Alþýðublaðið - 30.01.1974, Page 11
Byrjaður með hvað?
Byrjaður að spara!
Spara fyrir hverju?
Spariláni, auðvitað!
Landsbankinn gefur allar upplýsingar
um reglubundinn sparnað og sparilán.
Lesið bæklinginn um
Varði 12 víti
leik!
i einum
Besti handknattleiksmarkvöröur heimsins er án nokkurs vafa
Júgóslavinn Abas Arslanagic. t siöustu Heimsmeistarakeppni
varð hann heimsfrægur vegna frábærrar frammistöðu sinnar,
einkum i leik gegn Dönum, er hann varöi alls sex vitaköst, og sá til
þess að Danir- töpuðu úrslitaleiknum um þriðja sætið með stór-
kostlegum mun og mikilli skömm. Arsianagic hefur nú nýiega
bætt þetta met sitt svo um munar, þvi i deildarleik i Júgósiaviu
fyrir skömmu, varði hann alls 12 vltaköst! Með slikan markvörð I
sinum röðum eru lið ekki á fiæðiskeri stödd, enda hefur félag hans,
Borac Banja Luka, verið i fremstu röð.
Hér sjáum við þennan mesta „vitabana” handknattleiksins
verja I landsleik gegn Vestur-Þjóðverjum um helgina, en hann
varði þrjú af fjórum vitum, sem Þjóðverjarnir fengu. Arslanagic
kom hingað til lands með landsliði Júgóslaviu 1971, og muna ef-
laust margir eftir þessum stóra og stæðilega markverði. Lands-
liðsmenn okkar gleymdu honum ekki svo fljótt!
Iliiiii
Skjaldarglima
Skjaldarglima Ármanns
1974 fer fram 10 febrúar n.k.
Þátttökutilkynningar berist
Glimudeild Armanns, pósthólf
104 Reykjavik, i siðasta lagi 3.
febrúar 1974.
Formaðurinn
sigraði!
Knattspyrnumót
skólanna
Ráðgert er að hefja knatt-
spyrnumót framhaldsskól-
anna upp úr miðjum febrúar.
Þeir skólar, sem huga á þátt-
töku I mótinu, eru beðnir að
senda þátttökutilkynningar til
Knattspyrnusambands ís-
lands, pósthólf 1011, fyrir 5.
febrúar.
Tilkynning frá K.S.t.
Glimunámskeið
Ungmennafélagið Vikverji
gengst fyrir glimunámskeiði
fyrir byrjendur 13 til 20 ára og
hefst það miðvikudaginn 30.
janúar n.k. I Iþróttahúsi Jóns
Þorsteinssonar Lindargötu 7
— minni salnum. Kennt verð-
ur á mánudögum, miðviku-
dögum og föstudögum kl. 7—8
siðd.
Á glimuæfingum Vikverja
er lögð áhersla á alhliða
likamsþjálfun: fimi, mýkt og
snarræði.
Ungmennafélagar utan
Reykjavikur eru velkomnir á
glimuæfingar félagsins.
Komið og lærið holla og
þjóðlega iþrótt. (Frá
Vlkverja)
íþróttablaðið
Iþróttablaðið er fyrir
nokkru komið út, 64 blaðsiður
að stærð. Blaðið er hið vand-
aöasta að allri gerð og fjöl-
breytt að efni. Verð þess er 95
krónur eintakið. Blaðið kemur
út hálfsmánaðarlega.
Tiunda Bikarglima Vikverja
— afmælismót — var háð i
tþróttahúsi Jóns Þorsteinssonar
sunnudaginn 27. janúar 1974.
Mótið var sett af Kjartani
Bergmann Guðjónssyni og var
hann einnig glimustjóri. A und-
an glimukeppninni fór fram
bragðasýning og nokkrar sýn-
ingarglimur en auk þess sýndu
12 drengir glimu, en keppendur i
Bikarglimunni voru 10, svo
segja má, að þátttakendur I
þessu afmælismóti hafi verið 22.
Margir eldri glimukappar
voru viðstaddir á þessu af-
mælisglimumóti, sem þótti tak-
ast ágætlega.
Keppt var um bikar, sem
Búnaðarbanki íslands hafði gef-
ið I tilefni 10 ára afmælis félags-
ins. Verðlaun afhenti Friðjón
Þórðarson, alþingismaður, sem
er i bankaráði Búnaðarbank-
ans. Að verðlaunaafhendingu
lokinni flutti Skúli Þorleifsson,
glimukappi ávarp og árnaði
glimumönnum og islensku
glimunni heilla á komandi ár-
um. Guðmundur Guðmundsson
form. GLl sleit mótinu.
Dómnefnd skipuðu þessir: Yf-
irdómari Lárus Lárusson og
meðstjórnendur Hafstein Þor-
valdsson og Kristmundur Guð-
mundsson.
Glimuúrslit urðu þau, að Sig-
urður Jónsson varð bikarhafi 1
fjórða skipti I röð.
Annars varð úrslitaröðin
þessi:
1. Sigurður Jónsson 8 1/2 v.
2. Pétur Yngvason 7 1/2 v.
3. Hjálmur Sigurðsson 6 v.
4. Þorsteinn Sigurjónsson 6 v.
5—6. Gunnar R. Ingvarsson 5 v.
5—6. Kristján Andrésson 5 v.
7. Halldór Konráðsson 3 v.
8. öskar Valdimarsson 2 v.
9—10. Eirikur Þorsteinss.l v.
9—10. Þóroddur Helgason 1 v.
UMF Vikverji var stofnað 9.
okt.1964. Fyrsti formaður var
Halldór Þorsteinsson, siðan tók
Valdimar óskarsson við for-
mennsku, en nú er Sigurður
Jónsson glimukappi formaður
félagsins.
Sigurður Jónsson, formaður
Vikverja, bar sigur úr býtum i
afmælisglimu félagsins.
Miðvikudagur 30. ianúar 1974