Alþýðublaðið - 20.03.1974, Side 4
GYLFI Þ. 6ÍSUS0H SKRIHR I MINHIHGU
ÐR. BOBEBTS A. OnOSSOHftR
LISTIN QG
LOTMINGIN
FYRIR HENNI
Dr. Róbert A. Ottósson var af
erlendu bergi brotinn. Tónlist-
armenntun hans var með al-
þjóðlegu sniði. Og hæfileikar
hans voru slikir, að hann hefði
eflaust getað rutt sér braut á
sviði heimslistar og hlotið þar
viðurkenningu. Samt gerðist
hann tslendingur á fullorðins-
aldri. Og hann varð sannur ts-
lendingur, — ef til vill ekki sist
vegna þess, að hann var þegar
orðinn þroskaður heimsborgari
i heimi tónlistarinnar, þegar
hann kynntist þvi, sem var og er
sérstætt i islenzkri menningu,
að fornu og nýju.
Islendingar eiga Róbert A.
Ottóssyni það að þakka, að þeir
hafa heyrt ýmis helstu og vand-
meðförnustu listaverk tónbók-
menntanna flutt af löndum sin-
um. Það hefur ekki aðeins verið
þeim, sem á hafa hlýtt, til gleði
og þroska, heldur hefur það
aukið trú bæði áheyrenda og
flytjenda á getu og framtið is-
lenzkrar menningar. Þegar Ró-
berts A. Ottóssonar er minnst,
er ef til vill ekki óeðlilegt, að
efst i huga sé þakklæti fyrir ó-
gleymanlegar stundir, þegar
hann hélt á tónsprota. En
kannske er hann ekki minna
virði, kjarkurinn, sem hann gaf
þjóð sinni með þvi að ráðast i
verkefni, sem að óreyndu hlutu
að virðast litt viðráðanleg, og
valda þeim til fullnustu, —
bjartsýnin, sem hann með elju
sinni, kunnáttu og hæfileikum ól
og efldi með öllum þeim, sem
hann flutti boðskap sinn og
fluttu hann með honum.
Áreiðanlega var það ekki til-
viljun, að Róbert A. Ottósson
lagði áherslu á að kynna þjóð
sinni stórvirki trúarlegrar tón-
listar. En hann túlkaði ekki að-
eins þau verk með þeirri lotn-
ingu fyrir hinu háleita, sem er
aðalsmerki sannrar trúar, held-
ur öll tónverk, sem hann flutti.
Hann þekkti þörfina á þrotlausri
vinnu, hann skildi nauðsyn
þekkingar, en hann vissi lika, að
enn meira þarf til þess að list
verði til.
Liklega er það sjaldgæft, að
listamenn séu jafnframt vis-
indamenn, þótt áreiðanlega sé
miklu meira sameiginlegt af-
rekum i listum og visindum en
almennt er viðurkennt. En Ró-
bert A. Ottósson var einnig vls-
indamaður, eins ög doktorsrit
hans um Þorlákstiðir og önnur
ritverk hans munu bera vott
um.
I siðasta skipti, sem sá, er
þetta ritar, heyrði Róbert A.
Ottósson leika á slaghörpu, var,
er samkomu i hátiðasal Háskól-
ans i tilefni af 150 ára afmæli
séra Arnljótar ölafssonar
skyldi ljúka þannig, að við-
staddir syngju lag Sigvalda
Kaldalóns „Island, ögrum skor-
ið”. Róbert A. Ottósson hafði
tekið að sér að leika á hljóðfær-
ið. Auðvitað lék hann af fingrum
fram. Þetta alkunna lag hafði
aldrei hljómað i eyrum mér eins
og það gerði þarna i höndum
hans. Einu gilti, hvort hann
fékkst við volduga hljómkviðu
eða einfalt lag. Það var ávallt
listin og lotningin fyrir henni,
sem réði.
HANN GAF ÞJÓÐ SINNI KJARKINN
Stillingar og viðgerðir
á oliukyndingum.
Oliöbrennarinn s.f.
Simi 82981
•BíLnÞJónusinn HnmnnriRDi*
Komið og gerið við sjálfir.
Góð verkfœra og varahluta-
yj þjónusta.
Opið frá kl. 8—22.
Látið okkur þvo og bóna bilinn.
Fljót og góð þjónusta. Mótor-
þvottur og einnig ryðvörn.
Pantanir í s!ma 53290. '
BnnÞJonusTnn
Haf narf irói, Eyrartröó 6
Volkswageneigendur
Höfum fyrirliggjandi: Bretti — Hurðir —
Vélarlok — Geymslulok á Volkswagen i
allflestum litum. Skiptum á einum degi
með dagsfyrirvara fyrir ákveðið verð.
Reynið viðskiptin.
Bilasprautun Garðars Sigmundssonar
Skipholti 25. Simar 19099 og 20988.
