Alþýðublaðið - 27.10.1973, Qupperneq 10

Alþýðublaðið - 27.10.1973, Qupperneq 10
Nýtt met Þetta cr Dino Zoff, mark- vörður italska lisins Juventus og jafnframt landsliösmark- vörður. Hann hefur nýlega sett merkilegt heimsmet, hefur leikið samtals 827 minútur i italska landsliðs- markinu án þess aö fá á sig mark, eða í níu leiki. Zoff, sem er 31 árs, getur enn bætt metið, þvi hann á enn eftir að fá á sig mark. !!!! Tvö ■ ■■■ iiii héraðsmót í ■ ■■■ ■ ■■■ 1 handbolta ■ ■■■ ■■■: Héraðsmótunum tveim i hand- ■■:: knattleik, Reykjavikur- og :::: Reykjanesmóti, verður haldið :::: áfram um helgina. :::: I dag verður leikið i Laugar- jjjj dalshöllinni klukkan 15.30, og fara jjjj fram leikir i yngri fiokkunum. A jjjj morgun klukkan 13 hefst Reykja- :::: nesmótið i Hafnarfirði klukkan 13. Verður fyrst leikið i yngri flokkunum, en siðan i m.fl. karla :::■ kl. 17.10. ■ ■■■ Síöasta heliarstökkið i gær hófst i London Evrópu- meistaramót í fimleikum. Er þar samankomiö allt besta fimleika- fólk álfunnar, og eins og svo oft áður reikna menn með því aö Sovétrikin taki til sin flestum gullunum. I.öngu cr uppselt á Evrópumótiö, og er það aöallega vcgna Olgu Korbut, sovésku stúlkunnar sem vann hug og hjörtu allra á siðustu Olymplu- leikum, auk allra gullanna. Nú má Olga i siðasta sinn taka sitt fræga stökk, tvöfalt heljarstökk á slá, stökkið sem hún getur ein framkvæmt. Það verður nefni- lega bannað eftir EM. Myndin er af Olgu (t.v.) ásamt annarri frægri frá Sovétrikj- unum, Ludmiilu Toutistschewu. Köstin ekki óreynslulaus! Það er ekki áreynslulaust að vera i kringlukastinu! Þetta sannfærðumst viö um þegar við rákumst á þessar myndir sem Friðþjófur ljósmyndari tók i sumar. A efri myndinni er Erlendur Valdimarsson að þeyta kringlunni, og á þeirri neðri er tékkneski ólympiumeistarinn Ludvik Danek að gera það sama. Myndirnar voru teknar á Laugar- dalsvellinum i sumar. Aðalfundir tveggja íþróttadeilda AÐALFUNDUR badmintondeild- ar Vals verður haldinn i Vals- heimilinu að Hliðarenda fimmtu- daginn 1. nóvember klukkan 20,30. Venjuleg aðalfundarstörf. AÐALFUNDUR knattspyrnu- deildar Vikings verður haldinn i Vikingsheimilinu við Hæðargarð, miövikudaginn 31. október n.k. og hefst klukkan 20.00. Fundarefni venjuleg aðalfundarstörf. 3 Verða Ef að likum lætur, mun Reykjavikurmótinu i körfuknatt- leik ljúka um þessa helgi. Þá fara fram tveir leikir i Laugardals- höllinni á sunnudagsk völd klukkan 20. Fyrst leika KR og 1R, en siðan Armann og Valur. KRstendurnú langbestað yigi. Liðið er taplaust, og mundi tryggja sér sigurinn með þvi að vinna 1R annað kvöld. Ef hins vegar tR vinnur, verður málið öllu flóknara. Þá verða KR og tR jöfn með sex stig, og Valur getur blandað sér i hópinn með þvi að vinna Armann. Það getur þvi komið til þriggja liða úrslita um Reykjavikurmeistaratitilinn. Eins og fram. hefur komið i fréttum, eru leikmönnum veitt verðlaun fyrir góða frammistöðu. Tvenn verðlaun eru veitt, besta lið jöfn í körfunni? varnarmanninum og best vita- skyttunni. Bjarni Gunnars Sveinsson IS er liklegur til að hreppa vitabikarinn, en alveg er óljóst hvaða leikmaður verður kjörinn besti' varnarmaðurinn. Stjórn KKRR mun sjá um það val. Kristinn Jörundsson, besti maöur tR. skorar i leiknum við Val. Annað kvöld á ÍR i höggi viö erkióvininn KR. Mynd Smarsi. Ný kylfutegund veldur byltingu Nú eru liðin rúm 2 ár siðan fyrstu kolsköftin eða „carbon shafts”, komu á markaðinn i Bandarikjunum. Þau komu i kjölfar álskaftanna, sem mistókst algerlega að gera vinsæl þegar i upphafi. Með tilraununum með gler- fibersköft, sem reynt var að setja á markað um likt leyti og álið var að hverfa af sjónarsvið- inu, leiddust tæknimennirnir inná þær brautir, sem gerð skafta úr kolefni (carbon) i dag er árangurinn af. Þessi nýju sköft, sem ég leyfi mér að kalla „kolsköft” eru að útliti til