkanna”, sem auglýstur var i Timan- um á fimmtudaginn. — Þessi fundur er haldinn af fulltrúaráði Fram- sók narfélaganna i Iieykjavik, sagði Krist- ján, —-og við Guðmund ur G. Þórarinsson og Alfreð Þorsteinsson höfum einfaldlega verið fengnir tii að halda framsöguræður á fund- inum. Þetta er og fyrsti lundurinn, sem full- trúaráðið hefur haldið i langan tima, en hann þýðir ekki, að samein- ingarmálin séu komin nokkuð lengra innan Framsóknarflokksins en Alþýðublaðið veit og þegar hefur verið skýrt frá. Kristján Benedikts- son kvaðst ekki geta út- talað sig um sina per- sónulegu skoðun á þvi, hvort „vinstri flokkarn- ir” byðu sameiginlega fram i borgarstjórnar- kosningunum að vori, en i auglýsingunni er og sagt að ræddar verði „væntanlegar borgar- stjórnarkosningar”. — Það er ekki vist að allt sé fengið með sameigin- legum lista, sagði Krist- ján. — Samstaða um málefnin skiptir meira máli og hún "hefur að undanförnu verið all- góð.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.