M/s Esja
fer frá Reykjavik miðvikudaginn
27. þ.m. austur um land i hring-
ferð.
Vörumóttaka: fimmtudag og
föstudag tii Austfjarðahafna,
Þðrshafnar, Raufarhafnar,
Húsavikur og Akureyrar.
H. Helgason hf. SWMIPJA
NWcgUM
éLM
MINNINGAR-
SPJÖLD
HALLGRÍMS-
KIRKJU
fást í
)
Hallgrímskirkju (Guðbrandsstofu),
opið virka daga nema laugardaga kl.;
:2-4 e.h., sími 17805, Blómaverzluninnl
Domus Medica, Egílsg. 3, VeTzl. Hall-
dóru Ólafsdóttur, Gretlisg. 26, Verzl!
Björns Jónssonar, Vestuígötu 28, og
Biskupsstofu, Klapparstíg 27.
A
Kjörskrá
Kjörskrá fyrir bæjarstjórnarkosningar i
Kópavogskaupstað, sem fram eiga að fara
sunnudaginn 26. mai 1974, liggur frammi
almenningi til sýnis á bæjarskrifstofunni i
Kópavogi frá kl. 8,30-15 alla virka daga,
nema laugardaga, frá og með 26. marz til
og með 23. april 1974.
Kærum út af kjörskrá skal skila til
bæjarstjóra fyrir kl. 24 laugardaginn 4.
mai 1974.
Bæjarstjórinn í Kópavogi.
Auglýsing
um notkun heimildar i 60. tl. 3. gr. laga nr.
6/1974 um tollskrá o.fl.
Ráðuneytið tilkynnir hér með þeim aðil-
um, sem hlut eiga að máli, að það hefur
ákveðið, skv. heimild i 60 tl. 3. gr. laga
nr. 6/1974 um tollskrá o.fl., að af vélum og
hráefnum til iðnaðar tollafgreiddum á
timabilinu 1. janúar til 5. mars 1974 skuli
endurgreiðaeðafellaniður gjaldamun eins
og hann reiknast vera af vörum þessum
annars vegar skv. eldri tollskrárlögum nr.
1/1970 og hins vegar skv. nýsettum toll-
skrárlögum nr. 6/1974.
Endurgreiðslubeiðnir skulu sendar ráðu-
neytinu i skriflegu erindi og hafa borist
eigi siðar en 15. april 1974. Aðeins verður
um niðurfellingu eða endurgreiðslu gjald-
munar að ræða til fyrirtækja, sem leggja
stund á framleiðslu iðnaðarvara.
Endurgreiðslubeiðnir iðnfyrirtækis
skulu studdar eftirfarandi gögnum:
1. Frumriti tollreiknings (ekki ljósrit),
ásamt vörureikningi (faktúru).
2. Útreikningi aðflutningsgjalda á við-
komandi vörum, samkvæmt lögum um
tollskrá o.fl. nr. 6/1974, er gerður sé á
venjulegri aílutningsskýrslu. Skal
skýrslan fyllt út eins og fyrri skýrsla,
að öðru leyti en þvi, að reikna skal út
gjöld með hinum breytta tolli.
í erindinu skal tilgreina sérstaklega út-
reiknaðan gjaldamun skv. lögum nr.
6/1974 og lögum nr. 1/1970 um tollskrá o.fl.
Jafnframt skal i erindinu vera yfirlýsing
endurgreiðslubeiðanda um, að hann
stundi iðnrekstur og að viðkomandi vörur
séu eingöngu ætlaðaf til framieiðslu iðn-
aðarvara.
Nú hefur innflytjandi iðnaðarhráefni eða
iðnaðarvél i birgðum hinn 15. april 1974,
sem tollafgreidd há?a verið á timabilinu 1.
janúar til 5. mars 1974, og skal þá heimilt
að endurgreiða gjaldamun af fyrrgreind-
um vörum, enda hafi sala þeirra innan-
lands til nota við framleiðslu iðnaðarvara
átt sér stað fyrir 15. mai n.k. Iðnfyrirtæki
eða iðnrekandi, sem keypt hefur vöruna,
skal þó sækja um endurgreiðsluna, sbr.
framanritað.
Endurgreiðslubeiðnir, sem berast ráðu-
neytinu eftir 1. júni 1974, verða ekki teknar
til greina.
Fjármálaráðherra skipar 3 menn, bar af
einn eftir tilnefningu Félags isl. iðnrek-
enda til að fjalla um endurgreiðsluhæfi
endurgreiðslubeiðna. Úrskurður þeirra er
fullnaðarúrskurður i hverju þvi máli, sem
fjallað verður um skv. ákvæðum auglýs-
ingar þessarar.
Fjármálaráðuneytið, 19. mars 1974.
0
Miðvikudagur 20. marz 1974.