Alþýðublaðið - 11.07.1974, Page 2
Bifvélavirkjar
Vélvirkjar
eða menn vanir viðgerðum á þungavinnu-
vélum óskast strax.
Fæði og húsnæði á staðnum. Upplýsingar i
sima 11790 Reykjavik og 92-1575 Keflavik-
urflugvelli.
íslenskir aðalverktakar s.f.
FISKVINNSLUSKÓLINN
Innritun nýrra nemenda stendur yfir.
Umsóknir um skólavist ásamt afriti af gagnfræðaprófs- eða
landsprófsskirteini sendist skólanum fyrir 15. júli n.k.
Fiskvinnsluskólinn, Trönuhrauni 8, Hafnarfirði.
þarf aöeins að renna saman tveimur
Gefjunar svefnpokum
gera úr þeim einn tvíbreiðan poka.
fisléttur og hlýr, fóðraður með dralon eða ull.
Ytra byrði úr vatnsvörðu nyloni, innra byrði úr bómull
N'ú þarfekki lengur
að taka hjónarúmið með
íútileguna!
GEFJUN AKUREYRI
Kuldaboli Kjartansson
Magnús Kjartansson, iðnaö-
ar- og orkumálaráðherra, er
maður mjög ritfær og mál-
hress i besta lagi. Hins vegar
er honum ekki jafn sýnt um að
framkvæma og aö tala. Þann-
ig hefur t.d. ekkert sést enn af
„iðnbyltingu” þeirri, sem
hann boðaði með miklum
bægslagangi fyrir um hálfu
öðru ári — nema það sé iðn-
bylting að setja flestöll meiri-
háttar iðnfyrirtæki landsins á
hausinn eins og horfurnar eru
nú. Og þannig hefur honum lit-
ið orðið úr verki i raforkumál-
unum, eins og fólk viða út um
landsbyggðina hefur gróflega
fengið að kenna á eins og
dæmin frá s.l. vetri sanna, þar
sem fólk varð að flýja hibýli
sin vegna rafmagnsleysis og
kulda.
Þegar Magnús Kjartansson
hóf störf i rikisstjórn Ólafs Jó-
hannessonar talaði hann
mikið um þær stórfram-
kvæmdir, sem hann ætlaði að
beita sér fyrir i raforkumálun-
um. Gárungar gáfu honum ná
nafnið Rafmagnús.
En litil orka hefur fengið frá
þeim rafmagnúsinum — enda
illt að virkja orðaflauminn
einan. Aður en næsti vetur
gengur i garð og áður en að þvi
kemur, að fólk þarf að flýja
köld hús sin vegna raforku-
skorts vill Alþýðublaðið þvi
gjarna koma á framfæri nýju
og betra viðurnefni á hæstvirt-
um orkumálaráðherra, sem er
frekar i samræmi við efndir
hans en orð. Tillagan er sem
sé sú, að Magnús Kjartansson
fái þá sem viðurnefni það
gamla og góða islenska orð —
KULDABOLI.
Væri þá ekki
ráö að rýja!
Af og til birtast i blöðum
stórfréttir af útflutningi is-
lenskra landbúnaðarafurða.
Oft eru það þó meira en litið
vafasamt, hvort þær fréttir
séu góðar fréttir eða ekki.
Eins og t.d. þegar fyrir all-
löngu var frá þvi skýrt, að tek-
ist hefði að selja mikið magn
af isl. lambakjöti út fyrir land-
steinana. Þá gleymdist nefni-
lega að geta þess, að verðið
fyrirþetta prýðisgóða kjöt var
aðeins brot af þvi, sem fyrir
það þurfti að fást — og jafn-
framt láðist að benda á það, að
þessi ágætu útflutningsvið-
skipti áttu hlut að þvi siðar-1
meir er leið á sumarið
, aö kjötbirgðirnar i landinu
þrutu og grípa varð til sumar-
slátrunar i fyrra lagi með
þeim afleiðingum, að kjötpris-
arnir stigu hálfa leið til himna.
Ein slik frétt birtist i blöðun-
um nú fyrir skemmstu. Þar
var frá þvi sagt, að nú sé
geysimikill markaöur fyrir
isl. ull i Bandarikjunum. Þvi
ber að sjálfsögöu að fagna.
En hafa ferðalangar um
sveitir landsins ekki veitt þvi
athygli, aö fé gengur nú viöast
órúið um og er þó komiö fram
á mitt sumar? Astæðan mun
Framhald á bls. 4.
Hafnarfjarðar Apótek
Opið öll kvöld til kl. 7
Laugardaga til kl. 2
Helgidaga kl. 2 til 4.
BLOMAHUSIÐ
simi 83070
Skipholti 37
Opið tii kl. 21.30.
Einnig laugardaga
og sunnudaga.
ÞAÐ BORGAR SIG
AÐ VERZLAIKRON
Nuddarar
stofna
félag
Nýlega var stofnað Félag is-
lenskra nuddara, F.Í.N. og er
tilgangur félagsins, að vinna að
hagsmunum og menntun starfs-
fólks á nudd- og gufubaðsstof-
um. Stjórn félagsins skipa:
Ólafur Þór Jónsson, formaður,
Anna Hjaltadóttir, ritari, og
ölöf S. Guðmundsdóttir, gjald-
keri. Samfara vaxandi áhuga
almennings fyrir gildi nudds og
gufubaöa til hressingar og
heilsubótar, hefur oröið æ ljós-
ari þörfin fyrir kennslu i þessari
starfsgrein, en hérlendis hefur
ekki til þessa verið starfræktur
skóli i nuddi. Með stofnun stétt-
arfélags i greininni hefur veriö
stigið mikilvægt skref til úrbóta
á þessu sviði.
Stjórn félagsins lýsir von sinni
til þess, að þeir, sem áhuga hafa
á þessum málum, hafi samband
við stjórn félagsins, sem gefur
allar upplýsingar um starfsemi
félagsins.
Sveins-
stykki
til
sýnis
Sveinspróf i húsgagnasmiði
hafa staðiö yfir sfðustú 3 vikur,
12 nemar gengust undir próf að
þessu sinni og er það svipaður
fjöldi nema og siðustu ár.
Flestir hafa nemarnir hannað
sveinsstykki sin sjálfir og eru
þau smiðuð úr hnotu, palesand-
er, teak og furu, og eru þar 11
skápar og eitt skrifborð.
Sveinsstykkin eru til sýnis I
Iðnskóianum I Reykjavik 1. hæð
stofu 202, sýningin verður opin
fimmtudaginn 11. júli kl. 13 til 22
aðeins þennan eina dag, að sýn-
ingunni er ókeypis aðgangur.
DÚflft
í GlflEÍIDflE
/ími 84200
ShSi
©
Fimmtudagur 11. júlí 1974