Alþýðublaðið - 25.11.1974, Side 3

Alþýðublaðið - 25.11.1974, Side 3
EGGERT FORMAÐUR FRAMKVÆMDASTJÓRNAR Fyrsti fundur nýkjörinnar framkvæmdastjórnar Alþýöuflokksins var haldinn i gær. Fráfarandi formaöur hennar, Baldvin Jónsson, baöst undan endurkjöri. Formaöur framkvæmdastjórnarinnar var kjörinn Eggert G. Þorsteinsson, varaformaöur Orlygur Geirsson og ritari Siguröur E. Guðmundsson. Voru þeir allir einróma kjörnir. Framkvæmdastjórnina, sem kjörin var á fyrsta fundi nýkjörinn- ar flokksstjórnar Alþýöuflokksins i fyrri viku, skipa þessir: Formaöur: Eggert G. Þorsteinsson, varáformaöur: örlygur Geirsson, ritari: Siguröur E. Guömundsson, aörir stjórnarmenn: Arni Gunnarsson, Baldvin Jónsson, Benedikt Gröndal, Garðar Sveinn Arnason, Gylfi Þ. Glslason og Kristin Guðmundsdóttir, Varamenn eru Jón Armann Héöinsson og Arnbjörn Kristinsson. Lést eftir átök Klukkan 3.50 aöfaranótt sunnudags kom maö- ur á lögreglustöðina i Vestmannaeyjum og til- kynnti, aö hann hefði lent i átökum viö annan og lægisá eftir á Vestmannabrautnr. 24. Lögreglan fór þegar á vettvang og fann manninn þar sem til var visað. Var maðurinn, sem hét Þorvaldur Guöjónsson, skipstjóri á v/b Sjöfn i Vestmanna- eyjum þar meðvitundarlaus. Lögreglan flutti hann þegar á sjúkrahús, en fékk þá vitneskju þaöan skömmu siðar, aö maöurinn væri látinn. Likiö veröur sent til Reykjavikur til krufningar. Máliö er aö öðru leyti I rannsókn. Þorvaldur heitinn var 48 ára að aldri, kvæntur Leiðrétting Arni Gunnlaugsson, hrl., hefur sent blaöinu eftirfarandi leiöréttingu á fréttatilkynningu Rauðsokka, sem Alþýöublaöiö birti á föstudag: „1 Alþýðublaöinu i dag, 22. nóv., er birt póli- tiskt áróöursplagg frá Rauösokkahreyfingunni, en I þvi er undirritaður borinn fyrir ummælum, sem ég hefi aldrei viðhaft, en teljast ærumeið- andi, svohljóðandi: „Þaö þjónar engum tilgangi aö konur séu aö vinna utan heimilis nema þá þei’n einum aö safna sér peningum fyrir lúx s svo sem Mallorkaferðum”.” HORNIÐ Að borga undir afturendann á fólki og leiki þess, sukklíf og skemmtanir Alþýöublaöinu hefur borist bréf frá áhöfn Skirni AK 16, sem er á sildveiðum i Norðursjó, og er þaö svohljóðandi: „Við, ásamt fleirum bátum, eru búnir að vera hér I 4—6 mánuöi og veröum hér fram aö jólum. Aö visu má draga hálfan mánuö frá, en þann tima vorum viö heima hjá fjölskyldum okk- ar nú i haust. Ástand hér i Norðursjónum er vægast sagt viöbjóöslegt, hérna erum við aö afla verömæta fyrir þjóöarbúiö, á meöan háskólalýður og annar „æöriskólalýöur”, spókar sig og leikur sér með gjaldeyrinn er- lendis, gjaldeyrinn sem sjó- mannastéttin aflar þjóöarbúinu með haröri baráttu og þraut- seigju. Viö, til að mynda, getum ekki fengið helming á viö þann gjaldeyri sem þetta fólk fær. Viö fáum, ef við tökum danskar krónur, 750 danskar krónur á mánuöi i gjaldeyri. En ef maöur fer erlendis til að leika sér, færö þú peninga sem samsvarar frá 27.500—50.000 islenskum krón- um i ferðamannagjaldeyri og spreöar þvi eins og ekkert sé. Viö höfum komist að raun um aö sennilega er gjaldeyririnn sem viö öflum ekki eins dýrmætur og af er látiö, fyrst Pétur og Páll geta fengiö hann til að leika sér með. Hvers vegna er ekki haml- að á móti þessari eyöslu? Er ekki nóg aö viö vinnandi menn i þjóöfélaginu borgum undir afturendann á þessu fólki, þó viö þurfum ekki aö borga lika undir leiki þess, sukklif og skemmtan- ir, þvi tilfelliö er að margt af þessu fólki