Alþýðublaðið - 22.05.1974, Side 12
Hæg norðlæg
átt verður við
SV-landið í dag
og má búast
við smáskúrum.
Hitinn verður
sex til níu stig.
Lægð yfir
Grænlandshafi
á austurleið.
KRILIÐ
Skýringar
Lárétt:
1. Skrá. 6. Meðvitundarleysi. 7.
Snjókoma. 8. Þrir eins. 9.
Fótaklæðnað. 10. Bindindissam
tök. 11. Vinna. 12. Óþekktur. 13
Fyrirhöfn. 14. Stulku (nafn) 16
Veggur 17. Rólegur.
Lóðrétt:
2. Bretlandseyju. 3. Sunna. 4
Tveir eins 5. Hópur. 7. Akur. 8
Happ. 9. Setur saman. 11
Arstið. 15. Belti.
Bókhaldsaðstoð
með tékka-
færslum
BÚNAÐAR-
BANKINN
KOPAVOGS APOTEK
Opið öll kvöld til kl. 7
Laugardaga til kl. 2
Sunnudaga milli kl. 1 og 3
Þannig verður tekiö a moti
landslyð á Þingvöllum
Eitt af þvi, sem gert hefur
verið fyrir Þjóðhátiðina, er að
stækka Þingvallabæinn. Ný-
lega var lokið við byggingu
tveggja bursta til viðbótar
þeim þremur^sem fyrir voru.
Einn dag i júli, nánar tiltekið
sunnudaginn 28. júli, stefna tug-
þúsundir manna, hvaðanæva að
af landinu, á einn stað til að
dvelja þar i einn dag. Þessi
staður er Þingvellir, og þar er
nú að komast i fullan gang
undirbúningur undir móttöku
þessa mannfjölda.
Þegar Indriði G.
Þorsteinsson, framkvæmda-
stjóri Þjóðhátiðar 1974, fór i boði
Alþýðublaðsins austur að Þing-
völlum á mánudaginn, skýrði
hann blaðamanni blaðsins i
stórum dráttum, hvernig
ákveðið hefur verið, að fyrir-
komulag bilastæða, tjaldstæða
og þjónustumiðstöðva verður á
Þingvöllum.
Fyrst er að nefna bilastæði,
sem verða á þremur stöðum,
og á að rúma 17.250 bila á
295.000 fermetra svæði, og tjald-
stæði, þar sem gert er ráð fyrir
að setja megi niður 2.650 tjöld á
um 50.000 fermetra svæði.
Stærsta bilastæðið, sem er 110
þúsund fermetrar, og rúmar
6.900 bíla, verður i Kárastaða-
landi, við gamia veginn niður að
Almannagjá. Þeir, sem leggja
bilum sinum þar fara stystu leið
niður að hátiðarsvæðinu undir
Fangbrekku um veginn niður
Almannagjá, sem heitir Kára-
stigur frá fornu fari. Næsta bila-
stæði er 55.000 fermetrar og
rúmar 31.000 bila. Það er við
Svartagilsá, sunnan við
Biskupsbrekknahraun, en fyrir
yestan þessi bilastæði eru fyrstu
skipulögðu tjaldstæðin á 40.000
fermetrum, þar sem eiga að
rúmast 2.200 tjöld. Svæði þetta
nefnir þjóðhátiðarnefnd mann-
vistarsvæði, enda verður
stærsta tjaldborgin væntanlega
þar. Skammt fyrir neðan þetta
svæði, á Leiru, þar sem þjóð
vegurinn liggur inn i þjóðgarð-
inn, er gert ráð fyrir, að rúmist
7.250 bilar á 130.500 fermetra
svæði. Við veginn inn að
Skógarhólum og Bolabás er gert
ráð fyrir svæði fyrir hjólhýsi, en
á þessum tveimur nefndu
stöðum er gert ráð fyrir, að fólk
geti sett niður tjöld sin, en þau
svæði eru ekkert skipulögð, og
þar verður þvi ekki veitt sú
þjónusta, sem veitt verður á
skipulögðu tjaldstæðunum. Þá
er að lokum svæði fyrir 450 tjöld
ofan vegar á Leiru fyrir sunnan
vegamótin.
Til þess að koma i veg fyrir,
að umferðaröngþveiti skapist i
þjóðgarðinum hefur verið
ákveðið, að fram til klukkan
fjögur þjóðhátiðardaginn verði
einungis leyfð umferð að Þing-
völlum, en eftir þann tima verði
aðeins leyft að aka frá staðnum.
Enn fremur verður lögreglu-
vörður við Arbæjarvegamótin
ofan við Reykjavik, og verður
umferðinni af höfuðborgar-
svæðinu beint um Vesturlands-
veg og Hellisheiði, þegar Mos-
fellsheiði tekur ekki lengur við.
Þá kemur nýi vegurinn,
Klukkustigur, .milli Leiru og
Gjábakka, inn i myndina, þvi
honum er ætlað að taka við
þeirri umferð og allri annarri
umferð af Suðurlandi, Suð-
austurlandi og liklega að mestu
af Austurlandi um hringveginn.
Þegar komið er að Þing-
völlum, verður öllum bilum
skipað niður á stæðin, þar sem
þeir eiga siðan að biða eigenda
sinna, þar til þeir halda heim-
leiðis að kvöldi dags. Bæði bila-
stæðiog tjaldstæði verða völtuð,
og er það verk hafið. Eftir
helgina var gerð tilraun með að
draga tólf tonna valtara yfir eitt
bilastæðanna, og tókst sú til-
raun vel. Þegar fólk hefur
gengið frá bilum sinum á stæð-
unum, standa til boða strætis-
vagnaferðir á hátiðasvæðið.
A skipulögðu tjaldstæðunum
verðurkomið upp snyrtiaðstöðu
og sölutjöldum, auk salerna,
sem þegar er byrjað að reisa
viðsvegar um svæðið. Þá er
verið að reisa stjórnunarmið-
stöð, aðsetur lögreglu og
hjálparsveitar , og á Leiru
verður lendingarstaður fyrir
þyrlu. A mannvistarsvæðinu
verður flugvöllur fyrir litlar
flugvélar, sem verða ætið til
taks, og einnig sjúkratjald, þar
sem aðstaða verður til að veita
sjúkum og slösuðum fyrstu
hjálp, áður en þeir verða fluttir
flugleiðis á slysadeild eða
sjúkrahús i Reykjavik.
17.250 bílastæði og 2650 tjöld á 79.500 fermetrum
FIMM á förnum vegi
Finnst þér þú þurfa að grenna þig?
Sigurður Sigurösson, kaup-
maður: Nei, ég má ekki missa
eitt einasta kiló.
Eggert Proppé, verslunar-
maður: Nei, ég er alveg að
veslast upp.
Baldur Sigurðsson, bifreiðar-
stjóri: Já. É g var búinn að ná
mér niður, en baðvigtin tekur
mig ekki nú orðið.
Ingunn Magnúsdóttir, af-
greiðslustúika: Já, mér finnst
það, og ég skal gera það.
Karl Karlsson, sjómaður: Nei,
ég held það sé engin þörf á þvi —
mætti kannske heldur bæta
svolitlu á mig.