svipuð glerfibersköftunum. Kostir þeirra eru hins vegar margfaldir á við glerfiberinn. t nýútkomnu októberblaði Golf Monthly bls. 49-52 segir banda- riski atvinnumaðurinn Iry Schloss frá reynslu sinni af notkun þessara skafta og mun ég styðjast við grein hans að miklu leyti. Schloss segist hafa unnið við kennslu og kylfusmiði i 45 ár og hefur sjálfur komið fram með ýmsar tæknilegar nýjungar i gerðstálskafta. Hann heldur þvi fram, aðsköftþurfi að vera sem allra stifust almennt, til að fyrirbyggja hliðarsveigju (torque), sem getur dregið úr öryggi með stefnu i leik. Það er alltaf talsverð hliðarsveigja i kylfum með stálsköftum að áliti Schloss en næstum engin i kol- sköftunum. Þyngd stálskaft- anna er frá 110-145 gr. en kol- sköftin eru aðeins 90-120 gr. Þessi 2 ofannefndu atriði eru nánast gjörbylting að dómi Schloss, sem fullyrðir, að kol- sköftin séu jafn mikilvæg tækni- nýjung og þegar stálsköftin tóku við af hickorysköftunum uppúr 1930. Hann telur, að þessi nýju sköft geti aukiö högglengd allra kylfinga og að öllum muni þykja munskemmtilegra að leika golf með þeim vegna þess hve létt þau eru. Reynslan hefur sýnt, að kylfingar hafa lengt högg sin 5-20 m meökolsköftunum og leggur Schloss áherslu á að þessi nýju sköft komi kvenfólki og eldri kylfingum mest til góða og er gott til þess að hugsa i ellinni. Kolsköftin eru nú sem óðast að koma á markaðinn og hlýtur verð á kylfum með þeim að lækka smám saman. 1 dag kostar hver kylfa frá 6-8 þúsund krónur og er slikt verð alltof hátt til að kylfingar almennt geti keypt sér sett af slikum dýrgripum. Nú er ráðið að biða átekta og sjá hvort verð- lækkunin verður ekki veruleg strax á næsta ári. Að sögn Schloss þarf að hugsa mun betur um kolsköftin en stálsköftin. Það verður að vefja einangrunarbandi um kylfu- legginn vegna núnings i pok- anum og þar að auki verður að bera glært lakk á sköftin öðru hvoru til hlifðar. Ef til vill eru islenskar aðstæður of erfiðar fyrir svona kjörgripi, en gaman væri að eignast 1-2 stk. og prófa hver endingin verður. Það má þvi segja að golfkylfan fari að verða nokkuð fullkominn smiðis- gripur, þegar þessi furðusköft eru fest á kylfuhausa, sem mótaðir eru i heilu lagi, eins og nú er tiska. Newcastle og Orient efst Hér kemur svo hinn fróðlegi listi sem breska biaðið Daily Mail heldur um þau lið sem leika bestu og skemmtilegustu knattspyrnuna. Veita fréttamcnn blaðsins liðunum einkunnir. Newcastle er enn efst I 1. deild og Orient i 2. deild. Fremst er fjöldi leikja i 1. deild- inni, þá stig fyrir leik siðustu helgar og loks samanlögð stigatala. I. DEILD . DEILD Newcastle ...... 12 8 9G Leetls ......... 12 8 94 Coventry ....... 13 5 92 Leioester ...... 12 9 87 Burnley ........ 12 6 86 Man. City ...... 12 6 85 Derby ........... 13 10 84 O.P.R........... 12 8 84 Liverpool ...... 12 8 82 Sheffield Utd. ... 12 6 81 Ipswich ........ 12 4 77 Wolves ......... 12 5 74 West Ham ....... 12 5 73 Norwich ......... 12 7 72 Chelsea ........ 12 6 71 Stoke .......... 12 6 71 Spurs .......... 12 7 70 Birmingham ... 12 3 69 Southampton ... 12 7 69 Arsenal ........ 12 4 67 Everton ........ 12 7 66 Man. Utd........ 12 5 54 D Orient ......... 12 9 88 NotUm. Forest .. 12 8 81 Bristol City ... 12 7 79 Portsmouth ..... 12 7 78 Htill .......... 12 9 76 Middlesbrout;h .. 12 7 76 Sunderland ..... 10 9 76 Sheffield Wed. ... 12 3 76 Sunderland ..... 10 9 76 A. Villa ....... 12 7 75 Notts. Co...... 12 7 72 Carlisle ....... 12 5 68 Bolton ......... 10 6 67 Luton .......... 10 7 67 Preston ........ 12 5 67 We3t Brom....... 12 7 67 Millwall ....... 12 5 65 Swindon ........ 12 6 65 Fulliam ........ 12 5 64 Oxford ......... 12 5 64 Blackpool ...... 12 4 61 Crystal Palace .. 12 6 61 Cardiff ........ 10 2 53 Laugardagur 27. október 1973

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.