hefur ekki unniö handtak i þjóölifinu i mörg ár. Oft hefur þaö komið fram opin- berlega i fjölmiðlum, að margt af þessu fólki er i skóla til aö finna „sjálftsig”. Viö erum nú á þeirri skoöun aö fólk finni sig og slna út i hinu vinnandi þjóölifi. Hitt er lika grátlegt, aö svo eftir fjölda ára þegar hinir vinnandi menn, sem eru búnir aö marg- borga skólagöngu þessa fólks, sjá ekki árangurinn af þessari skólagöngu. Margt af þessu fólki fer erlendis og sest þar aö. Og þjóðlifiö fær ekki krónu til baka úr þessu fólki' Það er stór spurning hvort ekki sé hægt aö gera einhverjar hliðarráðstaf- anir, en þar er æöri stjórnvalda að sjá við þessu stóra gati á þjóölifskerfinu. Það er ekki i valdi, eöa umsjón hinna vinn- andi stétta, þær fá vist engu ráðiö I þessum efnum. Það virö- ist rikjandi stefna i menntamál- um þjóðarinnar aö framleiða embættismenn. En hvaö eiga þessir embættismenn að gera? A meöan rikir algert öngþveiti i menntamálum og sér i lagi skólamálum atvinnuveganna. Kemur ekki aö þvi aö atvinnu- vegirnir verða lagöir niöur og annar hver maöur hafi doktors- nafnbót eða einhverja gráðu úr háskóla. Þessir menn geta ekki farið út i atvinnulifið. Þessir menn geta ekki fariö I fiskvinnu, eða járniðnaöarvinnu, eöa ein- hverja erfiöa og óþrifalega vinnu. Nei. Þjóðfélagið er rotnað nið- ur, orðið staðnað i hringavit- leysu menntamálanna. Það fer að koma og er komið aö vissu leyti, að örðugt er að manna skip og báta i aörar atvinnu- stéttir, er snúa að atvinnuveg- unum. En tugir manna meö embættispróf eru á lausum kili, á styrkjum frá hinum örfáu vinnandi mönnum. Oft hefur verið þörf, en nú er nauösyn að stööva þetta allt, stokka upp, hreinsa til og reyna aö lagfæra þetta áöur en I meira óefni er komiö. Það er skritiö aö þegar efnahagsörðugleik a hnútar koma, skuli alltaf höggviö á hnútinn hjá hinum efnalitlu si- stritandi láglaunamönnum. Og verster þaö aö verkalýösfélögin kingja þessum bita án þess aö blikna. Þetta eru ekki verka- lýösfélög! Nei! Þeir, sem þar eru og stjórna eru gamlir og uppþornaöir karlfauskar, sem búnir eru aö gleyma hvaö verkalýðsbarátta er. Við fengum út úr hverri seldri milljón, áður en hliöarráöstaf- anir blessaörar rikisstjórnar- innar komu til — þar er átt við bráöabirgðalög rikisstjórnar- innar, til bjargar sjávarútveg- inum. — Til höfuös sjómönnum segjum viö. Þaö eru leikirnir þeirra, þessara valdhafa: Háseti fékk 20.000 krónur af hverri milljón, 2. vélstjóri, 2. stýrimaður og kokkur fengu 25.000 krónur af hverri milljón. 1. vélstjóri og 1. stýrimaður fengu 30.000 krónur og skipstjóri fékk 55.500 krónur af hverri milljón. Núna i dag fær hásetinn tæpar 18.000 krónur af hverri milljón. 2. vélstjóri, 2. stýrimaöur og kokkur 21—22.000 krónur, 1. vél- stjóri og 1. stýrimaður fá 26—27.000 krónur og skipstjóri fær 51.131 krónur af hverri milljón. En þetta eru mál verkalýðsfé- laganna. Þessar tölur eru tekn- ar meö fyrirvara, þvi ekki hafa félögin sent trúnaðármönnum sinum neinar fréttir af þessum málum, en það er vlst þeirra mál. Þaö er nauösynlegt aö okkar áliti, aö impra á þessum málum nú, á meöan skólalýður og ann- aö fólk heldur að þetta sjó- mannslif sé einhver lúxus. Þeir hinir sömu ættu að ráöa sig til sjós og sjá hvað sjómennska hefur upp á aö bjóða. Við hugs- um að þaö mundi þá fara af þvi mesti glansinn. Sjómenn, sem koma ekki heim til sin nema stutta stund i einu, eru kannski heima hjá sér 1—2 mánuöi allt áriö. A bara þessu skipi eiga 19 börn pabba sinn úti á sjó, og vlöa eru fleiri börn á skip. Viö förum nú að slá botninn i þetta bréf, en hætta er á þvi, aö fleiri verði þau frá okk- ur hér á Skirni, þvi nóg er til aö skrifa um. Og þaö er mikil ólgan i sjómannsblóðinu. Með þökk fyrir birtinguna. Nokkrar nýjar bækur frá Leiftri: Ævisaga Hafsteins Sigurbjarnarsonar frá Reykholti í Höfðakaupstað, skráð af honum sjálfum. — Bókin er merk aldarfarslýsing og ljós vottur þess, hvern þátt íslenzk alþýða á í menningarsögu þjóðarinnar. Bjart er um Breiðafjörð Minningar Sigurðar Sveinbjörnssonar frá Bjarneyjum á Breiða- firði. Sigurður er enginn viðvaningur á ritvellinum. Hann á margar greinar í Dýraverndaranum og heimildarmaður er hann að npkkrum sögnum i bókinni „Breiðfirzkir sjómenn". Sigurður er átthagafróður og náttúruskoðari af lifi og sál. Otskæfur eftir Bergsvein Skúlason. Frásagnir í þessari bók eru mis- gamlar, segir Bergsveinn. Nokkrar hafa orðið útundan i fyrri bókum um Breiðafjörð og Breiðíirðinga, aðrar orðið til eftir að bækurnar .voru prentaðar. Kvöldrúnir, þriðja og síðasta bindi Minningaþátta Matthiasar bónda á Kaldrananesi. „Hér er ekki á ferð stórbrotin afrekssaga, að- eins lífsmynd manns, sem vann þjóð sinni vel og fórnaði helft ævi sinnar i þágu útskagasamfélags,“ segir á bókarkápu. ÍSLENDA, bók um forníslenzk fræði, eftir Benedikt Gíslason frá Hofteigi. Þetta er önnur útgáfa bókarinnar. Fyrri útgáfan kom út 1963, og seldist þá upp á örskömmum tíma. Þjóðkunnur fræðimað- ur, John Langelyth, fyrrum embættismaður í danska mennta- málaráðuneytinu, sem undanfarin ár hefur unnið að athug- unum á kirkjusögu, hefur nýlega samið merkt ritverk um aðdraganda kristnitökunnar á Islandi. — I formála nefnir hann þrjá Islendinga, sem ritað hafa um kristnitökuna á íslandi: Björn M. Ólsen, Barða Guðmundsson og Benedikt Gíslason frá Hofteigi. Hann talar um Benedikt sem einn hinna mörgu viðlesnu lærðu manna i bændastétt á íslandi og segir íslendu hafa orðið til þess að vekja áhuga sinn á að kanna sögu- heimildir um kristnitökuna á Islandi. Niðurstaða hans á þess- um rannsóknum er mjög merkileg. En það geta menn gengið úr skugga um með því að lesa bókina. Glætur eftir Sigurrós Júlíusdóttur. — 1 bókinni eru fjórar ástarsögur, sem gerast hér á landi. Af barna- og unglingabókum hafa komið út i haust: PÉTUR MOST, 5. (siðasta hefti). — STEINI OG DANNI í stór- ræðum. — GÖMUL ÆVINTÝRI. — BOB MORAN (Hermenn Gula skuggans). — FRANK OG JÓI (tvær bækur): Dularfulla merkið og Maður i felum. — NANCY (tvær bækur): Eld- drekinn og Skíðastökkið. Bækur sendar um allt land gegn kröfu. Bókaútgáfan LEIFTUR hf. Auglýsið í Alþýðublaðinu: Sími 28660 og 14906 \ Sinfóníuhljómsveit ísiands Tónleikar I Háskólablói fimmtudag 28. nóvember kl. 20.30. Stjórnandi Vladimir Ashkenazy og einsöngvari Sheila Armstrong sópransöngkona. Fluttar veröa arlur eftir Mozart og Tsjaikowský, Sinfónia nr. 40 I G moll eftir Mozart og Sinfónla nr. 4 eftir Sibelius. Aögöngumiöar seódir I bókabúö Lárusar Blöndal, Skóia- vörðustig 2 og I bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar Austurstræti 18. I-m Tökum að okkur gerð FRYSTI- OG KÆLIKLEFA í sambýlishúsum og verzlunum • Gerum fullnaðartilboð í efni (einangrun, allar vélar, hurðir o. og vinnu fl.) Ármúla 38 ■ Sími 8-54-66 Þriðjudagur 26. nóvember T974. o

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.